Morgunblaðið - 14.11.2011, Page 7
ÞÝSKALAND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðs-
markvörður í handknattleik, lenti í
heldur óskemmtilegri lífsreynslu í
Þýskalandi á föstudagskvöldið.
Björgvin var á leið í útileik í Bal-
ingen með liði sínu Magdeburg. Rút-
an sem flutti þá á leikstað keyrði
fram á ljótt bílslys sem nýlega hafði
átt sér stað. Um var að ræða bana-
slysið þar sem þýsku tvíburabræð-
urnir Bernd og Reiner Methe létu
lífið. Þeir voru eitt virtasta dóm-
araparið í hinni vanþakklátu hand-
boltadómgæslu og áttu að dæma leik
Balingen og Magdeburgar.
Gat ekki hafa endað vel
„Við vorum í rauninni bara rétt á
eftir þeim. Við komum á slysstaðinn
þegar slysið hafði nýlega gerst og
nýbúið að ná fólki út úr bílunum. Allt
lögreglu- og sjúkralið var enn á
staðnum og aðkoman var ekki falleg.
Þegar við keyrðum þarna framhjá
þá sáum við á útliti bílanna að þessi
ferð gæti varla hafa endað vel fyrir
þá sem voru um borð. Þar sem mað-
ur átti ekki von á því að þarna væru
einhverjir á ferð sem maður þekkir
þá spáði ég ekki meira í því. Þegar
við vorum hálfnaðir með upphit-
unina fyrir leikinn þá fréttum við af
því hverjir voru þarna á ferðinni og
skömmu síðar að þeir hafi látist í
slysinu,“ sagði Björgvin þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í gær
og spurði hann út í þessa lífsreynslu.
Mikið um slysið fjallað
Að sögn Björgvins hefur mikið
verið rætt og ritað um slysið í
Þýskalandi og hann segir þá bræður
hafa verið farsæla í sínum störfum.
„Já, gríðarlega mikið en auðvitað
sérstaklega í handboltaheiminum.
Þeir voru bæði góðir dómarar og
góðir menn. Þetta snertir því marga
og er mikið sjokk fyrir handbolta-
heiminn. Þar sem þeir voru tvíbura-
bræður þá er þetta væntanlega mik-
ið áfall fyrir þeirra fjölskyldu enda
hræðilegur atburður,“ sagði Björg-
vin ennfremur
Ekkert lið stöðvar Kiel
Morgunblaðið forvitnaðist um það
hjá Björgvini hvort hann teldi Alfreð
Gíslason og Aron Pálmarsson geta
haldið sínu striki í toppbaráttunni.
Lið þeirra, Kiel, hefur byrjað leiktíð-
ina frábærlega og hefur fullt hús
stiga eftir tólf leiki í deildinni. „Ég
sé ekkert stöðva Kiel. Ég hef séð
flesta leiki þeirra og sé ekkert lið
stöðva þá í deildinni. Líklega er
þetta frekar orðið spurning um
hversu mörg stig þeir missa frá sér
og ég held að þau verði ekki mörg.
Hugsanlega mættu þeir enn brjál-
aðri til leiks í haust af því þeir töp-
uðu titlinum til Hamborgar á síðasta
tímabili. Þeir sýndu visst frumkvæði
strax í fyrsta leik með því að slátra
Flensburg og síðan þá hefur þetta
nánast verið vandræðalegt fyrir
önnur lið því það á enginn möguleika
á móti þeim. Þess vegna bendir ekk-
ert til þess að þeir láti þessa forystu
af hendi og ég sé heldur ekkert lið
sem gæti hrifsað hana af þeim því
hin toppliðin hafa átt mjög misjöfnu
gengi að fagna,“ sagði Björgvin af
hreinskilni.
Þrjú af fjórum efstu liðunum eru
undir stjórn Íslendinganna Alfreðs
Gíslasonar, Guðmundar Guðmunds-
sonar og Dags Sigurðssonar. „Þetta
segir nokkuð um hversu mikið vit Ís-
lendingar hafa á handbolta. Íslend-
ingar njóta virðingar í Þýskalandi og
þessir menn hafa unnið fyrir því með
sínum árangri að fá að stjórna þess-
um liðum,“ sagði Björgvin Páll við
Morgunblaðið.
„Hræðilegur atburður“
Björgvin Páll Gústavsson og samherjar hjá Magdeburg keyrðu fram á bana-
slysið í Þýskalandi Segir yfirburði Kiel í deildinni vera nánast vandræðalega
Morgunblaðið/Golli
Kattliðugur Björgvin Páll Gústavsson sýnir snilli sína í leik á móti Þjóðverjum á HM í Svíþjóð.
Þýski handboltinn
» Björgvin Páll Gústavsson
sér ekkert lið stöðva Kiel í bar-
áttunni um þýska meistaratit-
ilinn en Kiel hefur unnið fyrstu
tólf leikina í deildinni.
» Íslendingar stýra þremur af
fjórum efstu liðunum. Alfreð
Gíslason hjá Kiel, Guðmundur
Guðmundsson hjá Rhein-
Neckar Löwen og Dagur Sig-
urðsson hjá Füchse Berlin.
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2011
Þau undur og stórmerki gerðust í formúlu 1-
kappakstrinum í Abu Dhabi að hvorki heims-
meistarinn Sebastian Vettel né Mark Webber
komust á verðlaunapall. Þetta er í fyrsta sinn
síðan í fyrra að hvorugur ökumanna Red Bull
kemst á verðlaunapall. Annar hvor þeirra hef-
ur verið á palli í síðustu nítján mótum.
Það var Lewis Hamilton hjá McLaren sem
kom fyrstur í mark að þessu sinni, Fernando
Alonso hjá Ferrari varð annar og Jenson Butt-
on hjá McLaren endaði í þriðja sæti.
Heimsmeistarinn Vettel hóf keppnina á rás-
pól en hann hafði aðeins farið í gegnum tvær
beygjur þegar hann datt úr leik. Þá sprakk hjá
honum og á leiðinni á viðgerðarsvæðið
skemmdust hjólafestingar
og fjöðrunarbúnaður það
mikið að hann gat ekki
haldið áfram.
Hamilton náði forystunni
þegar sprakk hjá Vettel og
hélt forystunni til loka þó
svo Alonso gerði harða hríð
að honum um tíma.
Þetta var þriðji sigur
Hamiltons í ár, en sá fyrsti
síðan í júlí og hefur mikið
gengið á hjá honum á þessum tíma. „Vonandi
er þetta uppafið að endurkomu minni á meðal
þeirra bestu,“ sagði Hamilton. skuli@mbl.is
Red Bull komst ekki á verðlaunapall
Lewis
Hamilton
„Það mikilvægasta fyrir mig var að sjá
frammistöðu Jacks Rodwell, Phils Jones og
Dannys Welbeck. Þetta eru virkilega góðir en
ungir leikmenn. Það sama má segja um Kyle
Walker. Þessir leikmenn held ég að verði
mjög mikilvægir á Evrópumótinu næsta sum-
ar því þeir eru algjörlega óttalausir. Hugar-
far þeirra er hárrétt og ég gat séð að líkam-
lega og tæknilega eru þeir líka nógu góðir,“
sagði Fabio Capello landsliðsþjálfari Eng-
lands í knattspyrnu, hæstánægður með unga
leikmenn liðsins sem vann heims- og Evr-
ópumeistara Spánar 1:0 í æfingaleik á Wem-
bley um helgina.
Enska liðið var án nokkurra af sínum bestu
leikmönnum á borð við
Wayne Rooney og Steven
Gerrard en hafði samt bet-
ur með marki frá fyrirlið-
anum Frank Lampard.
Heimamenn sköpuðu sér
reyndar nánast engin færi
í leiknum en léku firna-
sterka vörn gegn Spán-
verjum sem náðu aðeins að
ógna marki undir lok leiks-
ins. Þetta var þriðja tap
Spánar í ár en áður tapaði liðið fyrir Ítalíu og
Argentínu í æfingaleikjum. Liðið vann alla
leiki sína í undankeppni EM. sindris@mbl.is
Ánægður með óttalaust ungviðið
Frank
Lampard
Finninn Jari-Matti Lat-
vala sigraði í
breska rallinu,
sem lauk í Wales í
gær. Frakkinn Sé-
bastien Loeb
fagnaði hins vegar
áttunda heims-
meistaratitli sín-
um í röð þótt honum tækist ekki að
ljúka keppni. Ljóst varð þegar á föstu-
dag, að Loeb myndi tryggja sér
heimsmeistaratitilinn í Wales en þá
féll Finninn Mikko Hirvonen, sá eini
sem ógnaði Loeb, úr keppni.
Loeb, sem er 37 ára, varð síðan
sjálfur að hætta keppni í gær þegar
honum hlekktist á milli 18. og 19. sér-
leiðarinnar. Hann var þá í 2. sæti eftir
Latvala.
Norðmaðurinn Mads Østberg varð í
2. sæti í Wales, 3,43 mínútum á eftir
Latvala. Norðmaðurinn Henning Sol-
berg varð þriðji.
Engum öðrum rallökumanni hefur
tekist að vinna heimsmeistaramótið í
rallakstri jafnoft og Loeb og hann hef-
ur einnig sigrað í flestum einstökum
keppnum, 103.
Loeb endaði með 222 stig í stiga-
keppni ökumanna. Hirvonen endaði
með 214. Frakkinn Sébastien Ogier
varð þriðji og Latvala fjórði.
Harry Redk-napp,
knattspyrnustjóri
Tottenham, mun
þurfa að svara fyr-
ir sig vegna ákæru
um skattsvik í jan-
úar en áætlað er
að tveggja vikna
réttarhöld hefjist
23. janúar. Redknapp er ásamt Milan
Mandaric, sem var stjórnarformaður
Portsmouth þegar Redknapp var
knattspyrnustjóri þar, gefið að sök að
hafa svikið undan skatti á árunum
2002 til 2007. Í fyrri lið ákærunnar
segir að Mandaric hafi lagt 145.000
dollara, jafnvirði 17 milljóna króna,
inn á reikning í eigu Redknapps í
Mónakó á tímabilinu frá 1. apríl 2002
til 28. nóvember 2007 til þess að sleppa
undan því að greiða skatta. Í seinni lið
ákærunnar fyrir sama brot segir að
Mandaric hafi lagt 150.000 dollara inn
á reikning Redknapps á tímabilinu frá
1. maí 2004 til 28. nóvember 2007. Þeir
Redknapp og Mandaric neita báðir
sök.
Redknapp, sem er talinn líklegur
arftaki Fabios Capellos sem þjálfari
enska landsliðsins þegar þar að kem-
ur, gekkst undir hjartaaðgerð á dög-
unum og hefur misst af síðustu leikj-
um Tottenham af þeim sökum.
Enska úrvals-deild-
arfélagið QPR,
sem Heiðar
Helguson leikur
með, hefur dregið
sig út úr kapp-
hlaupinu um Dav-
id Beckham, sem
er á leið til Evrópu
á ný eftir fjögur ár
með LA Galaxy í Bandaríkjunum að
sögn stjórans Neils Warnocks.
Fólk sport@mbl.is
Ástralski kylfingurinn Greg Chal-
mers sigraði á Opna ástralska
meistaramótinu í golfi um helgina
og er þetta í annað sinn sem hann
verður landsmeistari. Kappinn lék
síðasta daginn á 69 höggum, þrem-
ur höggum undir pari, og samtals á
275 höggum eða 13 höggum undir
pari. Það dugði til að halda þeim
John Senden og Tiger Woods fyrir
aftan sig en Senden náði ekki að
setja niður 15 metra pútt á síðustu
holunni til að tryggja sér bráða-
bana. Tiger, sem
eygði möguleika
á sínum fyrsta
sigri í langan
tíma, gerði um
tíma harða hríð
að Chamlers.
„Það voru tvær
brautir á síðari
níu og hræðileg
pútt hjá mér á
þriðja hring sem
fóru með þetta hjá mér,“ sagði Ti-
ger eftir mótið. Hann lék síðasta
daginn á 67 höggum þrátt fyrir að
fá tvo skolla á síðari níu holunum
og virðist tilbúinn að sýna og sanna
í Forsetabikarnum um næstu helgi
að Fred Couples, fyrirliði Banda-
ríkjanna, hafi gert rétt með að velja
hann í liðið. „Mér líður mjög vel og
það er virkilega ánægjulegt að vera
loks laus við meiðslin,“ sagði Tiger
eftir hringinn í gær.
Heimamaðurinn Geoff Ogilvy lék
manna best á lokahringnum, kom
inn á 65 höggum eða sjö höggum
undir pari. Hann sigraði á þessu
móti í fyrra en endaði í níunda sæti
að þessu sinni.
Senden lék þriðja hringinn í
mótinu frábærlega, kom þá inn á 63
höggum eða 9 höggum undir pari.
Hann lék fyrstu fjórar holurnar á
pari og fátt sem benti til að hann
væri að spila draumahringinn sinn.
En síðan kom fugl og örn og á
seinni níu holunum fékk hann sex
fugla. skuli@mbl.is
Greg Chalmers bestur í Ástralíu
Tiger sýndi gamalkunna takta Senden fygldi ekki eftir frábærum þriðja hring
Greg
Chalmers