Morgunblaðið - 14.11.2011, Side 8

Morgunblaðið - 14.11.2011, Side 8
8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2011 Magnús IngiHelgason og Helgi Jóhann- esson höfnuðu í öðru sæti í tví- liðaleik á Iceland International- mótinu í badmin- ton sem lauk í TBR-húsinu í gær. Þeir töpuðu fyrir Dönunum Thomasi Dew-Hattens og Mathiasi Kany í úrslitaleik sem fór í oddalotu. Magnús og Helgi komust yfir með sigri í fyrstu lotunni 21:16 en Dan- irnir unnu þær næstu 12:21 og 16:21.    Falur Birkir Guðnason og Matt-hías Sigurðsson voru at- kvæðamestir þegar Húnar sigruðu Jötna í miklum markaleik í Egilshöll á laugardagskvöldið 9:7. Var þetta fyrsti sigur Húna á Íslandsmótinu í íshokkíi. Falur skoraði tvö mörk og lagði upp tvö en Matthías skoraði einnig tvö og lagði upp eitt. Húnar koma frá Skautafélaginu Birninum en Jötnar frá Skautafélagi Akureyr- ar.    Usain Bolt,sprett- hlaupari frá Jam- aíku, og Sally Pe- arson, grinda hlaupari frá Ástralíu, hafa verið valin frjáls- íþróttafólk ársins af alþjóðafrjáls- íþróttasambandinu IAAF. Bolt vann tvenn gullverðlaun á heimsmeist- aramótinu í sumar, annars vegar í 200 metra hlaupi og hins vegar í 4x100 metra boðhlaupi. Er þetta í þriðja skipti sem Bolt er valinn frjálsíþróttamaður ársins í heim- inum. Eftir að hafa veitt verðlaun- unum viðtöku lýsti Bolt því yfir að hann hefði sett stefnuna á að vinna fern gullverðlaun á ÓL í London á næsta ári og hyggst þar keppa einn- ig í 4x400 metra boðhlaupi í fyrsta skipti. Pearson naut mikillar vel- gengni á tímabilinu og vann fimm- tán hlaup af þeim sextán sem hún tók þátt í á árinu. Hún varð heims- meistari í 100 metra grindahlaupi og náði besta tíma sem náðst hefur í greininni í 19 ár.    Sebastian Vettel á Red Bull vannsinn 14. ráspól á vertíðinni í Formúlu 1 þegar hann vann slag um ráspól kappakstursins í Abu Dhabi á laugardaginn. Með því jafnaði hann ráspólsmet breska ökuþórsins Nigel Mansell frá árinu 1992. Sjaldan hef- ur Vettel þurft jafnmikið að hafa fyrir pólnum, svo jöfn og hörð var keppnin.Á síðustu hálfu mínútunni sátu bæði Jenson Button og Lewis Hamilton á pólnum en Vettel átti lokaorðið.    DwyaneWade, leik- stjórnandi Miami Heat, hefur ákveðið að gefa kost á sér í ól- ympíulið Banda- ríkjanna í körfu- knattleik fyrir leikana í Lund- únum næsta sumar. Wade er þrítug- ur og var í frábæru liði Bandaríkj- anna sem vann til gullverðlauna í Peking fyrir þremur árum. Hann sagðist síðasta sumar ekki vera viss um hvort hann myndi gefa kost á sér en hefur nú tekið af allan vafa í viðtali við Reuters-fréttastofuna. Reiknað er með að LeBron James sé einnig tilbúinn til þess að spila og jafnvel Kobe Bryant, samkvæmt bandarískum fjölmiðlum. Banda- ríkjamenn gætu því púslað saman sannkölluðu draumaliði en hins veg- ar er enn spurning hvenær þessir kappar geta hafið leik að nýju í NBA-deildinni vegna verkfalls. Fólk sport@mbl.is BADMINTON Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „Er þetta ekki bara heimsmet?“ spurði badmintondrottningin Ragna Ingólfsdóttir í gam- ansömum tón þegar henni var ósk- að til hamingju með fimmta sig- urinn í einliðaleik kvenna á Iceland International-badmin- tonmótinu. Ragna lagði Akvile Stapusaityte frá Litháen í hörku- spennandi og skemmtilegum úr- slitaleik, 21:18, 17:21 og 21:17 í oddalotu. Ragna tapaði aðeins einni lotu í mótinu og þegar hún var beðin að bera þetta mót saman við hin fjögur þar sem hún sigraði, árið 2006, 2007, 2009 og 2010, sagði hún: „Úrslitaleikirnir á hin- um fjórum mótunum voru auðveld- ari en leikurinn í dag. Hann var mjög erfiður enda er þetta hörku- góð stelpa sem er að reyna, eins og ég, að komast inn á Ólympíu- leikana. Hún keppti á síðustu leik- um eins og ég og líklega kemst hún á leikana í London. Leiðin í úrslitaleikinn var fremur auðveld núna og ég hef oft lent í erfiðari leikjum á leiðinni í úrslit. Úrslitaleikurinn var mjög jafn og mikið sálfræðistríð, en sem bet- ur fer tókst mér að sigra,“ sagði Ragna. Mótið var ekki haldið árið 2008. Vantar fjögur góð mót Ragna stefnir að því að komast á Ólympíuleikana í Lundúnum á næsta ári og segist vera á réttu róli hvað það varðar. Hún fékk 2.500 stig á styrkleikalistanum fyr- ir sigurinn um helgina og staðan á þeim lista í byrjun maí á næsta ári segir til um hverjir komast á Ól- ympíuleikana. „Ég er komin með sex mjög góð mót sem gilda inn á ólympíulistann og þarf því fjögur góð til viðbótar, en það eru tíu mót sem gilda. Ég fer til Noregs á mót um næstu helgi, kem síðan heim í tvo daga áður en ég fer til Skotlands á ann- að mót. Það fer dálítið eftir því hvernig mér gengur á þessum mótum hvaða mót ég vel síðan í desember. Maður skipuleggur þetta ekki nákvæmlega langt fram í tímann. Ég vil hafa meðaltalið á bilinu 2.200-2.500 stig og held að það ætti að duga til að komast á Ólympíu- leikana. Þetta mót hérna um helgina og mótið í Þýskalandi um síðustu helgi voru fín því ég fékk 2.700 stig í Þýskalandi og 2.500 fyrir þetta mót. Mér hefur gengið rosalega vel upp á síðkastið og er á réttu róli,“ sagði Ragna. Mikil ferðalög Það fylgja því mikil ferðalög að reyna að komast inn á Ólympíu- leikana. „Já, þetta eru mikil ferða- lög og stundum tekur maður bara upp úr töskunum til að þvo og er svo rokinn aftur. Á ólympíuári er þetta sérlega mikið því maður þarf að ná tíu góðum mótum og getur auðvitað ekki treyst því að ná því á tíu mótum. Maður þarf því að spila á fimmtán til tuttugu mótum á árinu fyrir leikana, þannig að þetta eru eitt til tvö mót í mánuði,“ sagði Ragna, sem segist vera í mjög góðri æfingu og búin að ná sér að fullu af meiðslunum sem hún átti í fyrir ári. Ragna sat hjá í fyrstu umferð, lagði síðan Elínu Þóru Elíasdóttur 21:3 og 21:10 í næstu umferð og ensku stúlkuna Helenu Cable 21:16 og 21:5 í átta manna úrslit- um. Í undanúrslitum mætti hún Louise Hansen frá Danmörku og vann 21:12 og 21:10. Tinna og Snjólaug sigruðu Í tvíliðaleik kvenna var eitt er- lent par, dönsku stúlkurnar Calili Nystrup Wegener Clausen og S. Christensen Fie. Þær komust í úr- slitaleikinn, en lentu þó í kröppum dansi á móti Katrínu Atladóttur og Karitas Ósk Ólafsdóttur í átta liða úrslitum en unnu 16:21, 21:19 og 21:17. Í úrslitum mættu þær Tinnu Helgadóttur og Snjólaugu Jó- hannsdóttur og höfðu þær Tinna og Snjólaug sigur, en dönsku stúlkurnar urðu að hætta leik vegna meiðsla þegar staðan var 11:4 fyrir Tinnu og Snjólaugu í fyrstu lotu. Svíinn Mathias Borg sigraði í einliðaleik karla, lagði Tony Steph- enson frá Írlandi í úrslitum, 21:18 og 21:17. Mathias mætti Magnúsi Inga Helgasyni í átta manna úr- slitum og hafði þar betur 21:6 og 21:7. Karl Gunnarsson komst einn- ig í átta manna úrslit en tapaði þar fyrir Stephenson frá Írlandi 21:19 og 21:7. Magnús Ingi og Helgi Jóhann- esson komust í úrslit í tvíliðaleik karla og mættu þar Thomas Dew- Hattens og Mathias Kany og höfðu þeir dönsku betur í skemmtilegum leik, 16:21, 21:12 og 21:16. Danirnir Thomas Dew-Hattens og Louise Hansen sigruðu í tvenndarleik, lögðu Tony Steph- enson og Sinnead Chambers frá Írlandi 23:21 og 21:13 í úrslitum. Morgunblaðiði/hag Mikilvægt Ragna í úrslitaleiknum í gær en sigurinn er henni afar mikilvægur vegna stöðu hennar á heimslistanum. Ragna á réttu róli  Sigraði í fimmta sinn á Iceland International  Keppir í Noregi og Skotlandi næstu tvær helgar  Tinna og Snjólaug hömpuðu gullinu í tvíliðaleik Morgunblaðiði/hag Sigurvegarar Snjólaug og Tinna með gullverðlaun sín í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.