Morgunblaðið - 29.12.2011, Síða 6

Morgunblaðið - 29.12.2011, Síða 6
6 finnur.is 29. desember 2011 Sinead O’Connor gift í 16 daga Írski söngfuglinn og Íslands- vinurinn Sinead O’Connor hef- ur bundið enda á fjórða hjóna- band sitt, aðeins 16 dögum eftir að hún gekk að eiga Barry Herridge í Las Vegas. Segir hún á bloggi sínu að ósætti og þrýstingi frá fjölskyldu sinni sé að kenna en þeim leist víst takmarkað á mannsefnið. Mun hjónabandið því hafa farið út um þúfur einungis þremur klukku- stundum eftir athöfnina en brúðkaupið fór fram 8.des- ember síðastliðinn. Hjóna- kornin bjuggu þó saman í heila sjö daga áður en þau afréðu að skilja á að- fangadagskvöld. Hverfulir hveitibrauðsdagar Þórdís Arnljótsdóttir átti fína spretti í fréttum Sjónvarpsins á mánudags- kvöldið í umfjöllun um umferðarslys ársins. Tólf hafa látist og frá þeirri nap- urlegu staðreynd sagði Þórdís hreint og beint. En hún gerði annað sem jók vægi fréttarinnar til muna. Rifjaði upp sitthvað, til dæmis þegar ungur piltur lést í umferðarslysi á Ólafsvíkurvegi milli hátíða fyrir þrettán árum og hörmu- legt banaslys fyrir réttu ári í Bólstaðarhlíðarbrekkunni fyrir norðan þar sem vöruflutningabílstjóri lést. Einhverjir segja sjálfsagt að svona fréttaflutningur sé óþarfur og ástæðu- laust sé að rifja upp hörmulega atburði sem eru fleinn í holdi margra fjöl- skyldna: sár sem seint gróa. Vissulega á það sjónarmið alveg rétt á sér. Hitt ber hins vegar svo á að líta að af liðnum atburðum má læra og sú staðreynd er líka þekkt að krassandi myndir af umferðarslysum snerta fólk og vekja til vit- undar um að varlega skuli farið. – Og nú þurfum við bara meira af svona upp- rifjunarfréttum í öllum fjölmiðlum; ekki bara af umferðarslysum heldur líka úr efnahagsmálum, pólitíkinni, stjórnsýslunni atvinnulífinu og svo mætti áfram telja. Slíkt myndi veita mörgum gott og heilbrigt aðhald; körlum og konum sem nota skammtímaminni alþjóðar sem skálka- skjól. Allt upp á borðið og enga þöggun. Gleðilegt nýár! SÓFAKARTAFLAN RAUSAR Upprifjun og aðhald F yrsta Die Hard myndin, sem John McTiernan leikstýrði, sló umsviflaust í gegn og gerði stór- stjörnu úr Bruce Willis. Þess var því ekki langt að bíða að leikurinn yrði endurtekinn. Margir efuðust um að hægt væri að endurvekju stemninguna með góðu móti, en Finninn Renny Harlin leysti verk- efnið með miklum sóma. Í stað Nakatomi-skýja- kljúfsins í Los Angeles er vettvangurinn nú Dulles- alþjóðaflugvöllurinn í Washington. Þar hefur teymi harðskeyttra málaliða tekið völdin við flugumsjónina og hótar að steypa aðvífandi farþegavélum í jörðina með manni og mús ef ekki verður farið að kröfum þeirra. Hver annar en John McClane mætir til að skakka leikinn? Hún átti eftir að reynast býsna fengsæl, formúlan sem McTiernan og félagar duttu niður á við gerð fyrstu mynd- arinnar, eða „Á tæpasta vaði“ eins og myndin hét í hérlendum kvikmyndahúsum. Einn maður gegn hópi glæpamanna í ójöfnum slag þar sem hugvitssemin hjálpar hinum dugmikla einherja gegn ofureflinu. Mýgrútur sporgöngu- manna leitaði í smiðjuna í kjölfarið, (sbr. Under Siege-myndirnar með Steven Seagal) en fáir hafa upp- skorið í takt við bálkinn um harð- jaxlinn McClane. Það sem skildi hann frá hinum í upphafi var að hann virkaði hreint ekki sú ósigrandi sláturmask- ína sem nafnar hans John Rambo, John Matrix og fleiri sólódrápslistamenn voru. Þess í stað er McClane ómótstæðilega ósofinn, illa búinn, jafnvel timbraður, illa til hafður með úfið hár (meðan Willis hafði hár) og í fyrstu myndinni er hann berfættur í ofanálag. Það sakar ekki að hafa mannlega þáttinn til staðar, ekki síst þegar aðstæður eru með ómanneskjulegasta móti. Það hefur iðulega verið styrkur Die Hard-myndanna að óþokka- hlutverkin eru vel mönnuð úrvalsleikurum. Nægir í því sambandi að nefna Alan Rickman og Jeremy Irons. Í mynd númer 2 fer William Sadler með hlutverk foringja málaliðanna og gerir það býsna vel, grjótharður og miskunnarlaus. Þá er gaman að sjá gamla brýnið Franco Nero í litlu en þýðingarmiklu hlutverki. Tvær fyrstu myndirnar gerast í desember og það tilheyrir jólastússi margra að gleyma sér um stund við að kíkja á Die Hard, einkum fyrstu myndina. Fyrir þá sem ekki hafa séð númer 2 lengi er upplagt að kíkja á hana í kvöld. Die Hard 2: Die Harder er sýnd á Stöð 2 Bíó í kvöld. DAGSKRÁIN UM HELGINGA Áramóta- mót Hljóm- skálans ætti að vera eitthvað – þátturinn var jú eitt skemmtilegasta dæmið um innlenda dag- skrárgerð árið 2011. RÚV. Föstudagur E.T. er í hópi vin- sælustu og frægustu kvikmynda allra tíma, og hvort sem fólk ætlar að sjá hana í fyrsta sinn eða rifja stórvirkið upp, þá er það vel þess virði. Sýnd á RÚV. Föstudagur Ground- hog Day er úrvals- dæmi um það hvers vegna Bill Murray er með fyndnari mönnum. Frábær og mannbætandi skemmtun, full af húmor. Sýnd á Stöð 2. Laugardagur Er einhver sem horfir ekki á Skaupið á RÚV? Hver og einn hefur sína skoðun að áhorfi loknu en maður verður jú að sjá árið gert upp af grínurum þjóðarinnar. Er til betri leið til að byrja nýár- ið en að horfa á 50 mínútur af tískusýn- ingu undirfataframleið- andans Victoria’s Secret? Má vera, en áhorfendum Skjás 1 leiðist alltént ekki. Ódrepandi Einhver ástsælasti harðhaus kvik- myndanna er vafalaust lögreglumað- urinn John McClane, sem Bruce Willis hefur gert ódauðlegan á hvíta tjaldinu. Í fjórgang hefur McClane komist í hann krappan þegar hryðjuverkamenn hyggja á einhvern óskunda, eins og glöggt má sjá í mynd nr. 2 sem er sýnd í kvöld. * Undirbúningur er hafinn fyrir Die Hard 5. Hún gerist í Rússlandi og verður frumsýnd í febrúar 2013. *Atriðin í flughöfninni eru tekin íLos Angeles, svo myndin er varla tekin að neinu leyti í Washington, þar sem hún gerist. *Sökum snjóleysis þurfti framleiðsla Die Hard 2 að færa sig frá Washington til Minnesota og loks til Denver í Colorado. *Mynd nr. 2 er eina Die Hard myndin þar sem rán eða annars konar auðgunarbrot er ekki undirliggjandi. *Þar tók ekki betra við ogþá var loks afráðið að látasnjóvélar um framleiðsluna. Vissirþú að... William Sadler í hlut- verki Stuart ofursta. Laugardagur Sunnudagur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.