Morgunblaðið - 29.12.2011, Síða 14

Morgunblaðið - 29.12.2011, Síða 14
14 finnur.is 29. desember 2011 Það væsir ekki um fjölskylduna sem býr í villunni í Aspen í Colorado í Bandaríkjunum. Studio B arkitektastofan hannaði húsið að utan og inn- an. Húsið var hannað með það í huga að það félli sem best inn í um- hverfið. Í húsinu er dásemdarútsýni og ekkert ætti að skadda fegurð- arskynið. Húsið sjálft er vel hannað og fallegt og umhverfið í kringum húsið er sérstaklega vandað. Úti eru laugar og meira að segja eldstæði í einni þeirra. Þegar inn í húsið er komið eru ekki bara hefðbundin herbergi, eldhús og stofa heldur mögnuð innisundlaug. Það væri ekki ónýtt að taka smásundsprett í henni. Eldhúsið er opið og bjart. Stórir gluggar gera eldamennskuna himn- eska og innréttingin státar af góðu vinnuplássi. Það er sérstaklega fal- legt að klæða „barinn“ í eldhúsinu með við og skapar það hlýleika. Hver hlutur á sinn stað í húsinu og er lítið um óþarfa húsgögn eða skraut. martamaria@mbl.is Það er hægastur vandinn að fá sér sundsprett í innilauginni. Gaseldur lýsir upp stíginn að útidyrunum. Hornréttar línur inni á baðherberginu, nema hvað. Mögnuð inni- sundlaug í Aspen í Colorado Sjáið umfjöllun og fleiri myndir á mbl.is Nútímastíll í náttúrulegu umhverfi. Eldhúsið er bjart og opið og vinnurými nægt. Skarpar, beinar línur einkenna stofuna og stórir gluggar leyfa umhverfinu að flæða inn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.