Morgunblaðið - 29.12.2011, Side 15
29. desember 2011 finnur.is 15
Þ
ótti þér erfitt að vaxa upp
úr Legokubbum? Lang-
aði þig innst inni til að
verða arkitekt eða húsa-
smíðameistari? Ertu nörd fyrir sí-
gildri hönnun? Þá er dótið fundið
fyrir þig. Það heitir Lego Archi-
tecture.
Lego framleiðir á annan tug
frægra bygginga og mannvirkja
undir merkjum Lego Architecture
og kennir þar ýmissa spennandi
grasa. Tilurð línunnar má rekja til
þess að ungur arkitekt að nafni
Adam Reed Tucker sameinaði
brennandi áhuga sinn á arkitektúr
annars vegar og list hins vegar
með því að byggja fræg hús úr
Lego-kubbum og birti á heimasíðu
sinni. Lego fékk pata af þessu
hobbíi hans og þróaði í framhald-
inu línuna, í félagi við Tucker.
Skiptast settin í tvær línur, Archi-
tect Series og Landmark Series.
Sem fyrr segir kennir ýmissa
grasa í línunni og meðal frægra
bygginga má nefna Sears turninn í
Chicago (sem nefnist víst Willis-
turninn í dag), Geimnálina í
Seattle, Empire State, Fall-
ingwater og Robie House eftir
Frank Lloyd Wright og Brand-
enborgarhliðið í Berlín, svo nokkur
séu nefnd. Settin eru misstór –
þannig eru Burj Khalifa turninn í
Dubai, Sears og Empire State að-
eins úr handfylli af kubbum en
einbýlishúsin eftir Lloyd Wright
eru talsvert tilkomumikil módel.
Alkunna er hversu róandi og
uppbyggilegt það er að byggja úr
Legokubbum. Hér ætti því að vera
komið dót sem hentar smekk-
vísum á öllum aldri. Tilbúin eru
mannvirkin líka mikil prýði og
stofustáss. Hver vill ekki skreyta
híbýli sín með þrívíddarmódeli af
Farnsworth House eftir Mies Van
Der Rohe eða Rockefeller Center?
jonagnar@mbl.is
Brandenborgar-
hliðið, ekki síður
tignarlegt í
Lego-útfærslu.
RCA-turninn
gnæfir yfir Rocke-
feller Center.
Sears turninn.
Fyrirmyndin
stendur í
Chicago.
Guggenheim-safnið í New York
Hvern langar ekki að kubba?
Lego fyrir hönn-
unarnörda og
aðra smekkvísa
Robie House eftir
Frank Lloyd Wright.
Eitt frægasta ein-
býlishús veraldar,
Fallingwater.
Empire
State
turninn.
Í þetta nota ég hólkinn af eldhúsrúllu og
sker í tvennt. Einnig má nota hólk af kló-
settrúllu, hann passar akkúrat.
Gaman er að prenta út litla vísu eða
brandara og setja inn í ásamt nokkrum
nammimolum. Svo er bara að pakka inn í
fallegan pappír eða efni.
Sjálf nota ég jólapappírinn utan af jólapökkunum sem komu í hús um síðustu helgi og
krullubönd.
Svo þarf að stinga með nál jafnt og þétt allan hringinn í miðjunni svo að það sér auð-
veldara að opna.
Þetta er svo sett á matardiskinn hjá hverjum og einum þegar lagt er á borð fyrir ára-
mótasamkvæmið. Ekki bara fallegt borðskraut sem lífgar upp á heldur er líka gaman að
fylgjast með hvað hver og einn fær þegar knöllin eru opnuð.
Gleðilegt nýtt ár!
maja@mbl.isMorgunblaðið/Sigurgeir S
Gleði og glimmer um áramót
Að þessu sinni ætla ég að sýna ferlega einfalt föndur fyrir
áramótaveisluna, sem er eingöngu úr endurnýttum hlutum.
Það er ekki nýtt af
nálinni að gera svona
knöll úr þessum efn-
um en þetta er svo
skemmtilegt og eitt-
hvað sem allir í fjöl-
skyldunni geta gert.
Breytt og
bætt með
Maju