Morgunblaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 18
atvinna Átta ára var ég andagæslumaður. Hafði auga með öndum móður minnar; fuglum sem kvökuðu hátt. Voru stríðaldir og um haust voru þeir í sunnudagsmat heima á Húsatóftum á Skeiðum. Gestur Guðjónsson, verkfræðingur hjá Olíudreifingu. F yrirtæki og stofnanir eru í nýrri áætlun hvött til að móta samgönguáætlun og hvetja starfsfólk til að tileinka sér vistvænar samgöngur. Landspítalinn og fleiri stór fyr- irtæki og stofnanir hafa gert samning við Strætó bs. og starfs- fólk getur í krafti þeirra keypt sér árskort með talsverðum afslætti. Samningarnir eru víðtækir. Í þeim felst að fyrirtækin skuldbinda sig til að móta sér sína eigin sam- göngustefnu, þar sem starfsfólkið er hvatt til að nýta sér aðra kosti en einkabílinn til að komast á milli staða. Vilja hjóla og taka strætó Langflestir starfsmenn Land- spítalans nota einkabíl til að kom- ast til og frá vinnu, skv. könnun sem gerð var í haust. Flestir nota einkabíl vegna þess að þeim finnst þeir búa of langt frá spítalanum til að ganga eða hjóla ellegar henta almenningssamgöngur þeim ekki. Í könnuninni kemur fram að starfsfólkið telur ekki raunhæft að nota aðra samgöngumáta en einkabílinn því koma þurfi börnum í og úr skóla, tómstundastarfi og fleiru. Flestir segjast geta hugsað sé að fara öðruvísi milli staða en þeir gera nú, en telja of mikla fjar- lægð frá vinnustað vera fyr- irstöðu. Byrja snemma og hætta seint Birna Helgadóttir sinnir um- hverfis- og samgöngumálum hjá Landspítalanum. Hún segir að könnunin hafi verið liður í stefnu stofnunarinnar í umhverfis- og samgöngumálum. „Þessi könnun er góður grunnur til að móta enn frekar stefnu Landspítalans í þessum mála- flokki. Fram komu fjölmargar góð- ar hugmyndir frá starfsfólkinu sem vert er að skoða gaumgæfi- lega,“ segir Birna. Hún telur leiða- kerfi Strætó hindrun í vegi því vagnar hreinlega gangi ekki á þeim tímum sem slíkt henti starfsfólki. „Margir sem byrja snemma að vinna á morgnana geta ekki tekið strætó vegna þess að vagnarnir eru ekki á ferðinni alveg í bítið og vandamálið er hið sama seint á kvöldin. Skv. könnuninni munu ódýrari fargjöld leiða til þess að fleiri geta hugsað sér að nýta al- menningssamgöngur og því höf- um við nú gert þennan samning við Strætó bs. og ég vona að sem flestir kynni sér hvað er í boði,“ segir Birna. Hjólageymsla með vorinu Viðleitni stjórnenda Landspít- alans í þá átt að starfsfólk taki upp nýja háttu í samgöngumálum er ekki bara orðin tóm. Með vorinu verður tekin í notkun hjólageymsla við sjúkrahúsið, þar með verður aðstaða til að geyma hjólin. Þar verður ýmis þjónusta í boði, til dæmis aðstaða til að pumpa lofti í dekkin, svo eitthvað sé nefnt. „Þetta er vissulega hluti af okk- ar samgöngustefnu og ég er viss um að starfsfólkið kemur til með að nýta sér þessa nýju aðstöðu,“ segir Birna. karlesp@simnet.is Landspítali og fleiri móta samgöngustefnu. Fólk hjóli í vinnu eða taki strætó. Starfsfólkið taki upp nýja siði Morgunblaðið/Ómar Stærstur hluti starfsmanna Landspítalans, til dæmis þeir sem vinna á Borgarspítalanum, kemur til vinnu á einka- bíl. Nú reka stjórnendur stofnunarinnar áróður fyrir breytingum í þá átt að fólk komi frekar með strætó eða á hjóli. Morgunblaðið/Eggert Birna Helgadóttir hjólar gjarnan milli staða. Hennar starf á Landspítalanum felst meðal ann- ars í að fá starfsfólkið til að fylgja sínu fordæmi. Mikilvægt er að stytta vegalengdir ef fjölga á hjól- andi vegfarendum, segir í hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík sem samþykkt var í borgarstjórn á síðasta ári. Borgaryfirvöld telja að það markmið náist fyrst og fremst með þéttingu byggðar, eins og kveðið er á um í aðalskipulagi Reykjavíkur. Í ferðavenjukönnun sem gerð var 2009, kemur fram að mest notkun reiðhjóla er í hverfum vestan Kringlumýrarbrautar sem aftur rímar við þá staðreynd að fólk hjólar tæp- lega lengri leiðir – það er úr úthverfunum til vinnu t.d. í miðborginni. Eknar ferðir Reykvíkinga eru um það bil 500 þús- und kílómetrar á dag á dag. Meðallengd allra ferða er 3,23 km og eru 76% þessara ferða farin akandi. Flytjist 10% ökuferða yfir á hjól fækkar eknum ferð- um í borginni um 50 þúsund kílómetra á dag. Miðað við að meðallengd hjólaferðar sé 2 km. sparast um 100 þúsund eknir km á dag á götum borgarinnar. Sparnaður í útblæstri koltvísýrings væri með þessu 20 tonn á dag eða 730 tonn á ári. Hjólafólkið er vestan Kringlumýrarbraut- ar, segir í hjólreiðaáætlun Reykjavíkur Styttri vegalengdir hvetja til hjólreiða Allt að 1.500 manns verður tryggð atvinna með aðgerðum sem ríkisstjórn og fleiri standa að og hleypt verður af stokkunum strax eftir nýár. Til vinnu er yfirskrift átaks- ins þar sem fólk sem hefur verið án vinnu um langan tíma nýtur forgangs. „Við mun- um nálgast þetta viðfangsefni af brekku- sækni. Ætlum með öðrum orðum sagt ekki að víla neitt fyrir okkur þó þetta verði svolít- ið á fótinn að minnsta kosti í byrjun,“ segir Runólfur Ágústsson sem stýrir verkefninu. Áætlað er að aðgerðirnar verði til þess að lækka tölu atvinnulausra um 0,7%. Þannig var atvinnuleysi í sl. mánuði alls 7,1% en verður komið niður í 6,4% að ári náist markmið verkefnisins. „Við setjum þetta þannig upp að fyr- irtækin fá þá peninga sem ella færu í bóta- greiðslur til einstaklinga – en fjárveitingin er þá skilyrt því að sköpuð séu ný störf,“ segir Runólfur. Sér- staklega verður gætt að því að aðgerðir sem gripið verður til leiði ekki til sam- keppnisröskunar. Gert er ráð fyrir að sveitarfélögin skapi um helming þeirra starfa sem verða til með átakinu, en fyrirtæki á almennum markaði hinn helminginn; 750 störf hvor aðili. Munu Samtök atvinnu- lífsins fara í sérstakt kynningarátak meðal fyrirtækja innan sinna vébanda til að ná þessu markmiði. Þá er liður í aðgerðunum að gert verði samkomulag um samstarf Vinnumálastofnunar og VIRK – starfsend- urhæfingarsjóðs um þjónustu við það fólk sem minni starfsgetu hefur en fjöldinn. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Í átaki stjórnvalda og atvinnulífs verður kostað kapps að skapa ný störf og víst er að margir gætu hugsað sér að vinna í fiski, í stað þess að sitja auðum höndum og róa fram í gráðið. Stjórnvöld og hagsmunaaðilar í átaksverkefni Skapa 1.500 ný störf Runólfur Ágústsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.