Morgunblaðið - 29.12.2011, Qupperneq 21
29. desember 2011 finnur.is 21
Á
níunda áratug síðustu
aldar varð bílaframleið-
andinn Dodge frægur
fyrir framleiðslu á
traustum fjölskyldubílum. En und-
ir lok áratugarins var forstjórinn
tilbúinn til að hressa upp á ímynd-
ina og framleiða bíl fyrir þá sem
finnst gaman að keyra. Hann vildi
framleiða bíl sem líktist hinni goð-
sagnakenndu Shelby Cobra, en
það var alveg í andstöðu við alla
aðra bíla sem Dodge hafði fram-
leitt síðustu ár. Árið 1989 var hug-
myndabíllinn kynntur á bílasýn-
ingu. Viðbrögðin létu ekki á sér
standa, almenningur heimtaði að
fá þennan bíl á götuna.
Léttur bíll og hrár
Í byrjun árs 1992 var bíllinn
kominn í sölu á mettíma sem
Dodge Viper RT/10 Roadster. Þrjú
ár þykir skammur tími í þróun á
glænýjum bíl. En þessi fáu ár hafði
Dodge nýtt vel og fengið Carrol
Shelby til liðs við sig en hann er
maðurinn á bak við goðsögnina
Shelby Cobra. Carrol Shelby
stofnaði einnig fyrirtækið Shelby
American sem sérhæfir sig í að
breyta bílum frá Ford, þá aðallega
Mustang.
Við þróun Vipersins var einblínt
á að hafa hann sem léttastan og
varð hann fyrir vikið mjög hrár.
Ekki var hægt að fá hann með
hliðarrúðum, enginn hurðarhúnn
var að utan og því ekki hægt að
læsa honum. Enginn óþarfa tölvu-
búnaður var í bílnum á borð við
spólvörn og ABS-bremsur né loft-
kæling.
Lagað að þörfum sportbíls
Á þeim tíma sem unnið var að
því að koma bílnum í framleiðslu
var ítalski ofurbílaframleiðandinn
Lamborghini í eigu Chrysler, en
það er Dodge einnig. Það kom því
vel að notum þegar Dodge var að
þróa vélina í Viperinn. Ákveðið var
að nota tíu strokka vél sem notuð
hafði verið í Dodge-pallbíla og
setja hana í Viperinn.
En fyrst var hún send til Ítalíu
þar sem hún var létt og löguð að
þörfum sportbíls. Þegar vélin kom
til baka til Bandaríkjanna var hún
323 kg og skilaði 400 hestöflum
sem þýddi að Viperinn næði 296
km/klst hraða og gat náð 100
km/klst hraða úr kyrrstöðu á 4,6
sekúndum. Það þótti svakalegt á
þeim tíma og ýtti Chevrolet út í
svokallað hestaflakapphlaup.
Viperinn var
hestaflakóngurinn
En Chevrolet Corvette var helsti
keppinauturinn þegar Dodge setti
Viperinn á sölu. Chevrolet Cor-
vette hafði lengi verið með sín 350
hestöfl og virtist bara vera sátt við
það. Að vísu var hægt að fá sér-
staka ZR-1-útgáfu með rétt rúm-
lega 400 hestöfl.
Eftir þrjú ár í framleiðslu fékk
Viperinn yfirhalningu. Hann var
léttur enn frekar, bætt var við
hann hliðarrúðum og hurð-
arhúnum að utan en það sem
mestu máli skipti var að 50 hest-
öflum var bætt við sem gerir sam-
tals 450 hestöfl. Þessar breyt-
ingar skiluðu bílnum nú í 100
km/klst hraða á fjórum sek-
úndum og allt að 298 km/klst
hraða.
Á sama ári kynnti Chevrolet
nýja Corvette með 350 hestöfl og
hætti framleiðslu á kraftmiklu
ZR-1-útgáfunni. Það var ekki fyrr
en árið 2001 sem Chevrolet gat
keppt við Viperinn á ný þegar 405
hestafla Z06-útgáfan var kynnt.
Corvette Z06 var álíka snögg í
hundrað km/klst hraða og Viper-
inn en hann var ennþá hest-
aflakóngurinn.
Við það gat Dodge ekki unað og
árið 2003 var Dodge Viper SRT-10
kynntur til sögunnar. Sá bíll var
500 hestöfl, náði ennþá meiri
hraða og var ennþá sneggri í
hundrað km/klst hraða en fyr-
irrennari hans.
Við það sætti Chevrolet sig ekki
og árið 2005 var ný Corvette
kynnt með 400 hestafla vél. Ári
seinna var ný Z06-útgáfa kynnt
með 505 hestöfl.
Nýr Viper væntanlegur
Þegar þarna var komið sögu var
Chevrolet komið með fimm hest-
afla forskot og það þurfti Dodge
að bæta.
Viperinn fékk hundrað hestafla
aukningu árið 2008 sem þýddi að
hann hafði yfir að ráða 600 hest-
öflum. Þetta fannst Chevrolet-
mönnum ekki nógu gott og árið
2009 kynntu þeir til sögunnar
638 hestafla ZR-1-útgáfu. En nú
var skollin á heimskreppa og
sportbílar seldust ekki vel. Chrys-
ler, móðurfyrirtæki Dodge, fór á
hausinn og heyrði Viperinn því
sögunni til.
En Viper-aðdáendur voru ekki
búnir að syrgja lengi þegar Fiat
keypti Chrysler og kynnti áætlun
um nýjan Viper árið 2013. Þar
sem ítalski ofurbílaframleiðand-
inn Ferrari er einnig í eigu Fiat má
búast við flugeldasýningu þegar
nýr Viper fer í framleiðslu. Árið
2013 áætlar Chevrolet einnig að
ný Corvette fari í framleiðslu og
virðist hestaflakapphlaupið því
halda áfram þrátt fyrir hátt bens-
ínverð.
jonarnarsson@gmail.com
Dodge Viper var tímamótabíll sem hefur víða vakið athygli og selst vel
Dodge Viper eru skemmtilegur sportbílar enda hafa þeir til að bera ofurkraft sem gerir leiðina jafnan greiða.
Hestaflakapp-
hlaupið heldur áfram
En Chevrolet Corvette var helsti keppinaut-
urinn þegar Dodge setti Viperinn á sölu.
Chevrolet Corvette hafði lengi verið með sín
350 hestöfl og virtist bara vera sátt við það.
Norðmenn eru fráhverfir
dísilbílum
Aðeins þriðj-
ungur vill dísel
Samkvæmt nýrri rannsókn í Nor-
egi hafa Norðmenn gerst fráhverf-
ir dísilbílum. Segjast aðeins 34%
þeirra myndu kaupa bíl með dís-
ilvél ef þau skiptu um bíl nú. Þetta
kemur heim og saman við sölu á
dísilbílum sem verið hefur dræm í
ár.
Ástæðan fyrir þessu er sú
ákvörðun norsku stjórnarinnar að
auka álögur á dísilbíla í hlutfalli við
það hversu mikið gróðurhúsaloft
þeir losa, en í þeim efnum menga
þeir mun meira en bílar með bens-
ínvél.
Frá því gjöld voru lækkuð árið
2007 á vistvænustu dísilbílunum
hafði sala þeirra aukist jafnt og
þétt. Þar til í ár – fram að því að
fjárlagafrumvarp stjórnarinnar
kom fram – völdu þrír af hverjum
fjórum kaupenda nýrra bíla dís-
ilbíl. Nú þykir hins vegar allt benda
til að þróunin snúist við og hlut-
fallið færist í fyrra horf; verði nær
því sem var 2006 og fyrr er ný-
skráningar skiptust nokkurn veg-
inn jafnt milli dísil- og bensínbíla.
agas@mbl.is
Leó M. Jónsson,
iðnaðar- og véla-
tæknifræðingur,
varð bráð-
kvaddur á heim-
ili sínu í Höfnum
í Reykjanesbæ
19. desember
sl., 69 ára að
aldri. Leó skrif-
aði um bíla í áraraðir og ritstýrði
lengi tímaritinu Bílnum. Hann var
pistlahöfundur Morgunblaðsins
undanfarin ár og skrifaði meðal
annars vikulegar greinar í Finn-
ur.is. Síðasti pistill Leós birtist á
Þorláksmessu og var sá 267. í röð-
inni.
Í greinum sínum fjallaði Leó um
bíla af traustri þekkingu og gaf
lesendum góð ráð um hugs-
anlegar bilanir, viðgerðir og hvað
mætti betur fara. Fólk kunni vel að
meta þessa þjónustu eins og við-
brögð sem ritstjórn Morgunblaðs-
ins bárust vitnuðu best um. Jafn-
framt veitti Leó starfsfólki í
bílgreininni, það er umboðum,
verslunum, verkstæðum og öðr-
um, aðhald með gagnrýni sinni.
Að leiðarlokum þakka Finnur.is
og Morgunblaðið samfylgdina og
færa aðstandendum Leós sam-
úðarkveðjur.
Andlát
Leó M.
Jónsson
Óskum
viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegs nýs árs
og þökkum viðskiptin
á liðnu ári
d g
e ef
d
d
d
Kaplahraun 8, 220 Hafnarfjörður, sími 848 7007 og 453 7075
www.glerpro.is - glerpro@gmail.com fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík,
Selfossi og Barðanum Skútuvogi
Nú þegar veturinn er genginn í garð munu langar frostnætur reyna
Tudor er
hannaður til þess að þola það álag sem slíkar nætur skapa.
Forðastu óvæntar uppákomur. Tudor - betra start!
Betra start fyrir þig og þína