Morgunblaðið - 28.01.2012, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2012
1. deildar liðin fá verðug verkefni í undanúrslitum
Powerade-bikarsins í körfuknattleik en dregið var í
gær. Í kvennaflokki þarf 1. deildar lið Stjörnunnar að
fara í Stykkishólm og spila við öflugt lið Snæfells og í
karlaflokki þarf 1. deildar lið KFÍ að fara til Keflavík-
ur og mæta þar sigursælu liði Keflvíkinga.
„Auðvitað hefði verið gaman að fá leik vestur en
það er skemmtilegt verkefni og mikil upplifun að fara
til Keflavíkur og spila,“ sagði Pétur Már Sigurðsson,
þjálfari KFÍ, sem situr í toppsæti 1. deildar og er á
góðri leið með að endurheimta sæti sitt í efstu deild.
Hann segir KFÍ eiga möguleika á því að leggja Kefla-
vík að velli.
„Keflavík er með mjög góða leikmenn, frábæran
þjálfara og mikla hefð. Við erum samt ekki búnir að
tapa leiknum fyrirfram og munum gefa allt í þennan
leik. Annað væri óvirðing gagnvart þeim og ég tel
reyndar að við getum unnið hvaða lið sem er á Íslandi
þegar við erum í stuði,“ sagði Pétur og hans menn
létu Hamar frá Hveragerði finna fyrir því í 8-liða úr-
slitum og unnu stórsigur 104:69.
„Við undirbjuggum okkur mjög vel fyrir þennan
leik þar sem við töpuðum fyrir þeim um daginn en þá
spiluðum við hræðilega illa. Í bikarleiknum komum
við vel undirbúnir og hittum á góðan skotleik. Boltinn
flaut vel á milli manna og menn voru ákveðnir í vörn-
inni. Það er okkar stíll og við höfum unnið vel í því í
vetur. Þetta var ekki einhver súperleikur hjá okkur
en við spiluðum vel og stjórnuðum leiknum og það er
hluti af leikskipulaginu,“ sagði Pétur Már ennfremur í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Bikarmeistarar KR í karlaflokki fara norður á
Sauðárkrók og mæta Tindastóli. Í kvennaflokki
mætast Njarðvík og Haukar.
Eftirfarandi lið mætast:
Karlar:
Keflavík - KFÍ
Tindastóll - KR
Konur:
Snæfell - Stjarnan:
Njarðvík - Haukar:
Á mbl.is er að finna myndbandsviðtöl við Guð-
rúnu Ósk Ámundadóttur Haukum og Láru Flosa-
dóttur Stjörnunni. kris@mbl.is
Erfiðir leikir hjá 1. deildar liðunum
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Liðsfélagarnir eiga sinn þátt í því að
ég fékk þessi verðlaun. Ég er með góða
leikmenn við hliðina á mér og snjallan
markmann fyrir aftan. Ég hefði aldrei
fengið þessi verðlaun ef ég væri ekki í
flottu liði,“ sagði landsliðskonan Dagný
Skúladóttir úr Val af hógværð í samtali
við Morgunblaðið í gær en hún var valin
besti leikmaður umferða 1-9 í N1-deild
kvenna í handknattleik.
Dagný er nokkuð sátt við spila-
mennskuna hjá Íslandsmeisturunum.
„Framan af mótinu spiluðum við mjög
vel en svo kom smá bakslag hjá okkur
og við töpuðum einum leik á móti Fram.
Á heildina litið erum við bara sátt við að
vera á toppnum með Fram. Það hefur
ekkert komið okkur á óvart í sjálfu sér
og við vissum auðvitað að við færum
ekki taplausar í gegnum Íslandsmótið.“
HM í Brasilíu var gulrót
Dagný var í barneignarfríi frá hand-
boltanum á síðasta keppnistímabili og
það er því nokkuð athyglisvert hversu
sterk hún hefur komið til leiks í vetur.
Sérstaklega í ljósi þess að í fyrra reikn-
aði hún með því að láta staðar numið í
boltanum. Dagný sat á áhorfendapöll-
unum í Árósum fyrir rúmu ári og fylgd-
ist með kvennalandsliðinu spila í loka-
keppni EM. Þá áttaði hún sig á því að
stórmót væri eitthvað sem hana langaði
að upplifa eftir tíu ára landsliðsferil.
Áður en mánuðurinn var liðinn var hún
mætt til leiks með Val í deildabik-
arnum.
„Ég náði fínu undirbúningstímabili í
sumar en ég náði því ekki í fyrra. Ég
kom inn í þetta á miðju tímabili síðasta
vetur en var ekki með á fullu. Ég ákvað
hins vegar að vera með á fullu á þessu
tímabili enda sá ég landsliðið og HM í
Brasilíu í hillingum. Það gaf mér auka
kraft til þess að gera þetta af alvöru,“
sagði Dagný en hún hefur áður á ferl-
inum tekið sér frí vegna barneigna og
unnið sig inn í landsliðið á ný.
Æfði á morgnana í sumar
„Ég kom tiltölulega snemma inn í
handboltann eftir fyrsta barnið en var
eiginlega hætt eftir annað barnið. Það
vantaði hins vegar annan hornamann-
inn þegar Valur lék í deildabikarnum á
síðasta tímabili og þá datt ég inn í þetta
aftur,“ sagði Dagný en hún lagði mikið
á sig í sumar til að koma sér í lands-
liðsklassa á ný.
„Það tekur á og maður þarf að æfa
aukalega til að ná þessu. Ég lagði meira
á mig í sumar en ég þurfti að gera og
tók morgunæfingar í ræktinni, þar sem
ég hljóp og styrkti mig.“
Síðasta tímabilið?
Dagný ætlar ekki að lýsa neinu yfir
varðandi framhaldið en svo gæti farið
að hún léti staðar numið að þessu tíma-
bili loknu en það yrði blóðtaka fyrir
landsliðið þar sem Dagný var í stóru
hlutverk á HM. „Ég ætla bara að meta
stöðuna eftir þetta tímabil. Ég er bara
með eins árs samning því ég þorði ekki
að semja til tveggja ára. Ég er ekki
tilbúin til að svara þessu strax,“ sagði
Dagný ennfremur.
Ásamt Dagnýju í úrvalsliðinu voru
samherjar hennar Guðný Jenný Ás-
mundsdóttir markvörður og Anna Úr-
súla Guðmundsdóttir línumaður. Fram
á tvo leikmenn í liðinu en lið Fram er
það eina sem unnið hefur Val á leiktíð-
inni. Um er að ræða skytturnar Stellu
Sigurðardóttur og Birnu Berg Har-
aldsdóttur. Leikstjórnandinn kemur
frá Vestmannaeyjum en það er Ester
Óskarsdóttir og hægri hornaðurinn er
Sólveig Lára Kjærnested úr Stjörn-
unni. Einar Jónsson úr Fram var val-
inn þjálfari umferða 1-9.
Morgunblaðið/Ómar
Best Dagný Skúladóttir hornamaðurinn knái í liði Vals var kjörin besti leikmaður í umferðum 1-9 í N1-deild kvenna.
Dagný var hætt
í handboltanum
Vildi upplifa stórmót eftir að hafa horft á EM í Danmörku
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
Serbar skrifuðu kafla í hand-
boltasögu landsins þegar liðið komst í
úrslit á Evrópumótinu í handknatt-
leik sem fram fer á heimavelli þeirra.
Þeir unnu Króata í gær, 26:22, í und-
anúrslitunum og mæta Dönum í úr-
slitum á sunnudaginn. Króatar þurfa
að láta sér lynda að spila um brons-
verðlaun við Spánverja.
Gríðarlega vel studdir af um 14
þúsund áhorfendum í höllinni í Bel-
grad létu Serbar margfalda meistara
Króatíu hreinlega líta illa út í síðari
hálfleik eftir að síðarnefnda liðið
hafði yfir í hálfleik, 14:13. Serbarnir
spiluðu yfirvegaðan og góðan hand-
bolta þar sem markvörður þeirra,
Darko Stanic, og Momir Ilic fóru fyr-
ir sínum mönnum. Stanic varði um 15
skot og Ilic skoraði átta mörk, þar af
fjögur af vítalínunni.
Mikill hiti var í áhorfendum eins og
búist hafði verið við. Öryggisgæslan
fyrir og meðan á leik stóð var engu
lík, með vopnaða lögreglumenn og
sérsveitarmenn fremsta í flokki. Tíð-
indamaður Morgunblaðsins í höllinni
lýsti því sem svo að það hefði verið
erfitt að fara á salernið þar sem sér-
sveitarmennirnir stóðu við öllu búnir.
Sem dæmi um stemninguna heyrð-
ist ekkert í þjóðsöng Króata, fyrir
bauli og köllum stuðningsmanna
Serba fyrir leikinn.
Það setti þó ljótan blett á leikinn
þegar markvörður Króatíu bjó sig
undir að verja vítakast og leysigeisla
var þá beint að augum hans. Annars
voru áhorfendur til friðs á meðan
leiknum á stóð ef undan er skilið þeg-
ar þeir kveiktu á blysi í stúkunni. Það
hafði þó engin áhrif á leikinn.
Sagan með Dönum
Það verður væntanlega ekki minni
stemning á úrslitaleik Dana og Serba.
Þar hafa þó Danirnir söguna með sér
en þeir unnu gullverðlaun árið 2008 í
Noregi. Þá líkt og nú komu bæði liðin
í úrslitaleiknum úr sama milliriðl-
inum. Þeir unnu þá Króata 24:20.
Sama hvernig fer geta Serbar vel við
unað enda aldrei unnið til verðlauna á
Evrópumóti.
Heima-
menn í úr-
slit á EM
Gleði Serbar í gær sýndu að þeir
kunna að fagna þegar vel gengur.
Reuters
Reykjavíkurmót karla
Þróttur – Fjölnir.......................................1:1
Daði Bergsson 10. – Haukur Lárusson 57.
Valur – Fylkir ...........................................2:3
Rúnar Már Sigurjónsson 6., 42. (víti) –
Hjörtur Hermannsson 11., 87., Jóhann
Þórhallsson 63.
England
Enska bikarkeppnin, 4.umferð:
Watford – Tottenham ..............................0:1
Rafael van der Vaart 42.
Everton – Fulham.....................................2:1
Denis Stracqualursi 27., Marouane Fellaini
73. – Danny Murphy 14. (víti)
Þýskaland
Hannover – Nurnberg ..............................1:0
Staðan:
Bayern M. 18 12 1 5 44:13 37
Dortmund 18 11 4 3 40:13 37
Schalke 18 12 1 5 41:23 37
Gladbach 18 11 3 4 28:12 36
Werder Bremen 18 9 3 6 30:31 30
Leverkusen 18 8 5 5 25:24 29
Hannover 19 6 9 4 21:24 27
Hoffenheim 18 6 5 7 19:19 23
Wolfsburg 18 7 2 9 24:34 23
Stuttgart 18 6 4 8 24:23 22
Köln 18 6 3 9 27:36 21
Nürnberg 19 6 3 10 19:29 21
Hertha Berlín 18 4 8 6 24:28 20
Hamburger SV 18 4 7 7 22:32 19
Mainz 18 4 6 8 24:32 18
Kaiserslautern 18 3 8 7 13:21 17
Freiburg 18 4 4 10 22:39 16
Augsburg 18 3 6 9 15:29 15
Holland
PSV – Vitesse ............................................3:1
Staðan:
PSV Eindh. 19 12 5 2 52:21 41
AZ Alkmaar 18 12 3 3 37:16 39
Twente 18 10 6 2 48:18 36
Ajax 18 9 7 2 47:24 34
Heerenveen 18 8 7 3 41:28 31
Feyenoord 18 9 4 5 35:24 31
Vitesse 19 8 5 6 24:20 29
Groningen 18 8 5 5 31:29 29
Roda 18 8 1 9 32:41 25
Den Haag 18 6 4 8 25:34 22
Breda 18 6 3 9 24:31 21
Heracles 18 5 5 8 28:27 20
Nijmegen 18 6 2 10 18:27 20
Utrecht 18 4 6 8 29:36 18
Waalwijk 18 5 3 10 17:33 18
Venlo 18 3 4 11 18:43 13
Graafschap 18 3 3 12 16:41 12
Excelsior 18 2 5 11 12:41 11
KNATTSPYRNA
EM í Serbíu
Undanúrslit:
Danmörk – Spánn .................................25:24
Króatía – Serbía ....................................22:26
Danmörk og Serbía leika til úrslita á
morgun.
Spánn og Króatía leika um 3. sætið á
morgun.
Leikur um 5. sætið:
Makedónía – Slóvenía .......................... 28:27
HANDBOLTI
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Egilshöll: Fram – Víkingur ....................L15
Fótbolti.net-mótið:
Akranes: ÍA – Keflavík ......................L10.30
Fífan: Breiðablik – FH ...........................L11
Kórinn: Selfoss – Grindavík ..............L11.30
Kórinn: Stjarnan – ÍBV .....................L13.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin:
Seltjarnarnes: Grótta – ÍBV.................. L13
Hlíðarendi: Valur – Stjarnan..................L14
Ásvellir: Haukar – FH ............................L16
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, IE-deildin:
Stykkishólmur: Snæfell – Njarðvík.......L14
Grafarvogur: Fjölnir – Hamar ..........L16.30
Hlíðarendi: Valur – KR......................L16.30
Keflavík: Keflavík – Haukar..............L16.30
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
ÍR-ingar halda Stórmót ÍR í frjálsíþróttum
í 16. sinn um helgina. Mótið, sem fram fer í
Laugardalshöllinni, hefur unnið sér sess
sem langstærsta opna innanhússmótið í
frjálsum sem haldið er árlega hér á landi.
Mótið hefst í dag klukkan 9 og á morgun
hefst keppni klukkan 10.
BORÐTENNIS
Stóra Víkingsmótið fer fram í íþróttahúsi
TBR við Gnoðarvog í dag og hefst keppni
klukkan 10.30.
LYFTINGAR
Íslandsmeistaramótið í bekkpressu fer
fram í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum í
dag og hefst keppni kl. 12.00.
Í KVÖLD!