Morgunblaðið - 28.01.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.01.2012, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JANÚAR 2012 Frjálsíþróttafólk verður í eldlínunni í Laugardalshöllinni alla helgina en ÍR-ingar halda sitt árlega stórmót og er þetta í 16. sinn það er haldið. Mót- ið er langstærsta opna innanhúss- mótið frjálsum sem haldið er árlega hér á landi. Keppt er í aldursflokkum frá 8 ára og yngri upp í karla og kvennaflokk. Keppendur verða nálægt 800 og koma frá 23 félögum víðs vegar um landið og þá senda Færeyingar kepp- endur til leiks en áætlað er að þeir verði um 40 talsins. Mjög fjölskylduvænt „Þetta mót er alltaf að verða stærra og stærra hjá okkur. Mótið er mjög fölskylduvænt og ef ég tala fyr- ir okkur ÍR-inga þá eru foreldrar að koma og starfa og taka þátt í þessu af lífi og sál með börnunum sem er al- veg frábært,“ sagði Fríða Rún Þórð- ardóttir, varaformaður frjáls- íþróttadeildar ÍR og keppniskona til margra ára, við Morgunblaðið í gær. Margt af besta frjálsíþróttafólki landsins verður á meðal keppenda og má fastlega búast við að einhver Ís- landsmet falli á mótinu. „Reykjavík International mótið var um síðustu helgi og fólk er gjör- samlega að detta í gírinn eins og sást af árangrinum á því móti. Ég geri fastlega ráð fyrir því að við sjáum nokkur Íslandsmet falla og svo eru líka nokkrir að reyna að ná lágmarki fyrir heimsmeistaramótið innanhúss sem haldið verður í Istanbul í Tyrk- landi í mars,“ sagði Fríða Rún. Keppni hefst í dag klukkan 9 og stendur fram eftir degi og á morgun hefst svo keppnin klukkan 10. Ókeypis aðgangur er að mótinu og óhætt að hvetja fólk til að mæta og sjá efnilegasta frjálsíþróttafólk landsins í bland við þá bestu. gummih@mbl.is Falla metin í Höllinni?  Stórmót ÍR í frjálsum íþróttum fer fram í Laugardalshöllinni um helgina í 16. sinn  Flest af besta frjálsíþróttafólki landsins verður á meðal keppenda Morgunblaðið/Eggert Stórmót Hafdís Sigurðardóttir og Hrafhild Eir Hermóðsdóttir verða báðar með á stórmóti ÍR-inga í Laugardalshöllinni um helgina. KÖRFUBOLTI Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Grindvíkingar héldu sigurgöngu sinni áfram í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik þegar Fjölnir kom í heimsókn í gær. Grindvík- ingar höfðu mikla yfirburði þegar upp var stað- ið en lokatölur voru 107:73. Þetta var 12. sigur þeirra í deildinni en aðeins Þór Þ. hefur unnið meistaraefnin. J’Nathan Bullock fór fremstur í liði Grindvíkinga með 26 stig og 17 fráköst en lék þó aðeins rúmar 28 mínútur. Vörn Fjölnis réð lítið við hann sem og sóknarleik Grindvík- inga sem er greinilega aftur farinn að virka vel eftir smá hnökra í undanförnum leikjum. Grindvíkingar eru á langefstir með 24 stig, sex stigum meira en Stjarnan og Keflavík sem bæði unnu mótherja sína í gær. Stjarnan fór að Hlíðarenda og mætti þar Valsmönnum sem enn eru án stiga eftir 13 umferðir. Stjarnan þurfti ekki að hafa mikið fyrir sigrinum en lokatölur voru 96:71. Renato Lindmets sem gekk til liðs við Stjörnuna á dögunum eftir dvöl í Portúgal var með 20 stig og 7 fráköst. Hann mun vænt- anlega reynast Stjörnumönnum drjúgur á loka- kaflanum. Montnir að vinna stórt á Sauðárkróki Á Sauðárkróki brotlentu heimamenn þegar Keflvíkingar komu í heimsókn. Tindastóll hafði verið á miklu flugi og unnið sex af síðustu sjö leikjum liðsins í deildinni þegar kom að leiknum í gær. Gestunum úr Keflavík var hinsvegar aldrei ógnað og höfðu að lokum sigur, 91:72. Magnús Þór Gunnarsson fór fyrir sínum mönnum og skoraði 25 stig og tók auk þess 10 fráköst. Hann var að vonum ánægður með sig- urinn þegar Morgunblaðið náði tali af honum eftir leikinn. „Þetta var mjög góður sigur. Það er alveg óskiljanlegt að Tindastóll hafi verið á miklu skriði að undanförnu miðað við hvernig þeir spiluðu í þessum leik. Þeir voru frekar slakir nær allan tímann.“ Annar og þriðji leikhluti gerði útslagið að mati Magnúsar enda virkaði vörn Keflvíkinga þá eins og hún gerir best. „Við héldum þeim í 14 stigum í öðrum og 8 í þriðja, við slátruðum þessu þá. Það er aldrei auðvelt að koma á þennan völl og við erum því rosalega montnir að hafa komið hingað og farið burt með stigin tvö.“ „Það er bara að mæta og vinna“ Kristoffer Douse lék sinn fyrsta leik með Keflvíkingum í kvöld en honum er ætlað að leysa Steven Gerard Dagustino af hólmi sem yf- irgaf félagið á dögunum. Hann náði ekki að æfa með liðinu fyrir leikinn og spilaði aðeins í 10 mínútur. Magnús sagði að miðað við aðstæður og það sem hann sýndi í gær, ætti hann eftir að styrkja liðið. Keflavík er nú í mikilli baráttu um 2. sætið við bæði Stjörnuna og svo KR sem er tveimur stigum á eftir þeim þegar níu umferðir eru eft- ir. „Við stefnum á að vera í einu af fjórum efstu sætunum þegar þessi keppni klárast og úr- slitakeppnin byrjar. Markmiðin eru skýr, við viljum komast í úrslitakeppnina til að vinna þar, komast í úrslit í bikar og vinna hann. Körfubolti er ekkert flókin íþrótt – það er bara að mæta og vinna,“ sagði Magnús. Sex tíma rútuferð frá Keflavík til Sauð- árkróks virtist ekki hafa mikil áhrif Magnús og félaga. Hann bjóst þó við lengri ferð heim enda færðin líklega ekki búin að skána. „Þetta verður spennandi, við setjum eins og eina mynd í tækið. Það er allt annað að ferðast heim eftir sigurleik,“ sagði Magnús hress og kátur.  Stöðuna í deildinni ásamt tölfræði er að finna hægra megin á síðunni. Tindastóll brotlenti á heimavelli Morgunblaðið/Eggert Skreyttur Renato Lindmets var stigahæstur leikmanna Stjörnunnar gegn Val að Hlíðarenda í gær. Valur – Stjarnan 71:96 Vodafonehöllin, Iceland Express-deild karla, 27. janúar 2012. Gangur leiksins: 0:4, 4:12, 13:19, 13:24, 24:37, 29:44, 29:46, 33:53, 37:61, 44:66, 51:73, 56:75, 62:87, 63:87, 67:91, 71:96. Valur: Ragnar Gylfason 14, Birgir Björn Pétursson 13/8 fráköst, Austin Magnus Bra- cey 13, Igor Tratnik 13/6 fráköst, Alexander Dungal 6, Kristinn Ólafsson 4, Hamid Dicko 3, Benedikt Blöndal 3, Bergur Ástráðsson 2. Fráköst: 11 í vörn, 10 í sókn. Stjarnan: Renato Lindmets 20/7 fráköst, Keith Cothran 16, Marvin Valdimarsson 15, Jovan Zdravevski 13, Justin Shouse 11/9 stoðsendingar, Guðjón Lárusson 8, Fannar Freyr Helgason 7/5 fráköst, Dagur Kár Jónsson 2, Sigurjón Örn Lárusson 2, Magn- ús Bjarki Guðmundsson 2. Fráköst: 14 í vörn, 9 í sókn. Tindastóll – Keflavík 72:91 Sauðárkrókur, Iceland Express-deild karla, 27. janúar 2012. Gangur leiksins: 2:8, 10:11, 20:19, 20:25, 22:31, 25:41, 32:47, 34:50, 34:61, 36:62, 40:66, 42:71, 52:77, 56:87, 70:89, 72:91. Tindastóll: Friðrik Hreinsson 15/6 stoð- sendingar, Maurice Miller 15, Svavar Atli Birgisson 14/4 fráköst, Curtis Allen 8/6 frá- köst/6 stolnir, Loftur Páll Eiríksson 6, Helgi Rafn Viggósson 6/5 fráköst, Þröstur Leó Jó- hannsson 5/4 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 2/5 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 1. Fráköst: 21 í vörn, 10 í sókn. Keflavík: Magnús Þór Gunnarsson 25/10 fráköst, Valur Orri Valsson 20, Jarryd Cole 15/9 fráköst, Halldór Örn Halldórsson 14/8 fráköst, Charles Michael Parker 9/9 frá- köst/5 stoðsendingar, Almar Stefán Guð- brandsson 6/4 fráköst, Kristoffer Douse 2. Fráköst: 35 í vörn, 11 í sókn. Grindavík – Fjölnir 107:73 Grindavík, Iceland Express-deild karla, 27. janúar 2012. Gangur leiksins: 5:4, 17:10, 21:19, 29:25, 40:29, 44:31, 49:37, 50:41, 57:44, 67:50, 75:53, 81:57, 89:62, 95:67, 103:69, 107:73. Grindavík: J’Nathan Bullock 26/17 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 17/5 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14, Giordan Watson 11/4 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 10/10 fráköst, Ryan Pettinella 9/7 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 9, Björn Steinar Brynjólfsson 5, Þorleifur Ólafsson 5/5 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 1. Fráköst: 31 í vörn, 21 í sókn. Fjölnir: Björgvin Hafþór Ríkharðsson 19/4 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 16, Nathan Walkup 13/9 fráköst, Calvin O’Neal 13, Jón Sverrisson 10/7 fráköst, Trausti Ei- ríksson 2. Fráköst: 19 í vörn, 6 í sókn. Staðan: Grindavík 13 12 1 1146:975 24 Stjarnan 13 9 4 1167:1085 18 Keflavík 13 9 4 1193:1101 18 KR 13 8 5 1133:1102 16 Þór Þorl. 13 8 5 1107:1057 16 Snæfell 13 7 6 1245:1176 14 ÍR 13 6 7 1131:1181 12 Tindastóll 13 6 7 1091:1140 12 Njarðvík 13 6 7 1103:1102 12 Fjölnir 13 5 8 1109:1188 10 Haukar 13 2 11 1003:1111 4 Valur 13 0 13 985:1195 0 1. deild karla Hamar – Breiðablik ...............77:57 Hveragerði, 1. deild karla, 27. janúar 2012. Hamar: Lárus Jónsson 17/4 fráköst, Svavar Páll Pálsson 14/13 fráköst, Halldór Gunnar Jónsson 13, Louie Arron Kirkman 9/6 frá- köst, Ragnar Á. Nathanaelsson 9/8 fráköst/4 varin skot. Breiðablik: Arnar Pétursson 12, Hraunar Karl Guðmundsson 9, Atli Örn Gunnarsson 8, Rúnar Pálmarsson 7, Snorri Hrafnkels- son 5, Hákon Bjarnason 4. Skallagrímur – FSu .............101:83 Borgarnes, 1. deild karla, 27. janúar 2012. Skallagrímur: Darrell Flake 24/19 frá- köst/10 stoðsendingar, Davíð Guðmundsson 23, Lloyd Harrison 17/4 fráköst/10 stoðsend- ingar, Egill Egilsson 10/5 stolnir, Hilmar Guðjónsson 8, Davíð Ásgeirsson 6, FSu: Steven Terrell Crawford 20/7 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 20/5 stoðsending- ar, Orri Jónsson 14, Sæmundur Valdimars- son 11, Bjarni Bjarnason 10/9 fráköst. Staðan: KFÍ 13 12 1 1245:1014 24 Skallagrímur 12 9 3 1059:990 18 Hamar 12 7 5 1062:999 14 Breiðablik 13 7 6 1123:1114 14 ÍA 12 6 6 994:964 12 Höttur 12 6 6 984:973 12 Þór A. 12 5 7 954:989 10 FSu 13 4 9 1082:1140 8 ÍG 13 4 9 1001:1177 8 Ármann 12 2 10 983:1127 4 Svíþjóð Norrköping – Sundsvall..........................97:96  Jakob Örn Sigurðarson var með 28 stig og Hlynur Bæringsson 18 fyrir Sundsvall. Pavel Ermolinskij er meiddur. NBA-deildin Orlando – Boston .....................................83:91 LA Clippers – Memphis..........................98:91 KÖRFUBOLTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.