Morgunblaðið - 28.02.2012, Page 1

Morgunblaðið - 28.02.2012, Page 1
HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Íslensku landsliðsmennirnir í handknattleik, Ás- geir Örn Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson, hafa hvor um sig skrifað undir þriggja ára samn- inga við Paris Handball. Þetta staðfestu þeir í samtali við Morgunblaðið í gær og kváðust afar spenntir að takast á við ný verkefni í nýju landi en báðir hafa þeir reynslu af því að leika í Danmörku og í Þýskalandi. „Ég er bara mjög sáttur og er fullur eftirvænt- ingar að takast á við ný verkefni hjá nýju liði í öðru landi,“ sagði Róbert í gær en samningur hans við Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi renn- ur út um mitt árið. „Það eru komnir mjög fjár- sterkir aðilar inn í félagið og þeir ætla sér að byggja liðið upp og koma því í fremstu röð og ég er afar spenntur að leggja mitt lóð á vogarskál- arnar og ekki skemmir fyrir að Ásgeir Örn kemur einnig til félagsins. Það spillir ekki fyrir að hafa landa sinn með. Auk okkar tveggja hefur liðið tvo aðra leikmenn í sigtinu, miðjumann og rétthenta skyttu,“ sagði Róbert sem hefur leikið með Gum- mersbach og Löwen í Þýskalandi auk Århus GF í Danmörku. Hann flytur ásamt eiginkonu og þremur börn- um til Parísar í sumar en yngsta barn þeirra hjóna fæddist í haust sem leið. Heyrt að París sé spennandi „Ég er virkilega ánægður með samninginn og hlakka til að skipta um land og læra nýtt tungu- mál. Síðan hef ég heyrt að París sé spennandi borg,“ sagði Ásgeir Örn léttur í bragði í samtali við Morgunblaðið. „Liðið ætlar sér líka stóra hluti á næstu árum þótt staða þess í dag sé ekki góð en það hefur tíma til að bjarga sér,“ segir Ásgeir Örn sem viðurkennir að hann kunni lítið sem ekkert í frönsku. „Ég lærði þýsku í framhaldsskóla og kann nánast ekki orð í frönsku og því er gaman að læra eitthvað nýtt,“ segir Ásgeir Örn ennfremur en honum stóð m.a. til boða að vera áfram hjá Hannover-Burgdorf þegar núverandi samningur rennur út í vor. „Mér finnst vera kominn tími til að breyta til og gera eitthvað nýtt úr því að það stóð til boða. For- sendur hafa breyst hjá Burgdorf síðan ég kom til félagsins vorið 2010. Þá var Aron Kristjánsson þjálfari þess og ég varð þriðji íslenski leikmað- urinn hjá liðinu. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar,“ segir Ásgeir sem flytur til Parísar ásamt sambýliskonu sinni, Hönnu Borg Jónsdóttur, en þau eiga von á frumburði sínum í júní. „Þetta verður ekki besti tíminn til að standa í flutningum en það verður að hafa það og síðan gætu Ólympíu- leikar og undirbúningur fyrir þá bæst ofan á,“ sagði Ásgeir Örn sem hefur leikið með Lemgo og Hannover-Burgdorf í Þýskalandi og GOG Gudme og Faaborg í Danmörku síðan hann gerðist at- vinnumaður í handknattleik fyrir sjö árum. Bjartsýnir á að forðast fall Paris Handball er um þessar mundir í næst- neðsta sæti frönsku 1. deildarinnar. Ásgeir Örn og Róbert viðurkenna að liðið sé ekki í spennandi stöðu sem stendur en samningar þeirra beggja halda hvort sem liðið leikur í 1. eða 2. deild á næsta keppnistímabili. „Menn eru bjartsýnir að að liðið bjargi sér frá falli, ef ekki þá verðum við bara að taka slaginn í 2. deild í eitt ár og endur- heimta sætið í efstu deild,“ sagði Róbert sem er hvergi banginn, ekki frekar en Ásgeir Örn. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru samningar þeirra beggja svo góðir að vart hafi verið hægt að hafna þeim þótt ekki sé loku fyrir það skotið að þeir félagar verði að leika í 2. deild eitt keppnistímabil ef Parísarliðið bjargar ekki sæti sínu 1. deild á endsprettinum. Tveir Íslendingar hafa áður leikið með Parísar- liðinu; Júlíus Jónasson og Gunnar Berg Vikt- orsson. Auk þeirra hafa Ragnar Óskarsson og Bjarni Fritzson leikið í efstu deild í Frakklandi. Ásgeir Örn og Róbert í nýtt ævintýri í París  Fjársterkir aðilar ætla að koma Paris Handball í fremstu röð  Liðið gæti þó verið fallið í 2. deild þegar Íslendingarnir mæta í sumar  Þriggja ára samningar Morgunblaðið/Golli Samherjar Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson eiga að baki fjölda leikja saman með landsliði Íslands og þeir leika saman með París Handball í Frakklandi næstu þrjú árin. ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012 íþróttir Körfubolti Ísfirðingar unnu 1. deildina í körfubolta með miklum yfirburðum og leika á ný í úr- valsdeildinni næsta vetur. Byggt upp til framtíðar. Duglegir og dagfarsprúðir útlendingar. 2 Íþróttir mbl.is Emil Hall- freðsson æfði af fullum krafti með íslenska landsliðinu í knattspyrnu í Podgorica í Svartfjallalandi í gærkvöldi. Greinilegt var að meiðsli þau sem hann hlaut á æf- ingu hjá Verona á Ítalíu um helgina voru ekki alvarleg. Allt bendir til að hann verði klár í slaginn þegar flautað verður til vináttulandsleiks Íslands og Svartfjallalands í Podgo- rica á miðvikudaginn. Vegna meiðsla Emils og Arons Einars Gunnarssonar var Pálmi Rafn Pálmarson kallaður inn í landsliðshópinn seint í fyrrakvöld og kom hann til móts við íslenska landsliðið síðdegis í gær. Að sögn Ómars Smárasonar hjá KSÍ, sem er í för með íslenska landsliðinu í Svartfjallalandi, er ekki ljóst enn hversu alvarleg meiðsli Arons Einars eru. Hann var ekki væntanlegur til höfuðborgar Svartfjallalands fyrr en seint í gær- kvöldi. Verður ástand hans skoðað í dag. Leikmenn íslenska landsliðsins æfðu á aðaleikvellinum í Podgorica í gærkvöldi að þeim Aroni, Eggerti Gunnþór Jónssyni, Gylfa Sigurðs- syni og Grétari Rafni Steinssyni undanskildum en þeir komu saman til landsins seint í gærkvöldi. Æfingin gekk vel en afar svalt er í Svartfjallandi eins og hefur raun- ar verið á öllum Balkanskaganum í rúman mánuð. iben@mbl.is Emil hress og æfði af krafti Emil Hallfreðsson Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska handknattleiks- liðinu Kiel, sem Aron Pálm- arsson leikur með, geta dregist á móti Degi Sig- urðssyni og Alex- ander Petersson í Füchse Berlin þegar dregið verður í 16 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í hand- knattleik í dag. Kiel verður í fyrsta styrkleikaflokki, af fjórum, ásamt HSV Hamburg og spænsku liðunum Barcelona og Atlético Madrid. Auk Berlínarliðsins eru Kadetten Schaffhausen frá Sviss, pólska liðið Orlen Wisla Plock og Montpellier frá Frakklandi í fjórða flokknum. „Íslendingaliðið“ AG Köbenhavn er í öðrum styrkleikaflokki og get- ur dregist gegn IK Sävehof, Sví- þjóð, Metalurg Skopje frá Make- dóníu, spænska liðinu Reale Ademar Leon og pólska liðnu Targi Kielce, sem Þórir Ólafsson leikur með. iben@mbl.is Alfreð getur mætt Degi Alfreð Gíslason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.