Morgunblaðið - 28.02.2012, Qupperneq 3
Ulricehamn varð Brynjar í 22. sæti í
1 km göngu með frjálsri aðferð og
áði nægilega mörgum FIS-stigum til
ð ná ólympíulágmarki. Keppnisrétt-
nn verða skíðagöngumenn þó að vinna
ér inn á tímabilinu frá júlí 2012 til 19.
anúar 2014 og kálið er því ekki sopið
ó í ausuna sé komið.
Þýtur upp heimslistann
Þessi athyglisverði árangur Brynj-
rs kemur hreinlega til með að þeyta
onum upp heimslistann. Hann ætti
úna að vera í kringum 800. sæti á
heimslistanum en var í 1715. sæti og
er því um að ræða bætingu upp á lið-
lega 900 sæti.
Brynjar fékk 94 FIS-stig fyrir göng-
una og varð hann liðlega 1,40 mínútum
á eftir Svíanum Tiio Soderhilem sem
sigraði en hann keppir í heimsbik-
arnum.
Daníel keppti síðast á ÓL
Brynjar er 24 ára gamall og miðað
við þessa frammistöðu gæti hann orðið
fyrsti íslenski skíðagöngumaðurinn til
að komast á Ólympíuleika í 20 ár.
Daníel Jakobsson keppti síðast í Nor-
egi árið 1994. Daníel vann sig einnig
inn á leikana árið 1998 í Japan en var
sestur í helgan stein og gaf því ekki
kost á sér.
Ólafur Th. Árnason náði reyndar
einnig lágmarki fyrir leikana í Banda-
ríkjunum árið 2002 en það var rétt fyr-
ir leikana og fresturinn var útrunninn.
Þeir Daníel og Ólafur eru báðir Ísfirð-
ingar en að þeim undanskildum hefur
Íslendingum reynst erfitt að ná lág-
mörkum í skíðagöngu á undanförnum
áratugum.
undir ólympíulágmarki
Sochi 2014 Brynjar Leó Krist-
insson stefnir á Ólympíuleikana.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012
SigurbergurSveinsson
og samherjar
hans í RTV Basel
leika hreinan úr-
slitaleik við St.
Otmar St. Gallen
annað kvöld um
sæti í úr-
slitakeppni sex
efstu liðanna um svissneska meist-
aratitilinn í handknattleik. Basel er í
7. sæti en St. Otmar í því 6. Sex efstu
liðin komast í úrslitakeppnina.
Dóra María Lárusdóttir, lands-liðskona í knattspyrnu, skoraði
í fyrsta deildaleik sínum fyrir Vi-
toria í Brasilíu á sunnudaginn. Lið
hennar og Þórunnar Helgu Jóns-
dóttur vann þá auðveldan útisigur á
Igrassu Real, 6:1, og skoraði Dóra
annað mark liðsins eftir um hálftíma
leik. Hún og Þórunn héldu síðan
áleiðis til Portúgals þar sem þær
hefja keppni með íslenska landslið-
inu í Algarve-bikarnum á morgun.
Þær missa af næsta deildaleik Vi-
toria vegna mótsins.
Guðjón ValurSigurðsson
er í áttunda sæti
yfir markahæstu
leikmenn í Meist-
aradeild Evrópu í
handknattleik.
Guðjón skoraði 8
mörk fyrir AG
Köbenhavn á
móti Kiel og hefur skorað 57 mörk.
Zlatko Horvard, leikmaður Croatia
Zagreb, og Frantisek Sulc úr Pick
Szeged eru markahæstir með 69
mörk hvor.
Bandaríkjamaðurinn HunterMahan bar sigur úr býtum á
heimsmótinu í holukeppni í golfi sem
lauk í Arizona í fyrrinótt. Mahan
komst þar með upp í 9. sæti á heims-
listanum og það er í fyrsta sinn sem
hann kemst á topp tíu listann en
hann var í 22. sæti fyrir mótið. Mah-
an hafði betur í úrslitaeinvígi gegn
Norður-Íranum Rory McIlroy. Luke
Donald frá Englandi situr á toppi
heimslistans, Rory McIlroy er í öðru
sæti og Englendingurinn Lee
Westwood er í þriðja sæti. Tiger
Woods féll úr leik strax í 2. umferð
heimsmótsins þegar hann beið lægri
hlut fyrir Nick Watney og Woods
féll þar með af listanum yfir þá 20
efstu á heimslistanum.
Búist er við þvíað argent-
ínski knatt-
spyrnumaðurinn
Carlos Tévez
leiki með varaliði
Manchester City
í dag þegar það
mætir Preston í
leik sem leikinn
verður fyrir lukt-
um dyrum. Tévez sneri aftur til æf-
inga hjá Manchester-liðinu í síðustu
viku en hann hefur ekkert leikið með
liðinu frá því í september eða frá því
hann neitaði að fara inn á í leik á
móti Bayern München í Meist-
aradeildinni. City mætir Bolton í
ensku úrvalsdeildinni um næstu
helgi. Ekki er reiknað með því að
Argentínumaðurinn taki þátt í þeim
leik en hann gæti komið við sögu um
aðra helgi þegar City mætir Swan-
sea, liði Gylfa Þórs Sigurðssonar.
Kobe Bryant, körfuboltasnilling-urinn hjá Los Angeles Lakers,
nefbrotnaði í stjörnuleiknum í Or-
lando í fyrrinótt en Lakers staðfesti
þetta í gær. Bryant, sem sló stiga-
met Michaels Jordans í stjörnuleik-
jum NBA, fékk högg í andlitið frá
Dwyane Wade og í ljós kom í gær-
morgun að nefið væri brotið. Hann
fer til sérfræðings í Los Angeles um
leið og hann kemur aftur heim.
Fólk sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Þetta er viðkvæmt mál, sem þurfti að
afgreiða mjög hratt til að byrja með á
föstudaginn. Við ætlum hinsvegar að
fara vel yfir allar hliðar þess, gefum
okkur þann tíma sem til þarf og reyn-
um að taka eins vandaða ákvörðun og
hægt er,“ sagði Hannes S. Jónsson,
formaður Körfuknattleikssambands
Íslands, við Morgunblaðið í gær.
Hann var þá spurður um frekari
eftirmál þess að dómararnir Karl
Friðriksson og Ágúst Jensson voru á
föstudag settir af öllum leikjum á veg-
um KKÍ um óákveðinn tíma.
Skilað vísvitandi of seint
Tildrögum þess var lýst í yfirlýs-
ingu sem KKÍ birti á vef sínum á
föstudag. Eftir leik Fjölnis og KKÍ í
undanúrslitum bikarkeppni unglinga-
flokks karla skrifaði dómarinn kæru
til aga- og úrskurðarnefndar KKÍ
vegna leikmanns Fjölnis sem sparkaði
í leikmann KFÍ. Í yfirlýsingunni seg-
ir:
„Karl Friðriksson dómari fékk sím-
tal eftir umræddan leik frá Ágústi
Jenssyni, dómara, sem dæmir fyrir
Fjölni. Í kjölfar þess tók Karl þá und-
arlegu ákvörðun að skila inn kærunni
vísvitandi of seint. Þar með myndi
aga- og úrskurðarnefnd ekki getað
tekið hana fyrir á réttum tíma svo að
umræddur leikmaður yrði mögulega
ekki í leikbanni í úrslitaleiknum sem
fram fer á morgun laugardag.
Í ljósi aðstæðna tók aga- og úr-
skurðarnefnd málið fyrir í dag á auka-
fundi nefndarinnar og úrskurðaði í
málinu. Stjórn og dómaranefnd KKÍ
líta þetta mál mjög alvarlegum augum
og hafa þeir Karl og Ágúst verið tekn-
ir af niðurröðun dómaranefndar tíma-
bundið.“
Þess má geta að viðkomandi leik-
maður var úrskurðaður í þriggja
leikja bann á aukafundinum á föstu-
dag og lék því ekki úrslitaleikinn með
Fjölni daginn eftir.
Karl og Ágúst hafa báðir dæmt leiki
í efstu deild karla. Karl hefur tals-
verða reynslu en Ágúst er talinn með
efnilegri dómurum.
Dómarar settir af vegna kærumáls
Úrvalslið vesturdeildarinnar hafði betur gegn úr-
valsliði austurdeildarinnar, 152:149, í hinum ár-
lega stjörnuleik í NBA í körfuknattleik sem háð-
ur var í 61. sinn í Orlando í fyrrinótt.
Kevin Durant, leikmaður Oklahoma, var valinn
besti leikmaður stjörnuleiksins en hann skoraði
36 stig, tók 7 fráköst og átti 3 stoðsendingar í
leiknum.
„Þetta er draumur sem er að rætast. Strák-
arnir mötuðu mig og ég er afar glaður að fá
þennan titil,“ sagði Durant eftir að hafa tekið á
móti viðurkenningu sinni en þetta er í fyrsta
skipti sem hann hlýtur þessa viðurkenningu.
Kobe Bryant skoraði 27 stig fyrir vesturliðið
og hann er þar með orðinn stigahæsti leikmaður
í sögu stjörnuleikjanna. Hann bætti stigamet
goðsagnarinnar Michael Jordans. Bryant hefur
skorað 271 stig í þeim 13 stjörnuleikjum sem
hann hefur tekið þátt í en Jordan skoraði 262
stig. Russell Westbrook sýndi frábær tilþrif í lið
vesturdeildarinnar en hann skoraði 21 stig og
átta stiganna skoraði hann með glæsilegum
troðslukörfum.
LeBron James var atkvæðamestur í liði aust-
urdeildarinnar en hann skoraði 36 stig og þar af
skoraði hann sex þriggja stiga körfur. James tók
6 fráköst og átti 7 stoðsendingar í leiknum.
Dwayne Wade kom næstur með 24 stig og þá tók
hann 10 fráköst og átti 10 stoðsendingar.
Leikurinn var hin besta skemmtun og fengu
áhorfendur að sjá mörg glæsileg tilþrif. Lið aust-
urdeildarinnar fékk tækifæri til að jafna metin
undir lok leiksins en þriggja stiga skot frá
Dwayne Wade rataði ekki rétta boðleið og leik-
menn úr vestrinu fögnuðu sigri.
gummih@mbl.is
Reuters
Bestur Kevin Durant faðmar LeBron James, stigahæsta leikmann liðs austurdeildarinnar, í leikslok í fyrrinótt.
Skoraði 36 stig í 61.
stjörnuleiknum
Kobe Bryant bætti
stigamet Jordans
Durant var
bestur í
sigri Vest-
ursins