Barnablaðið - 06.11.2011, Síða 6
BARNABLAÐIÐ6
Apatal
Talið er að margar
apategundir búi
yfir talsverðri
greind. Þeir geta
tjáð sig, skilið orð,
hafa gott minni og
geta leyst hinar
ýmsu þrautir.
Simpansar er
sú apategund
sem minnir hvað
mest á okkur
og þá kannski
sérstaklega vegna
þess að þeir sýna
svo margvísleg
svipbrigði. Þeir
leika sér líka og
minna oft og
tíðum á börn að
leik. Apar gera sig
skiljanlega með
því að gefa frá sér
ýmiss konar hljóð
en hljóð háværustu apanna heyrast í allt að þriggja kílómetra fjarlægð. Þið
gætuð kannski prófað að mæla hversu langt ykkar öskur heyrast.
Það eru ekki bara leikararnir sem
kalla fram töfra leikhússins. Það er
samspil margra sem framkalla hina
fullkomnu leiksýningu. Rithöfundar,
leikstjórar, leikmynda-, ljósa-, hljóð- og
búningahönnuðir, förðunarfræðingar,
sýningarstjórar og sviðsmenn eiga
allir sinn þátt í að uppsetningin sé vel
heppnuð. Margoft þarf líka að kalla til
tónlistarstjóra og tónlistarfólk.
Leiktjöldin eru yfirleitt dregin fyrir
þegar áhorfendur setjast í salinn og í
hléi. Þá nota sviðsmennirnir tímann í
að skipta um eða laga sviðsmyndina.
Ljósin eru mikið notuð til að skapa
stemningu í leikhúsinu. Þau hanga
oftast í loftinu og eru hækkuð og
lækkuð eftir þörfum. Birtan er
ýmist deyfð eða aukin eftir því
hvað við á.
Búningarnir eru saumaðir á sauma-
stofunni.
Stundum er sviðunum snúið eða lyft
til þess að breyta sviðsmyndinni og
um leið sjónarhorni áhorfenda.
Hljóðfæraleikarar koma sér fyrir í
hljómsveitargryfjum eða á sviðinu.
Það eru samt sem áður ekki alltaf
hljóðfæraleikarar í öllum sýningum þó
að tónlist sé oftast notuð.
Leikararnir skipta um búninga í
búningsherbergjunum og farða sig í
svokölluðu sminki.
Sýningarstjórarnir nota hátalarakerfi
til að miðla upplýsingum til þeirra sem
standa að sýningunni. Þeir gæta þess
að leikararnir séu klárir þegar þeir eru
við það að fara að stíga á svið.
Þeir sem stjórna ljósum og hljóði
sitja oftast í litlu herbergi fyrir ofan
áhorfendasalinn á meðan á sýning-
unni stendur og ramma inn ævintýrið
með starfi sínu.
Sum leikhús eru með hliðarsvið og
þar er leikmunum sem nota á í sýn-
ingunni stillt upp svo það sé auðvelt
að grípa til þeirra.
Leikhúsið
Getur þú fundið út hvaða þrjár og þrjár teikningar passa saman.
Lausn aftast í blaðinu.
Þrír og þrír
Klipptu út papp-
írsstrimil líkt og á
teikningunni. Gættu
þess að á öðrum
enda strimilsins
sé stél og hinum
endanum gat í
gegn, þvert á lengd-
ina. Litaðu ugluna
eins og þú vilt og
stingdu síðan stél-
inu í gegnum gatið
á hinum endanum.
Að lokum límirðu
lítinn útklipptan
þríhyrning á andlitið
og þá er uglan komin með nef. Þú getur svo gert margar uglur og hengt á
grein og þá hefurðu búið til skemmtilegt herbergisskraut.
Ugluskraut Reyndu að koma öllum tölunum fyrir.
Nýttu þér hjálpartöluna. Lausn aftast.
9
Talnaflækja
3 stafir
203
689
752
911
5 stafir
35647
37904
43165
70145
7 stafir
1058249
2586537
3497262
9789906
9 stafir
219687183
406988150