Morgunblaðið - 15.03.2012, Page 2
Morgunblaðið/Ómar
Áfram Gunnhildur Gunnarsdóttir
og Jence Rhoads úr Haukum eru
komnar í undanúrslitin.
Fjölnir vann Njarðvík, 87:76, í úr-
valsdeild kvenna í körfuknattleik í
gærkvöld og þar með varð Keflavík
endanlega sigurvegari í deildinni.
Fjölnir gulltryggði um leið áfram-
haldandi sæti sitt meðal þeirra bestu
en það var þó endanlega í höfn áður
en leiknum lauk því Hamar tapaði
fyrir Val á sama tíma.
Keflavík er með 40 stig en Njarð-
vík 38 fyrir lokaumferðina, en þar
sem Keflavík er með betri útkomu
úr innbyrðis viðureignum nágranna-
liðanna er sigur liðsins í deildinni
þegar í höfn og þar með heima-
leikjaréttur til loka í úrslitakeppn-
inni. Shanae Baker-Brice lék ekki
með Njarðvík gegn Fjölni og munar
um minna en hún er að jafna sig af
meiðslum og á að vera í lagi áður en
úrslitakeppnin hefst.
Haukar í úrslitakeppnina
Haukar sigruðu KR, 78:56, í nán-
ast hreinum úrslitaleik liðanna um
sæti í úrslitakeppninni. Haukar eru
þar með komnir í undanúrslit ásamt
Keflavík, Njarðvík og Snæfelli.
Haukar höfðu eins stigs forystu í
hálfleik, 31:30, en stungu af í seinni
hálfleiknum og unnu mjög örugg-
lega þegar upp var staðið. KR missti
Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur
meidda af velli seint í fyrri hálf-
leiknum.
Haukar eru í 4. sæti með 28 stig
fyrir lokaumferðina en KR er í 5.
sætinu með 26. Haukar hafa betur í
innbyrðis viðureign liðanna og þar
með er KR úr leik.
Hamar varð að vinna Val á Hlíð-
arenda til að eiga von en það var
aldrei í spilunum. Valur var yfir í
hálfleik, 57:36, og lokatölur urðu
95:67. Fjölnir er með 18 stig í næst-
neðsta sætinu, sex stigum meira en
Hamar fyrir lokaumferðina.
vs@mbl.is
Fjölnir tryggði Keflavík titilinn
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2012
ÍSHOKKÍ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Birkir Árnason, landsliðsmaður í ís-
hokkí, snéri aftur til landsins síðasta
sumar eftir þriggja ára dvöl í Dan-
mörku. Birkir er Akureyringur og
lék með SA áður en hann hélt utan
til náms í byggingafræði. Þar spilaði
hann tvö tímabil með Gladsaxe Bears
í næst efstu deild. Hann ákvað að
ganga til liðs við Björninn og var
gerður að fyrirliða. Hann tók því við
fyrsta Íslandsmeistaratitli félagsins í
fyrrakvöld.
Birkir fór reyndar með bikarinn
rakleiðis til Sergeis Zak og leyfði
honum að hefja gripinn á loft.
Birkir er á tuttugasta og fimmta
aldursári en þykir gamall í sam-
anburði við marga leikmenn Bjarn-
arins. „Það er ólíkt að koma inn í
hokkíið hér heima en að spila í
sterkri deild í Danmörku. Ég vissi
ekki alveg út í hvað ég var að fara
þegar ég mætti á fyrstu æfinguna.
Ég hef fylgst með ungu strákunum
taka skref fram á við í vetur og allir
hafa sýnt ákveðið frumkvæði. Menn
eru ekkert að hika við þetta þó að
þarna séu leikmenn sem eru fæddir
1994 og 95. Þetta eru bara rosalega
flottir leikmenn og þegar ég sá að við
áttum góða menn í öllum stöðum átt-
aði ég mig á því að þetta væru góðir
kandídatar í Íslandsmeistara,“ sagði
Birkir þegar Morgunblaðið tók hann
tali í gær.
Ná að tengja vel saman
Þegar Birkir valdi að fara í Björn-
inn þá sagði hann við Morgunblaðið á
þeim tíma að í Birninum væru marg-
ir góðir ungir leikmenn en þá vantaði
meiri aga til að vinna sinn fyrsta titil.
Hann sagði jafnframt að reyndari
leikmenn gætu hjálpað liðinu að
vaxa. Segja má að þetta hafi staðið
eins og stafur á bók því Birkir, bróðir
hans Sigurður og Zak sem tók fram
skautana á ný, færðu liðinu meiri yf-
irvegun en áður var til staðar hjá
Birninum.
„Ég held að við séum með mjög
góða blöndu af eldri og yngri leik-
mönnum og nokkrum þar á milli til
að tengja þetta vel saman,“ sagði
Birkir um þetta atriði í gær.
Breiddin skipti sköpum
Um úrslitarimmuna við SR þá
sagði Birkir að breiddin í leik-
mannahópi Bjarnarins hafi skipt
miklu máli. „Við gátum spilað á fjór-
um línum en þeir spiluðu meiri hluta
leikjanna á tveimur línum. Það gefur
augaleið að við getum verið miklu
ferskari og spilað fastari leik þar sem
við getum klárað tæklingarnar okk-
ar. Það sýndi sig alla vega í tveimur
leikjum í úrslitakeppninni að við nán-
ast rúlluðum yfir þá í síðasta leik-
hluta. Þá voru þeir einfaldlega orðnir
of þreyttir til að spila á fullu í þriðja
leikhluta með svo fáa leikmenn. Það
er ekki að ástæðulausu að landsliðið
er með tuttugu leikmenn. Það er það
sem þarf til að vinna alvöruleiki.“
Einfaldar áherslur
Björninn fékk til sín Bandaríkja-
manninn David MacIsaac síðasta
sumar og hann tók við þjálfun liðsins.
MacIsaac er fyrrverandi atvinnumað-
ur í heimalandinu, í Rússlandi og á
Ítalíu og hann kom með ferska vinda
inn í íþróttina hérlendis að sögn
Birkis.
„Það skiptir rosalega miklu máli að
fá nýja þjálfara með aga og einhvern
sem menn hlusta á. Hann er með gíf-
urlega mikla reynslu og nýtur virð-
ingar í okkar röðum. Áherslur hans
varðandi spilið eru einfaldar en ár-
angursríkar. Áherslur hans eru ekki
ósvipaðar því sem tíðkast í amerísku
hokkí. Við erum svo fáir í þessari
íþrótt hérlendis og það er því alltaf
gott að fá nýja menn til að kenna
okkur nýja hluti. Rétt eins og það
getur verið gott að fá nýja leikmenn.
Það er líka hollt fyrir leikmenn að
læra að spila leikinn með mismun-
andi áherslum,“ sagði Birkir Árnason
við Morgunblaðið.
Ungu strák-
arnir sýndu
frumkvæði
Morgunblaðið/Golli
Fyrstur Birkir Árnason tekur við Íslandsbikarnum, fyrstur fyrirliða karlaliðs
Bjarnarins. Hann fór með bikarinn beint til samherja síns, Sergeis Zak.
Birkir Árnason snéri heim frá Dan-
mörku og var fyrirliði í fyrsta Íslands-
meistaraliði Bjarnarins Gott að fá nýja
menn til að kenna okkur nýja hluti
Línur í íshokkíi
» Í umfjöllun um íshokkí er
gjarnan talað um línur. Hvað er
átt við með því? Í íshokkíi eru
leyfðar frjálsar skiptingar og
þá skipta allir fimm úti-
leikmennirnir í einu. Þ.e.a.s.
ein lína fer út og önnur lína inn.
» Í hverju liði eru fjórar línur
og menn æfa saman með það í
huga að þeir spili í sömu línu.
Gunnlaugur Hlynur Birg-
isson, 16 ára knatt-
spyrnumaður úr Breiðabliki,
gengur til liðs við Club
Brugge í Belgíu í sumar, eins
og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær. Því miður var
myndin sem fylgdi með frétt-
inni ekki af Gunnlaugi heldur
af mótherja hans úr leik með
unglingaliði Club Brugge, og
aðeins sást í treyju Gunn-
laugs. Hér er myndin, rétt
skorin í þetta skiptið, og beð-
ist er velvirðingar á mistök-
unum.
Rétt mynd af Gunnlaugi
Gunnlaugur Hlynur Birgisson.
Turbine Potsdam, lið Margrétar Láru Viðarsdóttur, sigraði Ros-
siyanka frá Rússlandi, 2:0, á heimavelli sínum í Þýskalandi í gær en
þetta var fyrri viðureign liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildar
kvenna í knattspyrnu.
Margrét Lára missti af leiknum vegna meiðsla en Patricia Hane-
beck kom Potsdam yfir á 24. mínútu og þýska landsliðskonan Babett
Peter bætti við marki úr vítaspyrnu á 44. mínútu. Rússunum tókst
að halda þýsku meisturunum í skefjum í seinni hálfleik og eiga því
möguleika fyrir seinni leikinn i Rússlandi í næstu viku.
Arsenal vann Gautaborg, 3:1, í fyrri leik liðanna í London í gær og
Lyon, með megnið af franska landsliðinu innanborðs, fór létt með
Bröndby frá Danmörku, 4:0, í Frakklandi. Þar skoruðu frönsku
landsliðskonurnar Camille Abily, Sonia Bompastor og Louisa Necib sitt markið hver.
Í dag leika síðan Þóra B. Helgadóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir og samherjar
þeirra í Malmö á heimavelli við þýska liðið Frankfurt.
vs@mbl.is
Potsdam er með ágæta stöðu
Margrét Lára
Viðarsdóttir
Lengjubikar karla
A-DEILD, 1. riðill:
Fram – Haukar ........................................ 5:1
Steven Lennon 60., 89., Ásgeir Gunnar Ás-
geirsson 63., Kristinn Ingi Halldórsson 79.,
Almarr Ormarsson 86. – Magnús Páll
Gunnarsson 31. Rautt spjald: Guðlaugur F.
Guðmundsson (Haukum) 72., Valur Fannar
Gíslason (Haukum) 84.
Staðan:
Fram 5 5 0 0 15:5 15
Breiðablik 4 3 0 1 10:3 9
KR 3 2 0 1 8:4 6
Víkingur Ó. 3 1 0 2 6:7 3
Selfoss 3 1 0 2 3:5 3
Þróttur R. 3 1 0 2 5:8 3
Haukar 3 0 0 3 2:8 0
BÍ/Bolungarvík 2 0 0 2 1:10 0
Lengjubikar kvenna
A-DEILD:
Fylkir – Breiðablik .................................. 2:0
Ruth Þ. Þórðardóttir, Margrét Björg Ást-
valdsdóttir.
Meistaradeild Evrópu
16 liða úrslit, seinni leikir:
Chelsea – Napoli ...................................... 4:1
Didier Drogba 29., John Terry 48., Frank
Lmapard 75.(víti), Branislav Ivanovic 105.
– Gokhan Inler 55.
Eftir framlengingu, Chelsea áfram, 5:4
samanlagt.
Real Madrid – CSKA Moskva................. 4:1
Cristiano Ronaldo 55., 90, Gonzalo Higuaín
26., Karim Benzema 70. – Zoran Tosic 77.
Real Madrid áfram, 5:2 samanlagt.
Meistaradeild kvenna
8 liða úrslit, fyrri leikir:
Potsdam – Rossiyanka ............................ 2:0
Margrét Lára Viðarsdóttir lék ekki með
Potsdam vegna meiðsla.
Lyon – Bröndby........................................ 4:0
Arsenal – Gautaborg................................ 3:1
KNATTSPYRNA
Valur – Hamar 95:67
Gangur leiksins: 9:13, 20:16, 26:20, 32:27,
37:29, 45:32, 52:36, 57:36, 64:36, 66:40,
71:46, 77:52, 83:59, 86:63, 90:65, 95:67.
Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 24/5 frá-
köst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 19/8 frá-
köst, Lacey Simpson 11/11 fráköst/8 stoðs.,
Melissa Leichlitner 10/4 fráköst/5 stoðs.,
María Ben Erlingsdóttir 9/4 fráköst, Guð-
björg Sverrisdóttir 8/4 fráköst, Signý Her-
mannsdóttir 6/9 fráköst/5 stoðs./4 varin
skot, María Björnsdóttir 6/5 fráköst, Berg-
lind Karen Ingvarsdóttir 2.
Hamar: Samantha Murphy 24/6 fráköst/5
stoðsendingar, Fanney Lind Guðmunds-
dóttir 13, Katherine Graham 12, Marín
Laufey Davíðsdóttir 7/5 fráköst, Íris Ás-
geirsdóttir 6/5 fráköst, Jenný Harðardóttir
3, Álfhildur Þorsteinsdóttir 2/5 fráköst.
Haukar – KR 78:56
Gangur leiksins: 5:5, 10:10, 14:14, 18:20,
22:24, 22:26, 27:28, 31:30, 39:30, 43:35,
49:37, 56:41, 62:45, 67:47, 73:51, 78:56.
Haukar: Tierny Jenkins 20/19 fráköst/5
stolnir, Jence Rhoads 15/9 stoðsendingar,
Íris Sverrisdóttir 11, María Lind Sigurð-
ardóttir 10/6 fráköst, Margrét Rósa Hálf-
danardóttir 10/5 fráköst, Guðrún Ósk
Ámundardóttir 5/4 fráköst, Gunnhildur
Gunnarsdóttir 4, Auður Íris Ólafsdóttir 3.
KR: Erica Prosser 22/8 fráköst, Margrét
Kara Sturludóttir 16/5 fráköst/3 varin skot,
Hafrún Hálfdánardóttir 14/7 fráköst,
Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 2/5 fráköst,
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 2.
Fjölnir – Njarðvík 87:76
Gangur leiksins:4:7, 8:13, 18:19, 22:23,
27:27, 29:32, 33:39, 39:43, 39:45, 42:50,
50:50, 55:54, 62:58, 71:60, 79:63, 87:76.
Fjölnir: Brittney Jones 28/5 fráköst/10
stoðsendingar, Katina Mandylaris 23/19
fráköst, Jessica Bradley 18/9 fráköst, Erla
Sif Kristinsdóttir 9, Birna Eiríksdóttir 3,
Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2/7 fráköst,
Bergdís Ragnarsdóttir 2/7 fráköst, Mar-
grét Loftsdóttir 2.
Njarðvík: Lele Hardy 24/20 fráköst/7
stoðs., Petrúnella Skúladóttir 16/6 fráköst,
Ingibjörg Vilbergsdóttir 10/5 fráköst, Sara
Margeirsdóttir 6, Salbjörg Sævarsdóttir
6/5 fráköst, Ína M. Einarsdóttir 6, Ólöf H.
Pálsdóttir 2, Eyrún Sigurðardóttir 2,
Harpa Hallgrímsd. 2, Erna Hákonard. 2.
Staðan:
Keflavík 27 20 7 2064:1887 40
Njarðvík 27 19 8 2237:2038 38
Snæfell 27 15 12 1967:1999 30
Haukar 27 14 13 1986:1919 28
KR 27 13 14 1960:1886 26
Valur 27 12 15 2003:1995 24
Fjölnir 27 9 18 1935:2199 18
Hamar 27 6 21 1879:2108 12
NBA-deildin
Orlando – Miami ................................. 104:98
Cleveland – Toronto............................. 88:96
Indiana – Portland ............................... 92:75
Memphis – LA Lakers ..................... 111:116
Oklahoma – Houston........................ 103:104
Dallas – Washington .......................... 107:98
Denver – Atlanta .............................. 118:117
Sacramento – Golden State ............... 89:115
KÖRFUBOLTI