Morgunblaðið - 15.03.2012, Side 3

Morgunblaðið - 15.03.2012, Side 3
HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Þetta var óþarflega stórt tap, fimm til sex marka munur hefði verið í lagi en því miður þá gerðum við alltof mikið af mistökum í síðari hálfleik og Þjóðverjar refsuðu okkur með mörk- um eftir hraðaupphlaup,“ sagði Guð- mundur Þórður Guðmundsson, lands- liðsþjálfari í handknattleik karla, eftir ellefu marka tap, 33:22, íslenska landsliðsins fyrir Þýskalandi í vin- áttulandsleik í Mannheim í gær- kvöldi. „Ég var nokkuð ánægður með fyrri hálfleikinn. Varnarleikurinn var þokkalegur, ekki síst sé tekið mið af því að nýir menn voru þar í stóru hlutverki og við náðum aðeins einni æfingu fyrir leikinn. Sóknarleikurinn var góður í fyrri hálfleik og við náð- um alveg að halda í við Þjóðverjana,“ sagði Guðmundur Þórður sem var alls ekki eins hress með síðari hálf- leikinn. Skipt um vörn í síðari hálfleik „Þjóðverjar skiptu yfir í 5/1 vörn í síðari hálfleik og þá lentum við í miklum vandræðum með sóknarleik- inn okkar. Sendingar okkar voru slæmar auk þess sem menn nýttu illa þau tækifæri sem gáfust. Fyrir vikið var okkur refsað með hraðaupp- hlaupum og mörkum,“ sagði Guð- mundur Þórður landsliðsþjálfari. „Þetta var alltof stórt tap hjá okk- ur en við hverju var að búast? Það má segja að ég hafi verið með nýtt lið í höndunum, svo marga fasta menn vantaði. Undirbúningur okkar fyrir leikinn var heldur ekki nægur, aðeins ein æfing í gær og margir leikmenn að stíga sín fyrstu skref með lands- liðinu,“ sagði Guðmundur Þórður. 10 sterkir ekki með Tíu sterka leikmenn vantaði í ís- lenska landsliðið í Mannheim í gær og því var e.t.v. ekki við því að búast að landsliðið stæðist því þýska snún- ing þótt vissulega hafi vantað nokkra öfluga leikmenn einnig í þýska liðið. Guðjón Valur Sigurðsson, Alexander Petersson, Aron Pálmarsson, Arnór Atlason, Ólafur Guðmundsson, Ingi- mundur Ingimundarson, Sverre Jak- obsson, Þórir Ólafsson, Ólafur Stef- ánsson og Snorri Steinn Guðjónsson voru allir fjarri góðu gamni. Allir fengu að spreyta sig „Ég notaði tækifærið og gaf öllum 17 leikmönnunum sem ég var með tækifæri til að spreyta sig. Þeir fengu mismikil tækifæri að vísu en allir eitthvað. Með þessu var ég að leita eftir svörum við því hverjir eru að banka á dyrnar hjá landsliðinu og hverjir eiga lengra í land,“ sagði Guðmundur. Spurður hvort margir nýliðar hópsins í gær hafi bankað á dyrnar svaraði Guðmundur að það væri kannski tveir til þrír af hópnum sem hefðu gert það. Hverjir það væri vildi hann ekki segja. Þó var ljóst af svörum Guðmundar að hann var þokkalega sáttur við framgöngu Sig- urgeirs Árna Ægissonar í vörninni. Þá hefði Aron Rafn Eðvarðsson stað- ið sig vel, varið alls 13 skot á um 45 mínútum. Ólafur Bjarki Ragnarsson stýrði sóknarleiknum lengst af og gerði það nokkuð vel, að sögn Guð- mundar. Þá skoraði Ólafur Gúst- afsson fimm mörk en þetta var fyrsti stóri leikur hans með íslenska lands- liðinu. „Ólafur notaði 13 skot til þess að skora þessi fimm mörk svo skot- nýting hans var ekki góð,“ sagði Guð- mundur. Vildi skoða möguleikana „En ég fékk svör og nú fer ég bet- ur yfir málin í framhaldinu. Það var tækifæri núna til þess að reyna eitt- hvað nýtt og sjá hvaða möguleikar eru í stöðunni. Ég vildi frekar skoða möguleikana en hugsa minna um úr- slitin sem slík. Það gefast ekki mörg tækifæri á næstu mánuðum til þess að prófa eitthvað nýtt,“ sagði Guð- mundur en íslenska landsliðið kemur saman um næstu mánaðamót til und- irbúnings fyrir forkeppni Ólympíu- leikanna sem fram fer í Varazdin í Króatíu 6.-8. apríl. Þá er reiknað með að Guðmundur geti stillt upp sínu sterkasta liðið, eða því sem næst. Þjóðverjar sýndu enga miskunn í síðari hálfleik Morgunblaðið/Golli Fyrirliði Róbert Gunnarsson hafði í mörg horn að líta í leiknum við Þjóðverja í Mannheim í gærkvöldi og skoraði 4 mörk.  Fyrri hálfleikur viðunandi  Fáir banka á dyr landsliðsins  Aron Rafn góður SAP-Arena, Mannheim, vináttulands- leikur karla, miðvikudag 14. mars 2012. Gangur leiksins: 3.2, 4:4, 7:4, 8:6, 10:7, 12:10, 16:13, 21:15, 23:16, 24:17, 25:17, 26:17, 27:18, 29:21, 33:22. Mörk Þýskalands: Patrick Groetzki 6, Uwe Gensheimer 5, Andreas Roj- ewski 4, Andreas Pfahl 3, Patrick Wi- encek 3, Johannes Sellin 2/1, Sven- Sören Christophersen 2, Stefan Weinhold 2, Lars Kaufmann 2, Max Holst 2, Stefan Strobel 1, Stephan Kneer 1. Utan vallar: 2 mínútur. Mörk Íslands: Ólafur Gústafsson 5, Róbert Gunnarsson 4, Ásgeir Örn Hallgrímsson 4, Ólafur Bjarki Ragn- arsson 3, Stefán Rafn Sigurmanns- son 3, Arnór Þór Gunnarsson 1/1, Hannes Jón Jónsson 1, Rúnar Kára- son 1, Sigurbergur Sveinsson 1. Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 13, Björgvin Páll Gústavsson 0. Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Gubica og Milosevic frá Króatíu. Áhorfendur: 7.612. Þýskaland – Ísland 33:22 ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2012 Þórir Ólafssonog sam- herjar hans í pólska liðinu Vive Kielce er komnir með annan fótinn í undanúrslit um pólska meist- aratitilinn í hand- knattleik. Í gær- kvöld unnu þeir Miedz Legnica á útivelli, 32:27, í fyrri leik liðanna í 8 liða úrslitum á útivelli. Þórir skoraði fjögur mörk en leikmenn Kielce voru yfir allan leikinn og höfðu m.a. sjö marka forskot að loknum fyrri hálf- leik, 19:12. Síðari leikurinn verður á heimavelli Kielce í næstu viku en lið- ið mætir Cimos Koper frá Slóveníu í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evr- ópu á heimavelli á sunnudaginn.    Róbert Gunnarsson var fyrirliðiíslenska landsliðsins í hand- knattleik í leiknum við Þjóðverja í gærkvöldi. Þetta var í fyrsta sinn sem hann er fyrirliði A-landsliðsins. Leikurinn fór fram á heimavelli Ró- berts í SAP-Arena í Mannheim. Samherjar Róberts hjá Rhein Neck- ar Löwen, Patrick Groetzki og Uwe Gensheimer voru atkvæðamestir í þýska liðinu. Groetzki skoraði sex sinnum og Gensheimer fimm.    Kristinn Björgúlfsson og sam-herjar í Hurry Up eru komnir í undanúrslit í hollensku bikarkeppn- inni í handknattleik. Hurry Up vann nágranna sína í E&O í hörkuleik 26:22 í átta liða úrslitum. Leikið var á heimavelli Hurry Up í Emmen fyr- ir fullu húsi áhorfenda. Kristinn hafði óvenju hægt um sig og skoraði eitt mark.    Snorri SteinnGuðjónsson skoraði sig- urmark AG Kö- benhavn í naum- um sigri á Nordsjælland á útivelli, 24:23, í dönsku úrvals- deildinni í hand- knattleik í gærkvöld. AG var tveim- ur mörkum undir þegar skammt var til leiksloka. Snorri var markahæst- ur hjá AG með 7 mörk. Guðjón Val- ur Sigurðsson jafnaði metin, í 23:23, skömmu fyrir leikslok en hann gerði 5 mörk og Ólafur Stefánsson 3. Hjá Nordsjælland var Ólafur Guð- mundsson, lánsmaðurinn frá AG, markahæstur með 5 mörk. Fólk folk@mbl.is Kiel, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, á sæti í átta liða úrslit- um Meistaradeildar Evrópu í handknattleik næsta víst eftir yfirburðasigur á Wisla Plock, 36:24, í fyrri leik liðanna í Pól- landi í gærkvöld. Uppselt var í Orlen-höllinni í Plock sem rúmar 5.500 áhorfendur. Wisla var yfir framan af leik og komst í 7:5, en þá skoraði Kiel fjögur mörk í röð og var með undirtökin eftir það. Stað- an var 14:12 í hálfleik en síðan dró hratt í sundur með lið- unum því þýska liðið skoraði sjö mörk gegn einu á fyrstu sex mínútunum og þar með var öll spenna úr sögunni. Liðin mæt- ast aftur í Kiel á sunnudaginn og sá leikur er nú nánast formsatriði. Aron Pálmarsson spilaði mikið með Kiel og skoraði 3 mörk í leiknum. Filip Jicha var markahæstur með 7 mörk hjá þýska toppliðinu og þeir Kim Andersson, Christian Sprenger, Marcus Ahlm og Dominik Klein gerðu 5 mörk hver. vs@mbl.is Kiel á greiða leið áfram Aron Pálmarsson Fjórir Íslendingar verða á meðal þátttakenda í úr- slitakeppni bandarísku háskólanna, NCAA, í sundi. Keppni hjá konunum hefst í Auburn í Alabama í kvöld en þar keppa þær Sarah Bateman og Hrafnhildur Lúðvíksdóttir frá University of Florida og Jóhanna Gerða Gústafsdóttir frá Florida International Uni- versity. Sarah keppir þar í fjórða skipti en það er ekki oft sem sundkonur ná því, enda komast aðeins þær fljót- ustu af þúsundum úr háskólunum í hverri grein á mót- ið. Hrafnhildur er á öðru ári í sínum skóla og keppir annað árið í röð en hún og Sarah keppa bæði í ein- staklingsgreinum og boðsundum fyrir sinn skóla. Jóhanna Gerða er á fyrsta ári og komst inn á mótið í 200 metra baksundi. Keppt er í karlaflokkum í næstu viku og Árni Már Árnason frá Old Dominion University hefur unnið sér þátttökurétt þar. vs@mbl.is Sarah í fjórða sinn á NCAA Sarah Bateman Meistaradeild Evrópu 16 liða úrslit, fyrri leikur: Wisla Plock – Kiel................................ 24:36  Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir Kiel. Alfreð Gíslason þjálfar liðið. Danmörk Nordsjælland – AG.............................. 23:24  Ólafur Guðmundsson skoraði 5 mörk fyrir Nordsjælland.  Guðjón Valur Sigurðsson 5, Snorri Steinn Guðjónsson 7, Ólafur Stefánsson 3 fyrir AG. Arnór Atlason er meiddur. Bj/Silkeborg – SønderjyskE...............26:28  Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 1 mark fyrir Bjerringbro/Silkeborg. Pólland 8 liða úrslit, fyrsti leikur: Miedz Legnica – Kielce........................27:32  Þórir Ólafsson skoraði 4 mörk fyrir Kielce. HANDBOLTI KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, IEX-deildin: Grindavík: Grindavík – Snæfell........... 19.15 Dalhús: Fjölnir – Njarðvík .................. 19.15 Seljaskóli: ÍR – Haukar ....................... 19.15 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Egilshöll: Leiknir R. – FH ....................... 19 Kórinn: Stjarnan – Tindastóll ............. 20.10 Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn: Egilshöll: Þróttur R. – FH ....................... 21 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.