Morgunblaðið - 15.03.2012, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. MARS 2012
Kristján Helgason varð um helgina
fyrstur til að spila fullkominn leik í
stigamótum Billiardsambandsins þeg-
ar hann fékk 147 stig í leik á móti
Gunnari Hreiðarssyni. 147 stig er
hæsta möguleika skor í snóker (án
þess að mistök andstæðingsins bjóði
upp á aukastig) sem þýðir að þá setur
viðkomandi ávallt svörtu kúluna niður
á eftir þeirri rauðu áður en hann tek-
ur til við að hreinsa aðrar kúlur af
borðinu.
Kristján klikkaði því ekki á stuði
eftir að hann setti fyrstu rauðu kúluna
niður og Gunnar komst því ekki að í
þessum ramma eftir það.
„Þetta er í þriðja skipti sem ég næ
þessu í móti,“ sagði Kristján þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hann. Hann sagði að líklega væru liðin
átta eða níu ár frá því að hann afrek-
aði síðast að ná 147 stigum í móti en
hann náði því í fyrsta skipti árið 1993.
Ef horft er framhjá mótunum nær
hann þessu hins vegar reglulega, síð-
ast nokkrum dögum fyrir mótið um
helgina.
„Spila þegar ég get“
Kristján hefur um árabil verið á
meðal fremstu snókerspilara þjóð-
arinnar og var um tíma framarlega á
heimsvísu. Hann varð heimsmeistari
unglinga árið 1993 og Evrópumeistari
áhugamanna árið 1998. Í hans huga
var hans stærsta afrek að komast inn í
HM atvinnumanna árið 2000 en þang-
að vinna sig inn 32 spilarar eftir und-
ankeppnir. Keppti hann þá í Crucible-
leikhúsinu í Sheffield eins og Morg-
unblaðið greindi rækilega frá á sínum
tíma.
Kristján hætti sem atvinnumaður
fyrir allmörgum árum og segist nú
fyrst og fremst spila sér til ánægju.
„Mig minnir að ég hafi hætt sem at-
vinnumaður árið 2003 eða 2004. Ég er
ekki að vinna við þetta í dag eins og ég
gerði. Ég spila þegar ég get og geri
það til að hafa gaman af því. Ég reyni
þó að vera með í stigamótunum sem
maður þarf að taka þátt í til þess að
geta verið með í Íslandsmótinu,“ sagði
Kristján við Morgunblaðið. kris@mbl.is
Fullkominn leikur í þriðja sinn
Morgunblaðið/Jim Smart
Reyndur Kristján er margfaldur Íslandsmeistari og fyrrverandi at-
vinnumaður en spilar nú fyrst og fremst sér til ánægju.
KÖRFUBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Nú eru 404 dagar eru liðnir frá því
að Hrannar Hólm og lærimeyjar
hans í danska körfuknattleiksliðinu
SISU töpuðu síðast leik heima fyrir.
Liðið tapaði síðast fyrir Lemvig 5.
febrúar á síðasta ári en síðan þá hef-
ur SISU unnið 37 leiki í röð.
Hrannar tók við þjálfun SISU-
liðsins árið 2010 og eins og hann seg-
ir sjálfur var það fyrir algera til-
viljun. Dóttir Hrannars spilaði þá
með liðinu og það vantaði þjálfara og
var leitað til hans. Hrannar sagðist
ekki hafa getið hlaupist undan
merkjum. Liðinu hafði ekki gengið
sem best. Það var í 8. sæti af 9 liðum
þegar hann tók við en hlutirnir fóru
heldur betur að ganga vel með hann
við stjórnvölinn. Á þessu fyrsta
tímabili endaði liðið í 2. sæti í deild-
arkeppni, komst í undanúrslit um
meistaratitilinn og Hrannar var út-
nefndur þjálfari ársins.
Á síðustu leiktíð vann SISU alla
titlana. Liðið varð deildarmeistari,
bikarmeistari og Danmerkurmeist-
ari og á þessu tímabili eru tveir titlar
komnir í hús, deildarmeistaratitilinn
og bikarmeistaratitillinn og um
næstu helgi hefst úrslitakeppnin um
meistaratitilinn.
Gengið eins og lygasögu
„Það má segja að þetta hafi geng-
ið eins og í lygasögu. Nú er komnir
37 sigurleikir í röð. Við unnum allt í
fyrra nema einn leik. Það sat í okkur
og við settum okkur það markmið
fyrir tímabilið að vinna alla leikina
og við erum á góðri leið með það,“
sagði Hrannar Hólm í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Hrannar segir að með hverjum
sigurleiknum á fætur öðrum eflist
sjálfstraustið í liðinu.
„Maður finnur það að þó að hlut-
irnir gangi ekki í byrjun í leikjunum
þá halda stelpurnar ró sinni og vita
að þetta kemur. Við höfum ákveðið
forskot gagnvart andstæðingunum
þegar allir leikir vinnast. Mótherj-
arnir trúa því ekki að þeir geti unnið
okkur og mínir leikmenn trúa því á
móti að þeir geti ekki tapað,“ segir
Hrannar Hólm.
Hrannar hefur farið í gegnum all-
an „pakkann“ í körfuboltanum.
Hann spilaði á árum áður með Kefla-
vík og eftir að ferlinum lauk helti
hann sér út í þjálfun. Hann þjálfaði
karlalið Þórs Akureyri, Njarðvíkur
og KR og spannaði þjálfaraferill
hans á Íslandi í 15 ár. Hann tók síð-
an að sér formennsku hjá körfu-
knattleiksdeild Keflavíkur, sat í
stjórn Körfuknattleikssambands Ís-
lands og í landsliðsnefnd. Hrannar
flutti til Danmerkur fyrir tæpum
þremur árum og eins og áður segir
þá „datt“ hann óvænt inn í þjálf-
unina á nýjan leik.
Karlaliðin með
Hrannar í sigtinu
Spurður hvort hann sé sestur að í
Danmörku segir Hrannar; „Það er
ekki gott að segja. Ég er að minnsta
kosti ekki búinn að panta mér flug
heim til Íslands. Mér og fjölskyld-
unni líður vel hérna.“
Eftir þetta frábæra gengi hans
með kvennalið SISU liggur beinast
við að spyrja Hrannar hvort önnur
lið og þá ekki síst karlaliðin hafi sett
sig í samband við hann?
„Þetta er búið að vera mikið æv-
intýri hjá SISU og í ár tókum við
þátt í Evrópukeppninni sem var
mikil upplifun. Ef við vinnum Dan-
merkurmeistaratitilinn held ég að
segi þetta gott hérna. Ég hef gaman
af því að þjálfa og mig langar að
halda áfram á þeim vettvangi. Ég
var hættur að þjálfa en ég hef end-
urfundið ástríðuna fyrir körfubolt-
anum. Það hafa komið til mín fyr-
irspurnir og það eru nokkrir
möguleikar í stöðunni en málin skýr-
ast eftir tímabilið,“ segir Hrannar og
bætti því við að það ætti ekki að
koma neinum á óvart ef hann stýrði
karlaliði í Danmörku á næsta tíma-
bili.
Með eitt besta liðið
á Norðurlöndum
Hrannar segir að Danmörk sé
ekki stórveldi í körfuboltanum en
samanborið við deildina hér heima
þá segir hann að lið sitt sé töluvert
betra en bestu liðin á Íslandi. „Ég
mundi halda að okkar lið væri eitt
það sterkasta á Norðurlöndunum.
Breiddin er þó ekkert sérlega mikil
hérna en ég held að ég móðgi engan
heima þegar ég tel að mitt lið sé
töluvert betra en bestu liðin heima.“
Hrannar sinnir ekki eingöngu
þjálfuninni. Hann rekur fyrirtæki
sem sinnir rekstrarráðgjöf ásamt
nokkrum öðrum en árangur hans
með lið SISU hefur vakið verðskuld-
aða athygli í Danaveldi og ríkir mikil
ánægja með störf hans hjá félaginu.
SISU hefur góða reynslu af Íslend-
ingum en Jón Kr. Gíslason lék með
liðinu í nokkur ár á níunda áratugn-
um og varð bikarmeistari með því og
á undan honum lék Þorsteinn Hall-
grímsson með því og varð nokkrum
sinnum Danmerkurmeistari með lið-
inu á sjöunda áratugnum.
Hef fundið aftur ástríð-
una fyrir körfuboltanum
Hrannar Hólm gerir það gott með danska kvennaliðið SISU Hefur stýrt
liðinu í 37 sigurleikjum í röð og liðið hefur ekki tapað leik í 404 daga
Ljósmynd/SISU Basketball
Sigursæll Hrannar Hólm ræðir við leikmenn sína hjá SISU í leikhléi. Hann hefur náð ótrúlegum árangri með liðið
sem stefnir á að vinna danska meistaratitilinn aftur en úrslitakeppnin er að hefjast í Danmörku.
Þórður RafnGissurar-
son, kylfingur úr
GR, hyggst fara í
úrtökumót fyrir
Shell Houston-
mótið á PGA-
mótaröðinni en
mótið fer fram 22.
mars. Þórður
Rafn er staddur í Houston í Texas
við æfingar og því lá beint við hjá
honum að fara í úrtökumót fyrir
mótið en iðulega er hægt að vinna
sig með þeim hætti inn í mót á stóru
mótaröðunum. Einn Íslendingur
hefur leikið þennan leik og það var
Ólafur Björn Loftsson úr Nes-
klúbbnum sem vann sig inn í mót á
PGA-mótaröðinni í ágúst í fyrra en
það var í Norður-Karólínuríki. Þórð-
ur hefur í vetur þrætt mót sem til-
heyra þýsku EPD-mótaröðinni
ásamt Stefáni Má Stefánssyni.
Norðmaðurinn Aksel Lund Svin-dal sigraði í síðustu brun-
keppni vetrarins í heimsbikarnum á
skíðum í Schladming í Austurríki í
gær. Austurríkismaðurinn Klaus
Kroell vann hins vegar stigakeppni
vetrarins í bruni. Í heildar-
stigakeppni heimsbikarsins er Beat
Feuz frá Sviss í efsta sæti en Marcel
Hirscher og Svindal eiga ennþá
möguleika á titlinum.
Lindsey Vonnfrá Banda-
ríkjunum sigraði í
síðustu brun-
keppni heimsbik-
arsins hjá kon-
unum sem kepptu
í Schladming í
Austurríki. Var
þetta hennar
tólfti sigur í heimsbikarnum í vetur
en hún var áður búin að tryggja sér
sigur í heildarstigakeppninni. Vonn
var tæplega sekúndu á undan Mar-
ion Rolland frá Frakklandi en Tina
Maze hafnaði í þriðja sæti.
Mario Gomez framherji BayernMünchen jafnaði met í Meist-
aradeild Evrópu í knattspyrnu í
fyrrakvöld þegar hann skoraði fjög-
ur mörk í 7:1 sigri gegn Basel. Go-
mez skoraði fernuna á 23 mínútu
sem er jafnlangur tími og tók Króat-
ann Dado Prso að skora fjögur mörk
þegar Mónakó burstaði Deportivo
La Coruna í Meistadeildinni árið
2003.
Gomez er fyrsti Þjóðverjinn semnær því að skora fjögur mörk í
Meistaradeildinni og er hann kom-
inn í hóp með leikmönnum eins
Marco van Basten, Ruud van Nis-
telrooy og Lionel Messi. Argent-
ínumaðurinn Messi á metið í marka-
korun í einum leik í
Meistaradeildinni en hann skoraði 5
mörk í sigri gegn Bayer Leverkusen
í síðustu viku.
Fólk sport@mbl.is