Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2012 Kristján Jónsson kris@mbl.is Úrvalsdeildarlið Fjölnis úr Grafarvogi hefur ákveðið að skipta um þjálfara hjá meistaraflokki karla í körfuknattleik. Fjölnir nýtti sér uppsagn- arákvæði í samningnum við Örvar Þór Krist- jánsson og sleit samstarfinu við Njarðvíkinginn sem tók við stjórnartaumunum í október árið 2010. „Ég skil sáttur við þá,“ sagði Örvar í sam- tali við Morgunblaðið í gær en hann fékk tíðindin í fyrradag. Örvar segist hafa viljað ljúka þriggja ára samningi sínum en tekur niðurstöðunni af karlmennsku. „Markmið okkar var skýrt og það var að ná inn í úrslitakeppnina. Það náðist ekki og þjálfarinn verður bara að bera ábyrgð á því. Ég veit jafn- framt að menn eru ekki ósáttir við mig í Graf- arvoginum þó að þeir vilji breyta til. Ég virði það og er Steinari Davíðssyni formanni þakklátur fyr- ir að hafa gefið mér þetta tækifæri. Hann er al- ger toppmaður og hefur reynst mér vel en svona er bara þessi bransi. Þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar. Ég er mjög stoltur af mínum tíma í Grafarvoginum. Ég lærði helling á þessu og ég held að Fjölnir eigi eftir að græða á því í framtíð- inni hvað ungu strákarnir fengu mikið að spreyta sig og urðu að mönnum. Það held ég að sé mik- ilvægt,“ sagði Örvar Þór Kristjánsson við Morg- unblaðið. „Þegar einar dyr lokast, opnast aðrar“ Stoltur Örvar Kristjánsson kveðst vera stoltur af sínum tíma sem þjálfari Fjölnismanna. N1-deild kvenna ÍBV – Stjarnan..................................... 30:24 Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 12, Ivana Mladenovic 6, Grigore Ggorgata 4, Krist- rún Hlynsdóttir 2, Maríana Trabojovic 2, Hildur Dögg Jónsdóttir 1, Drífa Þorvalds- dóttir 1, Rakel Hlynsdóttir 1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 1. Mörk Stjörnunnar: Rut Steinsen 5, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 5, Hanna G. Stef- ánsdóttir 5, Sólveig Lára Kjærnested 2, Hildur Harðardóttir 2, Þórhildur Gunnars- dóttir 2, Esther Ragnarsdóttir 1, Arna Dýrfjörð 1, Sandra Sigurjónsdóttir 1. HK – Haukar ........................................ 34:31 Mörk HK: Elín Anna Baldursdóttir 11, Heiðrún B. Helgadóttir 7, Jóna S. Hall- dórsdóttir 5, Elva B. Arnarsdóttir 3, Sigríð- ur Hauksdóttir 2, Valgerður Ýr Þorsteins- dóttir 2, Arna Almarsdóttir 2, Guðrún Erla Bjarnadóttir 1, Harpa Baldursdóttir 1. Mörk Hauka: Marija Gedroit 12, Ásta Björk Agnarsdóttir 7, Karen Helga Sigur- jónsdóttir 5, Viktoría Valdimarsdóttir 4, Agnes Ósk Egilsdóttir 1, Silja Ísberg 1, Ásthildur Friðgeirsdóttir 1. Grótta – KA/Þór.................................. 23:23 Mörk Gróttu: Sunna María Einarsdóttir 9, Tinna Laxdal 4, Unnur Ómarsdóttir 4, Elín Helga Jónsdóttir 4, Laufey Ásta Guð- mundsdóttir 1, Björg Fenger 1. Mörk KA/Þórs: Katrín Vilhjálmsdóttir 7, Martha Hermannsdóttir 6, Erla Tryggva- dóttir 3, Jóhanna Snædal 3, Ásdís Sigurð- ardóttir 3, Hulda Tryggvadóttir 1. Valur – Fram........................................ 19:17 Staðan: Fram 16 14 0 2 448:331 28 Valur 15 14 0 1 479:330 28 ÍBV 15 10 0 5 399:356 20 Stjarnan 15 8 0 7 423:406 16 HK 15 8 0 7 420:410 16 Grótta 15 4 2 9 349:409 10 KA/Þór 15 4 1 10 351:407 9 Haukar 15 3 0 12 379:470 6 FH 15 1 1 13 311:440 3 Þýskaland Kiel – Füchse Berlín............................ 36:28  Aron Pálmarsson skoraði 1 mörk fyrir Kiel. Alfreð Gíslason þjálfar liðið.  Alexander Petersson skoraði 4 mörk fyr- ir Füchse. Dagur Sigurðsson þjálfar liðið. Bergischer – Göppingen .................... 27:27  Rúnar Kárason skoraði 2 mörk fyrir Bergischer. Gummersbach – Hildesheim ............... 36:31 Balingen – Hamburg............................ 21:26 Staðan: Kiel 26 26 0 0 839:596 52 Füchse Berlin 26 20 2 4 766:671 42 Flensburg 26 20 1 5 794:703 41 Hamburg 25 19 1 5 773:676 39 RN Löwen 25 18 1 6 770:696 37 Magdeburg 26 15 0 11 763:722 30 Lemgo 25 13 3 9 717:713 29 Göppingen 26 12 2 12 673:678 26 Melsungen 26 9 5 12 733:765 23 N-Lübbecke 26 10 1 15 725:743 21 Gummersb. 25 9 2 14 730:793 20 Grosswallst. 26 9 2 15 652:708 20 Burgdorf 26 8 3 15 763:817 19 Balingen 26 9 1 16 651:722 19 Wetzlar 26 7 2 17 653:681 16 Bergischer 26 7 1 18 722:796 15 Hüttenberg 26 5 3 18 662:757 13 Hildesheim 26 1 0 25 675:824 2 B-DEILD: Minden – Bittenfeld............................. 32:25  Árni Þór Sigtryggsson skoraði 7 mörk fyrir Bittenfeld og Arnór Þór Gunnarsson gerði 3. Friesenheim – Emsdetten .................. 23:22  Fannar Þór Friðgeirsson skoraði 5 mörk fyrir Emsdetten og Ernir Hrafn Arnarson einnig 5. Eisenach – Bietigheim........................ 36:19  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Eisenach. HANDBOLTI Grindavík – KFÍ 50:47 Grindavík, oddaleikur um sæti í úrvalsdeild kvenna. Gangur leiksins: 7:0, 14:6, 18:12, 18:15, 18:18, 20:23, 23:23, 28:25, 32:26, 37:28, 37:31, 40:33, 40:35, 48:38, 48:45, 50:47. Grindavík: Ingibjörg Sigurðardóttir 13/12 fráköst, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 11/4 fráköst, Berglind Anna Magnúsdóttir 10/11 fráköst, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 8/12 fráköst, Jeanne Lois Figeroa Sicat 6/4 frá- köst, Katrín Ösp Rúnarsdóttir 2/4 fráköst. Fráköst: 30 í vörn, 17 í sókn. KFÍ: Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir 17/9 fráköst, Svandís Anna Sigurðardóttir 13/16 fráköst, Anna Soffía Sigurlaugsdóttir 8, Eva Margrét Kristjánsdóttir 4/3 varin skot, Marelle Mäekalle 3/6 fráköst, Vera Óðinsdóttir 2/6 fráköst. Fráköst: 30 í vörn, 8 í sókn.  Grindavík sigraði 2:1 og tekur sæti Ham- ars í úrvalsdeildinni. NBA-deildin Philadelphia – Cleveland ................... 103:85 Milwaukee – Atlanta ........................ 108:101 Memphis – Minnesota.......................... 93:86 Dallas – Houston .................................. 90:81 Phoenix – SA Spurs.......................... 100:107 Portland – Oklahoma ......................... 95:109 Golden State – LA Lakers............... 101:104 KÖRFUBOLTI Á HLÍÐARENDA Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Þetta var rosalega spennandi leikur með talsverði hörku og miklum sveiflum eins og við mátti búast en við höfðum þar í lokin,“ sagði Þor- gerður Anna Atladóttir, leikmaður Vals, eftir að liðið steig stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum í handknattleik kvenna þriðja árið í röð. Valur vann Fram í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar, 19:17, og nú standa liðin jöfn að stigum. Fram hefur hinsvegar lokið leikjum sínum en Valur á einn leik eftir og verður að fá að minnsta kosti eitt stig úr viðureign sinni við KA/Þór á laugardaginn til að hreppa titilinn. Takist ekki að ná stigi gengur deild- armeistaratitillinn Val úr greipum og hafnar í höndum Fram. Miðað við úrslit leikja vetrarins þarf hinsvegar mikið að gerast til þess að KA/Þór setji strik í reikning Valsliðsins. Fyrri hálfleikur í viðureigninni í Vodafone-höllinni í gærkvöldi var af- ar sveiflukenndur. Fram-liðið var ekki með fyrsta stundarfjórðunginn, skoraði aðeins eitt mark á sama tíma og Valur skoraði sex mörk og hefði með réttu átt að skora mun fleiri mörk. Upp úr miðjum hálfleiknum var umpólun á leiknum þegar Vals- mönnum féll allur ketill í eld fram að hálfleik á meðan stríðsgæfan gekk í lið með Fram sem tókst að jafna metin, 8:8, og hefði með smáheppni til viðbótar getað verið marki yfir þegar flautað var til hálfleiks. Markverðirnir og Þrándur í Götu Síðari hálfleikur var lengi vel jafn- ari. Greinilegt var hinsvegar að mik- ið var undir og spennan talsverð í leikmönnum. Mistökin voru mörg á báða bóga. Markverðirnir fóru og á kostum og markstangirnar reyndust leikmönnum Þrándur í Götu margoft. Mörkin létu á sér standa. Valur komst yfir, 13:11, þegar síðari hálf- leikur var hálfnaður. Fram jafnaði metin fimm mínútum síðar í 13:13. Síðustu tíu mínúturnar voru hins vegar Valskvenna. Liðið náði þriggja marka forskoti, 17:14, og þótt Fram- liðið reyndi hvað það gat til þess að jafna metin tókst því aldrei að minnka muninn nema niður í tvö mörk. Varnarleikur og markvarsla var í aðalhlutverki í þessum leik hjá báð- um liðum. Það sem sennilega skildi á milli þegar horft er til baka þá mun- aði mest um að Valskonur náðu að skora fáein mörk eftir hraðaupp- hlaup en sterkur varnarleikur og góð markvarsla aðstoðaði Fram ekkert í þeim efnum. Ég held að liðið hafi ekki skorað eitt mark eftir hraðaupp- hlaup í leiknum. „Þetta var spennandi og skemmti- legur leikur,“ sagði Þorgerður Anna. „Við þurfum nú að ná stigi á Ak- ureyri á laugardaginn til þess að verða deildarmeistarar. Það er sýnd veiði en ekki gefin. Lið KA/Þórs hef- ur engu að tapa og mun örugglega láta okkur hafa fyrir að ná stigi eða stigum. Það væri frábært að ná deild- armeistaratitlinum og að því loknum þá verður stefnan sett á Íslands- meistaratitilinn þriðja árið í röð,“ sagði Þorgerður Anna Atladóttir, leikmaður Vals.  Á mbl.is er að finna viðtöl við Guðnýju Jennýju Ásmundsdóttur, markvörð Vals, Stefán Arnarson, þjálfara Vals og Einar Jónsson, þjálfara Fram. Sá þriðji í röð er innan seilingar hjá Valsliðinu Morgunblaðið/Kristinn Glaðar Ágústa Edda Björnsdóttir, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir og Kristín Guðmundsdóttir fagna sigrinum á Fram í leikslok í gærkvöld.  Í hnífjöfnum leik rann deildarmeistaratitillinn Fram úr greipum í lokin Vodafone-höllin á Hlíðarenda, úrvals- deild kvenna, N1-deildin, miðvikudag 28. mars 2012. Gangur leiksins: 0.1, 6:1, 6:3, 8:4, 8:8, 9:8, 11:10, 13:11, 13:13, 15:13, 17:14, 18:16, 19:16, 19:17. Mörk Vals: Hrafnhildur Ósk Skúla- dóttir 6/2, Karólína Bærhenz Láru- dóttir 3, Kristín Guðmundsdóttir 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2, Dagný Skúladóttir 2, Guðný Jenný Ás- mundsdóttir 1, Ragnhildur Rósa Guð- mundsdóttir 1, Þorgerður Anna Atla- dóttir 1. Varin skot: Guðný Jenný Ásmunds- dóttir 15 (þar af 3 til mótherja). Utan vallar: 16 mínútur. Mörk Fram: Elísabet Gunnarsdóttir 5/2, Stella Sigurðardóttir 5, Sunna Jónsdóttir 3, Sigurbjörg Jóhanns- dóttir 2, Ásta Birna Gunnarsdóttir 1, Guðrún Þór Hálfdánardóttir 1. Varin skot: Guðrún Ósk Maríasdóttir 15 (þar af 4 til mótherja). Utan vallar: 16 mínútur. Dómarar: Gísli H. Jóhannsson og Haf- steinn Ingibergsson. Áhorfendur: 263. Valur – Fram 19:17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.