Morgunblaðið - 29.03.2012, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2012
ÍSHOKKÍ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Snjallasta íshokkíleikmanni Íslands,
Emil Alengård, gefst loksins tæki-
færi til að spila aftur fyrir framan
íslenska áhorfendur í apríl, þegar
A-riðill 2. deildar heimsmeist-
aramóts karla í íshokkíi verður
haldinn í Reykjavík. Íshokkílands-
liðið kemur einungis saman einu
sinni á ári og þá er iðulega leikið er-
lendis. Emil og samherjar hans í
landsliðinu hafa því ekki leikið
landsleik á íslenskri grundu síðan
2006 en þá fór íslenska landsliðið
upp úr 3. deild.
„Ég er búinn að bíða eftir þessu
síðan í haust eða frá því að ég frétti
að riðillinn yrði spilaður í Reykja-
vík. Ég er því búinn að bíða eftir
þessu í allan vetur. Þetta verður
rosalega skemmtilegt og ég er mjög
spenntur. Ég verð að viðurkenna að
ég er einnig pínulítið stressaður. Ég
man eftir því að síðast þegar ég
spilaði á Íslandi þá mættum við ekki
sterkum liðum. Núna verða hins
vegar allir leikirnir miklu erfiðari
og maður vill því standa sig vel,“
sagði Emil þegar Morgunblaðið sló
á þráðinn til hans til Svíþjóðar. Í því
mikla íshokkílandi er Emil uppalinn
en hann á sænskan föður en móðir
hans heitir Unnur Valdís Ingv-
arsdóttir. Emil hefur ávallt verið ís-
lenskur ríkisborgari og ræddi við
blaðamann á íslensku þó að hann
hafi aldrei búið hérlendis.
Línurnar lagðar í Köben
Ísland mun mæta sterkum þjóð-
um á HM en fjórir af andstæðing-
unum fimm hafa leikið í 1. deild á
undanförnum árum en besti árang-
ur Íslands er 3. sæti í öðrum riðl-
inum í 2. deild. Þess má reyndar
geta að íslenska liðið hefur verið á
stöðugri uppleið undanfarin ár og
Emil segir að mikilvægt sé að byrja
mótið vel.
„Við þurfum að spila vel frá byrj-
un. Við munum koma saman í
Kaupmannahöfn til æfinga og mun-
um þar spila æfingaleiki. Þá verða
línurnar lagðar fyrir mótið og ég
held að Olaf Eller (landsliðsþjálf-
arinn) muni undirbúa liðið vel.“
Í Svíþjóð eru sjö deildir í íshokkíi
enda áhuginn gríðarlegur. Emil fór
á sínum tíma í gegnum unglinga-
starfið hjá Linköping sem er öflugt
félag í efstu deild og lék einnig með
New England – háskólaliði í Banda-
ríkjunum. Síðustu tvö tímabilin hef-
ur Emil verið í lykilhlutverki hjá liði
Mjölby sem leikur í þriðju deild í
Svíþjóð. Liðinu gekk ekki vel á síð-
asta tímabili og útlit er fyrir að Em-
il gangi til liðs við sterkara félag á
næstunni.
„Liðinu gekk ekki vel á þessu
tímabili og ég persónulega var ekki
mjög stöðugur. Það er erfiðara að
ná sér á strik þegar liðinu gengur
illa,“ sagði Emil sem lét þó ekki sitt
eftir liggja því hann skoraði 10
mörk og gaf 20 stoðsendingar. Á
miðju tímabili falaðist lið í toppbar-
áttu deildarinnar eftir kröftum Em-
ils. „Eitt besta lið deildarinnar vildi
fá mig í upphafi ársins en Mjölby
vildi ekki sleppa mér. Það var svo-
lítið leiðinlegt,“ sagði Emil enn-
fremur sem nú er laus allra mála
hjá Mjölby.
Ingólfur hefur lært mikið
Akureyringurinn Ingólfur Elías-
son gekk til liðs við Mjölby fyrir
tímabilið og lék með U-20 ára liði
félagsins í vetur en hann er tæplega
19 ára gamall. „Þetta var stórt skref
fyrir hann að fara úr íslensku
íshokkíi yfir í það sænska. U-20 ára
liðið er í næstbestu deildinni í þeim
aldursflokki. Hann hefur fengið
talsvert að spila, og hefur gengið
upp og ofan eins og við var að bú-
ast, því það er ekki létt að koma
hingað að spila. Hann hefur lært
mikið í vetur enda eru mörg smáat-
riði sem hægt er að bæta í þessari
íþrótt. Ég á von á því að hann verði
hérna áfram á næsta tímabili því þá
á hann ennþá eftir eitt tímabil í
U-20 ára liðinu. Hann er að verða
betri og betri. Ingólfur er hávaxinn
en er samt nokkuð hraður. Með því
að bæta tæknina verður hann góður
varnarmaður,“ sagði Emil um Ing-
ólf.
„Ég er mjög spenntur“
Snjallasti íshokkímaður Íslands Emil Alengård er búinn að bíða í allan vetur eftir því að spila fyrir
íslenska áhorfendur Loksins á heimavelli eftir sex ára bið þegar Ísland heldur HM í apríl
Ljósmynd/Kristján Maack
Sterkastur Emil Alengård er tvímælalaust fremsti íshokkímaður landsins og hann verður án efa í mikilvægu hlut-
verki þegar A-riðill 2. deildar heimsmeistaramótsins fer fram hér á landi í apríl.
Emil Alengård
» Hann er 24 ára gamall,
fæddur og uppalinn í Svíþjóð,
en hefur verið íslenskur rík-
isborgari frá fæðingu.
» Emil lék með unglingaliðum
Linöping, síðan með há-
skólaliði New England í Banda-
ríkjunum og er nú leikmaður
Mjölby í þriðju efstu deild í Sví-
þjóð.
» Hann hefur verið lykilmaður
í íslenska landsliðinu um árabil
og tekið drjúgan þátt í upp-
gangi þess.
» Emil er lykilmaður í sókn-
arleik íslenska liðsins. Á HM í
Eistlandi 2010 skoraði hann 6
mörk og gaf 6 stoðsendingar í
5 leikjum. Á HM í Króatíu í
fyrra skoraði hann 2 mörk og
gaf 8 stoðsendingar.
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Skíðalandsmót Íslands hefst á Akureyri í dag
með hinni kunnu sprettgöngu en mótið verð-
ur formlega sett í Brekkuskóla í kvöld. Morg-
unblaðið spurði Kolbrúnu Ingólfsdóttur
mótsstjóra hvernig aðstæður væru til skíða-
iðkunar í Hlíðarfjalli í kjölfar þeirra hlýinda
sem verið hafa undanfarna daga.
„Það er ágætur snjór eftir. Við eigum fínan
norðurbakka en neðsti hlutinn í suðurbakk-
anum er heldur að gefa sig. Ef frystir þá get-
um við keyrt í neðsta hluta brautarinnar en
höfum líka þann möguleika að færa svigið og
stórsvigið í norðurbakkann. Nú vonumst við
bara til þess að það frysti og við getum saltað.
Það er kólnandi spá en þó ekki fyrr en á
föstudagskvöld. Við höldum okkar striki til
að byrja með en höfum varaplan ef þarf,“
sagði Kolbrún og sagði skíðafólk vera vant
því að takast á við veðrið og engin vandamál
virtust vera fyrirsjáanleg í mótshaldinu.
Björgvin verður með
Kolbrún segir að tæplega hundrað manns
mæti til leiks og flest af besta skíðafólki
landsins verði með. „Í alpagreinum verða um
það bil sjötíu keppendur og tuttugu til tutt-
ugu og fimm í göngu. Um töluverða fækkun
er að ræða, aðallega vegna veðurfars en held-
ur hefur dregið úr keppendafjölda und-
anfarin ár. Iðkendafjöldinn gengur yfirleitt í
bylgjum á einhverjum árafjölda. Ég tel að
flest af okkar besta skíðafólki, núverandi og
fyrrverandi, muni vera með. Má þar nefna
ungt skíðafólk sem er hætt að keppa á fullu
eins og til dæmis Björgvin Björgvinsson,“
benti Kolbrún á.
Vonandi gengur spáin eftir
Mótshaldið verður með hefðbundnu sniði
að mestu leyti. „Við höfum fengið mjög góðan
stuðning frá ýmsum aðilum til að halda mótið
enda kostar það mikið. Foreldrar eru einnig
mjög duglegir við að taka þátt í sjálfboða-
vinnu. Svo vonum við bara að veðrið verði
hagstætt en ef spáin gengur eftir þá erum við
í þokkalega góðum málum,“ sagði Kolbrún
ennfremur við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mætir Björgvin Björgvinsson, fremsti skíðamaður Íslands um árabil, tekur skíðin fram á ný og
keppir á landsmótinu í Hlíðarfjalli. Hann hætti keppni að síðasta tímabili loknu.
Nægur snjór eftir til að halda landsmótið
Skíðalandsmótið hefst
á Akureyri í dag Flest af
þeim bestu með