Morgunblaðið - 30.03.2012, Page 1
Morgunblaðið/Eggert
Valsmaður? Patrekur Jóhannesson
gæti tekið við á Hlíðarenda.
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Ég var að fá tilboð frá Val fyrir
klukkutíma,“ sagði handknattleiks-
þjálfarinn Patrekur Jóhannesson í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi en hann hefur verið nefndur
sem næsti þjálfari karlaliðs Vals í
handknattleik nú þegar ljóst er að
Óskar Bjarni Óskarsson hefur ráðið
sig til danska úrvalsdeildarliðsins
Viborg.
„Ég ætla að gefa mér tíma til
þess að fara yfir tilboðið og fá ým-
islegt á hreint, til dæmis hvernig
Valsliðið verður skipað á næsta
keppnistímabili áður en ég geri upp
hug minn,“ sagði Patrekur sem
heldur á morgun til Austurríkis þar
sem hann stýrir karlalandsliðinu en
framundan eru æfingabúðir hjá
landsliðinu og þátttaka í fjögurra
þjóða móti í Innsbruck um páskana.
Patrekur ætlar ekki að gefa Val
svar fyrr en hann kemur heim úr
Austurríkisferðinni.
Skoða allar hliðar á þessu
„Ég er stoltur af því að Valsmenn
hafi áhuga á að fá mig til starfs.
Valur er stórt félag með frábæra
umgjörð, örugglega þá bestu á
landinu. Þar af leiðandi mun ég
skoða allar hliðar þess að koma til
starfa hjá Val,“ segir Patrekur sem
reiknar ekki með að til árekstra
komi þótt svo færi að hann tæki að
sér þjálfun Vals eða annarra liða
hér á landi.
„Forráðamenn austurríska sam-
bandsins hafa ekkert á móti því að
ég þjálfi félagslið heima á Íslandi.
Ég hef því frjálsar hendur í þeim
málum,“ segir Patrekur Jóhann-
esson sem er efstur á óskalista Vals
yfir næsta þjálfara karlaliðs félags-
ins. iben@mbl.is
„Ég ætla að
fá ýmislegt
á hreint“
Patrekur fékk tilboð frá Val í gær
Getur þjálfað bæði Val og Austurríki
FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ!
Akureyri–Valur
Höllin, Ak. | Kl. 19.30
Fös. 30. mars | N1-deild karla
HK–Fram
Digranes | Kl. 19.30
Fös. 30. mars | N1-deild karla
Haukar–FH
Schenkerhöllin | Kl. 19.30
Fös. 30. mars | N1-deild karla
Afturelding–Grótta
Varmá | Kl. 19.30
Fös. 30. mars | N1-deild karla
Til hamingju Haukar!
Haukar eru N1-deildarmeistarar 2012
Endurkoma Einar Hólmgeirsson spilar handbolta á ný eftir árshlé. Samdi við Magdeburg til
tveggja mánaða og spilar strax um helgina. Fékk samninginn í þrjátíu ára afmælisgjöf. 2
Íþróttir
mbl.is
Sævar Birgisson frá Ólafsfirði og Silja Rán Guðmunds-
dóttir frá Ísafirði sigruðu í sprettgöngu karla og
kvenna, fyrstu grein Skíðamóts Íslands, sem hófst í
Hlíðarfjalli við Akureyri síðdegis í gær, við frekar
blautar aðstæður.
Næstur á eftir Sævari í karlaflokki var Vadim Gusev
frá Akureyri og þriðji varð Brynjar Leó Kristinsson
frá Akureyri.
Ísfirðingar hrepptu þrjú efstu sætin í kvennaflokki
því á eftir Silju komu þær Rannveig Jónsdóttir og
Elena Dís Víðisdóttir sem líka eru báðar að vestan.
Keppni í hefðbundnum greinum hefst klukkan 10 í
dag en þá er stórsvig karla og kvenna á dagskrá.
Göngugreinarnar fara síðan af stað strax eftir hádegið.
Snjórinn í Hlíðarfjalli hefur minnkað hratt síðustu
daga, enda var 12 stiga hiti á Akureyri í gær þegar
sprettgangan hófst. Í dag á hitastigið hinsvegar að fara
niður undir frostmark og mótshaldarar gera sér vonir
um að geta haldið mótinu áfram við þokkaleg skilyrði.
Á morgun á hinsvegar að hlýna á ný. vs@mbl.is
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Fyrstur Sævar Birgisson frá Ólafsfirði.
Sævar og Silja spretthörðust
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Fyrst Silja Rán Guðmundsdóttir frá Ísafirði.
íþr ttir