Morgunblaðið - 30.03.2012, Síða 3

Morgunblaðið - 30.03.2012, Síða 3
knattspyrnumaður eið til liðs á Norð- ega frá málum í dag. að Skúli gengi til liðs liðið Sogndal eins og i forráðamenn fé- gar tókust ekki. hjá félaginu, það er staðið, en þetta kúli Jón og staðfesti Skandinavíu, eins ri möguleikar hefðu m málið að svo rir að leika með KR- is ga í dag ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012 Anton SveinnMcKee setti tvö Íslandsmet í sama sundinu á Opna spænska meistaramótinu í sundi í gær. Hann sló eigið met í 1.500 m skriðsundi þegar hann kom í mark á 15.30,32 mínútum og 800 metrunum í millitíma í 1.500 metra sundinu á tímanum 8.10,34. Anton Sveinn varð í 2. sæti í 1.500 metra sundinu. Jakob Jóhann Sveinsson sigraði í 100 m bringusundi á sama móti á 1.02,47 og Eygló Ósk Gústafsdóttir varð í 4. sæti í 50 m baksundi. Öll eru þau úr Sundfélaginu Ægi. Anton Sveinn, Jakob Jóhann og Eygló Ósk keppna í fleiri greinum á mótinu næstu dögum. Mótið er haldið í Málaga.    Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttirúr ÍFR fékk silfurverðlaun í langstökki á alþjóðlega frjáls- íþróttamótinu í Túnis en hún keppti þar síðust Íslendinganna fjögurra sem þangað fóru. Matthildur stökk lengst 4,10 metra en sigurvegarinn, sem var frá Túnis, stökk 4,13 metra þannig að gullverðlaunin voru skammt undan. Hún tryggði sér með þessu þátt- tökurétt á Evrópumeistaramótinu í Hollandi í sumar. Þá fór Matthildur langt yfir lágmarkið fyrir Ólympíu- mót fatlaðra í London, sem er 3,85 metrar. Hún þarf hinsvegar að berj- ast við aðra sem náð hafa lágmörk- um um endanlegu farseðlana til London.    Róbert Sighvatsson, þjálfari 1.deildar liðs Víkings í hand- knattleik var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ. Róbert, sem lék á árum áður með ís- lenska landsliðinu, fékk útilokun með skýrslu vegna óíþróttamanns- legrar framkomu í leik Víkings og ÍR í Austurbergi um síðustu helgi. Róbert mun því ekki stjórna sínum mönnum frá varamannabekknum í kvöld þegar Víkingar taka á móti Selfyssingum í lokaumferð 1. deild- arinnar.    Íris Ásta Pét-ursdóttir lék sinn fyrsta leik í hálft ár í gær- kvöld þegar lið hennar, Gjövik HK, tapaði á heimavelli fyrir Stabæk, 23:22, í síðari leik liðsins í úrslitakeppninni um norska meist- aratitilinn í handknattleik. Hún spil- aði allan seinni hálfleikinn í leiknum og náði ekki að skora en átti fimm stoðsendingar sem gáfu mörk. Þetta síðasti leikur Írisar Ástu með Gjö- víkur-liðinu en samningur hennar rennur út í vor en fyrir nokkru var henni tilkynnt að nýr samningur stæði henni ekki til boða. Fólk folk@mbl.is Í VESTURBÆNUM Kristinn Friðriksson sport@mbl.is Jæja, úrslitakeppnin er hafin! Skag- firskir mættu galvaskir í Vest- urbæinn í gærkveldi, saddir af kjöt- súpu, og háðu fyrstu viðureignina við KR í 8 liða úrslitum IE- deildarinnar. Það fór ekkert á milli mála í upphitun að deildakeppn- isbrag hafði verið skipt út fyrir blóð- baðsbraginn, enda mikilvægi leiks- ins stjarnfræðilegt fyrir bæði lið. KR-ingar máttu illa við að mis- stíga sig í fyrsta leik og pressan öll á þeim; þeir skagfirsku gátu hins- vegar verið léttir í lund og afslapp- aðir í hlutverki undirhundanna. Mál- ið var hinsvegar að þeir komu aðeins of afslappaðir; sóknarleik- urinn í algjöru bulli og KR-ingar unnu öruggan sigur 84:68 í spennu- lausum leik. Sencanski opnaði leikinn í fag- urfræði troðslunnar á meðan Stól- arnir áttu í erfiðleikum að skora í upphafi og KR með gott vald á leiknum. Fyrsta karfa gestanna kom eftir 4 mínútur en þeir réttu sig við, með Miller fremstan í flokki; fín vörn og hraðaupphlaup sem skiluðu auðveldum körfum, staðan eftir fyrsta hluta 23:19 og klárt að Stól- arnir ætluðu ekki að láta setjast á sig. Sóknin var rót alls ills Heimamenn voru alltaf fetinu á undan í fyrri hálfleik; sóknin hefur sést betri en vörnin var fín. Tinda- stóll spilaði ágæta vörn á köflum en sóknin var rót alls ills þó að barátta leikmanna bætti hana oft upp. Á síð- ustu mínútum hálfleiksins fór að skilja á milli; Stólarnir fundu opin skot sem duttu ekki á meðan KR setti sín niður. Stólarnir voru klauf- ar á síðustu mínútum hálfleiksins og opnuðu fyrir hlaðborð stiga fyrir KR, staðan 46:32 í hálfleik og Stól- arnir búnir að gera sér seinni hálf- leik mun erfiðari en tilefni var til. Þrátt fyrir álitlega byrjun gest- anna var þeim fyrirmunað að hitta úr opnu skotunum; það sem bjargaði þeim var sama getuleysi KR og fín vörn á köflum. Þegar 5 mínútur voru eftir af þriðja voru Ferguson, Brown og Finnur Magnússon allir komnir með 3 villur, staðan 54:45, og tækifæri Stólanna að komast aft- ur inn í leikinn tilvalið. Létu ekki kné fylgja kviði Brown fékk sína fjórðu einni mín- útu seinna og þrátt fyrir hrikalega dapran sóknarleik KR tókst Stól- unum ekki að nýta sér tækifærið því þeir voru á sömu bylgjulengd þegar kom að klaufaskap og slæmri vít- anýtingu. Það var ekki fyrr en Svav- ar Birgisson kom loksins aftur inn á þegar tvær mínútur voru eftir að hlutirnir fóru að gerast fyrir Stól- ana; hann setti 5 stig á stuttum tíma og galopnaði leikinn; 60:57 eftir þrjá hluta. Stólarnir létu ekki kné fylgja kviði heldur fóru aftur í sama farið; tap- aðir boltar og léleg skot á meðan KR voru skynsamir; fóru inn í teig með tuðruna þar sem Ferguson fór hamförum og munurinn aftur 9 stig. KR-ingar fengu að vaða uppi í sókn- arfráköstum; eitthvað sem gestirnir máttu alls ekki við á þeim tíma- punkti. Þegar 4 mínútur lifa leiks setur Ferguson þriggja og mun- urinn 12 stig og allt útlit fyrir að síðasta vígi Stólanna væri fallið. Síð- ustu mínúturnar fjöruðu út fyrir gestina og öruggum sigri heima- manna siglt rólega í höfn. Brown og Ferguson mjög góðir KR léku ekki sinn besta leik en góðir sóknarkaflar inni á milli voru nóg í gær. Stólarnir skoruðu aðeins 68 stig í leiknum en varnarleikur KR á alls ekki allan heiðurinn af því heldur hittu leikmenn Stólanna ekki hliðina á hlöðu. Sencanski, Finnur, Brown og Ferguson voru mjög góðir í leiknum, sérstaklega tveir síðast- nefndu. KR náði að kúpla Miller út í seinni hálfleik og góður varnar- og sóknarleikur í fjórða leikhluta var yfirdrifið nóg að þessu sinni. Einstaklingar ofurliði bornir Tindastólsliðið átti sín augnablik í leiknum en virtist aldrei tilbúið eða með getuna til þess að ógna KR og sóuðu mörgum tækifærum til þess. Svavar kom sterkur inn af bekknum en spilaði lítið, Helgi Viggósson var traustur, Þröstur Jóhannsson, Mill- er og Curtis áttu ágætiskafla en oft- ast var þetta einstaklingsframtak og lið hvergi að finna. Það er alveg ljóst leikmenn þurfa að þjappa sér saman í lið; sem einstaklingar eru þeir ofurliði bornir, svo mikið er ljóst. Hittni liðsins var skelfileg; sem kostar þá a.m.k. möguleikann að sigra og þetta verður ekki leyst nema með liðsátaki gegn ein- staklingshyggjunni. Liðið getur bet- ur og þarf þess virkilega; þetta vita leikmenn manna best. Góðir kaflar nóg hjá KR Morgunblaðið/Golli Átök Sauðkrækingarnir Helgi Rafn Viggósson og Þröstur Leó Jóhannsson og KR-ingurinn Emil Þór Jóhannsson í hörðum slag um boltann í gærkvöld.  Vesturbæingar þurftu ekki sinn besta leik gegn Tindastóli  Stólarnir voru að- eins of afslappaðir í Vesturbænum  Fyrirmunað að hitta úr opnum skotum Hreiðar Levý Guð- mundsson, landsliðs- markvörður í hand- knattleik, hefur skrifað undir nýjan samning við norska úrvalsdeild- arliðið Nötteröy og gild- ir samningurinn til tveggja ára. Tvö frönsk félög og eitt úr þýsku B-deildinni settu sig í samband við Hreiðar með það fyrir augum að fá hann til liðs við sig en hann ákvað að halda kyrru fyrir hjá Nötteröy þar sem honum líkar dvölin vel ásamt fjöldskyldunni en Nötteröy kemur frá samnefndum 20 þúsund manna bæ sem stendur vestan megin við Óslóar- fjörðinn. Hreiðar hefur átt góðu gengi að fagna með nýliðunum í vetur en úrvalsdeildinni lauk í gær og enduðu Hreiðar og félagar hans í 7. sæti af 12 liðum og fara í úr- slitakeppnina sem hefst að loknum pásk- um. Þar verður Nötteröy í riðli með Haslum, Fyllingen og Arendal. Nötteröy fékk á sig næstfæst mörk allra liða í deildinni og það var ekki síst fyrir frammistöðu Hreiðars, sem í gær var valinn í landsliðshópinn sem býr sig undir forkeppni Ólympíuleikanna. gummih@mbl.is Hreiðar samdi við Nötteröy á ný Hreiðar Levý Guðmundsson Hrafnhildur Lúth- ersdóttir, sundkona úr Sundfélagi Hafn- arfjarðar, tvíbætti í gær Íslandsmetið í 200 m bringusundi í 50 m laug á Grand Prix móti í Indiana- polis í Bandaríkj- unum. Í gærmorgun synti hún á 2.30, 66 mínútum en gerði og synti á 2.28,87 mínútum. Hrafnhildur hafnaði í sjötta sæti, réttum fjórum sek- úndum á eftir sigurvegaranum. Árang- ur Hrafnhildar í gærkvöldi nægði henni ekki til þess að ná A-lágmarki fyrir Ól- ympíuleikana sem fram fara í sumar. Um tvær sekúndur vantaði upp á. Grand Prix í Indianapolis er fyrsta mótið af nokkrum sem haldin verða á næstu vikum á vegum bandaríska sund- sambandinu þar sem kostur gefst á að gera atlögu að lágmarksárangri fyrir Ólympíuleikana. Hrafnhildur tekur þátt í 100 m bringusundi á mótinu á morgun og í 200 m fjórsundi á sunnudag. Sarah Bateman tekur einnig þátt í mótinu og verður m.a. á meðal kepp- enda í 50 m skriðsundi á morgun. iben@mbl.is Hrafnhildur tvíbætti metið Hrafnhildur Lúthersdóttir DHL-höllin, 8 liða úrslit karla, 1. leikur: Gangur leiksins: 6:0, 10:4, 17:15, 23:19, 27:24, 32:27, 39:30, 46:32, 50:38, 54:45, 57:50, 60:57, 68:59, 69:63, 77:63, 84:68. KR: Robert Lavon Ferguson 21/7 frá- köst, Dejan Sencanski 17/8 fráköst, Joshua Brown 15/12 fráköst/6 stoð- sendingar, Finnur Atli Magnússon 11/ 11 fráköst/8 stoðsendingar, Emil Þór Jóhannsson 9, Martin Hermannsson 5, Hreggviður Magnússon 4, Jón Orri Kristjánsson 2. Fráköst: 33 í vörn, 12 í sókn. Tindastóll: Curtis Allen 16/7 fráköst, Maurice Miller 13/5 fráköst/6 stoð- sendingar, Þröstur Leó Jóhannsson 12/5 fráköst, Svavar Atli Birgisson 11, Helgi Rafn Viggósson 9/8 fráköst, Igor Tratnik 5/4 fráköst, Hreinn Gunnar Birgisson 2. Fráköst: 21 í vörn, 12 í sókn. Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð Kr. Hreiðarsson. Áhorfendur: Um 1.000.  Staðan er 1:0 fyrir KR. KR – Tindastóll 84:68

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.