Morgunblaðið - 30.03.2012, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2012
Í GRINDAVÍK
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Grindvíkingar hófu úrslitakeppnina
eins og deildameisturum sæmir og
unnu ungt lið Njarðvíkinga 94:67 í
Röstinni í Grindavík í gærkvöldi.
Grindavík tók þar með 1:0 forystu í
rimmunni en vinna þarf tvo leiki til að
komast í undanúrslit Íslandsmótsins.
Næsti leikur fer fram í Njarðvík en
oddaleikurinn í Grindavík ef á þarf að
halda.
Njarðvíkingurinn Jóhann Árni
Ólafsson lagði sitt af mörkum fyrir
Grindavík í leiknum bæði í vörn og
sókn en sagði í samtali við Morg-
unblaðið að Grindvíkingar legðu sem
fyrr höfuðáherslu á varnarleikinn.
„Við vorum í botni allan tímann.
Lögðum mikla áherslu á vörnina og
þá kemur sóknin með. Þegar við höld-
um liðum í 67 stigum eigum við góða
möguleika á að vinna og það er það
sem við leggjum upp með. Við erum
alltaf að pæla í vörninni okkar og höf-
um gert það í allan vetur. Við erum
með fullt af leikmönnum sem geta
skorað og því fer mest einbeiting í
vörnina,“ sagði Jóhann að leiknum
loknum.
Samhent átak í vörninni
Grindvík er með öflugri leik-
mannahóp heldur en Njarðvík. Það er
borðleggjandi en auk þess er kannski
ekki mikið kjöt utan á ungu mönn-
unum hjá Njarðvík og því ekki auðvelt
fyrir þá að eiga við kjötstykki eins og
Ryan Pettinella, J’Nathan Bullock og
Sigurð Þorsteinsson. Gamla kempan
Páll Kristinsson reyndi þó eins og
hann gat og átti ágætan leik fyrir
Njarðvíkinga. Jóhanni fannst það þó
ekki skipta miklu máli.
„Mér finnst þeir nú ekkert voðalega
léttir og það eru kíló á þeim nokkrum.
Við hjálpumst vel að í vörninni og
höldum þeim fyrir framan okkur. Auk
þess erum við með turna inni í teign-
um og við bakverðirnir getum því al-
veg leyft okkur að vera aðeins nær
mönnum en vanalega. Það er hörku-
færsla í vörninni og liðsvörnin er að
skila þessari niðurstöðu, burtséð frá
aldri eða kílóum,“ sagði Jóhann og
hann segist ekki finna mikið fyrir því
þó að hann sé að spila á móti uppeldis-
félaginu.
„Mér fannst svolítið sérstakt að
koma inn í Njarðvík í fyrsta skipti
með gestaliðinu þegar við spiluðum
við þá í deildakeppninni. Þegar ég
vaknaði í morgun fór ég bara í að und-
irbúa mig fyrir að spila í úrslitakeppn-
inni. Svo mætti Njarðvík bara í húsið
og þetta var eins og hvert annað verk-
efni. Ég skildi við klúbbinn í góðu og
finn ekki svo mikið fyrir þessu,“ sagði
Jóhann Árni.
Ógnarsterkt lið
Grindvíkingar urðu ekki deilda-
meistarar að ástæðulausu og þeir
sýndu í gærkvöldi að þeir eru tilbúnir
í slaginn í úrslitakeppninni. Þeir virð-
ast vera liðið sem menn þurfa að ryðja
úr vegi til þess að ná Íslandsmeist-
aratitlinum. Liðið er ógnarsterkt, það
verður að segjast alveg eins og er.
Liðið spilar vörnina af ákefð og í sókn-
inni eru óteljandi vopn. Grindvíkingar
eru tilbúnir og spurningin er hvort
aðrir kandídatar séu það einnig.
Grindavík
er tilbúin í
titilslaginn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Drjúgur Þorleifur Ólafsson skoraði 13 stig fyrir Grindvíkinga í gærkvöld.
Voru afar sannfærandi í fyrsta leik
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Einar Hólmgeirsson skrifar í dag
undir tveggja mánaða samning við
þýska 1. deildar liðið SC Magdeburg
og verður í liðinu strax á morgun
þegar það fær HSV Hamburg í heim-
sókn í Bördelandhalle í þýsku 1.
deildinni í handknattleik. Einar, sem
varð þrítugur í gær, hefur ekki leikið
handknattleik í eitt ár vegna þrá-
látra meiðsla og var jafnvel talið að
ferill stórskyttunnar væri á enda.
„Það má segja að það sé um tvö-
falda hamingju að ræða hjá mér, af-
mæli og samning,“ sagði Einar í sam-
tali við Morgunblaðið síðdegis í gær
þegar hann var nýkominn út af æf-
ingu hjá Magdeburg-liðinu.
„Ég hef æft með þriðju deildar liði
síðan um áramót og ég vonast til þess
að vera í lagi en auðvitað mun fyrst
reyna á hvort ég er í standi til að
spila í efstu deild á næstu tveimur
mánuðum. Vonandi gengur þetta hjá
mér en fyrst og fremst ætla ég að
njóta þess að spila handbolta á nýjan
leik næstu tvo mánuðina,“ sagði Ein-
ar sem hefur verið einstaklega
óheppinn með meiðsli síðustu árin.
„Ég verð ekki aðalhlutverki í
skyttustöðunni hjá
Magdeburg, verð
aðallega í því að
leysa aðalskyttuna
hægra megin af,“
segir Einar sem er
ætlað að fylla
skarð Jure Nateks
sem meiddist fyrir
skömmu og leikur
ekki meira á þessu
tímbili.
„Magdeburg er ekki að taka neina
áhættu með því að gera samning við
mig því ef í ljós kemur að ég get ekki
spilað af fullum krafti þá fer ég á ný
inn á tryggingabótakerfið sem ég hef
verið á síðan samningur minn við
Ahlen/Hamm rann út í fyrra. Kerfið
er þannig að ég má láta reyna á
hvort ég get farið af stað aftur, “
sagði Einar ennfremur.
„Ég er mjög ánægður með að fá
þetta tækifæri til að reyna á mig á
nýjan leik. Ég fer rólega af stað, tek
eitt skref í einu og við sjáum svo til
hverju það skilar,“ sagði Einar.
Magdeburg verður fjórða liðið sem
Einar leikur með í Þýskalandi. Áður
hefur hann verið samningsbundinn
Grosswallstadt, Flensburg og Ahlen/
Hamm.
Einar fékk samning nánast í afmælisgjöf
Einar
Hólmgeirsson
Íslandsmótið í badminton hefst í
kvöld og stendur yfir í TBR-húsunum
við Gnoðarvog til sunnudags. Mótið
hefur verið haldið samfleytt frá árinu
1949 og fer því fram í 64. skipti.
Ragna Ingólfsdóttir á möguleika á
að verða sigursælasta konan í einliða-
leik á Íslandsmótinu frá upphafi. Hún
og Elsa Nielsen hafa orðið 8 sinnum
Íslandsmeistarar hvor og Ragna get-
ur því farið fram úr henni. Hún á þó
enn nokkuð í að ná þeirri sigursæl-
ustu samtals. Ragna hefur, eins og
Elsa, unnið alls 18 titla í einliðaleik,
tvíliðaleik og tvenndarleik, en Lovísa
Sigurðardóttir vann á sínum tíma alls
24 Íslandsmeist-
aratitla. Þar af
voru 12 í tvíliða-
leik, 6 í einliðaleik
og 6 í tvennd-
arleik.
Ragna þykir af-
ar sigurstrangleg
í ár. Hún hefur
unnið mótið 8
sinnum á síðustu
9 árum en gat
ekki verið með árið 2009 vegna
meiðsla. Snjólaug Jóhannsdóttir er
líklegust til að veita Rögnu keppni en
hún er langhæst á íslenska styrk-
leikalistanum í vetur.
Magnús Ingi Helgason er líka lík-
legur til að verja Íslandsmeistaratit-
ilinn í einliðaleik karla, sem hann
vann öðru sinni í fyrra. Helgi Jóhann-
esson mun þó eflaust veita honum
harða keppni en Helgi hefur fimm
sinnum orðið meistari. Atli Jóhann-
esson og Egill Guðlaugsson gætu
blandað sér í baráttuna. Allir þessir
eiga langt í land með að ná þeim sig-
ursælasta. Broddi Kristjánsson vann
á sínum tíma 43 Íslandsmeistaratitla,
þar af 14 í einliðaleik. Helgi er sam-
tals með 15 titla og Magnús 12.
vs@mbl.is
Slær Ragna met Elsu um helgina?
Ragna
Ingólfsdóttir
Skúli Jón Friðgeirsson, k
úr KR, er væntanlega á le
urlöndum og gengur líkle
Ekkert varð þó af því a
við norska úrvalsdeildarl
útlit var fyrir. Hann hitti
lagsins í gær en samning
„Mér leist vel á margt
greinilega vel að mörgu s
gekk ekki upp,“ sagði Sk
að nú lægi leiðin annað í
og hann orðaði það. Fleir
komið upp, en meira gæti hann ekki sagt um
stöddu.
Skúli sagði þó að hann gerði ekki ráð fyr
ingum á komandi keppnistímabili. vs@mbl.i
Skúli semur líkleg
Skúli Jón
Friðgeirsson
Evrópudeild UEFA
8 liða úrslit, fyrri leikir:
AZ Alkmaar – Valencia .......................... 2:1
Brett Holman 45., Maarten Martens 79. –
Mehmet Topal 52.
Jóhann Berg Guðmundsson lék allan
leikinn með AZ.
Atlético Madrid – Hannover .................. 2:1
Radamel Falcao 9., Eduardo Salvio 89. –
Mame Biram Diouf 38.
Schalke – Athletic Bilbao ....................... 2:4
Raúl 22., 60. – Fernando Llorente 20., 73.,
Óscar De Marcos 81., Iker Muniain 90.
Sporting Liss. – Metalist Kharkiv ......... 2:1
Marat Izmailov 51., Emiliano Insúa 64. –
Cleiton Xavier 90.
KNATTSPYRNA
Danmörk
Úrslitakeppni karla:
Århus – AG........................................... 26:31
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk
fyrir AG, Snorri Steinn Guðjónsson 5, Ólaf-
ur Stefánsson 1 en Arnór Atlason ekkert.
HANDBOLTI
NBA-deildin
Toronto – Denver ............................... 105:96
New York – Orlando .......................... 108:96
Charlotte – Minnesota ......................... 83:88
Cleveland – Detroit .............................. 75:87
Boston – Utah Jazz............................... 94:82
Atlanta – Chicago ................................. 77:98
Sacramento – SA Spurs ................... 112:117
LA Clippers – Phoenix....................... 103:86
Golden State – New Orleans ............. 87:102
Staðan í Austurdeild:
Chicago Bulls 52 41 11 78,8%
Miami Heat 48 35 13 72,9%
Orlando Magic 51 32 19 62,7%
Philadelphia 76ers 50 28 22 56,0%
Indiana Pacers 49 29 20 59,2%
Atlanta Hawks 52 30 22 57,7%
Boston Celtics 50 28 22 56,0%
New York Knicks 51 26 25 51,0%
Milwaukee Bucks 50 23 27 46,0%
Detroit Pistons 50 18 32 36,0%
Cleveland Cav’s 48 17 31 35,4%
Toronto Raptors 51 17 34 33,3%
New Jersey Nets 52 17 35 32,7%
Washington Wizards 49 11 38 22,4%
Charlotte Bobcats 48 7 41 14,6%
Staðan í Vesturdeild:
Oklahoma Thunder 50 38 12 76,0%
San Antonio Spurs 49 35 14 71,4%
Los Angeles Lakers 50 31 19 62,0%
Los Angeles Clippers 50 29 21 58,0%
Dallas Mavericks 51 29 22 56,9%
Memphis Grizzlies 48 27 21 56,3%
Utah Jazz 51 27 24 52,9%
Houston Rockets 51 27 24 52,9%
Denver Nuggets 51 27 24 52,9%
Phoenix Suns 51 25 26 49,0%
Minnesota T-wolves 52 25 27 48,1%
Portland T-Blazers 50 23 27 46,0%
Golden St. Warriors 49 20 29 40,8%
Sacramento Kings 50 17 33 34,0%
New Orleans Hornets 50 13 37 26,0%
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
8 liða úrslit karla, fyrri leikir:
Þorlákshöfn: Þór Þ. – Snæfell ............... 19.15
Ásgarður: Stjarnan – Keflavík .............. 19.15
Úrslitaleikir um sæti í 1. deild karla:
Kórinn: Augnablik – Leiknir R ............. 20.30
Kennaraháskóli: Fram – Reynir S............. 21
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Digranes: HK – Fram ............................ 19.30
Schenker-höllin: Haukar – FH.............. 19.30
Höllin Ak.: Akureyri – Valur ................. 19.30
Varmá: Afturelding – Grótta ................. 19.30
1. deild karla:
Grafarvogur: Fjölnir – ÍBV ................... 19.30
Mýrin: Stjarnan – ÍR.............................. 19.30
Víkin: Víkingur – Selfoss........................ 19.30
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Selfoss: Víkingur Ó. – Selfoss ..................... 19
Egilshöll: Leiknir R. – Höttur .................... 19
Boginn: KA – Tindastóll .............................. 20
Varmárvöllur: Aftureld. – Reynir S........... 19
Leiknisvöllur: KB – HK .............................. 20
Fagrilundur: Ýmir – Berserkir .................. 20
SKÍÐI
Skíðalandsmótið heldur áfram í Hlíðarfjalli
við Akureyri. Stórsvig karla og kvenna hefst
kl. 10 og seinni ferð kl. 12.30. Einnig er
keppt í göngu með hefðbundinni aðferð, pilt-
ar 17-19 ára ganga 10 km kl. 13, konur ganga
5 km kl. 13.05 og karlar 15 km kl. 13.45.
BADMINTON
Íslandsmótið í badminton hefst í TBR-hús-
unum við Gnoðarvog í dag kl. 18. Keppt er í
einliðaleik karla og kvenna til kl. 21.30 í
kvöld.
ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA
Íslandsmótið hefst með keppni í frjálsíþrótt-
um í Laugardalshöllinni en þar er keppt kl.
17 til 20 í dag.
Í KVÖLD!
Grindavík, 8 liða úrslit karla, fyrsti
leikur:
Gangur leiksins: 6:7, 17:13, 23:15,
29:19, 31:19, 37:25, 42:32, 46:32,
53:36, 61:42, 67:47, 73:52, 79:54,
81:54, 87:60, 94:67.
Grindavík: J’Nathan Bullock 19/10
fráköst, Sigurður G. Þorsteinsson
17/4 fráköst, Þorleifur Ólafsson 13/4
fráköst, Ryan Pettinella 10, Giordan
Watson 9/12 stoðsendingar, Páll Axel
Vilbergsson 9/7 fráköst, Jóhann Árni
Ólafsson 7/6 fráköst, Ólafur Ólafsson
4/4 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 4,
Björn S. Brynjólfsson 2.
Fráköst: 29 í vörn, 14 í sókn.
Njarðvík: Travis Holmes 20/5 fráköst,
Cameron Echols 18/4 fráköst, Elvar
Már Friðriksson 9, Páll Kristinsson 8/7
fráköst, Rúnar Ingi Erlingsson 3, Hjört-
ur Hrafn Einarsson 3, Oddur Birnir
Pétursson 2/5 fráköst, Jens Valgeir
Óskarsson 2, Maciej Baginski 2.
Fráköst: 22 í vörn, 8 í sókn.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Georg
Andersen.
Áhorfendur: 463.
Staðan er 1:0 fyrir Grindavík.
Grindavík – Njarðvík 94:67