Morgunblaðið - 22.03.2012, Page 24
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Í fjallaferðum gildir að vera á vel útbúnum bílum. Ekki síður skiptir máli að vita hvað bílnum má bjóða og geta
leyst úr sérhverri þraut, svo sem ef bíllinn bilar. Ferðaklúbburinn 4 x 4 fór á fjöll um helgina. »30
Fjörlegt fjallaslark
bílar
Nýr BMW 118i Cabriolet er sport-
legur að sjá á sumrin með blæjuna
niðri. Minnir satt að segja á
spæjarabíl. Hann er einnig fáan-
legur í veglegri útgáfu sem 135i og
er þá búinn 305 hestöflum.
Enn fást á Íslandi bílar sem kosta
undir tveimur millj. kr. Skv. laus-
legri athugun blaðsins eru þeir
fjórir. Þrír bílanna kosta undir 1,8
millj. kr. og einn undir 1,9. Í töfl-
unni hér að neðan sjást fimm
ódýrustu bílarnir en einn skríður
rétt yfir tvær milljónir. Allt eru
þetta smábílar með litlar vélar og
sprengirými frá 1 til 1,2 líter og 67
til 69 hestöfl. Að sama skapi eyða
þessir bílar litlu og henta vel í
borgarumferðinni; það er eyða
fjórum til fimm lítrum af bensíni í
blönduðum akstri. Þeirra spar-
neytnastur er þó Kia Picanto með
uppgefna eyðslu 4,2 lítra.
Einn þeirra er sýnu vinsælastur
ef marka má tölur um nýja selda
bíla í fyrra, Chevrolet Spark sem
var söluhæsti bíll ársins í sölu til
fólksins á götunni. Er sala til bíla-
leiga ekki tekin með í reikninginn,
enda þótt sala til leiganna hafi ver-
ið afar stór póstur í starfsemi bíla-
umboðanna á undanförnum ár-
um. Í öðru sæti er Hyundai i10 en
hann seldist eingöngu til
bílaleiga í fyrra og einnig
til Reykjavík-
urborgar en
borgin keypti
aðeins met-
anbreytta
og um-
hverf-
isvæna
bíla.
Mjög misjafnt er hvort bílarnir
eru til afgreiðslu strax en aðeins
Spark og Alto eru það í bili. Pic-
anto er uppseldur sem stendur en
Askja fær bíla um miðjan apr-
ílmánuð. Ford Ka verður ekki til
hjá Brimborg fyrr en í maí – um
það leyti sem bílasala vorsins fer
fyrst að komast í gang. Hyundai
i10 þarf að sérpanta en hann hef-
ur ekki verið á lager hjá BL í nokk-
urn tíma.
Mjög margir bílar kosta 2 til 2,5
millj. kr. Sá ódýrasti þeirra er Kia
Picanto, neðstur í töflunni, en
næstir á eftir eru Peugeot 107 á
2.080 þús., Citroën C1 á 2.090,
Toyota IQ á 2.210, Skoda Fabia og
Suzuki Splash á 2.250, Ford
Fiesta á 2.290, Toyota AYGO á
2.350, VW Polo, Mazda 2, Peugeot
206+, og Nissan Micra á 2.390.
Hyundai i20 er á 2.490 þúsund
krónur. Allir flokkast þessir bílar
sem smábílar.
finnurorri@gmail.com
Örfáir bílar enn undir tveimur millj. kr.
Ódýrir og
eyðslugrannir
Fimm ódýrustu á markaðnum
Sprengi- Eyðsla Sala
Verð rými (l.) Hestöfl bland. akst. 2011-2012
Chevrolet Spark 1.790.000 1,0 68 5,1 161
Ford Ka 1.790.000 1,2 69 4,9 8
Suzuki Alto 1.790.000 1,0 67 4,4 12
Hyundai i10 1.890.000 1,1 66 5,0 134
Kia Picanto 2.067.777 1,0 68 4,2 31
Spark.Spar-
neytinn og ódýr.
Tryggingafélög í Danmörku hafa óskað þess að danska
þingið setji lög esem skyldi bíleigendur til að koma fyrir
ferðritum – öðru nafni svörtum kössum – fyrir í bílum sín-
um. Það geti virkað sem forvörn og stuðlað að fækkun
slysa í umferðinni. Fyrir skemmstu biðu fjögur ungmenni
bana í umferðarslysum á innan við sólarhring í Danmörku.
Þrátt fyrir að banaslysum ungs fólks hafi fækkað um
helming síðustu þrjú árin hafa slysin vakið sterk viðbrögð.
Með ferðrita þykir víst að akstursmáti flestra bíleig-
enda myndi breytast til batnaðar. Er það reynsla trygg-
ingafélagsins Alka sem boðið hefur upp á mikinn afslátt
af iðgjaldi væri fallist á að ferðrita væri komið fyrir í bíln-
um. Sá böggull fylgdi þó skammrifi, að við umferðarslys félli afslátturinn niður og sjálfsábyrgðin stór-
hækkaði leiddi ferðritinn í ljós að bílnum hefði verið ekið á alltof miklum hraða.
Á vegum Alka hefur ferðrita verið komið fyrir í fleiri en þrjúþúsund bílum og niðurstaðan hefur verið já-
kvæð. Slys þar sem þannig búnir bílar hafa komið við sögu hefur fækkað um allt að 40%.
Takmörkuð tölfræði
Afslátturinn sem félagið telur sig hafa orðið að bjóða til að gera ferðritann áhugaverðan kost fyrir unga
ökumenn gerir það að verkum að félagið hefur lítið ef nokkuð hagnast á tryggingunni. Meðal annars af
þeim sökum vilja félögin að sett verði lög er geri ferðritana að skyldu í öllum bílum. Þau segja að tími sé
til kominn að grípa til allra þeirra gagnlegu ráða sem til eru til að sporna við óþarfa banaslysum ungs
fólks í umferðinni. Sérfræðingar í umferðaröryggismálum hafa tekið undir með tryggingafélögunum en
segja tölfræðileg gögn er styðji málið takmörkuð.
agas@mbl.is
Dönsk tryggingafélög velja fylgjast með akstursmáta
Bjóða iðgjaldaafslátt gegn ökurita
Víst þykir að ökuritar leiði til skynsamlegri og
hættuminni akstur til að mynda ungs fólks.