Morgunblaðið - 22.03.2012, Side 27
22. mars 2012 finnur.is 27
skiptan en sjálfskiptan. Ræður
þar ekki eingöngu sú staðreynd
að litlir bílar eru ávallt skemmti-
legri og eyðslugrennri beinskiptir,
heldur er eini ókosturinn sem
fannst við þennan bíl fólginn í
sjálfskiptingunni. Hún hefur helst
þann ókost að hraða bílnum illa
nema troðið sé til botns á bens-
íngjöfinni til að fá hann til að
skipta niður og auka afl vél-
arinnar. Fyrir vikið erfiðar hann
gjarna í sama gír, þó hraðar eigi
að fara. Er þetta nokkuð grátlegt
í ljósi þess að vélin er öflug og
fullnóg fyrir bílinn. Þessi vél væri
yfirdrifin og mjög skemmtileg ef
hún væri tengd beinskiptingu.
Einstök fjöðrun
Fjöðrun Fiesta er með því allra
besta sem gerist og gefur stóra
bróðir, Focus, ekkert eftir. Það er
hreinlega gaman að fara yfir
hraðahindranir á honum og
magnað hve lítill bíll fer vel far-
þega á meðan. Bensíngjöf er
mjög nákvæm og svarar strax,
eiginleiki sem alltof fáir bílar
hafa. Stýrið er að sama skapi ná-
kvæmt og tilfinning fyrir vegi sér-
lega góð. Halli í beygjum er vart
finnanlegur og því eru aksturs-
eiginleikarnir miklir og koma
sannarlega á óvart í svo litlum bíl.
Reynsluökumaður naut akst-
ursins mjög. Talandi um lítinn bíl
þá er Fiesta alls ekki svo lítill
þegar inn í hann er komið. Mjög
vel fer um framsætisfarþega í
góðum framsætum og þokkalega
fer um aftursætisfarþega en höf-
uðrými leyfir ekki mikið hærri
einstaklinga en 180 cm. Fram-
sæti eru hæðarstillanleg sem og
stýri og því gott að finna rétta
akstursstöðu. Farangursrými er í
tæpu meðallagi fyrir bíl í þessum
flokki. Stjórntæki eru ekki af
flóknari gerðinni og með engum
íburði en allt þó á réttum stað og
rökrænt.
87 sinnum umhverfis jörðina
Það hjálpaði mjög innra útliti
bílsins að hann var með Tit-
anium-pakkanum sem ekki er
dýr. Millistokks með geymsluhólf-
um var saknað í innréttingunni,
en þess í stað eru glasahaldarar
neðarlega við gólf og lítil
geymslurými þar. Fyrir vikið eru
heldur engir armar til að hvíla
hendi á. Hiti í sætum og fleiri
þægindi sem prýða bílinn gefa
ökumanni tilfinningu fyrir ef til vill
öðru en því að hann sitji í ódýrum
smábíl. Gæðin eru alls staðar sjá-
anleg enda kannski ekki skrýtið
þar sem á prófunartímabili Ford
Fiesta var bílunum ekið sem
samsvarar 87 hringjum í kringum
jörðina í hitastigi frá 40 gráðum
og upp í 80 gráður.
finnurorri@gmail.com
Ford Fiesta Árgerð 2012
•Verð frá 2.290.000 kr.
• 6,5 l/100 í bl. akstri
• Umboð: Brimborg
•0-100: 13,9 sek.
•Hámark: 166 km/klst
• Framhjóladrif
•Mengunargildi:
• 154 g CO2/km
•Farangursrými 295/979 l.
• 1,4 l. vél
•96 hestöfl/125Nm
• 4 gíra sjálfskipting
• 15“ álfelgur
• Eigin þyngd: 1.092 kg
•Burðargeta: 504 kg
Skemmtilegar línur einkenna hönnun bílsins. Vel er fyrir öllu hugsað og
t.d. er farangursrými bílsins stórt sem kemur sér vel fyrir barnafólk.
Stjórntækin í bílnum eru ekki flókin og næsta íburðarlítil en þó er allt á
réttum stað og fyrir komið af góðri rökvísi og með smekklegum hætti.