Morgunblaðið - 22.03.2012, Síða 28
28 finnur.is 22. mars 2012
Hjörtur Sævar Steinarson sýnir landi virðingu og er með bindi á fjöllum
Þ
etta gat varla heppnast
betur, enda fórum við
um mjög skemmtilegar
slóðir í frábæru ferða-
veðri,“ segir Baldur Stein-
grímsson, aðalfararstjóri í leið-
angri Litlunefndar Ferðaklúbbsins
4x4 sl. laugardag. Starf klúbbsins
skiptist í nokkrar nefndir og deild-
ir og innan Litlunefndar starfa þeir
sem eru á minni eða lítið breytt-
um bílum, sem eru 35 tommur
eða minni að dekkjastærð.
Ferðin sl. laugardag tók mið af
þessu. Ekið var af Lyngdalsheiði
og inn að Tjaldafelli við Langjökul
og þar umhverfis Skjaldbreið og
til austurs um svonefndan Línu-
veg að Uxahryggjavegi og þaðan
niður að Þingvöllum um Meyj-
arsæti. Leiðin var vel fær þessum
minni jeppum enda þótt aðeins
aflmestu bílarnir í ferðinni orkaðu
að komast alla leið upp á efstu
bungu Skjaldbreiðar – fjallsins
sem fanna skautar faldi háum,
eins og í ljóðinu segir.
Fastur kjarni
Félagar í Litlunefnd undirbúa
allar sínar ferðir afar vel. Fyrir
vetrarferðirnar eru haldnir und-
irbúningsfundir þar sem farið er
nákvæmlega yfir leiðina sem
þræða skal, fylgst er nákvæm-
lega með veðurspám og á fjöllum
eru allir bílarnir búnir talstöðvum
sem stilltar eru á sömu rásina.
Fararstjóri ekur að jafnaði fremst-
ur og einn ákveðinn rekur lestina
auk þess sem lestinni fylgja ör-
yggisbílar. Með öðrum orðum
sagt ætti fátt að geta farið úr-
skeiðis.
Að sögn Baldurs Steingríms-
sonar eru þátttakendur í ferðum
Litlunefndar yfirleitt á bilinu 30 til
50. „Þetta rokkar aðeins til frá
einni ferð til annarrar en kjarninn
er sá sami. Síhækkandi bens-
ínverð hefur að því er virðist ekki
orðið til þess að menn séu hættir
að fara á fjöll,“ segir Baldur sem
hefur stundað jeppamennsku frá
árinu 2008.
Ofurbíll frá Ameríku
Hjörtur Sævar Steinason var á
stærsta bílnum í ferðinni, Ford
250. Þetta er ofurstór pallbíll sem
hann keypti frá Bandaríkjunum
árið 2007 og lét í kjölfarið breyta
og endursmíða. Er bíllinn, sem er
með 7,3 lítra og um það bil 350
hestafla vél, á 49 tomma dekkj-
um, með tvo millikassa og ýmsan
annan aukabúnað sem þarfur er
og nauðsynlegur í fjallaslarki.
Nokkrir bílar þessarar gerðar eru
til hér á landi og þeir allra burðu-
gustu eru raunar komnir á 54
tomma dekk sem gerir þá að ein-
stökum farartækjum.
„Ég tel að á undanförnum árum
hafi starf Ferðaklúbbsins 4x4
komið mörgu góðu til leiðar.
Jeppamenn ferðast undantekn-
ingalítið af mikilli ábyrgð og sýna
landinu sem þeir þekkja orðið
mæta vel mikla virðingu,“ segir
Hjörtur sem fer ekki á fjöll öðruvísi
en með bindi um hálsinn. Segir
það tengjast því viðhorfi sínu að
landinu skuli sýnd full auðmýkt og
hluti af því sé að vera þokkalega til
fara.
Ljósin blikka
Nokkrir úr Félagi heyrnarlausra
voru meðal þátttakenda í ferðinni
sl. laugardag. „Við höfum verið í
góðu samstarfi við ferðaklúbbinn
síðustu misserin en innan okkar
vébanda eru nokkrir áhugamenn
um jeppaferðir. Fyrst var þeim
boðið í kynningarferð og eftir það
fór boltinn að rúlla. Núna eru
þessir félagsmenn okkar sem eru
jeppaeigendur þátttakendur í
flestum ferðum Litlunefndar,“
segir Laila M. Arnþórsdóttir,
starfsmaður Félags heyrn-
arlausra.
Laila segir að vissulega hafi fjar-
skipti milli bíla í ferðum þessum
verið atriði sem staldrað hafi verið
við. Svo hafi einfaldlega verið
fundin lausn á því; það er að á eft-
ir jeppa hvers heyrnarlauss öku-
manns fer annar heyrandi og gef-
ur skilaboð með ljósmerkjum og
blikkar – ef þarf. Með því merkja-
máli gengur dæmið upp og allir
eru jafnir í ferðunum – heyrandi
sem aðrir.
sbs@mbl.is
Ferðagarpar úr Litlunefnd 4x4 lögðu á brattann og óku á Skjaldbreið
Fimmtíu jeppar
á fjöllum
Vesturhraun 5
Garðabæ
Mán.–fös.: 08:00–17:00
Sími: 530 2000
Bíldshöfði 16
Reykjavík
Mán.–fim.: 08:00–18:00
Föstudaga: 08:00–17:00
Laugardag: 10:00–14:00
Sími: 530 2002
Smiðjuvegi 11e, gul gata
Kópavogi
Mán.–fös.: 08:00–17:00
Sími: 530 2028
Freyjunes 4
Akureyri
Mán.–fös.: 08:00–12:00
13:00–17:00
Sími: 461 4800
ÞÝSKAR GÆÐAVÖRUR