Morgunblaðið - 16.04.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.04.2012, Blaðsíða 4
Á ÁSVÖLLUM Kristján Jónsson kris@mbl.is Njarðvík hefur í nokkra áratugi verið stórveldi í íslenskum körfuknattleik. Nú þegar karlalið félagsins er í uppbygging- arferli þá tekur kvennaliðið við og heldur uppi merki félagsins. Að loknum 76:62 sigri á Haukum á Ásvöllum á laugardag stendur Njarðvík uppi sem tvöfaldur sig- urvegari í vetur og vann úrslitarimmuna um Íslandsmeistaratitilnn 3:1. Kvennalið Njarðvíkur hafði aldrei unnið titil fyrr en í vetur en tók þá báða undir stjórn Sverris Þórs Sverrissonar sem einnig er landsliðsþjálfari kvenna og hefur sannað sig sem hæfur þjálfari. Hann segist hafa verið meðvitaður um að liðið væri að skrifa nýjan kafla í íþrótta- söguna í Njarðvík. „Já já. Konan mín hefur verið í körf- unni í Njarðvík undanfarin fimmtán ár með hléum. Ég hef því fylgst með þessu og það hefur verið mikið agaleysi í gegn- um tíðina. Liðið var lagt niður og metn- aðurinn sem ríkti í Keflavík hafði aldrei komist inn í félagið. Í fyrra bjó ég til stóran æfingahóp og þar var línan lögð. Ef leikmaður var á þeirri línu að æfa á fullu þá var hann með, annars ekki. Það segi ég að hafi verið byrjunin á því sem gerðist hérna í dag. Það er metnaður í gangi og allir leggja sig gríðarlega fram. Við æfðum vel í sumar, æfðum vel um jólin og erum að uppskera. Aldrei var slakað á og aldrei dottið í kæruleysi. Ég veit hvað stelpurnar hafa lagt á sig og mér finnst frábært að sjá hvað er hægt að uppskera ef vinna er lögð í þetta.“ Léttar og skemmtilegar Frammistaða erlendu leikmannanna Lele Hardy og Shanae Baker-Brice hef- ur vakið mikla athygli í vetur og ekki að ástæðulausu. Vönduðu Njarðvíkingar valið vel eða unnu þeir bara í hinu svo- kallaða útlendingalottói? „Ég hafði skoðað nokkra leikmenn eins og gengur og gerist. Ég vissi tölu- vert um þær. Ég var sannfærður um að Lele Hardy væri frábær leikmaður því hún kom úr það sterkri deild. Ég átti gott spjall við þjálfara Baker-Brice og skoðaði myndbönd með henni. Hún fékk ekkert að gera í fyrra og var því hungruð í að spila. Þær eru náttúrlega frábærar og smullu vel inn í þetta hjá okkur. Eru frábærir persónuleikar, léttar og skemmtilegar, og blönduðust hópnum vel. Það er líf og fjör á æfingum og mór- allinn er góður. Í þessum íþróttum þá skiptir það bara gríðarlegu máli,“ sagði Sverrir ennfremur en viðurkenndi að hafa ekki séð fyrir sér tvöfaldan sigur síðasta haust. „Það voru svolítið miklar breytingar hjá okkur og ég var meðvitaður um að við gætum verið í baráttunni ef liðið myndi slípast fljótt saman. Þegar mótið var komið af stað þá fannst mér ekkert lið vera betra en við en ég skal alveg vera hreinskilinn að ég var ekki að hugsa um að vinna tvöfalt,“ sagði Sverrir. Nýttu svekkelsið Njarðvík vann fyrstu tvo leikina og tryggt sér sinn fyrsta Íslandsmeist- aratitil í þriðja leiknum en Haukar kom veg fyrir það. Sverrir sagði sína leikm hafa notað tapið í þeim leik á réttan há fjórða leiknum. „Þau voru í erfiðri stöðu eftir annan leikinn og þurftu þá að vinna þrjá leiki röð. Stelpurnar voru mjög sárar eftir þriðja leikinn. Ég sá svekkelsið þegar kom inn í klefa eftir þann leik. Þegar þ ert svekktur þá eru tvær leiðir í boði. A hengja haus og detta í eitthvert bull eð muna eftir svekkelsinu og láta það ekk gerast aftur. Það var stútfullt hús og aldrei sést önnur eins stemning á kven leik í Njarðvík. Það var gríðarlega svekkjandi að geta ekki klárað dæmið í dag þá var allt orðið troðfullt Njarðví urmegin í stúkunni 20 mínútum fyrir l Það gefur stelpunum mikið að vita af s um stuðningi á bak við sig,“ sagði Sver Þór Sverrisson við Morgunblaðið. Sögulegt Njarðvíkingar hafa aldrei áður orðið Íslandsmeistarar í kvennaflokki en þeir hófu bikarinn á loft á Ásvöllum á laugardaginn. Njarðvík er bæði Íslands- og Konurnar teknar við  Kvennalið Njarðvíkur hafði aldrei unnið titil en sigraði tvöfalt í vetur  Sverri segir agaleysi hafa ríkt í gegnum tíðina  Þjálfarinn lagði nýja línu í fyrra 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2012 Stjarnan er komin í undanúrslitin á Íslandsmóti kvenna í handknattleik eftir annan sigur á HK í jafn- mörgum leikjum, 34:29, í Digranesi á laugardaginn. Stjarnan vann einn- ig á sínum heimavelli á fimmtudags- kvöldið, 32:29, og mætir því Íslands- meisturum Vals í undanúrslitunum en fyrsti leikur þar verður næsta fimmtudagskvöld. Stjarnan náði strax undirtökunum í Digranesi og staðan var 9:4 eftir 15 mínútna leik og 16:10 í hálfleik. Svip- aður munur hélst í seinni hálf- leiknum og Garðbæingar sigldu sigri í höfn. Oddaleikur í Eyjum Grótta lagði ÍBV að velli, 20:19, í miklum spennuleik á Seltjarnarnesi á laugardaginn. ÍBV var yfir í hálf- leik, 11:9, og náði fjögurra marka forskoti í seinni hálfleik. Grótta átti hinsvegar frábæran endasprett og skoraði sigurmarkið í lokin. Þar með jöfnuðu Gróttukonur metin í einvíginu, 1:1, og liðin mæt- ast í oddaleik í Vestmannaeyjum í kvöld. Sigurliðið í þeim slag mætir Fram í undanúrslitum.  Markaskor í leikjunum tveimur er að finna á bls. 6. vs@mbl.is Stjarnan í undanúrslit og mætir Val A-lið Gerplu sigraði í kvennaflokki og lið Ármanns í karlaflokki á Ís- landsmótinu í hópfimleikum sem lauk í Ásgarði í Garðabæ á laug- ardaginn eftir tveggja daga keppni. Stjarnan varð í öðru sæti í kvenna- flokki og Selfoss í þriðja sæti. Á laugardag var keppt til úrslita á einstökum áhöldum og þar unnu bæði Gerpla og Ármann sigra á öll- um áhöldum. Í flokki blandaðra liða fór lið Stjörnunnar/Ármanns með sigur af hólmi í Íslands- og deildakeppninni. Í öðru sæti varð lið Gerplu og í því þriðja lið Selfoss. Lið Stjörnunnar/ Ármanns vann sigur á öllum ein- stökum áhöldum. Lið Gerplu fer á Evrópumótið í Danmörku í október þar sem það freistar þess að verja Evrópumeist- aratitilinn sem það vann fyrir tveimur árum. vs@mbl.is Gerpla og Ármann unnu í Garðabæ Nico Rosberg hjá Mercedes vann í gær kínverska kappaksturinn í Sjanghæ; jóm- frúrsigur sinn í formúlu-1. Hann var í sérflokki en hálfgert kjarn- orkustríð fór fram um næstu sæti og gríðar- legar stöðubreytingar voru út í gegnum keppnina. Með þessu er Rosberg fyrsti nýi ökumaðurinn á efsta sæti verðlauna- palls frá því Sebastian Vettel vann ítalska kappaksturinn í Monza árið 2008 á Toro Rosso-bíl. Og verk- smiðjulið Mercedes fagnar með þessu sínum fyrsta mótssigri sem verksmiðjulið frá því Juan Manuel Fangio vann Ítalíukappaksturinn árið 1955. Í öðru og þriðja sæti urðu McLa- renþórarnir Jenson Button og Lewis Hamilton og á eftir þeim Mark Web- ber og Sebastian Vettel.  Ýtarlega er fjallað um keppnina á formúluvefnum, mbl.is/sport/ formula. agas@mbl.is Rosberg var fljótastur Nico Rosberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.