Morgunblaðið - 16.04.2012, Síða 5
gat
mu í
menn
átt í
n
i í
r ég
þú
Að
ða
ki
nna-
ð en
ík-
leik.
slík-
rrir
Morgunblaðið/Golli
g bikarmeistari í ár.
ir
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2012
Schenkerhöllin á Ásvöllum, fjórði úr-
slitaleikur kvenna í körfubolta, laug-
ardag 14. apríl 2012.
Gangur leiksins: 2:10, 12:14, 14:17,
16:26, 25:26, 31:28, 35:37, 38:39,
40:44, 42:48, 47:54, 49:56, 53:58,
57:60, 57:64, 62:76.
Haukar: Jence Ann Rhoads 18/6
stoðsendingar, Tierny Jenkins 13/21
fráköst, Margrét Rósa Hálfdanar-
dóttir 13/6 fráköst/6 stoðsendingar,
María Lind Sigurðardóttir 10/4 frá-
köst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 7,
Auður Íris Ólafsdóttir 1.
Fráköst: 26 í vörn, 12 í sókn.
Njarðvík: Lele Hardy 26/21 fráköst,
Shanae Baker-Brice 24/7 fráköst/5
stoðsendingar, Salbjörg Sævars-
dóttir 8/6 fráköst, Ólöf Helga Páls-
dóttir 7/6 stoðsendingar, Petrúnella
Skúladóttir 6, Eyrún Líf Sigurðar-
dóttir 3, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir
2.
Fráköst: 28 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Björg-
vin Rúnarsson.
Áhorfendur: 750.
Njarðvík vann einvígið 3:1.
Haukar – Njarðvík 62:76
Kristín ÝrBjarnadóttir
tryggði Avaldsnes
sigur á Alta, 3:2, á
ævintýralegan
hátt í norsku
B-deildinni í knatt-
spyrnu í gær þeg-
ar hún skoraði tvö
skallamörk í upp-
bótartíma leiksins. Hólmfríður Magn-
úsdóttir skoraði fyrsta mark Avalds-
ness í leiknum og jafnaði þá, 1:1.
Kristín hafði orðið fyrir því óláni að
skora sjálfsmark og koma Alta yfir.
Þriðji Íslendingurinn í liðinu er mark-
vörðurinn Björk Björnsdóttir. Allt
stefndi í óvæntan útisigur Alta þegar
Kristín jafnaði metin með skallamarki
þegar komið var fram yfir leiktímann,
eftir hornspyrnu, og hún lék sama leik
þremur mínútum síðar, eftir horn-
spyrnu Hólmfríðar. Þetta var fyrsti
deildaleikur Íslendinganna með
Avaldsnes sem ætlar sér stóra hluti í
norsku knattspyrnunni á næstu árum
eins og fram kom í viðtali við Hólmfríði
í Morgunblaðinu í síðustu viku.
Magnús Krist-inn Magn-
ússon og Lilja Rós
Jóhannesdóttir úr
Víkingi sigruðu í
karla- og kvenna-
flokki á lokamóti
Grand Prix-
mótaraðar Borð-
tennissambands
Íslands sem fram
fór í KR-heimilinu á laugardaginn.
Þetta er annað árið í röð sem Magnús
vinnur mótið en þangað var boðið átta
stigahæstu leikmönnum móta-
raðarinnar í vetur. Hann lagði Kára
Mímisson úr KR 4:1 í úrslitaleiknum.
Lilja sigraði Fríði Rún Sigurðardóttur
úr KR, 4:0, í úrslitaleiknum í kvenna-
flokki.
Guðjón Bald-vinsson
skoraði bæði mörk
Halmstad þegar
liðið sigraði De-
gerfors, 2:0, í
sænsku B-
deildinni í knatt-
spyrnu á laug-
ardaginn. Halms-
tad, sem féll úr
úrvalsdeildinni í haust, hafði tapað fyr-
ir Hammarby í fyrstu umferðinni og
þetta voru fyrstu mörk liðsins á tíma-
bilinu. Kristinn Steindórsson og Jónas
Guðni Sævarsson leika líka með
Halmstad en Jónas kom ekkert við
sögu að þessu sinni.
Guðmundur Kristjánsson og Matt-hías Vilhjálmsson skoruðu báðir
fyrir Start í gær þegar lið þeirra vann
HamKam, 3:1, í norsku B-deildinni í
knattspyrnu. Matthías hefur þar með
gert þrjú mörk í fyrstu tveimur leikj-
um liðsins sem er með fjögur stig eftir
tvær fyrstu umferðirnar.
Margrét LáraViðars-
dóttir og sam-
herjar hennar í
þýska liðinu Tur-
bine Potsdam eiga
sáralitla mögu-
leika á að komast í
úrslitaleik Meist-
aradeildar Evrópu
í knattspyrnu en þær steinlágu fyrir
Evrópumeisturum Lyon í fyrri undan-
úrslitaleik liðanna í Frakklandi í gær,
5:1. Lyon, með kjarnann úr franska
landsliðinu og nokkra aðra topp-
leikmenn innanborðs, var komið í 5:0
eftir klukkutíma leik. Camille Abily
skoraði tvívegis og Amandine Henry,
sænska landsliðskonan Lotta Schelin
og svissneska landsliðskonan Lara
Dickenmann gerðu sitt markið hver.
Margrét Lára kom inná á 63. mínútu,
þegar staðan var 5:0. Potsdam náði að
komast á blað þegar Bianca Schmidt
minnkaði muninn.
Fólk sport@mbl.is
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í Teamkata
varð um helgina Norðurlandameist-
ari í greininni, fyrst íslenskra liða. Ís-
land hefur aðeins átt tvo Norður-
landameistara og það í bæði skiptin í
einstaklingsgreinum. Þær Aðalheiður
Rósa Harðardóttir, Kristín Magn-
úsdóttir og Svana Katla Þorsteins-
dóttir, sem einnig eru Íslandsmeist-
arar í greininni, brutu því blað í sögu
karate á Íslandi en mótið fór fram í
Kristianstad í Svíþóð.
„Við unnum 5:0 í úrslitunum og
vorum í raun mikið betri en stelp-
urnar sem við kepptum við í úrslitum.
Við vorum búnar að æfa mikið og vel
saman og vorum einbeittar,“ sagði
Aðalheiður Rósa um sigurinn. Auk
þess að sýna kata þá framkvæmdu
þær bunkai þar sem tæknin á bak við
kata er útskýrð með bardaga.
Þær voru harðákveðnar í að sýna
sitt rétta andlit eftir að hafa misst af
titlinum í fyrra, þegar þær kepptu
einnig til úrslita. „Við vorum í raun
búnar að bíða eftir þessu í eitt ár. Við
vildum fá að sanna okkur fyrir öllum
hinum og sýna að við gætum þetta,“
sagði Aðalheiður og bætti við að liðið
hefði fengið mikið hrós fyrir mjög
góða frammistöðu.
Vilja meira en sigur á NM
Aðalheiður var sannfærð um að
þær gætu unnið stærri sigra. „Maður
fer að hugsa hvort við getum tekið
þetta eitthvað aðeins lengra en Norð-
urlandamót. Það væri draumur. Ég
hef ekki talað við neina þjálfara um
möguleika okkar á Evrópumeist-
aramóti en við myndum standa okkur
Búnar að bíða
í ár með blóð
á tönnunum
Fyrsta gullið í liðakeppni á NM
Gull Kristín, Aðalheiður og Svana á
verðlaunapallinum í Kristianstad.
vel ef við tækjum þátt á einhverju
móti eins og því, það er klárt mál. Ég
veit að Kristín og Svana eru sammála
mér með það.“
Birkir Indriðason, Davíð Freyr
Guðjónsson og Heiðar Benediktsson
hlutu svo bronsverðlaun í teamkata
ásamt því að Davíð vann brons í kata
junior. Þá unnu þau Helga Kristín
Ingólfsdóttir í kumite cadet -54 kg,
Heiðar Benediktsson í kata junior og
Jóhannes Gauti Óttarsson í kumite
junior -76 kg flokki, öll til brons-
verðlauna.
Landsliðsþjálfarinn Magnús Kr.
Eyjólfsson var mjög ánægður með
árangurinn sem hann sagði hafa farið
fram úr vonum eftir ófarirnar í
Malmö fyrir þremur vikum.
Bandaríski leikmaðurinn Lele
Hardy hjá Njarðvík var valin mik-
ilvægasti leikmaður úrslitakeppn-
innar en hún átti stórleik í gær og
tók 21 frákast auk þess að skora 26
stig.
„Þetta er vissulega frábært tíma-
bil en hvað varðar þessa útnefningu
þá hefði ég ekki fengið hana án þess
að eiga frábæra samherja. Ég er
þakklát samherjunum, þjálfurunum
og stuðningsmönnunum og er þakk-
lát fyrir þetta tímabil. Ég hef fundið
fyrir miklum stuðningi í Njarðvík,“
sagði Hardy í samtali við Morg-
unblaðið á Ásvöllum á laugardaginn.
Var bjartsýn á góðan árangur
Hardy sagðist hafa fundið það
snemma á tímabilinu að liðið ætti
góða möguleika á því að vinna titla
og svo fór að Njarðvík vann tvöfalt.
„Mér fannst alltaf að í þessu liði væri
stórt hjarta. Í þessu liði eru bar-
áttuglaðir leikmenn og mér fannst
alltaf að við ættum möguleika á því
að afreka eitthvað. Eftir að við höfð-
um unnið bikarinn þá hafði ég alltaf
trú á því að við gætum bætt öðrum
við. Við höfðum trú hver á annari og
tókst ætlunarverkið,“ sagði Hardy en
spurð um hvort hún myndi snúa aftur
á næsta tímabili svaraði hún glott-
andi: „Við skulum sjá til.“
Bjarni stýrir Haukum áfram
Þjálfari Hauka, Bjarni Magnússon,
náði fínum árangri með lið Hauka
sem átt hafði nokkur mögur ár. „Við
vorum með fyrsta leikinn eiginlega í
höndunum á útivelli og ég held að
það hafi setið svolítið í stelpunum
mínum að hafa hent því frá sér. Það
var sárt. Á heildina litið getum við
verið stolt af þessum árangri. Vet-
urinn var flottur hjá okkur en Njarð-
vík er bara besta liðið á landinu í
dag,“ sagði Bjarni við Morgunblaðið
en hann mun stýra Haukaliðinu
áfram.
Spurður hvort meiðsli Írisar og
Guðrúnar hafi haft úrslitaáhrif í úr-
slitarimmunni sagði Bjarni liðið hafa
staðið sig vel án þeirra. „Ég hef ekki
talað neitt um þetta á meðan rimman
var í gangi. Öll lið í íslensku kvenna-
körfunni hefðu fundið fyrir því að
missa tvo lykilmenn en við getum
verið stolt af því hvað við gerðum án
þeirra,“ sagði Bjarni. kris@mbl.is
Fannst alltaf vera stórt
hjarta í þessu liði
Morgunblaðið/Golli
Fyrirliðinn Ólöf Helga Pálsdóttir smellir kossi á Íslandsbikarinn.