Morgunblaðið - 26.04.2012, Qupperneq 1
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Handknattleiksdeild Víkings, í umboði nokk-
urra félaga, leggur fram breytingar á keppn-
isfyrirkomulagi í úrvalsdeild karla, fyrir árs-
þing Handknattleikssambands Íslands sem
fram fer á laugardaginn í Íþróttamiðstöðinni
Laugardal. Í tillögunni er lagt til að leikið
verði í einni 14 liða deild á næsta keppn-
istímabili í stað úrvalsdeildar með átta liðum
og 1. deildar með sex liðum eins og var í vetur.
Í sameinaðri deild verði leikin tvöföld um-
ferð og tekin upp átta liða úrslitakeppni í stað
fjögurra liða eins og nú er.
Um leið verður ný 1. deild sett undir stjórn
mótanefndar HSÍ en hún þarf að hafa ákveðin
atriði að leiðarljósi. Í þeirri deild gætu ný félög
stigið sín fyrstu skref og þar með yrði reynt að
fjölga liðum í meistaraflokki karla en þau hafa
verið mun færri á síðustu árum en áður var.
Rýmkað verði fyrir lán
Þá leggja Víkingar einnig til að reglur um
lán á leikmönnum milli liða verði rýmkaðar til
að það sé auðveldara fyrir leikmenn sem eru
ekki að spila að færa sig til.
Að sögn Davíðs Hjaltested hjá Víkingi er
markmiðið með framlagningu þessarar tillögu
að freista þess að koma í veg fyrir fækkun liða
og tryggja þeim liðum sem nú eru til staðar
ákveðið svigrúm til að þróa sig áfram.
„Það er heppilegra að jafna liðin smám sam-
an í stað þess að gera nokkur ofurlið og mörg
verri lið. Einnig er áhugi fyrir að fá lengra
mót, fleiri leiki og að mótareglur séu skilj-
anlegar sem flestum. Þá vonast menn til þess
að með breytingunni aukist umfjöllun um
handknattleik í fjölmiðlum og á meðal almenn-
ings.
Ég tel að þessar tillögur ættu að vera tæki-
færi fyrir ný lið til að koma fram með meist-
araflokka þar sem að það verður grundvöllur
fjárhagslega og getulega að spila í 1. deild. Ég
veit að þetta mun gera þeim erfitt fyrir að
komast upp í efstu deild en er það ekki svo í
dag hvort sem er,“ segir Davíð Hjaltested hjá
handknattleiksdeild Víkings.
Vilja fjölga liðum í efstu
deild úr átta í fjórtán
Víkingar leggja fram tillögu í umboði nokkurra félaga á ársþingi HSÍ um
næstu helgi Vilja spila tvöfalda umferð og átta liða úrslitakeppni
Morgunblaðið/Golli
1. deildin Víkingur og ÍR börðust um að komast upp í úrvalsdeildina og ÍR hefur tryggt sér sæti þar
en Víkingur er úr leik. Nú verður kosið um það á ársþinginu hvort öll liðin leiki í einni deild.
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
íþróttir
Íshokkí Björn Róbert hefur spilað með íslenska landsliðinu í öllum aldursflokkum í vetur.
Stefnir á að spila erlendis næsta vetur. Telur íslenska leikmenn verða stöðugt betri og betri 4
Íþróttir
mbl.is
Helena Sverr-
isdóttir varð í
gærkvöld slóvak-
ískur meistari í
körfuknattleik
með liði sínu Go-
od Angels Kosice
þegar það vann
MBK Ruzombe-
rok, 72:41, í
þriðja úrslitaleik
liðanna.
Good Angels hafði unnið tvo
fyrstu leikina og var alltaf með
undirtökin í kvöld. Staðan var 22:17
eftir fyrsta leikhluta og 55:38 í hálf-
leik. Þetta er þriðja árið í röð sem
liðið verður meistari í Slóvakíu.
Helena skoraði 4 stig í leiknum
og óhætt er að segja að hún fari vel
af stað í atvinnumennskunni í Evr-
ópu. Hún fór til Slóvakíu síðasta
sumar eftir að hafa leikið í fjögur
ár í bandarísku háskóladeildinni.
vs@mbl.is
Helena vann
meistaratitil
Helena
Sverrisdóttir
Hrannar Hólm
varð í gærkvöld
danskur meistari
í körfuknattleik
kvenna þegar lið
SISU, undir hans
stjórn, vann
Horsholm í odda-
leik um meist-
aratitilinn. SISU
vann mjög afger-
andi sigur, 69:45,
á heimavelli og hafði þar með betur
í einvíginu, 3:2. Liðið hafði ekki
tapað leik í 14 mánuði undir stjórn
Hrannars fram að úrslitaleikjunum
en SISU vann dönsku úrvalsdeild-
ina í vetur með fullu húsi stiga.
vs@mbl.is
Hrannar náði
í titilinn
Hrannar
Hólm
Alexander Magn-
ússon, leikmaður
knattspyrnuliðs
Grindavíkur, fór
í speglun á hné í
gær og því tví-
sýnt um hvort
hann getur beitt
sér þegar Pepsi-
deildin hefst hinn
6. maí.
„Ég veit ekki
hversu lengi ég verð frá og það á
eftir að koma í ljós. Það hafði safn-
ast fyrir vökvi í hnénu og ég lét
tappa af því í vetur. Það gerðist aft-
ur og þess vegna var ákveðið að ég
færi í speglun,“ sagði Alexander við
Morgunblaðið í gær en hann hefur
ekki getað æft af fullum krafti und-
anfarið. Alexander var fastamaður
í Grindavíkurliðinu í Pepsi-
deildinni í fyrra. kris@mbl.is
Alexander
fór í speglun
Alexander
MagnússonFramherjinn Björgólfur Takefusa kemur til með
að missa af fyrstu leikjum Fylkismanna í Pepsi-
deildinni í knattspyrnu í sumar.
Björgólfur, sem er í láni hjá Árbæjarliðinu frá
Víkingi, hefur átti við meiðsli að stríða í hné og
lék ekkert með Fylkismönnum í Lengjubik-
arnum. Hann gekkst undir aðgerð, svokallaða
speglun, á hnénu í síðasta mánuði og ljóst má
vera að hann verður ekki klár í slaginn þegar
flautað verður til leiks á Íslandsmótinu hinn 6.
maí.
Björgólfur er byrjaður að skokka en er ekki
farinn að sparka í bolta eftir aðgerðina og að
sögn forráðamanna Fylkis
gæti hann misst af 3-4 fyrstu
leikjum liðsins í deildinni.
Björgólfur skoraði 7 mörk í
fjórtán leikjum með Víkingum
í Pepsi-deildinni á síðasta
tímabili en þessi markheppni
leikmaður hefur skorað sam-
tals 80 mörk í 151 leik í efstu
deild með KR, Fylki, Þrótti og
Víkingi og er í tíunda sæti yfir
markahæstu leikmenn deild-
arinnar frá upphafi.
Þar með er ljóst að tveir mestu markaskor-
ararnir í sögu deildarinnar, sem enn spila þar,
verða fjarri góðu gamni í fyrstu umferðum Ís-
landsmótsins. Tryggvi Guðmundsson úr ÍBV
fékk blóðtappa í vetur og má ekki fara af stað
með Eyjamönnum fyrr en eitthvað verður liðið á
sumarið.
Finnur Ólafsson, annar öflugur leikmaður sem
Fylkir fékk fyrir tímabilið, frá ÍBV, er að jafna
sig af meiðslum og vonir standa til að hann verði
tilbúinn með Árbæjarliðinu í fyrstu umferðinni,
þegar það fær Keflavík í heimsókn.
gummih@mbl.is
Björgólfur ekki í byrjun móts
Fór í aðgerð á hné og þarf nokkrar vikur til að komast af stað með Fylki
Björgólfur
Takefusa