Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 3
boði. Liðið er heilsteypt og hefur fína
breidd þó að vissulega eigi menn sína
slæmu daga eins og sást fyrri leiknum
fyrir norðan þegar Akureyringar jöfn-
uðu einvígið. Þeir eru því vel að því
komnir að komast í úrslitarimmuna og
möguleikarnir eru góðir, sérstaklega
ef þeir spila áfram á þeirri yfirvegun
sem þeir gerðu í þessum leik. En það
má ekki taka það af Akureyringum að
viljinn er ávallt til staðar og menn berj-
ast alltaf hver fyrir annan. Þrátt fyrir
nokkuð ungt lið eru mikilvægir
reynsluboltar til staðar sem eru dug-
legir að taka af skarið. Það er þó mikið
áhyggjuefni hvað stöðugleikinn er lítill
og hefur það mikil áhrif. Skyttur liðs-
ins, þeir Geir Guðmundsson og Guð-
mundur Hólmar Helgason eru báðir
undir tvítugu og þrátt fyrir að vera
mjög efnilegir er of mikið fyrir þá að
þurfa að bera uppi sóknarleikinn.
Norðanmenn hljóta því að horfa í
kringum sig eftir skyttu fyrir næsta
tímabil og dreifa þar með álaginu. En
það eru spennandi tímar framundan
fyrir norðan þar sem þeir Heimir og
Bjarni munu taka við taumunum auk
þess sem þeir halda áfram að leika
með liðinu. Þeir þekkja liðið út og inn
sem mun koma sér vel, en hvort
reynsluleysi í þjálfun í fremstu röð
muni segja til sín verður spennandi að
sjá. Einnig er óvíst hvar Oddur Gret-
arsson leikur næsta vetur, en hann
hefur verið undir smásjá þýskra liða í
vetur.
Það var hins vegar ósvikin gleði í
augum FH-inga að leik loknum þar
sem þeir fögnuðu sæti í úrslitunum.
in gleði FH-inga eftir
kuldaðan sigur
aði í leik Akureyinga sem bíta í eplið súra FH í úrslit annað árið í röð og mætir HK
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Átök Oddur Gretarsson í hörðum slag og stöðvar FH-inginn Andra Berg Haraldsson með því að grípa báðum höndum í handlegg hans. Guðlaugur Arnarsson og
Ragnar Jóhannsson fylgjast með fyrir aftan og Bergvin Gíslason reynir að koma Oddi til hjálpar. FH mætir HK í úrslitaeinvíginu um meistaratitilinn.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Björn Berg-mann Sig-
urðarson, fram-
herji Lilleström
og 21 árs lands-
liðsins í knatt-
spyrnu, var í gær
orðaður við þrjú
ensk úrvalsdeild-
arlið, Everton,
Sunderland og Reading. Vefmiðill-
inn Talksport segir að Björn sé einn
eftirsóttasti ungi leikmaðurinn á
Norðurlöndum og fari örugglega í
eina af stóru deildunum í Evrópu.
Sagt er að David Moyes, knatt-
spyrnustjóri Everton, hafi augastað
á Birni í framlínuna hjá sínu liði, til
að spila þar við hliðina á Nikica Jela-
vic.
Sunderland og Reading séu líka
með tilboð í Björn í huga. Þá séu
þýsku liðin Hannover, Stuttgart og
Werder Bremen öll með hann í sigt-
inu.
Lilleström upplýsti í gær aðBjörn Bergmann hefði fram-
lengt samning sinn við félagið til
loka tímabilsins 2014. Torger
Bjarmann framkvæmdastjóri sagði
að þetta hefði verið gert í vetur en
ekki verið opinberað fyrr en nú, að
ósk Íslendingsins.
Fanný Vágó,sem lék með
Þrótti úr Reykja-
vík í úrvalsdeild-
inni í knatt-
spyrnu síðasta
sumar, tryggði
Ungverjum
óvæntan útisigur
gegn Norður-Írlandi í undankeppni
Evrópumóts kvenna í gærkvöld.
Liðin eru með Íslandi í riðli og norð-
urírska liðið hefði blandað sér í bar-
áttuna um efstu tvö sætin með sigri.
Vágó skoraði sigurmarkið, 1:0, úr
vítaspyrnu á fjórðu mínútu í uppbót-
artíma. Ungverska liðið mætir Ís-
landi á Laugardalsvellinum í júní.
Blomberg-Lippe, sem
Hildur Þorgeirs-
dóttir og Karen
Knútsdóttir leika
með, er úr leik í
keppninni um
þýska meist-
aratitilinn í hand-
knattleik. Í gær-
kvöld tapaði Blomberg-Lippe fyrir
meisturum síðasta árs, Thüringer
HC, 27:25, í síðari leik liðanna í 8 liða
úrslitum. Blomberg-Lippe tapaði
einnig fyrri leiknum á sínum heima-
velli, 29:26, en liðið hafnaði í áttunda
sæti deildarinnar og mætti þar með
deildarmeisturunum í fyrstu umferð
úrslitakeppninnar. Ólíkt fyr-
irkomulaginu í 1. deild karla, þá er
úrslitakeppni í efstu deild kvenna í
Þýskalandi. Hildur skoraði tvö mörk
í leiknum í gærkvöld en Karen ekk-
ert.
Gunnar Þorsteinsson var í fyrra-kvöld útnefndur besti ungi leik-
maðurinn hjá enska knattspyrnulið-
inu Ipswich á lokahófi félagsins en
fyrr í vikunni var hann valinn besti
leikmaður unglingaliðsins af stuðn-
ingsmannaklúbbi félagsins. Gunnar
er 18 ára gamall miðjumaður sem
gekk til liðs við Ipswich frá Grinda-
vík síðastliðið sumar. Hann hefur
leikið með unglingaliði félagsins í
vetur en Ipswich heldur ekki úti
varaliði.
Fólk sport@mbl.is
Eyjólfur Héðinsson skoraði eitt mark og lagði annað upp
fyrir SönderjyskE sem sigraði meistarana í FC Köben-
havn, 4:3, í seinni leik liðanna í undanúrslitum dönsku
bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær.
Úrslitin dugðu þó ekki SönderjyskE til að komast í úr-
slitaleikinn því FC Köbenhavn vann fyrri leikinn á sínum
heimavelli, 1:0, og vann því einvígið á mörkum á útivelli.
Engu munaði þó að Eyjólfur kæmi liði sínu í úrslitaleik-
inn því hann átti skot í þverslá í uppbótartíma leiksins.
FCK komst yfir á 13. mínútu. Eyjólfur jafnaði þremur
mínútum síðar, og lagði síðan upp mark fyrir Henrik
Hansen á 28. mínútu. SönderjyskE bætti við marki rétt
fyrir hlé og staðan í hálfleik var því 3:1, og þá 3:2 sam-
anlagt.
Fjörið hélt áfram í seinni hálfleik, FCK minnkaði
muninn í 3:2 en SönderjyskE svaraði, 4:2. Undir lokin
var dæmd vítaspyrna á SönderjyskE og einn leikmanna
liðsins rekinn af velli. César Santín
skoraði úr vítaspyrnunni, 4:3, og það
dugði FCK til að komast í úrslitin þar
sem liðið mætir Horsens eða HB
Köge. Seinni leikur þeirra er í kvöld
en sá fyrri endaði 2:2. Bikar-
úrslitaleikurinn fer fram 17. maí.
Eyjólfur og Hallgrímur Jónasson
léku allan leikinn í liði SönderjyskE
en Arnar Darri Pétursson markvörð-
ur var ekki í hópnum. Ragnar Sig-
urðsson var varamaður hjá FCK og
kom ekki við sögu en Sölvi Geir Ottesen lék ekki með
vegna meiðsla. Sölvi og Ragnar eiga nú möguleika á að
vinna tvöfalt með liði sínu en FC Köbenhavn stendur vel
að vígi á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar.
vs@mbl.is
Eyjólfur var hársbreidd frá hetjudáð
Eyjólfur
Héðinsson
settur í Noregi, var staddur
hér á landi í leyfi og gat
hlaupið í skarðið og stýrt
liði Garðbæinga.
Ekki er reiknað með að
Roland taki við Stjörnulið-
inu á nýjan leik þegar hann
kemur til landsins á nýjan
leik en hann hefur þjálfað
það síðustu þrjú árin. Ljóst
er að nýr þjálfari stendur í
brúnni hjá Stjörnunni þeg-
r það ýtir úr vör á næstu handknatt-
iksvertíð, hvort sem gert verður út frá úr-
alsdeildinni eða þeirri fyrstu, allt eftir
rslitum leikjanna við Mosfellinga. iben-
mbl.is
umönnum
onráð
avsson
Höllin, Akureyri, undanúrslit Íslands-
móts karla, fjórði leikur, miðvikudag
25. apríl 2012.
Gangur leiksins: 1:0, 4:3, 7:7, 8:12,
9:14, 12:14, 13:17, 15:19, 18:23,
22:24, 24:25, 25:28.
Mörk Akureyrar: Hörður Fannar Sig-
þórsson 7, Bjarni Fritzson 5/1, Geir
Guðmundsson 5, Heimir Örn Árna-
son 4, Oddur Gretarsson 4.
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson
1471 (þar af 2 til mótherja). Stefán
Guðnason 1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk FH: Ólafur Gústafsson 8,
Ragnar Jóhannsson 8, Andri Berg
Haraldsson 4, Baldvin Þorsteinsson
3, Hjalti Þór Pálmason 2/1, Ari
Magnús Þorgeirsson 1, Atli Rúnar
Steinþórsson 1/1, Örn Ingi Bjarkason
1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson
14 (þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og
Hlynur Leifsson.
Áhorfendur: 1.158.
FH vann, 3:1, í leikjum talið.
Akureyri – FH 25:28
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslit karla, annar leikur:
Þorlákshöfn: Þór Þ. – Grindavík (0:1) 19:15
KNATTSPYRNA
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Egilshöll: Fjölnir – Keflavík..................... 19
Í KVÖLD!