Morgunblaðið - 26.04.2012, Síða 4
ÍSHOKKÍ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Líklega má halda því fram með
nokkurri vissu að Björn Róbert
Sigurðarson, úr Skautafélagi
Reykjavíkur, sé í hópi efnilegustu
íshokkímanna sem fram hafa komið
hérlendis. Björn náði þeim athygl-
isverða áfanga í vetur að spila með
öllum landsliðum Íslands á keppn-
istímabilinu: U-18 ára, U-20 og A-
landsliðinu.
„Það er heilmikið að spila með
þremur landsliðum en einnig er
það mjög gaman. Ég varð fyrir
meiðslum á öxl í vetur og missti úr
einn og hálfan mánuð. Það var svo-
lítið erfitt að koma sér í gang eftir
það og ég hefði að sjálfsögðu viljað
vinna Íslandsmeistaratitilinn með
SR. Fyrir utan þetta tvennt þá var
þetta mjög gott tímabil,“ sagði
Björn sem lét talsvert að sér kveða
með A-landsliðinu á HM í Reykja-
vík á dögunum.
„Það var frábært enda ekki oft
sem maður spilar með landsliði
hérna heima. Það var heppilegt að
mitt fyrsta landsliðsverkefni var á
heimavelli og vonandi eiga þau eftir
að verða fleiri. Stemningin var flott
og það var gaman að sjá svo marga
í stúkunni að fylgjast með löndum
sínum.“
Flestar stoðsendingar í Serbíu
Björn Róbert var eins og gefur
að skilja í algeru lykilhlutverki hjá
U-18 ára liðinu sem lék í 2. deild á
HM í Serbíu í vetur. Björn gaf
langflestar stoðsendingar af öllum í
mótinu eða tíu talsins í leikjunum
fimm.
„Við vorum með mjög sterkt lið
og liðið ætti einnig að vera mjög
sterkt á næsta ári þó margir leik-
menn gangi upp úr því. Þeir munu
spila áfram í 2. deild og það er já-
kvætt. Ég hef tekið eftir því síð-
ustu árin að við erum alltaf að
verða betri og betri og það eru
góðir leikmenn að koma upp sem
eiga eftir að þróast,“ sagði Björn
sem segist einnig hafa lært mikið
af því að spila á móti meist-
araflokksmönnum bæði í deildinni
og í landsliðinu.
„Það hefur hjálpað mér mikið að
spila á móti fullorðnum mönnum.
Það koma margir útlendingar hing-
að að spila, það gerir íshokkíið
hérna betra en gæðin ættu eig-
inlega ekki að vera eins mikil og
þau eru miðað við að hér eru bara
þrjú félög.
Ef okkur tekst að bæta við
kannski tveimur félögum þá myndu
gæðin halda áfram að aukast alveg
gríðarlega.“
Fór ungur til Svíþjóðar
Björn Róbert var á gagnfræða-
skólaaldri þegar hann hélt til
Malmö í Svíþjóð og reyndi fyrir sér
hjá mjög sterku unglingaliði félags-
ins sem leikur í efstu deild í þeim
aldursflokki.
„Ég fór út eftir áramót þegar ég
var í 9. bekk og var einnig allan
veturinn í 10. bekk. Ég spilaði þá
með 16 ára liði félagsins og það var
rosalega sterkt íshokkí. Þó þetta
hafi verið gott tækifæri þá fann ég
mig ekki almennilega þarna og það
var ein ástæða þess að ég kom
heim aftur. Manni verður að líða
vel,“ sagði Björn sem spilaði með
Malmö Redhawks og æfði um tíma
í hinni glæsilegu íshokkíhöll
Malmö-Arena þar sem leikið var til
úrslita á HM í handbolta í fyrra.
Reynir fyrir sér erlendis á ný
Björn er nú farinn að huga að
því að fara utan á ný eftir eitt og
hálft tímabil með SR. Hann segist
ætla að reyna fyrir sér erlendis í
sumar og gæti allt eins endað í
Vesturheimi.
„Ég mun fara til Bandaríkjanna
á næstunni og vonast eftir því að
komast að hjá einhverju liði þar.
Það yrði þá unglingahokkí sem er
eins konar hálfatvinnumennska og
síðar væri þá möguleiki að spila
með háskólaliði í Bandaríkjunum.
Það eru nokkrir möguleikar í stöð-
unni og ég mun líka skoða hvað
býðst í Evrópu. Ég mun alla vega
spila erlendis næsta vetur og ég
þarf að fara aftur út núna til þess
að eiga möguleika á komast að hjá
góðu liði í framtíðinni,“ sagði Björn
Róbert Sigurðarson í samtali við
Morgunblaðið.
Lék með öllum landsliðunum
Björn Róbert Sigurðarson var í A-, U20 og U18 ára landsliðum Íslands Ætlar að reyna fyrir sér
erlendis á næsta tímabili Fór ungur til Malmö að spila íshokkí Flott stemning á HM á Íslandi
Morgunblaðið/Golli
Landsliðsmaður Björn Róbert Sigurðarson í góðu færi við mark Ný-Sjálendinga í leik þjóðanna á heimsmeistaramótinu í Laugardalnum.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Ólafur Stefánsson, leikmaður
danska meistaraliðsins AG Köben-
havn, meiddist í fyrri leik liðsins á
móti Evrópumeisturum Barcelona
um síðustu helgi þar sem AG vann
sex marka sigur í fyrri viðureign lið-
anna í átta liða úrslitum Meist-
aradeildarinnar.
Ólafur hefur verið í meðhöndlun
hjá læknaliði AG-liðsins og mun
reyna allt til að verða klár í seinni
leikinn við Börsunga sem fram fer á
laugardaginn.
„Ég mun spila á laugardaginn.
Það er ekki um annað að velja,“
sagði Ólafur í viðtali við vef danska
ríkisútvarpsins.
Ólafur fékk högg á síðuna og kom
lítið við sögu megnið af seinni hálf-
leiknum í leiknum við Barcelona á
Parken. Hann vildi ekki taka þá
áhættu að spila meiddur en á laug-
ardaginn ætlar hann að gefa allt sem
hann á.
„Þetta er leikur þar sem ég hugsa
ekki um fortíðina eða framtíðina,“
segir Ólafur, sem reiknar með því að
æfa með liði sínu í dag og vonast til
að geta leikið bæði í sókn og vörn á
laugardaginn.
„Ég vona að ég verði 100% klár til
að spila í 60 mín-
útur,“ segir Ólaf-
ur en með honum
hjá AG Köben-
havn leika þeir
Arnór Atlason,
Snorri Steinn
Guðjónsson og
Guðjón Valur
Sigurðsson.
Kasper Hvidt,
markvörðurinn
frábæri hjá danska meistaraliðinu,
segist helst vilja vera án Ólafs í
vörninni svo hann geti nýtt alla sína
krafta í sóknarleiknum.
„Ólafur er ótrúlega mikilvægur
fyrir okkar sóknarleik svo mér
finnst best að spara hann í varnar-
leiknum,“ segir Hvidt, sem fékk þau
tíðindi í gær að honum verður ekki
refsað af aganefnd evrópska hand-
knattleikssambandsins vegna rauða
spjaldsins sem hann fékk að líta á
Parken um síðustu helgi. Hann mun
því standa á milli stanganna gegn
Evrópumeisturunum og eins gott
því Norðmaðurinn Steinar Ege er
ekki til staðar þar sem hann sleit
krossband í hné á dögunum.
gummih@mbl.is
Ekki um annað að
velja en að spila
Ólafur harkar af sér gegn Barcelona
Ólafur
Stefánsson