Morgunblaðið - 07.05.2012, Side 1

Morgunblaðið - 07.05.2012, Side 1
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2012 íþróttir Skagamenn Jón Vilhelm Ákason tryggði Skagamönnum sigur í fyrsta leik þeirra í efstu deild í fjögur ár. Sigruðu Breiðablik 1:0 á Kópavogsvellinum. 7 Íþróttir mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Íslandsmeistarar HK úr Kópavogi varð Íslandsmeistari karla í handknattleik í fyrsta skipti í gær eftir þriðja sigurinn á FH í jafnmörgum úrslitaleikjum liðanna. Kristinn Guðmundsson, annar þjálfara HK, fagnar hér sigrinum ásamt Þorsteini Einarssyni, sem var formaður HK um árabil. »4-5 Þormóður Árni Jónsson, júdó- maður úr JR, er samkvæmt óstaðfestum út- reikningum í 22. sæti í Evrópu yfir þá sem komast á Ól- ympíuleikana í London í grein- inni. Það dugar honum og vel það til að tryggja sér farseðilinn þangað en hann mætti falla niður um þrjú sæti á listanum. Ekki verður keppt í fleiri mótum sem gefa stig á listann og því ættu breytingarnar aldrei að verða svo miklar að Þormóður kæmist ekki á leikana. Birta átti óstaðfestan lista 5. maí af alþjóðlega júdósambandinu en það var ekki gert. Þrátt fyrir það er samkvæmt þessu nánast hægt að slá því föstu að Þor- móður keppir í +100 kg flokki á Ólympíuleikunum. Hann bætist þar við ört stækkandi hóp íþróttafólks frá Íslandi á síðustu vikum. Framundan hjá Þormóði er mót í Bretlandi sem eins og áður segir gildir ekki á listanum. omt@mbl.is Þormóður virðist kom- inn á ÓL Þormóður Árni Jónsson Kiel, undir stjórn Alfreðs Gísla- sonar, end- urheimti í gær þýska bikarinn í handknattleik eftir sigur á Flensburg 33:31, í úrslitaleik sem spilaður var í Hamborg. Kiel vann heimamenn í undanúrslitum á laugardag og fylgdu því svo eftir með nokkuð öruggum sigri á liðinu sem er í öðru sæti þýsku deildarinnar. Þetta er því annar stóri titill fé- lagsins á skömmum tíma því liðið vann einnig þýsku 1. deildina á dög- unum þó það eigi eftir að spila fimm leiki. Aron Pálmarsson tók þátt í úr- slitaleiknum án þess þó að komast á blað, ekki frekar en í fyrri leiknum. Ekkert lið virðist geta stöðvað Kiel en framundan er úrslitahelgin í Meistaradeildinni 26.-27 þessa mán- aðar. Þar mætir liðið Füchse Berlin í undanúrslitum í Köln. Dagur Sig- urðsson sem þjálfar Berlínarliðið á því erfitt verkefni fyrir höndum. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Íslendingaliðið AG Köbenhavn frá Danmörku og spænska liðið Atlético Madríd. omt@mbl.is Annar stóri titillinn í höfn hjá Kiel Alfreð Gíslason Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ólafur Karl Finsen, Stjörnumað- urinn í Selfossliðinu, varð fyrstur til að skora mark á Íslandsmótinu í knattspyrnu árið 2012. Hann skor- aði úr vítaspyrnu á 6. mínútu í leiknum gegn ÍBV, eða eftir ná- kvæmlega 5 mínútur, 37,17 sek- úndur, samkvæmt tímamælingu Morgunblaðsins. Þetta er í fyrsta skipti sem Sel- fyssingur skorar fyrsta mark móts- ins, enda aðeins í annað skipti sem lið þeirra leikur í efstu deild. Guðmundur fyrstur með gult Guðmundur Þórarinsson úr ÍBV varð fyrstur til að fá gula spjaldið í leik. Hann fékk það strax á 6. mín- útu í viðureigninni við Selfoss, fyrir að mótmæla vítaspyrnunni full- harkalega. Eyjamenn fóru í heild „vel“ af stað í spjöldunum því Val- geir Valgeirsson var búinn að sýna þremur þeirra gula spjaldið eftir aðeins 10 mínútna leik! Ekkert lið náði að skora þrjú mörk í fyrstu fimm leikjum Íslands- mótsins í gærkvöld en tólf mörk voru skoruð í leikjunum. Flest á KR-vellinum þar sem KR komst í 2:0 gegn Stjörnunni en Garðbæing- ar náðu að jafna metin í 2:2. Fyrstu umferðinni lýkur í kvöld þegar Fram tekur á móti Val á Laugardalsvellinum en viðureign gömlu keppinautanna úr Reykjavík hefst klukkan 20. Önnur umferðin er síðan öll spiluð næsta fimmtu- dagskvöld, 10. maí. Ólafur skoraði fyrstur  Mark úr vítaspyrnu á 6. mínútu fyrir Selfoss gegn ÍBV gaf tóninn á Íslandsmótinu 2012  Fyrsti Selfyssingurinn Ljósmynd/Guðmundur Karl Fyrstur Ólafur Karl Finsen skorar fyrsta mark Íslandsmótsins 2012 af víta- punktinum og kemur nýliðum Selfoss yfir gegn Eyjamönnum. Einar Daði Lár- usson úr ÍR hafn- aði í þriðja sæti á tugþrautarmóti á Ítalíu um helgina þar sem hann fékk 7.590 stig. Hann var á eftir Dmitriy Karpov frá Kasakstan sem fékk 8.172 stig og Ashley Bryant frá Bretlandi sem fékk 7.689 stig. Árangur Einars er mjög óvæntur því hann var fyrirfram með 13. besta árangurinn. Aðstæður voru mjög erfiðar, rok og rigning settu svip sinn á mótið og aðeins 16 af 23 keppendum náðu að ljúka keppni. Einar hljóp 100 metra á 11,24 sek., stökk 7,16 m í langstökki, kastaði kúlu 13,50 metra, stökk 1,98 m í hástökki, hljóp 400 metra á 49,55 sek., hljóp 110 m grindahlaup á 14,83 sek., kastaði kringlu 38,09 metra, stökk 4,65 m í stang- arstökki, kastaði spjóti 51,29 m og hljóp 1.500 m á 4:36,34 mín. vs@mbl.is Einar Daði fékk bronsið á Ítalíu Einar Daði Lárusson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.