Morgunblaðið - 07.05.2012, Síða 2

Morgunblaðið - 07.05.2012, Síða 2
Í VESTURBÆNUM Kristján Jónsson kris@mbl.is Garðbæingar fengu fljúgandi start í Pepsi-deild karla í knattspyrnu þetta sumarið þegar þeir náðu stigi á móti Ís- lands- og bikarmeisturum KR í Frosta- skjólinu í gærkvöldi. KR komst í 2:0 á 68. mínútu og virtist þar með hafa lagt grunninn að fyrsta sigri sumarsins. Stjarnan hafði hins vegar ekki sagt sitt síðasta orð og tókst að vinna upp tveggja marka forskot á lokakaflanum. Atli Jóhannsson, fyrrv. leikmaður KR, skoraði jöfnunarmarkið á 85. mínútu. Titilvörn KR-inga hófst á afar köldu vorkvöldi í Vesturbænum. Þegar upp var staðið reyndist napur vindurinn vera ágætur meðbyr fyrir Garðbæinga upp á framhaldið að gera en KR-ingar verða líklega lengur að ná úr sér hroll- inum. Lið Stjörnunnar hefði vart getað fengið betri byrjun en þetta í mótinu, alla vega hvað varðar stemninguna næstu daga. Liðið sneri tapaðri stöðu í jafntefli í örfáum leikjum í endataflinu. Stjarnan blandaði sér í baráttuna í efri hluta deildarinnar í fyrra og í að- draganda mótsins í ár veltu margir því fyrir sér hvort liðið hefði það sem þarf til að blanda sér fyrir alvöru í baráttuna um titilinn. Garðbæingar spiluðu svo sem ekki frábærlega í gærkvöldi en þeir sýndu þó alla vega að hugarfarið er rétt því þeir gáfust ekki upp þrátt fyrir erfiða stöðu. Meistararnir léku heldur ekki frá- bærlega enda buðu aðstæður ekki upp á það í gærkvöldi jafnvel þótt KR- völlurinn sé í mjög góðu ásigkomulagi miðað við árstíma. KR-ingar sýndu þó fína takta á köflum og er ekki spáð titl- inum að ástæðulausu. Þrátt fyrir að hafa fengið á sig jöfnunarmark seint í leiknum þá féllust KR-ingum ekki hend- ur á lokakaflanum því þá sköpuðu þeir tvö mjög góð marktækifæri sem ekki nýttust. Í báðum tilfellum var miðju- maðurinn marksækni Baldur Sigurðs- son kominn inn í vítateiginn miðjan, eins og hann gerir svo vel, en honum brást gersamlega bogalistin í báðum til- fellum. KR-ingar þurfa aðallega að gæta sín á því að byrja ekki mótið of illa því þá er hætt við því að spennan aukist til muna í Vesturbænum eins og dæmin sanna. Leikurinn í gærkvöldi minnti óneitanlega á fyrsta leik KR fyrir tveimur árum þegar liðið missti niður 2:0 forskot gegn Haukum í Frostaskjól- inu og gerði þá einnig 2:2 jafntefli. Þá virtist byrjunin í mótinu slá leikmenn KR svolítið út af laginu en liðið er örugglega alltof sterkt um þessar mundir til þess að sú saga geti end- urtekið sig. Ekki tímabært að fella dóma Almennt séð er varasamt að fella of mikla dóma yfir liðunum vegna þessa leiks. Garðbæingar voru varkárir þar sem þeir voru að heimsækja meistarana en verða sjálfsagt mun sókndjarfari á móti mörgum öðrum liðum. KR-ingar sofnuðu á verðinum eftir að hafa verið með ágæta stjórn á leiknum og þeir munu vafalaust læra af því. Stig úr tapaðri stöðu  Náði 2:2 jafntefli gegn Íslandsmeisturum KR  Fyrrverandi leik- maður KR jafnaði á 85. mínútu  KR-ingar sofnuðu á verðinum Á SELFOSSI Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Oft er talað um að vorbragur sé á fyrstu leikjum Íslandsmótsins í knattspyrnu. Það hefur greinilega vorað vel fyrir austan fjall því lítill vorbragur var á leik nýliðanna frá Selfossi þegar þeir tóku á móti ÍBV í fyrsta leik Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í gær. Selfyssingar byrjuðu vel, gerðu tvö mörk á fyrstu 33. mínútunum og kræktu sér í þrjú stig og alls ekki þau síðustu ef liðið heldur áfram á þeirri braut sem það var á í gærkvöldi. „Ég held það sé nú talsverð klisja að tala um vorbrag á liðum. Menn æfa svo til allt árið og bíða eftir fyrsta leik í átta mánuði þannig að það er sjálfsagt frekar of mikil spenna og eftirvænting í mönnum. Völlurinn hérna er frábær og þetta gekk ljómandi vel hjá okkur núna,“ sagði Ingólfur „Veðurguð“ Þór- arinsson, besti maður vallarins að leik loknum. Já, það var alls enginn „vor- bragur“ á leik Selfyssinga. Liðið vik- ar mjög þétt, allir leikmenn taka þátt í að verjast þegar þess þarf og síðan er haldið í sókn með viðkomu á miðjunni og þeim aðgerðum stjórn- aði Ingólfur vel í gær. „Já, þetta gekk ágætlega hjá mér enda er ég í fínni æfingu, hef æft mun betur en ég hef kannski gert undanfarin ár. Ég ætla að reyna að vera með á fullu í sumar,“ sagði hann. Það var heldur meiri vorbragur á Eyjamönnum, sem byrjuðu skelfilega. Þeir sóttu þó í sig veðrið, stjórnuðu gangi leiksins mestan hluta síðari hálfleiks án þess þó að skapa sér mörg færi. „Það var sannarlega vorbragur á okkur fram- an af leik og við mættum bara ekki tilbúnir í til leiks og lentum tveimur mörkum undir. Við reyndum að koma til baka og sækja, en við sköp- uðum okkur ekki nægilega mikið af færum, en vorum alls ekki nógu hættulegir til að jafna,“ sagði Magn- ús Gylfason, þjálfari Eyjamanna, allt annað en sáttur við leik sinna manna. Ef marka má þennan leik þá hefur Loga Ólafssyni, þjálfara Selfyss- inga, tekist að skapa góða stemn- ingu og baráttu meðal sinna manna. Fyrir mótið var nokkuð talað um að liðið væri sálarlaust þar sem svo margir erlendir leikmenn væru í því. Vissulega eru margir erlendir leik- menn í liði Selfyssinga, en öll lið á Ís- landi gætu verið ánægð með „sálina“ í liðinu ef hún væri eitthvað í líkingu við það sem hún var hjá Selfyss- ingum í gær. Allir lögðust á eitt til að krækja í stigin þrjú og það tókst. Vörn liðsins er þétt og þeir Stefán Ragnar og Endre Ove mjög öruggir sem miðverðir. Ingólfur var eins og kóngur í ríki sínu á miðjunni og einnig áttu þeir Sarr og Jón Daði fínan leik. Það var nokkuð fátt um fína drætti hjá ÍBV. Garner var þó sprækur og helsta ógn Eyjamanna á vinstri kantinum. Guðmundur, yngri bróðir Ingólfs, átti flottan leik fram- an af en varð að láta í minni pokann fyrir stóra bróður. Vorar vel fyrir austan fjall  Selfyssingar koma vel undan vetri Ljósmynd/Guðmundur Karl Bestur Ingólfur, besti maður vallarins, á hér í höggi við Tonny Mawejje. 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2012 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. 1:0 6. Brotið var á Jon AndréRöyrane og dæmd víta- spyrna á ÍBV. Ólafur Karl Finsen skoraði af öryggi, efst í hægra markhornið. 2:0 33. Ndiaye átti sendingufyrir mark ÍBV frá vinstri, varnarmönnum mistókst að koma boltanum frá og barst hann aðeins út fyrir vítateig þar sem Jón Daði Böðvarsson tók við honum og skoraði með góðu innanfótarskoti. SLÁ 38. Ingólfur Þór-arinsson með flott lang- skot í þverslána á marki ÍBV, alveg út við stöng, og niður. 2:1 81. Dæmd var vítaspyrna áSelfoss þegar leikmaður liðsins fékk boltann í höndina. Þór- arinn Ingi Valdimarsson skoraði af öryggi í vinstra hornið. I Gul spjöld:Guðmundur (ÍBV) 6. (mót- mæli), Garner (ÍBV) 8. (brot), Olsen (ÍBV) 10. (brot), Mawejje (ÍBV) 31. (brot), Ndiaye (Selfoss) 45. (brot). MMM Enginn. MM Ingólfur Þórarinsson (Selfossi). M Stefán R. Guðlaugsson (Selfossi) Endre Ove Brenne (Selfossi) Babacar Sarr (Selfossi) Jón Daði Böðvarsson (Selfossi) Matt Garner (ÍBV) Tonny Mawejje (ÍBV) Guðmundur Þórarinsson (ÍBV)  Einnar mínútu þögn var fyrir leikinn til minningar um Steingrím Jóhannesson, sem lék með ÍBV um árabil og eitt sumar með Selfyss- ingum, en hann lést fyrr á þessu ári. Þetta gerðist á Selfossvelli Selfossvöllur, Pepsi-deild karla, 1. umferð, sunnudag 6. maí 2012. Skilyrði: Fín, andvari og iðagrænn völlur. Hiti um 7 gráður. Skot: Selfoss 7 (5) – ÍBV 12 (6). Horn: Selfoss 6 – ÍBV 2. Lið Selfoss: (4-5-1) Mark: Ismet Duracak. Vörn: Ivar Skjerve, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Endre Ove Brenne, Andri Freyr Björnsson. Miðja: Ólafur Karl Finsen (Tómas Leifsson 69.), Ingólfur Þórarinsson, Babacar Sarr, Jón Daði Böðvarsson. Sókn: Jon André Röyrane (Robert Sandnes 79.), Abdoulaye Ndiaye (Viðar Örn Kjartansson 60.). Lið ÍBV: (4-4-2) Mark: Abel Dhaira. Vörn: Arnór Eyvar Ólafsson (Ragnar Leósson 74.), Brynjar Gauti Guð- jónsson, Rasmus Christiansen, Matt Garner. Miðja: Tonny Mawejje, George Baldock, Guðmundur Þór- arinsson, Þórarinn Ingi Valdimars- son. Sókn: Ian Jeffs, Christian Ol- sen. Dómari: Valgeir Valgeirsson – 7. Áhorfendur: 1.243. Selfoss – ÍBV 2:1 KR-völlur, Pepsi-deild karla, 1. umferð, sunnudag 6. maí 2012. Skilyrði: Kalt, þurrt og talsverður vindur. Völlurinn lítur mjög vel út miðað við árs- tíma. Skot: KR 10 (5) – Stjarnan 9 (3). Horn: KR 4 – Stjarnan 4. Lið KR: (4-3-3) Mark: Hannes Þór Hall- dórsson. Vörn: Haukur H. Hauksson, Grét- ar S. Sigurðarson, Rhys Weston, Gunnar Þór Gunnarsson. Miðja: Bjarni Guð- jónsson, Baldur Sigurðsson, Viktor B. Arn- arsson (Dofri Snorrason 85.) Sókn: Emil Atlason (Þorsteinn Már Ragnarsson 60.), Kjartan H. Finnbogason, Óskar Örn Hauks- son. Lið Stjörnunnar: (4-3-3) Mark: Ingvar Jónsson. Vörn: Jóhann Laxdal, Alexander Scholz, Tryggvi Bjarnason, Hörður Árna- son. Miðja: Baldvin Sturluson (Halldór Orri Björnsson 72.), Daníel Laxdal, Atli Jó- hannsson . Sókn: Gunnar Örn Jónsson (Darri S. Konráðsson 72.), Garðar Jó- hannsson, Kennie Chopart. Dómari: Erlendur Eiríksson – 6. Áhorfendur: 2.164. KR – Stjarnan 2:2 Færi Óskar Örn Hauksson lagði upp bæði mörk KR-inga gegn Stjörnunni og er hér einn gegn Ingvari Jónssyni, markverði Garðbæinga, sem náði að verja frá honum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.