Morgunblaðið - 07.05.2012, Síða 4
Í KAPLAKRIKA
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
HK varð verðskuldað Íslandsmeist-
ari í handknattleik karla í gær þegar
liðið lagði meistara síðasta ár, FH, í
þriðja sinn í röð í úrslitarimmu lið-
anna, 28:26, í Kaplakrika eftir að
hafa verið þremur mörkum yfir í
hálfleik, 15:12.
Árangur HK í úrslitakeppninni er
með hreinum ólíkindum. Liðið hafn-
aði í fjórða sæti í N1-deildinni og
rétt slapp inn í úrslitakeppnina í
lokaumferðinni. Þegar út í úr-
slitakeppnina var komið gripu liðs-
menn til sópsins og notuðu hann
fyrst til þess að sópa deildarmeist-
urum Hauka úr leik í þremur leikj-
um og síðan hinu Hafnar-
fjarðarliðinu, einnig 3:0. Aldrei fyrr í
sögu úrslitakeppni Íslandsmótsins í
handknattleik hefur lið sýnt annan
eins styrk og HK-liðið gerði að
þessu sinni, þ.e. að fara í gegnum
sex leiki og vinna þá alla, og það
sem meira er yfirleitt á afar sann-
færandi hátt. Þetta kallast svo sann-
arlega að vera verðugur meistari.
FH byrjaði betur
Framan af leiknum í Kaplakrika í
gær virtist sem FH-liðið ætlaði að
halda einhverju lífi í úrslitakeppn-
inni með því að vinna og krækja í
a.m.k. einn leik til viðbótar. FH-
ingar voru sterkari jafnt í vörn sem
sókn fyrstu 20 mínúturnar og náðu
nokkrum sinnum þriggja marka for-
skoti. En HK-liðið lagði ekki árar í
bát, lét forskot og frumkvæði FH
ekki slá sig út af laginu og hélt
áfram að spila sinn leik, vitandi að
fyrr en síðar myndi gæfuhjólið snú-
ast þeim í hag. Þegar FH missti
mann af leikvelli þegar tæpar 20
mínútur voru liðnar af leiknum og
liðið var þremur mörkum yfir gerði
HK-liðið áhlaup sem FH-ingar stóð-
ust ekki. HK skoraði fjögur mörk í
röð og komst yfir í fyrsta sinn, 9:8.
Eftir það var forystan í höndum
HK-liðsins. Það var komið af stað.
Vörn og markvarslan, þessi tvö at-
riði voru aðal liðsins í úrslitakeppn-
inni. FH-liðið virtist missa trúna um
stund og HK hafði þriggja marka
forskot þegar gengið var til búnings-
herbergja í hálfleik.
Strax í byrjun síðari hálfleiks náði
HK fjögurra marka forskoti, 16:12.
Mest munaði sex mörkum á liðunum
upp úr miðjum síðari hálfleik, 23:17.
Þá var sem HK liðið missti einbeit-
inguna og FH komst inn í leikinn og
tók að saxa á forskotið. Arnar Freyr
Stefánsson tók sig þá til og varði
nokkur mikilvæg skot, m.a. eftir
hraðaupphlaup, og reið þar með
baggamuninn á lokakaflanum og
kom í veg fyrir að til fjórða leiks
kæmi í þessari rimmu.
Óvænt eftir brösótt gengi
Óhætt er að segja að HK hafi
tryggt sér sinn fyrsta Íslandsmeist-
aratitil með miklum glæsibrag en
um leið á nokkuð óvæntan hátt. Vit-
Íslandsmeistarar 2012 Vilhelm Gauti Bergsveinsson, fyrirliði HK, fremstur fyrir miðju með Íslandsbikarinn. Hinum á vinstri hönd er Bjarki Már Elísson og Tandr
Atli Karl Backmann, Bjarki Már Gunnarsson, Björn Þórsson Björnsson, Ólafur Víðir Ólafsson, Atli Ævar Ingólfsson, sem varð 28 ára í gær, og Björn Ingi Friðþjófss
Óumdeildir me
HK varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í rúmlega 40 ára sögu sinni Kópav
gegnum úrslitakeppnina, fyrst meistaraliða Framúrskarandi liðsheild und
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2012
Aron Jóhannsson
er óstöðvandi með
liði AGF í dönsku
úrvalsdeildinni
þessa dagana. Í
gær skoraði hann
í fjórða leiknum í
röð og bætti um
betur með því að
skora tvívegis í
3:1 sigri á HB
Köge á útivelli.
Aron er því kominn með fimm mörk í
síðustu fjórum leikjum Árósaliðsins.
Aron, sem 21 árs og kom til AGF
frá Fjölni haustið 2010, hafði aðeins
skoraði tvívegis í fyrstu 26 umferðum
deildarinnar. Hann hefur síðan held-
ur betur tekið við sér og á vef AGF er
sagt að Íslendingurinn geisli af sjálfs-
trausti. Síðara mark hans í gær hafi
borið vitni um það.
Aron er nú kominn með 7 mörk í 28
leikjum en þrír samherja hans hafa
einnig skorað sjö til átta mörk fyrir
liðið á tímabilinu.
AGF, sem vann 1. deildina í fyrra,
hefur staðið sig vonum framar og er í
fimmta sætinu þegar þremur umferð-
um er ólokið. Liðið á enn möguleika á
að vinna sér sæti í Evrópudeild
UEFA fyrir næsta tímabil. vs@mbl.is
Fimm mörk
Arons í fjór-
um leikjum
Aron
Jóhannsson
Lionel Messi
gerði sér lítið
fyrir og skoraði
öll fjögur mörk
Barcelona í
fyrrakvöld þegar
liðið vann ná-
granna sína í
Espanyol, 4:0, í
næstsíðustu um-
ferð spænsku 1.
deildarinnar í
knattspyrnu.
Messi hefur þar með gert hvorki
meira né minna en 72 mörk á tíma-
bilinu en á dögunum sló hann Evr-
ópumetið hjá Þjóðverjanum Gerd
Müller sem gerði 67 mörk fyrir
Bayern München tímabilið 1972-
1973.
Real Madrid vann Granada á úti-
velli, 2:1, með sjálfsmarki heima-
manna í uppbótartíma. Áður hafði
Cristiano Ronaldo jafnað metin úr
vítaspyrnu, en það var hans 300.
mark á ferlinum, samanlagt með fé-
lagsliði og landsliði. vs@mbl.is
Ferna frá
Messi og 72
mörk í húsi
Lionel
Messi
Björn Bergmann
Sigurðarson
skoraði mark
Lilleström í gær
þegar lið hans
gerði jafntefli,
1:1, við Hauge-
sund á útivelli í
norsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu.
Þetta var
fyrsta mark Björns í deildinni á
tímabilinu en í síðustu viku skoraði
hann fjögur mörk í bikarleik. Lille-
ström hefur hins vegar enn ekki tek-
ist að vinna leik í fyrstu sjö umferð-
unum og er í 14. sæti af 16 liðum og
byrjun liðsins í deildinni hefur valdið
miklum vonbrigðum.
Stefán Logi Magnússon fékk sitt
fyrsta tækifæri í marki Lilleström á
þessari leiktíð og Pálmi Rafn Pálma-
son var líka í liðinu. vs@mbl.is
Björn braut
ísinn gegn
Haugesund
Björn Bergmann
Sigurðarson