Morgunblaðið - 07.05.2012, Side 5

Morgunblaðið - 07.05.2012, Side 5
að var að geta var til staðar í liðinu en eftir brösótt gengi á leiktíðinni reiknuðu örugglega fáir með að lokaspretturinn yrði jafn glæsilegur og raun ber vitni um. Liðsheildin var frábær í öllum leikjum. Hún öðru fremur lagði grunn að þessum glæsilega sigri í deildinni. Vörnin var framúrskar- andi og markvarslan eins best verð- ur á kosið en hún var sá þáttur liðs- ins sem menn sögðu fyrirfram að væri stærsti galli liðsins. Skýr verkaskipting Sem fyrr var það fyrst og fremst góð liðsheild sem tryggði HK þenn- an áfanga. Góð liðsheild sem er vel undir verkefni sín búin, og það var HK-liðið svo sannarlega. Þar eiga svo sannarlega stærsta þáttinn þjálf- ararnir, fyrrgreindur Erlingur og Kristinn Guðmundsson. Þeir bjuggu lið sitt frábærlega undir hvern leik, ekkert kom þeim eða leikmönnum þeirra úr jafnvægi. Verkaskipting þeirra var skýr og stjórnun liðsins fumlaus og yfirveguð og öðrum til eftirbreytni. Þeir nýttu tímann vel frá því að deildarkeppninni lauk og þar til úrslitakeppnin hófst og komu fram með frábært lið á lokasprett- inum sem hefur skrifað nýjan kafla í íslenska handknattleikssögu.  Á mbl.is/sport er að finna myndskeið með viðtölum við sex liðsmenn HK auk stemningarmynd- skeiðs þegar Vilhelm Gauti Berg- sveinsson, fyrirliði HK, tók við Ís- landsbikarnum. Morgunblaðið/Árni Sæberg ri Már Konráðsson á til hægri. Fyrir aftan þá eru f.v. Sigurjón Friðbjörn Björnsson, on, annar markvörður liðsins. eistarar vogsliðið fór taplaust í dir stjórn skipulagðra þjálfara ÍÞRÓTTIR 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2012 Kaplakriki, þriðji úrslitaleikur karla, sunnudag 6. maí 2012. Gangur leiksins: 2:0, 4:1, 6:3, 6:5, 8:5, 8:9, 10:12, 12:15, 12:16, 15:17, 15:20, 17:23, 21:23, 23.25, 24:26, 26:27, 26:28. Mörk FH: Ólafur Gústafsson 8, Hjalti Pálmason 6/3, Atli Rúnar Stein- þórsson 4, Ari Magnús Þorgeirsson 2, Magnús Óli Magnússon 2, Þorkell Magnússon 2, Örn Ingi Bjarkason 2. Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 11 (þar af 3 til mótherja). Pálmar Pétursson 3. Utan vallar: 6 mínútur. Mörk HK: Bjarki Már Elísson 9/4, Ólafur Víðir Ólafsson 6/1, Ólafur Bjarki Ragnarsson 5, Atli Ævar Ing- ólfsson 4, Tandri Már Konráðsson 3, Bjarki Már Gunnarsson 1, Sigurjón Friðbjörn Björnsson 1. Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 20/1 (þar af 4 til mótherja). Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guðjónsson. Áhorfendur: 2.648.  HK vann samtals, 3:0. FH – HK 26:28 Kristín ÝrBjarnadótt- ir og Hólmfríður Magnúsdóttir voru enn í aðal- hlutverkum hjá Avaldsnes á laugardaginn þegar liðið sigr- aði Flöya, 2:1, á heimavelli í norsku B-deildinni í knattspyrnu. Kristín skoraði lag- legt skallamark strax á 7. mínútu og Hólmfríður skoraði sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok. Björk Björnsdóttir varði mark Avaldsnes sem er í öðru sæti deildarinnar með 9 stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar, jafnmörg stig en lakari markatölu en Linderud- Grei sem er á toppnum. Avaldsnes hefur skorað 8 mörk í fyrstu fjór- um umferðunum. Þar af hefur Kristín skorað 4 mörk og Hólm- fríður 3.    Pálmi Þór Sævarsson hefur ver-ið ráðinn þjálfari körfuknatt- leiksliðs Skallagríms til næstu tveggja ára en undir hans stjórn vann liðið sér sæti í úrvalsdeild karla fyrir næsta keppnistímabil. Þetta kemur fram á vef Skalla- gríms. Leikstjórnandinn Lloyd Harrison hefur einnig samið við Borgnesinga um að spila með þeim í úrvalsdeildinni næsta vetur og þá hafa verið gerðir samningar við heimamennina Davíð Guðmunds- son og Andrés Kristjánsson.    Jóhann BergGuðmunds- son og félagar í AZ Alkmaar tryggðu sér sæti í Evrópudeild UEFA í gær þegar þeir unnu Groningen, 1:0, í lokaumferð hol- lensku úrvals- deildarinnar í knattspyrnu. Þar með komst AZ upp fyrir Heerenveen, sem tapaði 2:3 fyrir Feyenoord, og upp í fjórða sætið. Heerenveen þarf hinsvegar að fara í umspil fjögurra liða um eitt Evrópusæti. Jóhann lék allan leikinn með AZ sem þar með bjargaði sér eftir slæman kafla að undanförnu en liðið var lengi vel efst í deildinni í vetur.    Matthías Vil-hjálmsson hélt uppteknum hætti og skoraði eitt marka Start í gær þegar liðið sigraði Ström- men, 3:1, í norsku B- deildinni í knatt- spyrnu. Matthías hefur nú skorað fimm mörk í fyrstu fimm leikjum Start en hann kom til liðsins sem lánsmaður frá FH rétt áður en tímabilið hófst. Hann og Guðmundur Kristjánsson léku allan leikinn með Start sem er komið í 3. sæti deildarinnar með 9 stig eftir 5 umferðir, en liðið hef- ur ekki tapað leik.    Mads Laud-rup, sonur hins fræga Michaels Laud- rups, er á leið- inni til liðs við úrvalsdeildarlið Stjörnunnar í knattspyrnu og er væntanlegur til landsins í dag. Hann er laus undan samningi við úrvalsdeild- arliðið HB Köge, sem í gær féll úr úrvalsdeildinni. Laudrup er 23 ára gamall miðjumaður og var á mála hjá FC Köbenhavn fyrstu árin en síðan með Herfölge, sem svo sam- einaðist Köge sem HB Köge. Fólk sport@mbl.is Ívar Benediktsson iben@mbl.is Erlingur Richardsson, annar þjálf- ara HK, var vitanlega í sjöunda himni þegar Íslandsbikarinn var í höfn í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem hann stýrir liði til sigurs á Ís- landsmóti karla í handknattleik en samvinna hans og Kristins Guð- mundssonar skilar um leið HK sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í handknattleik karla. Erlingur, sem er úr Vestmannaeyjum, er fyrsti Eyjamaðurinn sem stýrir liði til sigurs á Íslandsmóti karla í þessari íþróttagrein. „Ég held að þessu úrslitakeppni fari í sögubækurnar þar sem við förum í gegnum hana án þess að tapa leik,“ sagði Erlingur glað- beittur. „Við fengum góðan tíma áður úrslitakeppnin hófst til þess að búa liðið undir úrslitakeppnina. Þann tíma nýttum við vel til þess að koma liðinu í svo gott ástand sem raun ber vitni um. Við nýttum tímann meðal ann- ars til þess að auka hraðann í leik liðsins, þá náðum við þetta varn- arleikinn og síðan var markvarsl- an frábær. Það má segja að fram- ganga markvarðanna í úrslitakeppninni hafi verið líkust sendingu að ofan. Markverðirnir brugðust við þeirri gagnrýni sem þeir höfðu fengið á sig á alveg hreint magnaðan hátt. Sú stað- reynd undirstrikar hversu frábær- ir leikmenn þeir eru,“ sagði Er- lingur og á það við Björn Inga Friðþjófsson og Arnór Frey Stef- ánsson. „Ég er virkilega ánægður með strákana og stoltur að geta ásamt þeim og Kristni félaga mínum og fleirum fært HK sinn fyrsta Ís- landsmeistaratitil í handknattleik karla,“ sagði Erlingur Rich- ardssonar, annar þjálfara HK. Mættum ofjörlum okkar „Ég vil hrósa HK fyrir frábæra frammistöðu í úrslitakeppninni, ekki síst vil ég lofa frábæra vinnu þjálfara liðsins, Kristins Guð- mundssonar og Erlings Rich- ardssonar. Þeir náðu að toppa með lið sitt á réttum tíma,“ sagði Einar Andri Einarsson, annar þjálfari FH, eftir að HK varð Ís- landsmeistari í handknattleik í gær. Einar Andri sagði að FH-liðið hefði hreinlega hitt fyrir ofjarla sína í rimmunni. „Fyrsti leikurinn var slakur af okkar hálfu en tveir þeir næstu voru betri en þá áttum við ekki svo við frábærum varn- arleik og framúrskarandi mark- vörslu HK-manna. Þegar við átt- um möguleika á að jafna metin í tveimur síðustu leikjunum þá fundum ekki leiðir framhjá mark- vörður HK. Það er ljóst að við mættum ofjörlum okkar í þessu einvígi, HK vann þrjá leiki en við engan,“ sagði Einar Andri Einarsson. Markvarslan sem sending af himni ofan  Erlingur og Kristinn nýttu tímann vel Þjálfararnir Erlingur Richardsson og Kristinn Guðmundsson lyfta bik- arnum og Gunnþór Hermannsson liðsstjóri HK fylgist ánægður með.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.