Morgunblaðið - 07.05.2012, Síða 7

Morgunblaðið - 07.05.2012, Síða 7
ENGLAND Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Didier Drogba skráði nafn sitt í sögu- bækur ensku knattspyrnunnar á laugardaginn þegar hann varð fyrstur allra til að skora í fjórum úrslita- leikjum bikarkeppninnar. Drogba skoraði síðara mark Chelsea í sigr- inum á Liverpool, 2:1, í úrslitaleiknum á Wembley á laugardaginn, og þetta kann líka að hafa verið hans síðasti leikur á þjóðarleikvangi Englendinga Drogba er samningslaus að þessu tímabili loknu og hann hefur ekkert viljað staðfesta um framhaldið hjá sér en þessi 34 ára gamli framherji frá Fílabeinsströndinni er nú að ljúka sínu áttuna tímabili hjá Chelsea. Þar hefur hann skorað 100 mörk í úrvals- deildinni, tekið drjúgan þátt á mesta sigurskeiðinu í sögu félagsins, og á framundan úrslitaleik í Meistaradeild Evrópu, gegn Bayern München, síðar í þessum mánuði. „Ég kom hingað til að vinna titla og taka þátt í að skapa sögu félagsins. Þetta er stórkostleg tilfinning og ég er alltaf jafn undrandi þegar mér tekst að skora á þessum velli. Ég er afar stoltur en liðsfélagar mínir eiga mesta heiðurinn skilinn. Ég hef spilað alla úrslitaleikina hérna undanfarin ár, er yfir mig ánægður og vil þakka félögum mínum því það eru þeir sem gera mér kleift að skora mörkin. Við höfum skrifað sögu Chelsea, ekki bara ég heldur við allir. Úrslitin eru frábær fyrir okkur, stuðnings- mennina og félagið. Fjórði bikarúr- slitaleikurinn okkar, fjórði sigurinn, fjórði bikarinn, svo ég er ánægður. Þetta er hvatningin á bak við fótbolt- ann – að spila svona úrslitaleiki,“ sagði Drogba við fréttamenn eftir leikinn. Ramires skoraði fyrra mark Chelsea og Drogba kom liðinu í 2:0. Andy Carroll minnkaði muninn og var hársbreidd frá því að jafna metin. Ævintýraleg markvarsla hjá Petr Cech sem forðaði því að boltinn færi allur inn fyrir marklínu eftir skalla frá Carroll sá til þess að leikurinn fór ekki í framlengingu. „Kom til að vinna titla“ AFP Bikarhetja Didier Drogba hefur heldur betur sett mark sitt á ensku bik- arkeppnina og skorað í fjórum úrslitaleikjum hennar.  Didier Drogba skoraði í fjórða úrslitaleik með Chelsea ÍÞRÓTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2012 Í KÓPAVOGI Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Nýliðar ÍA hefja leik með stæl í Pepsi-deildinni í fótbolta en þeir lögðu Breiðablik, 1:0, á Kópavogs- velli í gærkvöldi. Jón Vilhelm Ákason sem sneri aftur heim á Skagann fyrir tímabilið var hetja þeirra gulu. Hann skoraði eina mark leiksins eftir að hafa verið inni á vellinum í aðeins sex mín- útur. Taugatitringur í byrjun Það verður seint sagt að fyrstu mínúturnar á Kópavogsvellinum í gær hafi verið fallegar. Baráttan í fyrirrúmi en á kostnað fótboltans sem var nær enginn. Fljótlega fóru þó Blikarnir að taka völdin. Þeir fundu sitt víð- fræga, lauflétta spil og héldu bolt- anum löngum stundum. ÍA aftur á móti kom varla send- ingu á milli manna og spilaði hreint skelfilega í fyrri hálfleik. Varnarleikurinn var þó mjög góð- ur og liðið virkilega þétt. Sama hversu gott uppspil Blikanna var náðu þeir aldrei að skapa mikla hættu við mark ÍA. Sáttir með 0:0 í hálfleik „Við spiluðum ekki vel í fyrri hálfleik þannig að við vorum sáttir með að staðan var markalaus í hálfleik,“ sagði Jóhannes Karl við Morgunblaðið eftir leikinn. „Seinni hálfleikur var miklu betri, sér- staklega sóknarlega. Þar spiluðum við boltanum betur á milli okkar, náðum fyrirgjöfum og vorum hættulegri við markið,“ sagði Jó- hannes sem var ánægður með varnarleik alls liðsins. „Við ætluðum að vera þéttir og það gekk upp þó það væri kannski pínu ryð í okkur sókn- arlega. Mér fannst Blikarnir aldr- ei ná að opna okkur eitthvað af ráði. Þeir komu með einhverjar fyrirgjafir en Palli þurfti aldrei að verja,“ sagði Jóhannes Karl. Fín frumsýning beggja liða Á heildina litið var sigurinn sanngjarn þar sem ÍA var hættu- legra fram á við í seinni hálfleik. Sér í lagi eftir að Gary Martin, sem lítið gat í fyrri hálfleik, fór að sýna sitt rétta andlit og Jón Vilhelm kom inn á. Skipting Þórð- ar á Jóni og Garðari Gunnlaugs- syni breytti leiknum fyrir ÍA því Garðar átti hreint skelfilega frumraun á Íslandsmótinu og hefði mátt fara fyrr út af. Blikarnir spiluðu fínan fótbolta eins og svo oft áður en þá vantaði fleiri og betri hugmyndir á síð- asta þriðjungi vallarins. Morgunblaðið/Ómar Skagasigur Mark Doninger, enski miðjumaðurinn hjá ÍA, hefur betur gegn Jökli I. Elísabetarsyni, miðjumanni Blika. Þétt þrjú stig hjá ÍA  Jón Vilhelm kom inn á sem varamaður og tryggði ÍA sigur á Blikum, 0:1.  Breiðablik spilaði góðan fótbolta en það vantaði meira áræði fram á við Kópavogsvöllur, Pepsi-deild karla, 1. umferð, sunnudag 6. maí 2012. Skilyrði: Gola og kalt. Völlurinn í góðu standi. Skot: Breiðablik 8 (3) – ÍA 8 (5). Horn: Breiðablik 6 – ÍA 4. Lið Breiðabliks: (4-4-2) Mark: Páll Gísli Jónsson. Vörn: Tómas Ó. Garð- arsson, Renee Troost, Sverrir Ingi Ingason, Kristinn Jónsson. Miðja: Haukur Baldvinsson (Arnar Már Björgvinsson 68.), Andri Rafn Yeom- an, Finnur Orri Margeirsson, Jökull I. Elísabetarson (Rafn Andri Haralds- son 85.). Sókn: Elfar Árni Að- alsteinsson (Árni Vilhjálmsson 78.), Petar Rnkovic. Lið ÍA: (4-3-3) Mark: Páll Gísli Jóns- son. Vörn: Aron Ý. Pétursson, Ár- mann S. Björnsson, Kári Ársælsson, Einar L. Einarsson. Miðja: Arnar M. Guðjónsson, Mark Doninger, Jóhann- es Karl Guðjónsson, Andri Adolp- hsson (Ólafur V. Valdimarsson 72.), Gary Martin. Sókn: Garðar Gunn- laugsson (Jón V. Ákason 62.). Dómari: Magnús Þórisson – 8. Áhorfendur: 2.382. Breiðablik – ÍA 0:1 FÆRI 5. Petar Rnkovicáttu skalla af stuttu færi en náði ekki nægum krafti í skallann þannig að Páll Gísli greip boltann. FÆRI 31. Jökull Elísabet-arson var kominn í ákjósanlegt færi við mark ÍA en honum voru mislagðir fætur og hann sparkaði í varnarmann og í horn. FÆRI 51. Gary Martinvar í dauðafæri á fjærstönginni eftir fyrirgjöf frá hægri en Sigmar varði frábærlega í horn. 0:1 68. Jón Vilhelm Ákasonfékk boltann hægra meg- in í vítateignum eftir sendingu Gary Martin og skoraði úr þröngu færi. I Gul spjöld:Elfar Árni (Breiðabliki) 74. (brot), Martin (ÍA) 82. (hélt áfram eftir flaut dómara), Rafn Andri (Breiðabliki) 87. (brot). I Rauð spjöld: Engin. MMM Enginn. MM Enginn. M Kári Ársælsson (ÍA) Ármann Smári Björnsson (ÍA) Gary Martin (ÍA) Jón Vilhelm Ákason (ÍA) Finnur O. Margeirsson (Breiðab.) Haukur Baldvinsson (Breiðabliki)  Kári Ár- sælsson spil- aði sinn fyrsta leik á Íslandsmóti fyrir ÍA en hann var fyr- irliði Íslands- meistaraliðs Breiðabliks árið 2010 og spilaði því á sínum gamla heimavelli.  Jóhannes Karl Guðjónsson spil- aði fyrsta leik á Íslandsmótinu síð- an 1998. Þá lék hann átta leiki með Skagamönnum en hélt síðan í atvinnu- mennsku.  Garðar B. Gunn- laugsson og Ármann Smári Björnsson voru líka í liði ÍA og spiluðu báð- ir fyrstu leiki sína hér á landi síðan 2006.  Ingvar Kale sem hefur verið aðalmarkvörður Blika undanfarin þrjú ár er búinn að missa stöðu sína til Sigmars Inga Sigurð- arsonar. Þetta gerðist á Kópavogsvelli Kári Ársælsson Ingvar Þór Kale

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.