Morgunblaðið - 07.05.2012, Page 8

Morgunblaðið - 07.05.2012, Page 8
8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2012 Í KAPLAKRIKA Stefán Stefánsson ste@mbl.is Eflaust hljómar undarlega að segja Grindvíkinga hafa ráðið flestu þegar þeir sóttu FH heim í Kaplakrikann í gærkvöldi því Hafnfirðingar voru miklu meira með boltann og áttu næstum fjórum sinnum fleiri skot á markið. Engu að síður er nokkuð til í þessu því skipulag og aginn var gest- anna úr Grindavík, vörnin var þétt og leyfði Hafnfirðingum ekki að gera neinar rósir en svo var sótt með tvö skæða sóknarmenn. Þetta skilaði þeim marki en FH tókst á jafna áður en yfir lauk svo liðin skiptu stigum eftir 1:1 jafntefli. FH var spáð öðru sæti deild- arinnar og það má alveg slá því föstu að þeir hafi gert sér grein fyrir að sú spá dygði skammt gegn liði Grinda- víkur, sem var spáð níunda sætinu. Vissulega fengu FH-ingar færi og sýndu að þeir geta orðið skæðir í sumar og náð öðru sæti deild- arinnar, eins og þeim var spáð en það var annaðhvort vorbragur á mönnum eða þeir létu þéttan varn- arleik mótherjanna brjóta sig niður. Nema hvort tveggja sé. Hafnfirð- ingar misstu marga úr vörninni fyrir tímabilið en Freyr Bjarnason er þar enn og mjög seigur, hann sýnir ekk- ert nein sérstök tilþrif heldur gerir það sem hann á að gera – verjast. Svo fór Matthías Vilhjálmsson til Noregs og það mátti greinilega sjá að FH-ingar eru ekki búnir að fylla það skarð. Grindvíkingum var spáð 9. sæti deildarinnar en miðað við leik þeirra í gærkvöldi gengur það ekki eftir og nú koma nokkur nema og ef. Ef þeim tekst að undirbúa sig rétt og vel fyrir hverja mótherja, einnig ef þeim tekst að fylgja hverri leik- áætlun alveg eftir og ef þeim tekst að halda sér á tánum í leikjunum má búast við miklu af þeim. Hafa skal í huga að Guðjón Þórðarson þjálfari þeirra kann sitt af hverju í þessum málum og meiri líkur en minni að þessi ef gangi upp. Nema hann missi tökin á liðinu. Annars yljaði mönn- um að sjá Scott Ramsay skapa hættu með flottum sendingum og að Ólafur Örn Bjarnason varnarjaxl læsi leikinn vel. Hefðum getað unnið „Við höfum ekkert rætt spána en menn gera sér grein fyrir að mót- herjum okkar í dag var spáð öðru sæti og við hefðum alveg getað unnið leikinn,“ sagði Ólafur Örn eftir leik- inn. „Þegar mótið byrjar skiptir engu máli hvernig þér hefur gengið síðustu árin eða í vetur, það byrja allir á núlli og spáin kemur okkur ekkert við, það er alveg eins hægt að skoða hvernig liðunum gekk í fyrra.“ Morgunblaðið/Ómar Návígi Freyr Bjarnason miðvörður FH virðist bíða lægri hlut í þessari baráttu við Pape Mamadou Faye, framherja Grindvíkinga. Grindavík hélt FH niðri  FH tókst að lokum að jafna metin í 1:1 í Kaplakrika  Fjórum sinnum fleiri færi FH-inga dugðu lítt gegn öguðu og vel skipulögðu liði Grindvíkinga Kaplakriki, Pepsi-deild karla, 1. um- ferð, sunnudag 6. maí 2012. Skilyrði: Um 5 stiga hiti en nöpur norðangjóla. Völlur góður. Skot: FH 18 (8) – Grindavík 5 (3). Horn: FH 6 – Grindavík 2. Lið FH: (4-4-2) Mark: Gunnleifur V. Gunnleifsson. Vörn: Guðjón Árni Antoníusson, Guðmann Þórisson, Freyr Bjarnason, Viktor Örn Guð- mundsson. Miðja: Ólafur Páll Snorrason, Pétur Viðarsson (Brynjar Guðmundsson 82.), Björn Daníel Sverrisson, Atli Guðnason. Sókn: Atli Viðar Björnsson, Albert Brynjar Inga- son (Emil Pálsson 82.). Lið Grindavíkur: (5-3-2) Mark: Ósk- ar Pétursson. Vörn: Ray Anthony Jónsson, Loic Mbang Ondo, Ólafur Örn Bjarnason, Matthías Örn Frið- riksson, Jósef Kristinn Jósefsson. Miðja: Óli Baldur Bjarnason (Alex Freyr Hilmarsson 85.), Gavin Morr- ison, Scott Ramsay. Sókn: Tomi Ameobi, Pape M. Faye. Dómari: Kristinn Jakobsson – 8. Áhorfendur: 1.586. FH – Grindavík 1:1 FÆRI 11. Pétur Við-arsson átti gott skot utan vítateigs og eftir mikinn atgang í markteig Grindvíkinga bjargaði Matthías á línu. FÆRI 14. Atli Guðnasonúr FH á ferðinni og Óskar Pétursson í marki Grindvíkinga þurfti að slá boltann yfir markið. FÆRI 34. Atli Guðnasonenn og aftur á ferð- inni, fékk stungusendingu inn fyr- ir vörn Grindvíkinga og komst inn í vítateig en Óskar í marki Grind- víkinga varði skot hans úr miðjum vítateig. FÆRI 65. Ekki virtistmikil hætta á ferð þegar Freyr Bjarnason úr FH tók á móti útsparki Grindvíkinga en þegar hann féll við náði Pape Fa- ye boltanum, komst inn fyrir víta- teig en skotið slakt auk þess að Guðmann Þórisson, varnarmaður FH, var í honum. SLÁ 67. Atli Guðnason virt-ist ætla að senda fyrir markið frá vinstri en boltinn fór í slá og yfir. 0:1 73. Scott gaf fyrir stuttfrá hægra horninu, bolt- inn kom niður í miðjum mark- teignum þar sem Gunnleifur, markvörður FH, og Tomi Ameobi stukku upp en boltinn fór yfir þá í Loic Mbang Ondo sem skoraði af stuttu færi við vinstri stöngina. 1:1 84. Ólafur Páll Snorrasonúr FH fékk sendingu vinstra megin í vítateig Grinda- víkur og reyndi að gefa fyrir en þar sem boltinn fór í hönd Ray Anthony Jónssonar var dæmt víti sem Björn Daníel Sverrisson skoraði úr af öryggi með föstu skoti í hægra hornið. I Gul spjöld:Atli Viðar (FH) 72. (brot), Pétur (FH) 74. (mótmæli), Scott (Grindavík) 80. (brot), Ray (Grindavík) 84. (hendi). I Rauð spjöld: Engin. MM Enginn. M Freyr Bjarnason (FH) Atli Guðnason (FH) Atli Viðar Björnsson (FH) Ólafur Páll Snorrason (FH) Óskar Pétursson (Grindavík) Pape M. Faye (Grindavík) Scott Ramsay (Grindavík) Ólafur Örn Bjarnason (Grindavík)  FH-ingar þurftu að gera breyt- ingu fyrir leik þegar Hólmar Örn Rúnarsson, sem var skráður sem varamaður, meiddist og Einar Karl Ingvarsson tók stöðu hans.  Rétt fyrir leik þurfti aðra breyt- ingu þegar Bjarki Bergmann Gunnlaugsson reyndist meiddur og Albert Brynjar Ingason færð- ist af listanum yfir varamenn til að taka stöðu hans í byrjunarliði. Þetta gerðist í Kaplakrika Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þeir eru líklega ekki margir sem eru tilbúnir að veðja gegn því lengur að Manchester City hreppi sinn fyrsta enska meistaratitil í 44 ár. City velti stórri hindrun úr vegi sínum í gær með því að vinna Newcastle á útivelli, 2:0, og nú er ljóst að sigur gegn QPR á heimavelli í lokaumferðinni mun tryggja félaginu titilinn. Nema eitthvað furðulegt gerist á Leikvangi ljóssins í Sunderland þar sem Manchester United þarf að vinna átta mörkum stærri sigur í loka- umferðinni til að fara upp fyrir City á markatölu. En svo er hinn möguleiki United einfaldlega sá að City nái ekki að knýja fram sigur á QPR, sem er í harðri fallbaráttu, og þá yrðu Alex Ferguson og strákarnir hans meist- arar enn og aftur með því að vinna leikinn í Sunderland. Tvö mörk frá Yaya Touré, miðju- manninum öfluga, færðu City sigurinn gegn Newcastle. Athyglisverð breyt- ing hjá Roberto Mancini knatt- spyrnustjóra, þar sem Touré var færður framar á miðjunni eftir að Samir Nasri var tekinn af velli gerði útslagið. Kannski endanlegur vendi- punktur í þessari baráttu. Eftir þessi úrslit var dauft yfir leik- mönnum Manchester United sem sigruðu þó Gylfa Þór Sigurðsson og félaga í Swansea, 2:0. Þeir fögnuðu varla mörkunum sem Paul Scholes og Ashley Young skoruðu í fyrri hálfleik, flýttu sér að sækja boltann í markið og freistuðu þess að skora fleiri mörk. Sú varð ekki raunin og nú þarf United að treysta á sinn gamla liðsmann, Mark Hughes, og hans lærisveina í QPR. Arsenal og Tottenham gerðu bæði jafntefli í sínum leikjum og eru því áfram í þriðja og fjórða sætinu en slást enn við Newcastle og Chelsea um Meistaradeildarsætin tvö. Flest bend- ir til þess að Blackburn falli með Wolves og Bolton er í slæmri stöðu eftir að hafa misst niður 2:0 forskot gegn WBA í gær. City með hönd á titlinum AFP Vinir Roberto Mancini og Carlos Tévez féllust í faðma í leikslok í gær og fyrri væringar eru greinilega gleymdar. Meistaratitillinn blasir við City.  Man. Utd þarf að treysta á Mark Hughes og QPR í lokaumferðinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.