Morgunblaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 3
Morgunblaðið/Kristinn
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2012
FÆRI 8. Jósef K. Jós-efsson með þrumu-
skot vinstra megin stutt frá víta-
teigslínu en Ómar í marki
Keflavíkur sló boltann frá markinu
út í teig.
FÆRI 20. GuðmundurSteinarsson slapp í
gegnum vörn Grindvíkinga og
komst upp að vinstra markteigs-
horninu en Óskar náði að slá bolt-
ann frá.
0:1 21. Eftir þunga sókntókst Grindavík ekki að
hreinsa alveg frá markinu og bolt-
inn barst til Einars Orra Ein-
arssonar, sem renndi honum út
fyrir miðjan vítateig þar sem
Frans Elvarsson kom á góðu
skriði og sendi boltann í hægra
hornið niðri.
0:2 34. Vörn Grindvíkingavar úti á túni þegar Guð-
mundur Steinarsson sendi boltann
hægra megin í miðjan vítateig og
Frans Elvarsson afgreiddi boltann
auðveldlega í hægra hornið.
0:3 38. Keflvíkingar áttugóða sókn upp hægri
kantinn, Hilmar Geir Eiðsson gaf
þvert fyrir markið þar sem Arnór
Ingvi Traustason stökk fram og
skoraði upp í vinstra hornið frá
miðri markteigslínu.
0:4 48. Aukaspyrna inn aðmarki Grindvíkinga,
boltinn datt niður á markteigslínu
þar sem Einar Orri Einarsson
stýrði honum í vinstra hornið.
FÆRI 80. Grindvíking-urinn Scott Ramsay
með fyrirgjöf frá hægri og á
markteigslínu skallaði Tomi
Ameobi í vinstra hornið en Ómar
markmaður kastaði sér niður og
tók boltann.
STÖNG 85. ScottRamsay úr
Grindavík tók aukaspyrnu rétt ut-
an teigs en hnitmiðað skot hans
fór neðst í hægri stöngina og út af.
I Gul spjöld:Pape (Grindavík) 22. (brot),
Grétar (Keflavík) 43. (brot), Jósef
(Grindavík) 55. (brot). Ólafur Örn
(Grindavík) 76. (brot). Scott
(Grindavík) 87. (mótmæli).
I Rauð spjöld: Engin.
MMM
Enginn.
MM
Enginn.
M
Pape Mamadou Faye (Grindavík)
Gavin Morrison (Grindavík)
Jósef K. Jósefsson (Grindavík)
Haraldur F. Guðmundss. (Kefla-
vík)
Einar Orri Einarsson (Keflavík)
Jóhann B. Guðmundsson (Kefla-
vík)
Guðmundur Steinarsson (Keflavík)
Hilmar Geir Eiðsson (Keflavík)
Frans Elvarsson (Keflavík)
Sigur
Keflvíkinga
er sá stærsti
sem þeir
hafa unnið á
Grindvík-
ingum í efstu
deild frá
upphafi. Þeir
hafa þó einu
sinni áður
skorað fjög-
ur mörk í Grindavík en það var ár-
ið 2002 þegar þeir sigruðu þar 4:1.
Guðmundur Steinarsson, sem var
í fremstu víglínu Keflvíkinga í
gærkvöld, skoraði tvívegis í þeim
leik.
Grindvíkingar höfðu hinsvegar
einu sinni unnið Keflvíkinga 4:0.
Það var árið 1996 og þá var Ólafur
Örn Bjarnason, núverandi fyrirliði
Grindavíkur, á meðal markaskor-
ara liðsins.
Á mbl.is eru viðtöl við Guðjón
Þórðarson þjálfara Grindavíkur,
Zoran Daníel Ljubicic þjálfara
Keflavíkur og Harald Frey Guð-
mundsson fyrirliða Keflavíkur.
Þetta gerðist
í Grindavík
Guðmundur
Steinarsson
Grindavíkurvöllur, Pepsi-deild karla,
2. umferð, fimmtudag 10. maí
2012.
Skilyrði: Suðvestangjóla, hiti um 6
stig og þurrt. Völlur góður.
Skot: Grind. 4 (4) – Keflav. 10 (4).
Horn: Grindavík 3 – Keflavík 1.
Lið Grindavíkur: (5-3-2) Mark:
Óskar Pétursson. Vörn: Jordan
Edridge, Loic Mbang Ondo, Ólafur
Örn Bjarnason, Matthías Örn Frið-
riksson (Ray A. Jónsson 46.), Jósef
K. Jósefsson. Miðja: Scott Ramsay,
Gavin Morrison (Óli Baldur Bjarna-
son 46.), Alexander Magnússon.
Sókn: Pape M. Faye, Tomi Ameobi.
Lið Keflavíkur: (4-5-1) Mark: Ómar
Jóhannsson. Vörn: Grétar Atli Grét-
arsson, Gregor Mohar, Haraldur F.
Guðmundsson, Jóhann R. Bene-
diktsson. Miðja: Hilmar Geir Eiðs-
son (Bojan Stefán Ljubicic 63.),
Frans Elvarsson, Einar Orri Ein-
arsson, Jóhann B. Guðmundsson
(Sigurbergur Elísson 71.), Arnór
Ingvi Traustason (Denis Selimovic
73.) Sókn: Guðmundur Steinarsson.
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinss. –
8.
Áhorfendur: 986.
Grindavík – Keflavík 0:4
Í GRINDAVÍK
Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
„Ég lauma inn nokkrum mörkum
annað slagið og tveimur í dag en það
er langt síðan það gerðist síðast,
gerði það í yngri flokkunum en aldr-
ei skorað tvö í meistaraflokki,
kannski maður fari að gera það
núna,“ sagði Frans Elvarsson sem
skoraði tvö fyrstu mörk Keflavíkur í
öruggum 4:0 sigri á Grindavík þegar
liðin mættust í Grindavík í gær-
kvöldi.
Grindvíkingar, sem léku gríðar-
lega agaða vörn gegn FH í síðasta
leik og hefðu jafnvel átt meira skilið
þá, náðu ekki að endurtaka leikinn í
gærkvöldi því gestirnir úr Keflavík
voru enn agaðri þegar þeir biðu eftir
að heimamenn myndu misstíga sig í
vörninni og gernýttu hver einustu
mistök. Síðan þegar Grindvíkingar
mættu ákveðnir til síðari hálfleiks
fengu þeir fjórða mark gestanna
eins og blauta tusku í andlitið. Það
var ekki fyrr en í lokin sem þeim
tókst að skapa sér færi en voru þeim
mun meira pirraðir og uppskáru
bara gul spjöld.
Frans sagði sína menn hafa verið
viðbúna. „Við ætluðum bara að halda
boltanum því við getum brotið öll lið
á bak aftur og gerðum það svo sann-
arlega í kvöld enda átti Grindavík
aldrei möguleika gegn okkur,“ bætti
Keflvíkingurinn við og gaf ekki mik-
ið út á að vera spáð fallbaráttu. „Mér
finnst þessi spá um að við lendum í
ellefta sæti bara kjaftæði, við erum
miklu betri en svo að lenda í því sæti
og vitum hvað við getum enda
spáum við ekkert í þessar spár.“
Óhætt er að taka undir þessi orð
því miðað við baráttuhuginn og þol-
inmæðina réðu Keflvíkingar ferðinni
og erfitt að sjá þetta lið fyrir sér í
fallbaráttu. Vörnin með fyrirliðann
Harald Frey Guðmundsson í broddi
fylkingar lét meinta hættulega sókn-
armenn Grindvíkingar ekki komast
upp með neitt en það er samt ekki
svo að félagar hans í vörninni hafi
bara horft á. Síðan er Guðmundur
Steinarsson alltaf seigur og var vel
studdur af yngri mönnum.
Að sama skapi má segja að ekkert
af þessu hrósi geti átt við Grindvík-
inga. Þeir ætluðu að spila sína þéttu
og öguðu vörn en sú hætta liggur þá
alltaf í loftinu að mistök geti verið
dýr, eins og svo sannarlega gerðist í
þessum leik. Vegna pressu gestanna
náðu þeir heldur ekki að nota miðj-
una til að skapa hættu í framlínunni.
Grindvíkingurinn Jósef Kristinn
Jósefsson stóð sig ágætlega í vörn-
inni og það fór ekki margt í gegnum
hans svæði á vellinum en hann var
samt eðlilega frekar svekktur.
„Þetta var ekki okkar dagur og það
voru allir í liðinu gersamlega á hæl-
unum, það var enginn tilbúinn að
leggja sig fram og ég held að menn
ættu bara að skammast sín,“ sagði
Jósef eftir leikinn.
Spurður um hvað hefði breyst síð-
an í leiknum góða við FH í fyrstu
umferð sagði hann þann leik telja lít-
ið. „Jafnteflisleikurinn við FH er
löngu búinn og við vorum ekkert að
spá í hann. Við verðum að læra okk-
ar lexíu af þessum leik, það er leikur
gegn Fram á þriðjudaginn og við
verðum að gera okkar besta til að
vinna þann leik.“
Ljósmynd/Víkurfréttir
Tvö mörk Frans Elvarsson skoraði tvívegis fyrir Keflvíkinga í Grindavík og
fagnar hér öðru markanna ásamt Guðmundi Steinarssyni.
„Lauma inn
annað slagið“
Keflavík lék Grindvíkinga grátt
1:0 29. Garðar Jóhannsson náði íaukaspyrnu vinstra megin við
teiginn við endamörkin. Halldór Orri
Björnsson tók spyrnuna og gaf lága
sendingu sem fór í gegnum „allan
pakkann“ og á fjærstöng þar sem
Gunnar Örn Jónsson var mættur og
kom boltanum í netið.
I 79. Jóhann Þórhallsson fékkfrábæra stungusendingu frá
Finni Ólafssyni. Daníel Laxdal, fyr-
irliði Stjörnunnar, elti hann og braut á
honum í góðu skotfæri. Rautt spjald
og vítaspyrna.
1:1 80. Ingimundur Níels Ósk-arsson tók vítaspyrnuna og
skoraði af öryggi neðst í hægra hornið
en Ingvar markvörður fór í það
vinstra.
1:2 83. Ingimundur tók auka-spyrnu úti á hægri kanti og
gaf góða sendingu fyrir markið. Bolt-
inn endaði á fjærstöng þar sem Jó-
hann Þórhallsson var mættur og
skoraði.
I 87. Henryk Bödker mark-varðaþjálfari Stjörnunnar var
rekinn upp í stúku fyrir að láta vel í
sér heyra þegar aðstoðardómari gerði
Garðari dómara viðvart um hegðun
hans.
2:2 90. Rúrik Andri Þorfinnssonlagðist á bak Stjörnumanns-
ins Atla Jóhannssonar. Vítaspyrna
réttilega dæmd og úr henni skoraði
Halldór Orri Björnsson af öryggi í
hægra hornið.
I 90. Bjarki Páll Eysteinsson úrStjörnunni fleygði sér í tækl-
ingu og braut illa á Andra Þór Jóns-
syni við vítateig Fylkismanna.
I Gul spjöld:Andri Þór (Fylki) 17. (brot),
Garðar (Stjörnunni) 43. (brot), Bald-
vin (Stjörnunni) 77. (brot), Ingimund-
ur (Fylki) 89. (töf).
MMM
Enginn.
MM
Enginn.
M
Atli Jóhannsson (Stjörnunni)
Mads Laudrup (Stjörnunni)
Ásgeir Eyþórsson (Fylki)
David Elebert (Fylki)
Ingimundur Níels Óskarsson (Fylki)
Jóhann Þórhallsson (Fylki)
Gunnar Örn Jónsson skoraði lang-
þráð mark þegar hann kom Stjörn-
unni yfir. Þetta var hans fyrsta mark í
34 leikjum í deildinni. Gunnar skoraði
síðast gegn Stjörnunni, þá fyrir KR í
7:3 sigri Vesturbæinga í september
2009. Það var 8. mark Gunnars fyrir
KR á því tímabili.
Jóhann Þórhallsson skoraði sitt 40.
mark í efstu deild þegar hann kom
Fylkismönnum í 2:1.
Halldór Orri
Björnsson bætti
markamet sitt
fyrir Stjörnuna
en hann hefur
skorað 33 mörk
fyrir félagið í
efstu deild.
Næstur á eftir
honum er Garð-
ar Jóhannsson
með 18 mörk.
Hörður Árna-
son lék ekki með
Stjörnunni vegna meiðsla en Mads
Laudrup kom inní hópinn og spilaði
sinn fyrsta leik.
Þetta gerðist í Garðabænum
Halldór Orri
Björnsson