Morgunblaðið - 11.05.2012, Blaðsíða 7
liðsstyrk og Breiðablik í vetur. Eftir
að hafa sigrað í Lengjubikarnum í
vor þá ætti liðið að mæta með gott
sjálfstraust til leiks. Breiðablik
sunkaði niður í 6. sæti í fyrra og þá
fannst þessu gamla stórveldi líklega
kominn tími til að bretta upp
ermarnar. Með Fanndísi Friðriks-
dóttur, Björk Gunnarsdóttur og
Rakel Hönnudóttur ætti sóknar-
leikurinn ekki að vera vandamál en
varnarleikurinn er meira spurning-
armerki.
Þriggja liða fallbarátta?
Fylkir missti fimm sterka leik-
menn og þar af leiðandi verður erfitt
fyrir liðið að halda sama dampi og
undanfarin sumur. Svipaða sögu er
að segja af Þór/KA en öll lið í deild-
inni myndu sakna Rakelar og Ma-
teju Zver.
Forvitnilegt verður að sjá hvernig
FH plumar sig en liðið þykir vera
sterkt af nýliðum að vera og líklegt
til að halda sig ofan við Aftureldingu,
KR og Selfoss.
lið
Morgunblaðið/Ómar
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2012
Rosie Malone-Povolny til Svíþjóðar
FH
Þjálfari: Helena Ólafsdóttir.
KOMNAR:
Birna Berg Haraldsdóttir frá ÍBV
(úr láni, frá vegna meiðsla)
Hugrún Elvarsdóttir frá Stjörnunni
Sara Hrund Helgadóttir frá Grindavík
Sarah McFadden frá Sunderland
Sólveig Þórarinsdóttir frá HK/Víkingi
FARNAR:
Engar
SELFOSS
Þjálfari: Björn Kristinn Björnsson.
KOMNAR:
Lisa Kowalski frá Bandaríkjunum
Melanie Adelman frá Bandaríkjunum
Nicole McClure frá Bandaríkjunum
Valorie O’Brien frá Bandaríkjunum
FARNAR:
Bríet Mörk Ómarsdóttir til Þýskalands
Guðrún Arnardóttir í Breiðablik
ni)
SÉRFRÆÐINGUR
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Morgunblaðið fékk Margréti Ákadóttur til að spá
í spilin í Pepsi-deild kvenna en Margrét er vel
kunnug kvennaknattspyrnunni. Hún lék um ára-
bil með ÍA en lauk ferlinum með Breiðabliki árið
2001. Margrét á að baki 10 leiki með íslenska A-
landsliðinu og hún er enn viðloðandi það en
Skagakonan er liðsstjóri A-landsliðsins og á sæti í
landsliðsnefnd KSÍ.
Stjarnan
„Stjarnan kom skemmtilega á óvart á síðustu
leiktíð. Stjarnan er með sterkt lið og mikil barátta
einkennir það. Liðið er vel skipulagt þar sem
Gunnhildur Yrsa og Harpa fara fyrir liðinu. Ekki
má gleyma hlutverki þjálfarans Þorláks Árnason-
ar sem hefur gert frábæra hluti með liðið. Stjarn-
an ætlar sér klárlega að verja titilinn og hefur alla
burði til þess. Leikmenn fara fullir sjálfstrausts
inn í mótið og er styrkleiki þeirra klárlega liðs-
heildin. Stjarnan verður í topp þremur í sumar,“
segir Margrét Ákadóttir.
Valur
„Valsliðið er töluvert breytt frá því í fyrra og
margir lykilleikmenn horfnir á braut, t.d. Hall-
bera, Kristín Ýr, Málfríður og Embla en liðið hef-
ur endurheimt Dóru Maríu sem er mikill styrkur.
Það eru margar ungar og efnilegar stelpur í hópn-
um, sem Valur virðist eiga nóg af, og leikreyndari
spilarar. Það er alltaf krafa á titil á Hlíðarenda.
Valsmenn hafa verið með marga leikmenn erlend-
is sem hafa verið að tínast inn á síðustu metr-
unum og ég tel að liðið eigi töluvert inni frá leikj-
unum á undirbúningstímabilinu. Valur verður í
topp þremur.“
ÍBV
„Eyjaliðið er gott og á að geta gert góða hluti í
sumar. Hópurinn er blanda af ungum og efnileg-
um leikmönnum ásamt nokkrum leikreyndum
leikmönnum. Liðið er vel skipulagt og er með
marga góða leikmenn í sínum röðum. Það verður
gaman að fylgjast með leikmönnum eins og Elísu,
Sigríði Láru og Kristínu Ernu. Einnig eru útlend-
ingar hjá þeim sterkir og styrkja liðið mikið. Ég
tel að ÍBV liðið geti barist um titilinn en til þess
þá þarf allt að ganga upp hjá því,“ segir Margét.
Þór/KA
„Ég tel að Þór/KA verði ekki eins sterkt og
undanfarin ár. Breiddin hefur minnkað og liðið
hefur misst lykilmann sinn, Rakel Hönnudóttir.
Það mun mæða meira á yngri leikmönnum en áð-
ur. Liðið fékk góðan leikmann í Katrínu Ásbjörns-
dóttir sem kom frá KR og hún á eftir að nýtast
þeim vel. Ég reikna með að Þór/KA verði um
miðja deild og það mun reyna á nýjan þjálfara að
byggja upp sterkt lið á nýjan leik fyrir norðan.“
Fylkir
„Fylkir spilaði oft á tíðum fínan fótbolta á síð-
asta tímabili og ef liðið nær að byggja ofan á það
getur það verið ágætismálum á þessari leiktíð.
Það sem Fylki hefur vantað er meiri stöðugleiki.
Ég reikna með Fylkisliðið verði um miðja deild.
Það á tvo erfiða leiki í fyrstu tveimur umferð-
unum, á móti Breiðabliki og Stjörnunni, og þessir
leikir eru góð prófraun fyrir liðið.“
Breiðablik
„Blikaliðið hefur verið að styrkja sig und-
anfarin tímabil og getur það skilað sér í góðum ár-
angri í sumar. Það var mikill liðsstyrkur fyrir
Blika að fá Rakel Hönnudóttur og Björk Gunn-
arsdóttur, sem báðar eru hörkuleikmenn og
styrkja liðið mikið. Styrkleiki liðsins er m.a. hrað-
inn og sigur þeirra í Lengjubikarnum gefur þeim
klárlega sjálfstraust inn í mótið. Ég tel að Blik-
arnir verði í topp þremur í ár,“ sagði Margrét.
Afturelding
„Liðið hélt sér uppi á síðustu leiktíð og ætlar
sér klárlega að vera áfram í deild þeirra bestu. Ég
reikna með að Afturelding eigi erfitt sumar fyrir
höndum en leikmenn eru reynslunni ríkari frá því
í fyrra og það getur hjálpað þeim í baráttunni í
sumar. Liðið er ungt og verður það því í höndum
þjálfarans að halda stelpunum á tánum. Það
skiptir miklu máli fyrir liðið að byrja vel.“
KR
„Ég tel að sumarið geti orðið KR-liðinu erfitt
og að það verði í neðri hluta deildarinnar. Hóp-
urinn hefur lítið styrkt sig og KR missti mikið
sóknarlega þegar Katrín Ásbjörnsdóttir gekk í
raðir Þór/KA. KR hefur undanfarin ár verið að
færast neðar í töflunni og þess vegna óttast ég að
þeirra hlutskipti liðsins gæti orðið fall. Það sem
hins vegar getur hjálpað liðinu er hefðin hjá
klúbbnum og einnig hef ég trú á þjálfarateymi
liðsins, þar sem Arna Steinsen þekkir vel til í
Frostaskjólinu, og veit hvað þarf til, til að ná ár-
angri.“
FH
„Ég sá FH spila nokkra leiki í 1. deildinni í
fyrra. Liðið leit vel út en það er töluverður munur
á deildunum. Ég hef trú á að FH nái að festa sig í
sessi í efstu deild og gæti jafnvel endað um miðja
deild. Það eru nokkrir áhugaverðir leikmenn í lið-
inu sem gaman verður að fylgjast með, t.d. Aldís
og Sigrún Ella. Ég held að styrkur þeirra sé liðs-
heildin og baráttan og þá er þjálfarinn reynslu-
mikill sem kann ýmislegt fyrir sér.“
Selfoss
„Fyrir mér eru nýliðarnir óskrifað blað. Það er
töluverður munur á efstu deild og 1. deild og það
verður gaman að sjá hvernig liðinu gengur að tak-
ast á við það verkefni. Ég reikna með að sumarið
verði þeim ekki auðvelt og mikilvægt fyrir liðið að
ná upp sterkum liðsanda sem gæti hjálpað því í að
vera áfram á meðal þeirra bestu að ári. Það er
mikilvægt fyrir þær að Selfoss að byrja vel en það
mætir FH og KR í fyrstu þremur umferðunum,“
sagði Margrét Ákadóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
Markadrottning Ashley Bares skoraði 21 mark fyrir Stjörnuna í deildinni í fyrra og hér á hún í höggi við Valsstúlkurnar Berglindi Rós Ágústsdóttur og
Svövu Rós Guðmundsdóttur. Bares kom til Garðabæjarliðsins frá Bandaríkjunum síðasta vor og spilar áfram með því í sumar.
Þriggja liða barátta?
Margrét Ákadóttir metur liðin í Pepsi-deild kvenna Stjarnan, Valur og
Breiðablik í titilbaráttunni og hugsanlega ÍBV KR gæti fallið
Fyrirliðar, þjálfarar og forráðamenn lið-
anna tíu í Pepsi-deild kvenna spáðu Breiða-
bliki Íslandsmeistaratitlinum á kynning-
arfundi á dögunum, og spáðu því jafnframt
að Afturelding og Selfoss féllu úr deildinni.
Niðurstaðan í spánni varð þessi:
1. Breiðablik............................................. 273
2. Stjarnan................................................ 267
3. Valur ..................................................... 243
4. ÍBV ........................................................ 206
5. Þór/KA ................................................. 161
6. Fylkir .................................................... 160
7. FH.......................................................... 128
8. KR............................................................ 81
9. Afturelding............................................. 77
10. Selfoss ..................................................... 54
Breiðabliki
spáð sigri
1. Stjarnan 18 17 0 1 57:14 51
2.Valur 18 13 3 2 56:16 42
3. ÍBV 18 10 4 4 41:15 34
4. Þór/KA 18 10 2 6 39:30 32
5. Fylkir 18 8 2 8 27:30 26
6. Breiðablik 8 7 2 9 31:37 23
7. Aftureld. 18 4 3 11 16:40 15
8. KR 18 3 4 11 17:38 13
9. Grindavík 18 4 1 13 20:52 13
10. Þróttur R 18 2 3 13 19:51 9
FH vann 1. deildina og Selfoss varð í
öðru sæti. Þau koma í staðinn fyrir
Grindavík og Þrótt R. sem féllu í 1.
deild.
Lokastaðan 2011