Monitor - 14.06.2012, Side 3
Á NETINU
Síðasta
sumar fór
Gunnar
Sigurðarson
mikinn
á mbl.is í
netþættinum
Gunnar á Völlum.
Þátturinn hitti rækilega í mark hjá
fótboltaunnendum enda þótti hann
frumleg nálgun á þessari fallegu
íþrótt. Það voru því gleðitíðindi þeg-
ar nýlega var tilkynnt að Ólafsvík-
ingurinn kæmi til með að snúa aftur
á völlinn í sumar, en fyrsti þátturinn
fór af stað í vikunni og heldur áfram
að rúlla í sumar.
UM HELGINA
Á sunnudaginn næstkomandi
fögnum við Íslendingar þjóðhátíðar-
deginum 17. júní. Eins og
sönnum hátíðum fylgja
þjóðhátíðardeginum
ýmsar hefðir, á
meðal þeirra má
nefna það að fá sér
pylsu, kandífl oss
og brjóstsykur-
snuð, anda að sér
helíumi úr blöðru
til að tala eins og
mús, rölta um bæinn með sólgler-
augu, kíkja á tónleika á Arnarhóli
og svo framvegis. Monitor mælir
með því að lesendur láti það eftir
sér að „sautjánda júnía yfi r sig“ á
sunnudaginn. Áfram Ísland!
FYRIR SKROKKINN
Til að eiga góða innistæðu fyrir
því að „sautjánda júnía yfi r sig“ er
þjóðráð fyrir kvenkyns lesendur
Monitors
að taka
fram
hlaupa-
skóna á
laugar-
daginn,
nánar
tiltekið 16.
júní, og taka þátt í
Sjóvá-kvennahlaupi ÍSÍ. Um
er að ræða 23. hlaupið í sögu
hlaupsins og jafnframt fagnar ÍSÍ
100 ára afmæli sínu í ár. Sprettið úr
spori, stelpur!
Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson slógu í
gegn í vor í örþáttum sínum, Hraðfréttum, sem
sýndir voru á MBLsjónvarpi. Margir þáttanna
fengu ansi gott áhorf og viðbrögð almennings
voru jákvæð og eftir þeim var tekið. Svo virðist
sem starfsfólk Ríkissjónvarpsins hafi verið í
þeim hópi því nú hafa þeir Benni og Fannar
samþykkt að ganga til liðs við RÚV og ætla
þeir að halda áfram Hraðfréttum sínum þar í
haust þar sem þeir slá botninn í Kastljósið á
föstudögum. Hugmyndin að þáttunum hafði
blundað lengi í þeim félögum áður en þeir létu
til skarar skríða. „Það er svona ár, eitt og hálft
síðan hugmyndin kviknaði hjá okkur Benna.
Okkur langaði að gera einhvern grínfréttaþátt
sem væri hraður og það væri alltaf „köttað“ á
allt mjög snemma,“ segir Fannar og bætir við
að upphafl ega hafi þeir ætlað að láta fl est eiga
sér stað í settinu. „Við ætluðum að vera með
íþróttafréttir og veður en svo þegar við sett-
umst yfi r þetta þá breyttist hugmyndin töluvert
og til urðu þættirnir eins og þeir eru í dag.“
Erfi tt en skemmtilegt
Þegar strákarnir ákváðu að kýla á að gera
þáttinn gerðust hlutirnir fl jótt. „Ég er að vinna
hjá mbl.is sem tökumaður, klippari og þátta-
gerðamaður en við gerðum fyrsta þáttinn án
nokkurrar vitundar samstarfsmanna minna.
Svo sýndi ég þeim þáttinn og þeim leist vel á og
settu hann í loftið,“ segir Fannar. „Þá þurftum
við að gjöra svo vel að búa til níu þætti í viðbót
svo að þá upphófst skemmtileg en oft og tíðum
erfi ð vinna. En brandararnir sem betur fer
koma svolítið til okkar því ið þurfum bara að
fi nna fréttir sem við treystum okkur til að snúa
út úr eða fi nna fyndinn vinkil á. Það er bara
gaman.“
Í fyrstu þáttaröð Hraðfrétta komu margir
þekktir Íslendingar við sögu en Fannar segir
það hafa verið lítið mál að sannfæra fólk um að
koma í þáttinn. „Flestir tóku vel í það að koma
við erum líka svolítið ýtnir og við hlustum
yfi rleitt ekki ef fólk segir nei,“ segir Fannar.
Uppi eru hugmyndir þess efnis að þeir félagar
verði einnig með útvarpsþátt á Rás 2 í haust en
þær eru þó einungis á byrjunarstigi. „Það væri
skemmtileg viðbót ef að því yrði,“ segir Fannar.
„Mér fi nnst útvarp svo skemmtilegur miðill, svo
opinn og fyrirvaralaus. Þetta er eins og að vera
leikari og fá að spinna á sviði,“ bætir Fannar
við en segir að það yrði bara aukaglaðningur
því fyrst og fremst snúist þetta um að halda
áfram með Hraðfréttir. „Það er spennandi og
krefjandi að færa sig yfi r á vinnustað þar sem
allt snýst um að búa til sjónvarp. Þarna höfum
við tækifæri til að vanda okkur enn betur og
móta þáttinn. Vonandi verður þátturinn barn
þjóðarinnar í náinni framtíð,“ segir Fannar að
lokum í léttum tón. jrj
Eftir að hafa slegið í gegn í netsjónvarpi mbl.is hafa Hraðfréttamennirnir Bene-
dikt Valsson og Fannar Sveinsson ákveðið að róa á önnur mið í haust en þá
mun þátturinn þeirra vera sýndur beint á eftir Kastljósinu á föstudögum.
Björn Bragi, Allan, Benni, Fannar, Hödd,
Jónas Margeir, Tobbi, Hugrún og svo framvegis....
fyrst&fremst
Vikan á
Simmi Vill
Skrítið hvað
mér finnst
tíminn líða
hraðar eftir því
sem ég eldist.
Er ég einn um það?
11. júní kl. 15.37
Unnsteinn
Manuel
Stefánsson
Var næstum því
búinn að ræna
pug sem ég sá
á laugaveginum í gær. Þannig
að, KÆRU facebook-vinir,
endilega hjálpið mér að finna
pug fyrir Lunu svo ég fari ekki í
fangelsi! 11. júní kl. 14.40
Í BLAÐINU
FEITAST
Hinn
magnaði
Einar
Lövdahl er
mættur aftur til
leiks með sjóð-
heitan BELG.
Stíl-Lísa
gefur
gömlum
hlutum nýtt
líf og kíkir á
stelpurnar í
Dótturfélaginu.
6
4
Halldór
Helga-
son er
einn fremsti
snjóbrettamaður
heims en lítill
keppnismaður.
Haukur
Harð-
arson
elskar Coldplay
og er sáttur í
draumavinn-
unni sinni.
MONITOR MÆLIR MEÐ...
MONITOR@MONITOR.IS Ritstjóri: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Lísa Hafl iðadóttir (lisa@monitor.is) Umbrot: Monitorstaðir
Auglýsingar: Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.is) Forsíða: Skapti Hallgrímsson (skapti@mbl.is)
Myndvinnsla: Ingólfur Guðmundsson Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569 1136
Efst í huga Monitor
Leiðinlegur hundur
og heppið stál
Monitor býður þessa vikuna upp á svakalegar pælingar. Slíkar
pælingar koma oft upp í hugann hjá
fólki en fæstir staldra þó lengi við þar
sem þetta er allt saman svo eðlilegt í
daglegu lífi .
Ég var sumsé að hlusta á útvarpið um daginn og það var eins og svo oft
áður einhver svakalegur leikur í gangi
þar sem hlustendur áttu möguleika
á því að vinna eitthvað ótrúlegt með
því að hringja inn. Konan í útvarpinu
hvatti fólk til að hringja
inn og sagðist spennt að
heyra í einum stálheppnum
hlustanda.
Og það var þá sem pælingin
fór af stað í kollinum á mér,
pæling sem hefur marg-
sinnis gert sig heimakomna í huga mínum.
Af hverju segjum við stálheppinn? Hver
ákvað það að stál væri svona heppið?
Forskeyti lýsingarorða eru nefnilega oft
og tíðum ansi ruglandi og gefa ranga
mynd af dýrum, líkamsstarfseminni,
málmum og ýmsu öðru.
Hver ákvað það að hundar væru leiðinlegir og að svín virki? Síðan
hvenær er gall hart? Er gall ekki vökvi?
Hvaða er svona rétt við hár og er skítur
ekki yfi rleitt heitur frekar en kaldur?
Mig svíður hreinlega í vörunum því það eru svo margar spurningar
sem brenna á þeim. Getur einhver
svarað þessu? Bara einhver?
Með kveðju,
Einn ringlaður.
3 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 MONITOR
8
Unnsteinn
Manuel
Stefánsson
Leita að pug
til að barna
(hvolpa) Lunu...
Hvert sný ég mér? Veit ekki
einhver um einmana pug?
7. júní kl. 12:49
14
M
yn
d/
Eg
ge
rt
Vonandi barn
þjóðarinnar
TÍMINN LÍÐUR HRATT
Á GERVIHNATTAÖLD
Thorunn
Antonia
Magnusdottir
Símanum mín-
um var stolið í
10- 11 :(
11. júní kl. 16.40
FANNAR
Fyrstu sex: 240688.
Fyrirmynd: Pabbi.
Uppáhaldsfréttamaður:
Ingólfur Bjarni Sigfússon.
Uppáhaldsgrínisti: Fyrsta
Fóstbræðrateymið.
Lífi ð er: Krukka.
BENEDIKT
Fyrstu sex: 300488.
Fyrirmynd: Logi Bergmann.
Uppáhaldsfréttamaður: Breki Loga.
Uppáhaldsgrínisti: Eggert Þorleifsson.
Lífi ð er: Völundarhús.