Monitor - 14.06.2012, Síða 4

Monitor - 14.06.2012, Síða 4
4 MONITOR FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2012 SENDU SMS SKEYTIÐ ESL PRO Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. WWW.SENA.IS/PROMETHEUS FULLT AF VINNINGUM: BÍÓMIÐAR TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA! KOMIN Í BÍÓ Í 3-D VILTU VINNA MIÐA? Skál!“ hrópaði mannskapurinn á vorkvöldi nokkru þegar systir mín gekk í hnapphelduna fyrir skemmstu. Að skála er siður sem fl estir kannast við, margir hverjir muna jafnvel eftir að hafa byrjað snemma að fi nnast það sport að klingja glasi sínu við einhvern með tilheyrandi upphrópun. Það var hins vegar í þessari veislu sem ég heyrði í fyrsta sinn sögu af meintum uppruna upphrópunar- innar „skál“. Maður nokkur sem ég þekki sagði mér að orðið væri komið frá ránsförum norrænna víkinga á Bretlandseyjum þegar þeir kórónuðu vel heppn- aðar ránsfeðir með því að drekka úr höfuðkúpum fórnarlamba sinna. Í þá daga hefði því verið hrópað „skull“, sem er enska orðið yfi r hauskúpu, sem síðar hafi þróast yfi r í „skál“. Hvort sem þessi villimannlega saga er sönn eða ekki, þá má skemmta sér yfi r þessari pælingu og hún er fínasta innlegg í samtal í miðri veislu. Eftir þessa sögu svaraði annar veislugestur nefnilega með áþekkri sögu, í þetta sinn um uppruna orðsins „ókei“. Sú saga hljómaði á þann veg að orðið, sem oft er skrifað „OK“, sé komið úr bandaríska frelsisstríðinu. Á það að hafa komið til þegar menn skrifuðu skilaboð manna á milli í stríð- inu en samkvæmt sögunni var þá ritaður tölustafurinn núll og bókstafurinn K sem skamm- stöfun fyrir „zero killed“ eða „enginn drepinn“. Var það þá til marks um vel heppnaðan bardaga og upp frá því hafi merking skammstöfunarinnar víkkað í þá merkingu sem í dag er lögð í orðið „ókei“. Sé þessari sögu fl ett upp á netinu má sjá ýmsa fræðimenn skjóta þessa kenningu í kaf og því skal henni tekið með fyrirvara, rétt eins og sögunni um „skál“. Hins vegar fékk hún mig til að rifja upp sögu sem afi minn sagði mér einu sinni af því hvernig orðið „klósett“ hefði komið inn í íslensku en sú saga hermir að það hafi gerst þegar breska herliðið hernam Ísland á stríðsárum. Bretarnir höfðu meðferðis helling af kömrum sem á stóð orðið „closed“ þegar þeir voru í notkun. Sé það orð lesið eins og það sé íslenskt má heyra hvernig umrædd kenning kemur heim og saman. Líkt og allir vita eru afar og ömmur oftar en ekki gullkistur fróðleiks og beint í kjölfarið á klósettsögunni rifjaði ég upp sögu sem amma mín sagði mér af því þegar franskir sjómenn við Austfi rði fóru að versla við íslenska bændur á árum áður. Frönsku sjómennirnir komu á land og kölluðu „paysan, paysan!“ (bóndi á frönsku) og fengu íslenskar lopapeysur í skiptum fyrir vörur sínar og upp frá því varð „peysa“ hluti af íslenskri tungu. Undirritaður er enginn orðsifja-fræðingur og í sjálfu sér set ég þessar sögur all- ar fram í gamni enda varpa þær fyrst og fremst ljósi á hvað orð geta verið skemmtileg. Ég mæli með því að lesendur prófi að leiða hugann að því að á bak við annað hvert nafnorð eða svo í orðaforða þeirra gæti leynst einhver álíka sniðug saga. Ef til vill er ekki kórrétt* sagt frá í þeim öllum, en þá er líka bara „enginn drepinn“. Enginn drepinn, allt í lagi ...þegar þeir kórónuðu vel heppnaðar ráns- feðir með því að drekka úr höfuðkúpum fórnarlamba. *íslenskun á „correct“? Einar Lövdahl Gunnlaugsson einar@monitor.is ORÐ Í BELG ÞEIR STANDA SAMAN ALLIR SEM EINN, KAMRARNIR Tónlistarviðburðurinn MúsMos verður haldinn í fi mmta sinn á laugardaginn næstkomandi í Álafoss- kvosinni. Það eru íbúar Álafosskvosarinnar ásamt öðrum velgjörðamönnum sem sjá um skipulagningu tónleikanna. Þar koma fram margar efnilegar hljóm- sveitir og listamenn en ein aðalhugmyndin á bak við hátíðina er að styðja við grasrótina í tónlistarsenu landsins með áherslu á Mosfellsbæ, ásamt því að fylla Álafosskvosina af lífi . Í ár fellur það í hlut Lovely Lion, Ylju, Múgsefjunar, My Brother is Pale, Myrru Rósar, Tontería, Sleeps Like an Angry Bear, We Made God og Endless Dark að troða upp á viðburðinum en dagskráin stendur frá kl. 15:00 til 19:00 og aðgangur er ókeypis. MúsMos haldið í fi mmta sinn MAGNÚS GRÖNDAL, SÖNGVARI WE MADE GOD MÚSMOS-SVIÐIÐ Í ÖLLU SÍNU VELDI MYRRA RÓS

x

Monitor

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.