Barnablaðið - 22.07.2012, Qupperneq 7
BARNABLAÐIÐ 7
Bílabingó
Lausn aftast
Bílabingó er einfaldur og skemmtilegur leikur sem styttir
manni stundir á löngum ferðalögum. Það eina sem þú þarft
er blað fyrir hvern þátttakanda og penni. Svo býrðu til spjald
fyrir hvern og einn og er hvert spjald með 25 reitum líkt og
sést á mynd. Gætið þess samt að spjöldin séu ekki eins hjá
öllum þátttakendum. Svo þegar þið keyrið til dæmis fram
hjá hundi þá krossar sá sem er með hund á sínu spjaldi yfir
þann reit. Sá sem er fyrstur að krossa yfir alla 25 reitina
vinnur bílabingóið. Það getur verið að ekki náist að klára
spjöldin í einni ferð og þá getið þið átt spjöldin til góða í
næsta ferðalag.
Hugmyndir að uppfyllingu í bingóreitina: Fellihýsi, tjaldvagn,
köttur, önd, ruslabíll, grafa, alls konar litur á húsum, bílum
og blómum, spítali, tjörn, vatn, umferðarljós, biðskyldu-
merki, bensínstöð, mótorhjól, lögreglubíll, á, bátur, grind-
verk, sláttuvél, hlaða og svona er hægt að halda endalaust
áfram. Góða skemmtun.
Fáðu þér góða
mjólkurskvettu!
www.ms.is
Finndu
fimm
villur
Hjálpaðu sjómanninum að
finna seglskipið sitt.
Völundarhús
Gerðu rellu
1 Byrjaðu á því að
finna til ferningslaga
blað, ekki verra ef
það er litríkt.
2 Brjóttu horn
í horn til að fá
viðmiðunarlínur.
3 Merktu við með blýanti á
viðmiðunarlínurnar um 1/3
af lengdinni frá miðju.4 Klipptu upp eftir
brotalínunum að blý-
antsmerkinu. Skreyttu
síðan eins og þér þykir
fallegast.
5 Brjóttu annað hvert
horn inn að miðju.
6 Stingdu teiknibólu í miðjuna, í gegnum
öll innbrotnu hornin og alveg í gegn þar til
þú sérð í teiknibóluna á bakhlið rellunnar.
7 Hreyfðu
teiknibóluna
örlítið til svo að
gatið víkki og
auðvelt verði
fyrir relluna að
snúast.
8 Stingdu teikni-
bólunni í prik,
getur líka stungið
henni í strokleður
á blýanti. Gott er
að hafa perlu á
milli svo að rellan
snúist betur.