Morgunblaðið - 05.09.2012, Síða 1
ÍSHOKKÍ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Dennis Hedström, landsliðs-
markvörður í íshokkíi, mun spila í
Frakklandi næsta vetur. Dennis
tjáði Morgunblaðinu í gær að hann
hefði gert eins árs samning við lið í
úthverfi Parísar.
Liðið heitir Evry og leikur í 2.
deildinni sem er þriðja efsta deildin í
Frakklandi. Liðið hefur barist um að
komast upp í næstefstu deild síðustu
árin og þangað er stefnan sett á
þessu tímabili. Frakkland er A-þjóð
á HM landsliða og þar eru 17 þúsund
iðkendur í íshokkíi.
„Ég stóð frammi fyrir nokkuð erf-
iðri ákvörðun. Annars vegar að spila
með góðu liði í Frakklandi eða að
þiggja mjög spennandi starf í Stokk-
hólmi og spila þá með neðrideild-
arliði í Svíþjóð. Ég valdi ævintýra-
mennskuna í þetta skiptið,“ sagði
Dennis í samtali við Morgunblaðið í
gær. Hann spilaði í efstu deild í
Austurríki í fyrra og hefur einnig
spilað í efstu deild í Ungverjalandi.
Þá hefur Dennis leikið á Íslandi og í
Svíþjóð þar sem hann er uppalinn.
„Þegar tilboðið kom frá Frakklandi
fannst mér ekki hægt að neita því.
Mér gefst nú tækifæri til að spila
jafnvel betra íshokkí en í Austurríki.
Í liðinu eru mikil gæði og það spilar
mjög hratt.“
Dennis er 24 ára gamall og hefur
spilað 23 A-landsleiki fyrir Ísland.
Bróðir hans, Robin, er einnig lyk-
ilmaður í landsliðinu en móðir
þeirra, Kristín Hallbergsdóttir
Hedström, er frá Vestmannaeyjum.
Dennis til Frakklands
Landsliðsmarkvörðurinn færir sig um set Gott lið sem ætlar upp um deild
Varið Dennis Hedström á vaktinni í marki Íslands í Laugardalnum í apríl.
Morgunblaðið/Golli
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2012
íþróttir
Fótbolti Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnumanna, er leikmaður 18. umferðar í
Pepsi-deildinni en hann átti afar góðan leik þegar Stjarnan sigraði Val, 2:0 4
Íþróttir
mbl.is
Eiður Smári
Guðjohnsen er
kominn til
Bandaríkjanna
þar sem hann
verður til skoð-
unar hjá banda-
ríska liðinu-
Seattle Sounders
sem leikur í
MLS-deildinni
þar í landi.
Þetta kom fram á knatt-
spyrnuvefsíðunni 433.is í gær en
þar sagði að Eiður mundi æfa með
liðinu næstu daga. Eiður er án liðs
eftir að hafa losað sig undan samn-
ingi hjá gríska liðinu AEK í sumar.
Ég er bara að fara að skoða að-
stæður. Ég æfi þarna í nokkra daga
og sé hvernig mér líst á þetta allt,“
sagði Eiður við 433.is. sport@mbl.is
Eiður skoðar
hjá Seattle
Sounders
Eiður Smári
Guðjohnsen
Alfreð Finn-
bogason, lands-
liðsmaður í
knattspyrnu og
nýjasti leik-
maður hollenska
úrvalsdeild-
arliðsins Hee-
renveen, var val-
inn leikmaður 4.
umferðar í hol-
lensku úrvals-
deildinni af hollenska netmiðlinum
voetbal fyrir frammistöðu sína með
Heerenveen um síðustu helgi. Al-
freð stimplaði sig þá með glæsibrag
inn í hollensku deildina með því að
skora bæði mörk sinna manna í 2:2
jafntefli gegn meisturum Ajax.
gummih@mbl.is
Alfreð valinn
sá besti
Alfreð
Finnbogason
Morgunblaðið/Þórir Tryggvason
Sigurstund Fyrirliðinn Arna Sif Ásgrímsdóttir og Kayle Grimsley fögnuðu innilega fyrsta Íslandsmeistaratitli Þórs/KA í gærkvöldi.
HK/Víkingur og
Þróttur tryggðu
sér í gærkvöld sæti
í úrvalsdeild
kvenna í knatt-
spyrnu. HK/
Víkingur hafði
betur á móti Fjölni
í Grafarvogi, 2:1, í
síðari umspils-
leiknum og vann
samanlagt 4:3.
Karen Sturludóttir skoraði fyrra
markið snemma leiks og Rakel Lind
Ragnarsdóttir bætti öðru marki við
skömmu fyrir leikslok. Fjölnir minnk-
aði muninn í uppbótartíma leiksins.
Í Laugardalnum vann Þróttur
öruggan sigur á Fram, 4:0, og vann
samanlagt 7:0. Margrét María Hólm-
arsdóttir skoraði þrjú marka Þrótt-
ara í leiknum. gummih@mbl.is
HK/Víkingur
og Þróttur upp
Rakel Lind
Ragnarsdóttir