Morgunblaðið - 05.09.2012, Side 2

Morgunblaðið - 05.09.2012, Side 2
Íslandsmeistarar 2012 Lið Þórs/KA kom mörgum á óvart í sumar og vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með sannfærandi hætti þegar einni umferð er enn ólokið Á AKUREYRI Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Akureyringar fögnuðu 150 ára afmæli bæjarins í vikunni sem leið og í gær var aftur mikil gleðistund í höfuðstað Norð- urlands: Kvennalið Þórs/KA varð Ís- landsmeistari í knattspyrnu í fyrsta skipti. Um 1.200 manns urðu vitni að glæsi- legum sigri Akureyrarliðsins á Selfyss- ingum, 9:0, í næstsíðustu umferð Ís- landsmótsins og það var viðeigandi að flugeldum var skotið á loft þegar Arna Sif Ásgrímsdóttir, tvítugur fyrirliði meistaraliðsins, tók við Íslandsbik- arnum úr hendi Geirs Þorsteinssonar, formanns KSÍ, að leiklokum. „Þetta er ólýsanleg tilfinning. Ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja! En þetta er það skemmtilegasta sem ég hef gert á minni stuttu ævi,“ sagði Arna við Morgunblaðið fljótlega eftir að hún hampaði bikarnum. Akureyrarliðinu var ekki spáð vel- gengni fyrir sumarið. „Ég held að eng- inn hafi haft trú á okkur, nema við sjálf- ar. Við fengum líka fullt af leiðinlegum umsögnum í sumar þannig að við höfum þaggað niður í mjög mörgum. Það er ótrúlega skemmtilegt! Það var talað um að enginn skildi af hverju við værum efst- ar í deildinni en ekkert lið vinnur svona deild á heppninni einni saman. Besta liðið vinur alltaf á endanum. Og við unnum 9:0 í dag; það hljóta allir að skilja það,“ sagði Arna og brosti breitt. Vart þarf að taka fram að sigur norð- anstúlkna var feikilega öruggur. Töl- urnar tala sínu máli. Gestirnir fengu þó þokkaleg færi til að skora, en boltinn hrökk í tvígang í tréverk Þórs/KA auk þess sem Chantel Nicole Jones var vel vakandi í markinu. Þór/KA hafði fengið þrjú afbragðs færi áður en Bandaríkjamaðurinn Tahnai Annis braut ísinn með marki á 29. mín- útu. Kayle Grimsley, landa hennar, lagði upp markið eins og tvö önnur í leiknum. Sandra María Jessen, sem stökk fram í sviðsljósið með eftirminnilegum hætti í sumar – á fyrsta ári í meistaraflokki – og Katrín Ásbjörnsdóttir gerðu báðar þrjú mörk í gær. Hin sænska Rebecca John- son skoraði einu sinni og eitt var sjálfs- mark eftir skot Grimsley. Fyrst og fremst má þakka mjög sterkri liðsheild Íslandsmeistaratitil norðanstúlkna. Töluverðar breytingar urðu á liðinu frá því í fyrra en þjálf- urunum, Jóhanni Kristni Gunnarssyni og aðstoðarmanni hans, Siguróla Kristjáns- syni, tókst að púsla saman afar öflugu liði. Rétt er að benda á að nú, þegar ein umferð er eftir og Íslandsmeistaratitill- inn þegar í höfn hefur liðið skorað flest mörk allra og fengið fæst á sig. Marka- talan er 51:15. Ekki er það síst eft- irtektarvert þegar haft er í huga að vörnin er að flestu leyti breytt frá því í fyrra. Miðverðirnir eru báðir nýir – Arna Sif og Aldís Marta Sigurðardóttir, sem er aðeins 19 ára og að leika fyrsta tímabilið með meistaraflokki, stóðu vaktina í miðju varnarinnar og léku gríðarlega vel. Þar fyrir aftan var svo Chantel Nicole Jones, sem hefur verið frábær í markinu. Bakverðirnir ungu, Gígja Valgerður Harðardóttir og Lára Einarsdóttir, hafa sótt mjög í sig veðrið; Lára er raunar miðjumaður að upplagi og landsliðsmaður í unglingaflokki. Miðjumennirnir öflugu Karen Nóadótt- ir og Tahnai Annis eru í lykilhlutverki; Þórhildur Ólafsdóttir var á miðjunni með þeim framan af sumri en Svíinn Rebecca Johnson meira eftir því sem leið á og frammi var hið stórhættulega þríeyki Sandra María Jessen, Katrín Ásbjörnsdóttir og Kayle Grimsley. Frá- bær liðsheild. Ástæða er til að óska Ak- ureyringum sérstaklega til hamingju með þennan fyrsta Íslandsmeistaratitil í kvennaflokki. Akureyrsk flugeldas ing innan vallar og u  Leikmenn Þórs/KA færðu Akureyringum Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu í afm Margt er líkt með skyldum: » Karen Nóadóttir, leikma Þórs/KA, er dóttir gömlu kempunnar Nóa Björnsson sem lék um árabil með Þór » Sandra María Jessen er systurdóttir Júlíusar Trygg sonar, leikjahæsta Þórsara efstu deild. » Aldís Marta Sigurðardót er dóttir varnarjaxlsins Sig urðar Lárussonar, sem lék ÍBA, Þór og ÍA. Bræður hen eru því landsliðsmennirnir us Orri og Kristján. » Ásbjörn Björnsson, sem með KA og KR, er faðir Kat ínar Ásbjörnsdóttur. » Tvær dætur Harðar Ben ýssonar, fyrrverandi leikma Völsungs, eru í hópnum hjá Þór/KA; Gígja Valgerður í b unarliðinu og Arna Benný k inn á. 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2012 Pepsi-deild kvenna Úrvalsdeildin, 17. umferð: Þór/KA – Selfoss ..................................... 9:0 Sandra María Jessen 35., 38., 77., Katrín Ásbjörnsdóttir 68., 71., 83., Tahnai Annis 29., Rebecca Johnson 49., Þóra Margrét Ólafsdóttir 61. (sjálfsmark). KR – Afturelding ..................................... 0:4 Carla Lee 14., Lára Kristín Pedersen 28., Sigríður Þóra Birgisdóttir 37., Furtuna Ve- laj 62. Valur – Breiðablik................................... 0:4 Björk Gunnarsdóttir 56., Fanndís Friðriks- dóttir 57., Ingibjörg Sigurðardóttir 88., Ásta Eir Árnadóttir 90. Stjarnan – ÍBV ......................................... 1:3 Harpa Þorsteinsdóttir 56. – Sigríður Lára Garðarsdóttir 15., Shaneka Gordon 19., Kristín Erna Sigurlásdóttir 60. Staðan: Þór/KA 17 13 3 1 51:15 42 ÍBV 17 11 2 4 50:22 35 Stjarnan 17 11 2 4 49:22 35 Valur 17 9 3 5 44:26 30 Breiðablik 17 8 4 5 40:21 28 FH 17 5 3 9 26:46 18 Selfoss 17 4 4 9 29:73 16 Afturelding 17 4 3 10 18:38 15 Fylkir 17 3 3 11 22:42 12 KR 17 1 5 11 17:41 8 Markahæstar: Sandra María Jessen, Þór/KA ................. 16 Elín Metta Jensen, Val ............................. 16 Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni.......... 14 Shaneka Jodian Gordon, ÍBV .................. 12 Rakel Hönnudóttir, Breiðabliki ............... 11 1. deild kvenna Úrslitakeppni, síðari leikir um sæti í úr- valsdeildinni: Fjölnir – HK/Víkingur............................. 1:2  HK/Víkingur vann samanlagt 4:3 Fram – Þróttur R. .................................... 0:4  Þróttur vann samanlagt 7:0  HK/Víkingur og Þróttur leika í Pepsi- deildinni á næstu leiktíð. 1. deild karla Haukar – KA ............................................ 0:2 Hallgrímur Mar Steingrímsson 68., Jóhann Helgason 79. Staðan: Þór 19 13 2 4 37:20 41 Víkingur Ó. 19 11 2 6 28:18 35 KA 20 9 5 6 34:26 32 Haukar 20 8 6 6 21:22 30 Fjölnir 19 7 8 4 38:21 29 Þróttur R. 19 7 6 6 25:24 27 Víkingur R. 19 6 6 7 27:27 24 Tindastóll 19 7 3 9 31:33 24 BÍ/Bolungarvík 19 5 7 7 25:34 22 Höttur 19 5 6 8 26:34 21 Leiknir R. 19 3 7 9 26:33 16 ÍR 19 4 2 13 18:44 14 3. deild karla 8-liða úrslit, síðari leikir: Huginn – Ægir.......................................... 1:1  Ægir vann samanlagt 2:1 Víðir – Leiknir F....................................... 2:1  Samanlagt 3:3. Leiknir hafði betur í víta- keppni, 7:6 Magni – Kári ............................................. 3:3  Magni vann samanlagt 7:6 Sindri – ÍH .............................................. 43:1  Sindri vann samanlagt 9:1 Úrslitaeinvígin tvö um sæti í 2. deild: Magni – Ægir Sindri – Leiknir F. Danmörk Bikarkeppnin: Svendborg – Silkeborg ........................... 0:2  Bjarni Þór Viðarsson sat allan tímann á varamannabekk Silkeborg. KNATTSPYRNA Þýskaland Magdeburg – Hamburg ...................... 28:29  Björgvin Páll Gústavsson leikur í marki Magdeburg. Staðan: Wetzlar 2 2 0 0 61:52 4 Hamburg 3 2 0 1 84:80 4 N-Lübbecke 2 2 0 0 68:57 4 Füchse Berlin 2 2 0 0 58:47 4 RN Löwen 2 2 0 0 56:48 4 Magdeburg 3 2 0 1 95:79 4 Kiel 1 1 0 0 34:25 2 Flensburg 1 1 0 0 40:20 2 Göppingen 2 1 0 1 58:58 2 H.Burgdorf 2 1 0 1 53:56 2 Gummersbach 2 1 0 1 56:61 2 Melsungen 2 0 1 1 46:49 1 Grosswallstadt 2 0 1 1 42:52 1 Balingen 2 0 0 2 46:53 0 Lemgo 2 0 0 2 57:65 0 Minden 2 0 0 2 52:60 0 Neuhausen 2 0 0 2 46:64 0 Essen 2 0 0 2 46:72 0 HANDBOLTI KNATTSPYRNA 1. deild karla: Vilhjálmsvöllur: Höttur – Tindastóll .. 17.00 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.