Morgunblaðið - 11.10.2012, Page 1

Morgunblaðið - 11.10.2012, Page 1
Morgunblaðið/Eggert Efstir Heiðar Helguson segir að væntingar séu gerðar til Cardiff um að liðið fari upp í úrvalsdeildina og það hefur byrjað tímabilið mjög vel. FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Íþróttamaður ársins 2011, Heiðar Helguson frá Dalvík, er óðum að stimpla sig inn á nýjum vinnustað hjá Cardiff City sem situr nú í efsta sæti ensku B-deildarinnar. Þangað fór Heiðar í sumar frá úrvalsdeild- arliðinu QPR og gerðist samherji Arons Gunnarssonar. Heiðar er far- inn að setja mark sitt á liðið og skor- aði tvívegis um síðustu helgi þegar Cardiff sigraði Ipswich Town, uppá- haldslið Gunnars á Völlum, 2:1 á úti- velli. „Við erum efstir og ætlum að reyna að halda okkur þar sem lengst. Við erum með hörkumann- skap og fyrir var spurningin að- allega sú hversu fljótt þetta myndi smella saman hjá okkur,“ sagði Heiðar þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans. Löng leið eftir í úrvalsdeildina Cardiff hefur komist í umspil um sæti í úrvalsdeildinni síðustu árin en hefur ekki tekist að komast alla leið. Heiðar segir að ætlast sé til þess að liðið blandi sér einnig í þá baráttu að þessu sinni. „Ég held að það séu væntingar um það að við verðum á meðal efstu lið- anna. Með þann mannskap sem við erum með þá eigum við alla vega að geta verið í baráttunni um að komast upp. Hvort sem okkur tekst að fara upp eða ekki. Það verður bara að koma í ljós enda er löng leið eftir eða 36 leikir. Það eru vissulega vænt- ingar gerðar til okkar og við verðum að standa undir þeim.“ Vann áður með stjóranum Heiðar býr að mikilli reynslu í ensku knattspyrnunni eins og menn þekkja og átti ekki erfitt með að að- lagast nýju liði. „Ég kann mjög vel við mig hérna. Ég kannaðist auðvit- að við marga af þessum strákum þar sem ég hef annaðhvort spilað með þeim eða á móti undanfarin ár. Það er því ekki eins og maður sé að hoppa inn í hóp hjá ókunnugum. Auk þess þekki ég Malky Mackay (knatt- spyrnustjórann) og hef unnið með honum áður. Það gerði hlutina auð- veldari,“ benti Heiðar á en hann lék áður undir stjórn Mackays hjá Wat- ford. Heiðar er 35 ára gamall en segist vera ágætlega á sig kominn um þess- ar mundir þó undirbúningstímabilið hafi ekki verið neitt sérstakt að hans sögn. „Líkaminn er eins góður og hann kemur til með að vera. Það tók mig smátíma að koma mér af stað á þessu tímabili. Undir- búningstímabilið hjá QPR var ekk- ert spes og þar missti ég úr æfingar. Ég hef spilað alla leikina og mér hef- ur gengið upp og ofan. Ég hef verið mjög sáttur við undanfarna þrjá til fjóra leiki. Ég þarf bara að halda mér heilum og í formi sem lengst,“ sagði Heiðar sem hefur skorað þrjú mörk í deildaleikjunum tíu sem bún- ir eru. Ákveðinn í að flytja heim Heiðar gerði eins árs samning við Cardiff og segir velgengni liðsins ekki hafa áhrif á þá ákvörðun sína að flytja heim í vor. „Það er alveg ákveðið og ég kem heim í maí,“ sagði Heiðar og reiknar ekki með því að það breytist þó svo að Cardiff takist að fara upp í úrvalsdeildina. Aron vinsæll hjá Cardiff Heiðar segir samherja sinn Aron Einar Gunnarsson standa sig vel hjá Cardiff. „Hann er rosalega vel liðinn hérna og stendur sig mjög vel. Hann er mjög vinsæll í leikmannahópnum. Hann er á sínu öðru ári hérna og hef- ur spilað mjög vel það sem af er tímabilinu. Hann er mótorinn á miðj- unni og það er afskaplega gott að hafa hann þar,“ sagði Heiðar Helgu- son ennfremur við Morgunblaðið. „Ekki eins og að hoppa inn í hóp með ókunnugum“  Heiðar Helguson byrjaður að láta til sín taka hjá Cardiff  Liðið situr á toppi ensku B-deildarinnar  Aron er mótorinn á miðjunni hjá velska liðinu FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2012 ÍÞRÓTTIR Albanía Fótboltalandsliðið býr sig undir leikinn í Tirana á morgun. Aron Gunnarsson fyrirliði segir að íslensku leikmennirnir séu staðráðnir í að gera betur en á Kýpur og sýna úr hverju þeir séu gerðir 4 Íþróttir mbl.is Viktor Bjarki Arnarsson, leik- maður KR, á nú í viðræðum við nokkur félög en samningur hans við Vesturbæj- arfélagið rennur út í byrjun næstu viku. Viktor, sem er uppalinn Vík- ingur og var val- inn besti leikmaður Íslandsmótsins 2006, hefur leikið með KR undan- farin ár eftir að hann kom heim úr atvinnumennsku. „Ég er bara að spjalla við menn. Þetta er á rólegu stigi hjá mér. Ég er í viðræðum við KR og önnur lið og ég er bara að skoða mína stöðu. Það er mikið af fundum og maður er mikið í símanum. Ég verð vænt- anlega búinn að ganga frá mínum málum fyrir mánaðamótin,“ sagði Viktor við Morgunblaðið í gær. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er Stjarnan líklegasti áfangastaður hins 29 ára gamla Viktors Bjarka en Logi Ólafsson, sem tók við liði Stjörnunnar í fyrra- dag, er afar hrifinn af Viktori og fékk hann til KR 2008. Viktor Bjarki er nokkuð eftir- sóttur en Fylkir og Víkingur R., tvö lið sem hann hefur áður spilað með, eru á meðal þeirra liða sem eru mjög áhugasöm um að landa miðju- manninum. tomas@mbl.is Viktor á leiðinni í Stjörnuna? Viktor Bjarki Arnarsson Freyr Alexand- ersson og Davíð Snorri Jónasson hafa verið ráðnir þjálfarar 1. deildar liðs Leiknis úr Reykjavík í knattspyrnu en þetta var til- kynnt í gær. Freyr er þrí- tugur og lék áður með Leikni en hefur starfað hjá Val síðustu árin, sem aðstoðarþjálfari og síðan að- alþjálfari meistaraflokks kvenna og síðan sem aðstoðarþjálfari meist- araflokks karla. Davíð Snorri er 25 ára gamall og hefur þjálfað yngri flokka hjá Leikni undanfarin ár. Þá stýrði hann Leiknisliðinu í þremur síðustu umferðum 1. deildar í haust, ásamt Gunnari Einarssyni, eftir að Willum Þór Þórssyni var sagt upp störfum hjá félaginu. Leiknir slapp naumlega við fall úr 1. deildinni í haust, annað árið í röð, og bjargaði sér á mjög góðum endaspretti eins og í fyrra. vs@mbl.is Freyr og Davíð þjálfa Leiknisliðið Freyr Alexandersson Kristján Jónsson kris@mbl.is „Mér finnst þetta vera mjög spennandi starf. Það er náttúrlega fullt af sterkum leikmönnum í Val og ég held að þar sé hægt að byggja upp alveg þrælgott lið. Öll aðstaða er hin besta og ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni,“ sagði Magn- ús Gylfason, nýráðinn þjálfari karlaliðs Vals í knattspyrnu, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Magnús var ráðinn til næstu þriggja ára en hann stýrði ÍBV á nýafstöðu tímabili. Magnús sagði þó upp störfum hjá ÍBV í september en þá var liðið í 2. sæti deildarinnar. Magnús segist hafa getað hugsað sér að taka sér frí frá þjálfuninni en Valsmenn hafi talið hann á að taka starfið að sér. „Ég get alveg viðurkennt það að ég var alveg á báðum áttum um hvort ég ætlaði að fara aftur að þjálfa. En þetta var bara matreitt ofan í mig þann- ig að ég varð mjög spenntur. Við gengum frá þessu á síðustu dögum og ég tel að það séu góð tækifæri á Hlíðarenda til að gera góða hluti. Fyr- ir það fyrsta er þetta sigursælasta íþróttafélag landsins þó að ekki hafi gengið allt of vel í fótbolt- anum síðustu ár,“ sagði Magnús. Valsmenn ætla sér að styrkja liðið Spurður um hvort hann hafi fengið skilaboð frá stjórnendum Vals um hvert skuli stefna á næsta tímabili sagði Magnús það hafa verið rætt vel og vandlega. „Væntingarnar eru náttúrlega alltaf miklar hjá hverju einasta félagi. Maður sest oft niður með stjórnarmönnum og þá segja þeir eitt og meina annað. Í þessu tilviki höfum við farið yf- ir það vel og vandlega. Við ætlum að styrkja liðið. Ef við miðum við að okkur takist að styrkja það eins og við ætlum þá held ég að þetta geti orðið mjög spennandi næsta sumar. Ég get samt ekki farið að tala um einhverjar væntingar núna, og held ekki að stjórnarmennirnir treysti sér í það heldur, þar sem liðið hafnaði í 8. sæti í sumar. Við erum ennþá bara með það lið í höndunum og verðum að sjá hvaða breytingar við náum að gera,“ sagði Magnús við Morgunblaðið í gær. Magnús var á báðum áttum  Hafði hugsað sér að fara í frí en samdi við Val Morgunblaðið/Golli Valur Magnús Gylfason telur vera tækifæri til að gera góða hluti á Hlíðarenda næstu árin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.