Morgunblaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.10.2012, Blaðsíða 2
Á ÁSVÖLLUM Stefán Stefánsson ste@mbl.is „Við ákváðum að koma og sýna hvað í okkur býr í fráköstum og öllu en ég hef ekki oft tekið svona mörg frá- köst,“ sagði Hildur Björg Kjart- ansdóttir frá Stykkishólmi sem fór á kostum á Ásvöllum í gærkvöldi þegar Snæfell vann Hauka 68:59 í efstu deild kvenna í körfubolta. Hildur Björg, sem er að verða átján ára á sínu þriðja tímabili í efstu deild, tók 19 fráköst og gerði 16 stig, einu minna en Hildur Sigurðardóttir. Eftir tiltölulega jafna byrjun seig Snæfell fram úr með því að skipta um gír og hafði sex stiga forskot í hálfleik. Það kom hinsvegar fyrir lítið því fyrstu sjö mínútur þriðja leikhluta liðu án þess að liðinu tækist að skora en þeim til lukku tókst Haukakonum að- eins á ná sér í 9 stig á meðan. „Við hikum aðeins á móti svæð- isvörninni hjá Haukum og vorum eitt- hvað óöruggar eða hvað sem það var en svo small þetta hjá okkur, við byrj- uðum að stöðva Haukaliðið í vörninni og þá kom upp baráttan hjá okkur. Við fórum ekkert á taugum þó að við værum aðeins undir, það skiptir engu máli enda vorum við sex stigum yfir í hálfleik og í körfubolta tekur enga stund að vinna það upp,“ bætti Hildur við. Snæfellskonur léku án Kieraah Marlow, sem þurfti að fara heim af persónulegum ástæðum en mun koma til baka, sem hugnast Hildi Björgu. Ætluðum að standa saman „Það verður gaman þegar hún kem- ur aftur en í þessum leik ætluðum við að spila sem lið og standa saman svo þetta var algjör liðssigur. Það er talað um að við séum með fámennan hóp en við vildum sýna hvað við getum.“ Auk Hildanna tveggja var Alda Leif Jóns- dóttir drjúg, hitti að vísu aðeins úr einu af þremur skotum í teignum en tveimur af þremur þriggja stiga skot- um sínum og átti 7 stoðsendingar auk þess að verja fjögur skot. Helga Hjör- dís Björgvinsdóttir tók 11 fráköst. Hjá Haukum skoruðu Margrét Rósa Hálfdánardóttir og Siarre Evans sitt hvor 17 stigin en sú síðarnefnda tók alls 16 fráköst. Snæfellskonur hafa farið á kostum í undirbúningsmótunum í vor, unnu meðal annars Lengjubikarinn og lögðu síðan Íslands- og bikarmeistara Njarðvíkur að velli í keppninni meist- arar meistaranna en í þann leik fór Snæfell því liðið tapaði gegn Njarðvík í bikarúrslitum í fyrra. „Við ætlum bara að komast eins langt og við get- um, förum auðvitað í alla leiki til að sigra. Ég get ekki sagt til um hvort við vinnum, mótið er nýbyrjað og maður veit aldrei hvað gerist en við vonumst auðvitað til þess,“ sagði Hild- ur Björg. Njarðvík í basli með Grindavík Íslands- og bikarmeistarar Njarð- víkur lentu í basli í Grindavík en sigr- uðu 70:65 á endasprettinum. Um miðj- an fjórða leikhluta hafði Grindavík naumt forskot en átti ekki svar við reynslunni í lokin. Munaði mikið um Lele Hardy sem gerði 28 stig og tók 22 fráköst en hjá Grindavík var Del- lena Criner með 19 stig en 6 fráköst. Í Vesturbænum áttu Keflvíkingar ekki í miklum vandræðum með KR, það var aðeins fyrstu mínúturnar að Vesturbæingar héldu í við gestina sem unnu 76:54 eftir að hafa slakað á þegar leið á leikinn. Valskonur sóttu Fjölni heim í Graf- arvoginn og jafnt var fram í þriðja leikhluta en þá seig Hlíðarendaliðið fram úr í 76:53 sigri. Brittney Jones gerði 29 stig fyrir Fjölni og tók 7 frá- köst en hjá Val gerði Alberta Auguste 20 stig og Kristrún Sigurjónsdóttir 17. Morgunblaðið/Kristinn Öflug Hildur Björg Kjartansdóttir horfir í átt að körfu Haukanna en Auður Íris Ólafsdóttir reynir að stöðva hana. Hildur Björg með 19 fráköst fyrir Snæfell  Íslands- og bikarmeistarar Njarðvíkur í basli í Grindavík 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2012 Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is Miðvörðurinn Ólafur Örn Bjarna- son er hættur hjá Grindavík en hann gerði starfslokasamning við félagið í síðustu viku. Ólafur ætlar sér að flytja á höfuðborgarsvæðið en það hefur staðið til í nokkurn tíma. „Það hefur staðið til í allt sumar en maður hefði kannski skoðað mál- ið ef við hefðum haldið okkur uppi,“ segir Ólafur Örn, sem er 37 ára gamall, en ætlar sér að halda áfram að spila fótbolta. „Það er planið allavega. Svo kemur bara í ljós hvað gerist,“ segir Ólafur Örn sem getur rætt við öll lið þar sem hann er laus allra mála hjá Grindavík. Ólafur Örn segist ekki mikið hafa spáð í framtíð sína en hann hefur frekar áhuga á að spila en að þjálfa til að byrja með og helst ekki gera það saman eins og hann gerði hjá Grindavík í eitt og hálft sumar. „Ég er ekkert búinn að pæla í þessu. Ég er opinn fyrir öllu. Ann- aðhvort spila ég í eitt til tvö ár og fer svo út í þjálfun eða fer beint í að þjálfa. Það kemur bara í ljós. Ég vil helst ekki gera hvorttveggja,“ segir Ólafur Örn sem hefur aðeins leikið með Grindavík hér á landi. Hann er annar leikjahæsti leik- maður Grindavíkur í efstu deild frá upphafi með 174 leiki fyrir félagið. Þá lék hann í hálft sjöunda ár með Brann í norsku úrvalsdeildinni og þegar hann kvaddi félagið á miðju tímabili 2010 var hann leikjahæsti erlendi leikmaðurinn í sögu þess með 151 deildaleik þar í landi. Ólaf- ur lék áður í tvö ár með Malmö í sænsku úrvalsdeildinni. Hann spil- aði 27 landsleiki á sínum tíma en dró sig í hlé frá landsliðinu í árs- byrjun 2008. Farinn Ólafur Örn Bjarnason kveður heimaslóðirnar í Grindavík. Helst ekki vera spilandi þjálfari aftur N1-deild karla Úrvalsdeildin, 4. umferð: Afturelding – Haukar .......................... 22:27 Staðan: Haukar 4 3 1 0 108:92 7 Akureyri 3 2 1 0 83:69 5 HK 3 2 1 0 75:68 5 FH 3 1 1 1 72:74 3 Valur 3 1 0 2 71:74 2 Fram 3 1 0 2 76:83 2 ÍR 3 1 0 2 75:85 2 Afturelding 4 0 0 4 90:105 0 Þýskaland A-DEILD: Minden – Hamburg ............................. 22:34  Vignir Svavarsson skoraði 4 mörk fyrir Minden. Grosswallstadt – Füchse Berlín ........ 18:25  Sverre Jakobsson skoraði ekki fyrir Grosswallstadt. Rúnar Kárason er frá keppni vegna meiðsla.  Dagur Sigurðsson þjálfar Füchse. Staða efstu liða: Füchse Berlin 9 7 2 0 266:233 16 RN Löwen 7 7 0 0 202:173 14 Kiel 6 5 1 0 205:157 11 Hamburg 7 5 1 1 208:184 11 Wetzlar 7 4 1 2 203:195 9 N-Lübbecke 7 4 0 3 208:194 8 Flensburg 6 3 2 1 191:153 8 Magdeburg 7 4 0 3 219:201 8 H.Burgdorf 7 3 1 3 198:206 7 Danmörk A-DEILD KARLA: Nordsjælland – Bjerringb.-Silkeb..... 26:35  Guðmundur Árni Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Bjerringbro-Silkeborg. Mors-Thy – Tvis Holstebro ................ 27:29  Einar Ingi Hrafnsson skoraði 4 mörk fyrir Mors-Thy. KIF Kolding – Viborg ......................... 27:21  Orri Freyr Gíslason skoraði eitt mark fyrir Viborg. Óskar Bjarni Óskarsson þjálf- ar liðið. A-DEILD KVENNA: Tvis Holstebro – Skive........................ 38:25 Rut Jónsdóttir skoraði 3 mörk fyrir Tvis Holstebroen, Þórey Rósa Stefánsdóttir og Auður Jónsdóttir ekkert. Noregur A-DEILD KARLA: Drammen – Elverum .......................... 38:34 Sigurður Ari Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Elverum. A-DEILD KVENNA: Levanger – Glassverket ..................... 27:20 Nína Björk Arnfinnsdóttir skoraði eitt mark fyrir Levanger en Ramune Petar- skyte er frá vegna meiðsla. Svíþjóð A-DEILD KARLA: Hammarby – Guif ................................ 27:27  Elvar Friðriksson skoraði 7 mörk fyrir Hammarby.  Heimir Óli Heimisson skoraði 4 mörk fyrir Guif og Haukur Andrésson 2. Kristján Andrésson þjálfar liðið. Kristianstad – HK Malmö................... 29:21  Ólafur A. Guðmundsson skoraði 4 mörk fyrir Kristianstad. HANDBOLTI KFÍ – Fjölnir 67:95 Ísafjörður, Dominos-deild karla. Gangur leiksins: 7:4, 16:11, 20:21, 27:30, 29:34, 31:43, 31:43, 36:50, 39:50, 43:59, 45:64, 46:69, 50:76, 58:82, 61:90, 67:95. KFÍ: Chris Miller-Williams 20/15 fráköst, B.H. Spencer 15/8 fráköst, Mirko Stefán Virijevic 11/6 fráköst, Stefán Diegó Garcia 7, Pance Ilievski 7, Jón Hrafn Baldvinsson 5/5 fráköst, Guðmundur Guðmundsson 2. Fráköst: 29 í vörn, 7 í sókn. Fjölnir: Árni Ragnarsson 22/12 fráköst, Chris Matthews 15/9 fráköst, Tómas Heið- ar Tómasson 13, Arnþór F. Guðmundsson 12/6 fráköst, Sylverster Spicer 11/5 fráköst, Björgvin H. Ríkharðsson 9/5 fráköst, Elvar Sigurðsson 5, Gunnar Ólafsson 4, Friðrik Karlsson 2, Jón Sverrisson 2/6 fráköst. Fráköst: 36 í vörn, 13 í sókn. Dómarar: Davíð Kr. Hreiðarsson, Halldór Geir Jensson, Aðalsteinn Hrafnkelsson. Áhorfendur: 100. Staðan: Fjölnir 2 2 0 188:157 4 Snæfell 1 1 0 96:77 2 Grindavík 1 1 0 95:80 2 Stjarnan 1 1 0 90:79 2 Njarðvík 1 1 0 84:82 2 KFÍ 2 1 1 162:189 2 Skallagrímur 1 0 1 94:95 0 Þór Þ 1 0 1 82:84 0 KR 1 0 1 90:93 0 Tindastóll 1 0 1 79:90 0 Keflavík 1 0 1 80:95 0 ÍR 1 0 1 77:96 0 Haukar – Snæfell 59:68 Schenker-höllin, Dominos-deild kvenna. Gangur leiksins: 7:4, 11:12, 14:19, 19:20, 22:28, 23:32, 27:39, 35:41, 38:41, 42:41, 46:44, 50:51, 50:54, 55:56, 55:59, 59:68. Haukar: Margrét Rósa Hálfdanardóttir 17/8 fráköst, Siarre Evans 17/16 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 11, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 8/9 fráköst, Gunnhildur Gunn- arsdóttir 6/4 fráköst/5 stolnir. Fráköst: 24 í vörn, 14 í sókn. Snæfell: Hildur Sigurðardóttir 17/7 frá- köst, Hildur B. Kjartansdóttir 16/19 frá- köst/5 stoðsendingar, Berglind Gunnars- dóttir 14/6 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 12/9 fráköst/7 stoðs./6 stolnir/4 varin skot, Helga H. Björgvinsdóttir 9/11 fráköst. Fráköst: 32 í vörn, 20 í sókn. Grindavík – Njarðvík 65:70 Gangur leiksins: 4:6, 6:11, 12:19, 14:21, 16:27, 24:29, 29:31, 31:35, 35:36, 40:38, 44:43, 46:48, 55:54, 59:61, 65:70. Grindavík: Dellena Criner 19/6 fráköst/6 stoðsendingar, Berglind Anna Magnús- dóttir 16/4 fráköst, Helga Rut Hallgríms- dóttir 12/7 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 10/7 fráköst/7 stolnir, Sandra Ýr Grétars- dóttir 4, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 2, Harpa Rakel Hallgrímsdóttir 2/8 fráköst. Fráköst: 23 í vörn, 12 í sókn. Njarðvík: Lele Hardy 28/22 fráköst/6 stoð- sendingar, Ína María Einarsdóttir 11, Ingi- björg Elva Vilbergsdóttir 8/5 fráköst, Ey- rún Líf Sigurðardóttir 8, Salbjörg Sævarsdóttir 6/13 fráköst/3 varin skot, Erna Hákonardóttir 5, Guðlaug Björt Júl- íusdóttir 2, Emelía Ósk Grétarsdóttir 2. Fráköst: 36 í vörn, 13 í sókn. Fjölnir – Valur 53:76 Gangur leiksins: 2:5, 5:7, 8:9, 11:16, 19:21, 21:25, 29:29, 32:30, 35:33, 35:36, 35:38, 40:46, 40:50, 51:59, 53:68, 53:76. Fjölnir: Britney Jones 29/7 fráköst, Berg- dís Ragnarsdóttir 9/6 fráköst, Birna Ei- ríksdóttir 4/4 fráköst, Fanney Lind Guð- mundsdóttir 4/9 fráköst, Erla Sif Kristinsdóttir 3, Heiðrún H. Ríkharðsdótt- ir 3/9 fráköst, Hrund Jóhannsd. 1/8 fráköst. Fráköst: 28 í vörn, 15 í sókn. Valur: Alberta Auguste 20/10 fráköst/5 stoðsendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 17/4 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 14/7 fráköst/5 stoðs., Þórunn Bjarnadóttir 10/8 fráköst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 6, Krist- ín Óladóttir 3, Elsa Rún Karlsdóttir 2, Ragna M. Brynjarsdóttir 2/4 fráköst, Ragnheiður Benónýsdóttir 2/8 fráköst. Fráköst: 24 í vörn, 22 í sókn. KR – Keflavík 54:76 Gangur leiksins: 4:4, 8:7, 8:14, 10:24, 16:29, 18:35, 18:43, 26:47, 29:50, 33:50, 36:56, 38:62, 42:67, 42:74, 47:74, 54:76. KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 15/6 frá- köst, Björg Guðrún Einarsdóttir 11, Pa- techia Hartman 9, Helga Einarsdóttir 8/8 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 6/11 fráköst/5 stolnir, Kristbjörg Pálsdóttir 3, Anna María Ævarsdóttir 2/5 fráköst. Fráköst: 20 í vörn, 14 í sókn. Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 17/5 frá- köst/5 stolnir, Sara Rún Hinriksdóttir 15/ 15 fráköst, Jessica Ann Jenkins 13, Birna I. Valgarðsdóttir 9, Ingunn Kristínardóttir 8, Bryndís Guðmundsdóttir 6, Bríet Sif Hin- riksdóttir 5, Telma Lind Ásgeirsdóttir 3. Fráköst: 20 í vörn, 10 í sókn. Staðan: Keflavík 3 3 0 242:163 6 Snæfell 3 3 0 211:166 6 Valur 3 2 1 194:162 4 Njarðvík 3 2 1 201:188 4 Haukar 3 1 2 181:204 2 KR 3 1 2 161:197 2 Fjölnir 3 0 3 175:229 0 Grindavík 3 0 3 163:219 0 KÖRFUBOLTI HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, N1-deildin: Austurberg: ÍR – FH ........................... 19.30 Vodafone-höllin: Valur – Fram ................ 20 Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin: Framhús: Fram – Fylkir .......................... 18 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: Grindavík: Grindavík – Snæfell........... 19.15 Ásgarður: Stjarnan – Keflavík............ 19.15 DHL-höllin: KR – Tindastóll............... 19.15 Borgarnes: Skallagrímur – Njarðvík . 19.15 1. deild karla: Egilsstaðir: Höttur – Þór Ak............... 18.30 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.