Monitor - 18.10.2012, Blaðsíða 5

Monitor - 18.10.2012, Blaðsíða 5
5FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Monitor Raftónlistin var í fyrirrúmi í gærkvöldi á þriðju Airwaves-upphitunartónleikum Símans á Faktorý og gátu gestirnir dansað yfi r sig við tóna frá Sykri, Berndsen og RetRobot. Monitor tók púlsinn á Agnesi Björt, söngkonu Sykurs og Berndsen rétt áður en þau stigu á svið. með beinunum Þú stendur og fellur Hreyfing, kalk og D-vítamín skila þér sterkari beinum og hraustari líkama. E N N E M M / S IA • N M 53 0 43 Mynd/Eggert Ef þú ættir að chilla í þrjár vikur á Tenerife með þremur einstakling- um sem koma fram á Airwaves, hvaða einstaklingar yrðu fyrir valinu? Ég myndi ekki höndla einn dag á Tenerife þannig ég myndi gefa Emmsjé Gauta miðana mína. Hann virðist vera týpan til að fara þangað svo ég myndi leyfa honum að taka djamm-ferð með vini sínum. Á Airwaves munt þú koma fram sem þú sjálfur og svo muntu aðstoða Þórunni Antoníu við að koma hennar tónlist til skila. Er mikill munur á þessu tvennu? Já, að sjálfsögðu. Ég held að fólk, eða allavega strákar, taki ekki einu sinni eftir mér þegar ég spila með Þórunni. Þeir eru næstum dáleiddir að horfa á hana. Þannig ég fæ svo bara að njóta mín þegar ég spila sem Berndsen. Í lok september tókst þú upp myndband. Hvenær getum við átt von á afrakstrinum og hvers konar snilld verður þetta eiginlega? Við tókum upp skuggalegt 80‘s myndband. Ég er alveg að klára að klippa þessa snilld. Ég hef sýnt nokkrum myndbandið og þeir sem hafa séð þetta fatta ekki strax að þetta sé nýtt efni heldur halda að þetta sé klippt saman úr gömlum 80‘s bíómyndum. Svo ert þú að vinna í plötunni þinni Planet Earth sem kemur út snemma á næsta ári. Hvernig gengur það? Það gengur ágætlega en hægt því maður er með svo miklar væntingar þar sem síðasta plata heppnaðist svo vel. Ég er allavega mjög sáttur með það sem er komið og Herm- igervillinn er að standa sig í að pródúsa þessa snilld. Hvað er það skemmtilegasta við plötuútgáfu? Þegar maður er kominn með tilbúna plötu í hendurnar eftir endalausa vinnu. En það sísta? Þegar illa gengur að taka upp sönginn þá brotnar maður niður. Ég held að maður ætti kannski að fara byrja æfa sig meira. Í ár ert þú að spila í fjórða skipti á Airwaves-hátíðinni? Hver er snilldin við Airwaves? Skemmtilegast er að labba um bæinn og kikja á tilviljanakennda staði. Þá sér maður oft eitthvað óvænt. Hvað ætlar þú að sjá sjálfur á Airwaves? Jack Magnet og Skúla Sverrisson. BERNDSEN Fyrstu sex: 230185. Uppáhaldshljóðfæri: Roland Jupiter 6. Sími: Iphone. Lag á heilanum núna: Retro Stefson – Glow. Tónlist er: Yndisleg. Davíð Berndsen er fæddur á miðjum níunda áratugnum en það verður að teljast líklegt að tónlistin sem þá var við lýði hafi náð að síast óvenju vel inn í þessa 80‘s hetju. 80’s hetjan Berndsen

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.