Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2012 7
Styrkir
Jól í London
Viljum skipta á íbúð og bíl yfir jól og áramót,
helst í vesturbæ Reykjavíkur. Upplýsingar á
netfang: gydajonsdottir@hotmail.co.uk eða í
síma 00 44 207 366 7034.
Auglýsing frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti,
mennta- og menningarmálaráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti
og velferðarráðuneyti
Umsóknir um styrki á safnliðum ráðuneyta samkvæmt
frumvarpi til fjárlaga 2013
Umsóknarfrestur er til miðnættis 20. nóvember 2012
Á fjárlögum ársins 2012 var fyrirkomulagi við úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga breytt
hvað varðar aðkomu fjárlaganefndar Alþingis. Ákvörðun um framlag til einstakra málaflokka fer þó eftir
samþykki Alþingis í fjárlögum 2013.
Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu
leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga, svo sem menningarsamninga eða vaxtarsamn-
inga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem
verkefni umsækjanda um styrk fellur undir. Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja
ráðuneyti sér rétt til að færa umsóknir á milli ráðuneyta, falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.
Mat á umsóknum.
Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytis almennt.
Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á:
a) gildi og mikilvægi verkefnis fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks,
b) gildi og mikilvægi fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,
c) að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,
d) starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda,
e) fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.
Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verk-
efnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi
vegna fyrri styrkveitinga.
Við mat á umsóknum er starfshópnum heimilt að leita umsagnar fagaðila, gerist þess þörf.
Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 31. janúar 2013.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef
Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is). Nánari upplýsingar má finna á vef viðkomandi ráðuneytis.
Verkefni eftir ráðuneytum:
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
Stuðningur við áhugahópa og faglegt starf
Veittir eru styrkir til að styðja við aðila utan ríkisstofnana sem starfa á verkefnasviði atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytis og njóta ekki framlaga á fjárlögum.
Velferðarráðuneyti
Styrkir til félagasamtaka
Veittir eru styrkir til félagasamtaka sem starfa á verkefnasviði ráðuneytisins. Styrkirnir eru fyrst og fremst
ætlaðir til að styðja við ráðgjöf og stuðning félagasamtakanna við umbjóðendur sína.
Verkefnastyrkir á sviði velferðarmála
Veittir eru styrkir til félagasamtaka vegna verkefna og aðgerða sem falla að verkefnasviði ráðuneytisins
Umhverfis- og auðlindaráðuneyti
Verkefnastyrkir á sviði umhverfis- og auðlindamála
Veittir eru styrkir til að styðja við verkefni á vegum aðila utan ríkisstofnana sem starfa á verkefnasviði
umhverfis- og auðlindaráðuneytis.
Rekstrarstyrkir til frjálsra félagasamtaka
Veittir eru rekstrarstyrkir til frjálsra félagasamtaka á sviði umhverfis- og auðlindamála til að stuðla að
opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfis- og auðlindamál og til að efla almenna vitund um gildi
umhverfis- og náttúruverndar.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti
Styrkir á sviði lista og menningar
Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa á sviði lista og menningar og hafa ekki
aðgang að menningarsamningum eða sjóðum.
Styrkir á sviði menningararfs
Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa að varðveislu menningarminja og hafa ekki
aðgang að menningarsamningum eða sjóðum.
Styrkir til uppbyggingar landsmótsstaða
Veitt eru framlög til að styðja við uppbyggingu á landsmótssvæðum í samstarfi við sveitarfélög og fleiri
aðila.
Reykjavík, 18. október 2012.
* Nýtt í auglýsingu
15330 Röntgentæki fyrir Sjúkrahúsið á
Akureyri. Ríkiskaup f.h. Sjúkrahússins á
Akureyri óska eftir tilboðum í alstafræn-
an röntgenbúnað (e. Digital Radiology
system and DR mobile). Nánari upplýs-
ingar eru í útboðsgögnum sem eru
aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikis-
kaup.is. Opnunartími tilboða er 21.
nóvember 2012 kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum.
*15311 Veðurmælar á Keflavíkurflugvelli.
Ríkiskaup f.h. ISAVIA ohf óska eftir til-
boðum í afhendingu, uppsetningu og
þjónustu við sjálfvirkt veðurmælikerfi
(AWOS) og veðursjár (LIDAR) til mælinga
og vöktunar á ýmsum veðurþáttum eins
og skýjahæð/skýjahulu og ösku í lofti.
Veðurmælikerfið verður staðsett á Kefla-
víkurflugvelli með fjartengingu til Veður-
stofu Íslands. Veðurmælikerfið skal vera
sjálfvirkt kerfi til mælinga, gagnasöfnun-
ar, rauntíma úrvinnslu, greiningar og
skjávinnslu á öllum veðurþáttum sem
máli skipta vegna flugumferðar um
Keflavíkurflugvöll. Nánari upplýsingar
eru í útboðsgögnum sem verða aðgengi-
leg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is.
Opnunartími tilboða er 22. nóvember
2012 kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum.
15334 Ræsting á byggingum lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu og sérstaks
saksóknara - leiðrétt. Ríkiskaup, fyrir
hönd lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu (LRH) og Sérstaks saksóknara, óska
eftir tilboðum í ræstingu og hreingern-
ingu á byggingum LRH við Hverfisgötu
113, Rauðarárstíg 10, Krókhálsi 5, Grens-
ásvegi 9, Flatahrauni 11 Hafnarfirði og
Dalvegi 18 Kópavogi, auk bygginga
embættis Sérstaks saksóknara að
Skúlagötu 17 og 19. Nánari upplýsingar
er að finna í útboðslýsingunni sem
verður aðgengileg á vef Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is, þriðjudaginn 23. októ-
ber 2012.
Vettvangsskoðun: Bjóðendum er boðið
að skoða aðstæður á verkstað sbr. kafla
1.1.1., með fulltrúa verkkaupa, að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Væntanlegir bjóðendur skulu tilkynna
komu sína, fyrir kl. 15:00 mánudag-
inn 29. október, til Ríkiskaupa í síma:
530-1400 eða netfang: utbod@rikis-
kaup.is og fá um leið nánari leiðbeining-
ar.Tilboð verða opnuð þann 6. desember
2012 kl. 11:00 í húsnæði Ríkiskaupa.
Bjóðendur eru hvattir til að mæta tímanlega, þar
sem erfitt getur verið að fá bílastæði í nágrenni
við Ríkiskaup.
Fyrirtæki til sölu
Til sölu er bifreiða- og búvélaverkstæðið
Pardus ehf. á Hofsósi. Á verkstæðinu er einnig
starfrækt rafmagnsþjónusta.
Félagið er í fullum rekstri og vel tækjum búið.
Starfsmenn eru 6-8.
Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu
Sauðárkróks, sími 453 5900.
Fyrirtæki
Húsnæði erlendis