Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2012
Félagslíf
Safnaðarheimili Grensáskirkju
Samkoma kl. 17 sunnudag-
inn 21. október. Ræðumaður
Hermann Bjarnason.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
Sunnudag kl. 17.00
Samkoma.
Trond Are Schelander talar.
Mánudagur kl. 15
Heimilasamband – Allar konur
hjartanlega velkomnar.
Morgunbæn –
alla virka daga kl. 10.30.
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6.
Kl. 11.00
Haustmót Fíladelfíu.
Yfirskrift mótsins er: ,,Viltu
meira” og ræðumaður er J. Lee
Grady. Kaffi og samfélag eftir
samkomuna.
Kl. 14.00 Samkoma á ensku
hjá Alþjóðakirkjunni.
Kl. 18.00 Kvöldsamkoma. Ljúf
lofgjörð og prédikun Guðs orðs.
Samfélag og spjall eftir sam-
komuna.
Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2013
Menningarnefnd Seltjarnarness auglýsir hér með
eftir umsóknum frá listamönnum búsettum á
Seltjarnarnesi og/eða rökstuddum ábendingum
um nafnbótina Bæjarlistamaður Seltjarnarness
árið 2013.
Nafnbótinni fylgir starfsstyrkur. Væntanlegir um-
sækjendur eru beðnir að haga umsóknum í
samræmi við reglur um bæjarlistamann sem
liggja frammi á bæjarskrifstofum Seltjarnarness
að Austurströnd 2, en þær er einnig að finna á
heimasíðu bæjarins www.seltjarnarnes.is
Umsóknum og/eða ábendingum skal skila á
bæjarskrifstofur Seltjarnarness merktum:
,,Bæjarlistamaður 2013" fyrir 25. nóvember nk.
Menningarnefnd Seltjarnarness
Menningarnefnd
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur
og spámiðill, Ragnhildur
Filippusdóttir, Garðar Björg-
vinsson, Michael-miðill,
Símon Bacon, Guðríður
Hannesdóttir kristalsheilari
og auk annarra, starfa hjá
félaginu og bjóða félags-
mönnum og öðrum upp á einka-
tíma. Upplýsingar um félagið,
starfsemi þess, rannsóknir og
útgáfur, einkatíma og tíma-
pantanir eru alla virka daga
ársins frá kl. 13-18. auk þess
oft á kvöldin og um helgar.
SRFR
Auglýsing um sveinspróf
í skrúðgarðyrkju
Sveinspróf í skrúðgarðyrkju verður haldið í
vikunni 19.-23. nóvember 2012 í
Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum.
Umsóknarfrestur er til 14. nóvember nk.
Ekki verður tekið við umsóknum eftir þann
tíma.
ATH. Greiða skal prófagjald kr. 15.000 áður en
próf hefst með áður heimsendum gíróseðli.
Upplýsingar og umsóknir
Umsóknir skulu sendar til Ágústu Erlingsdóttur,
agusta@lbhi.is, sem jafnframt gefur allar
nánari upplýsingar um prófið.
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur heimild til
að fresta prófi ef ekki næst næg þátttaka.
Landbúnaðarháskóli Íslands,
Reykjum, Ölfusi,
810 Hveragerði.
Tilkynningar
Bláfáninn var fyrir skömmu dreginn að
húni í Bláa lóninu í 10. sinn. Þar á bæ hef-
ur fánanum góða verið flaggað árlega frá
árinu 2003, en þetta er alþjóðleg viður-
kenning sem veitt er til að stuðla að
verndun umhverfis smábátahafna og
baðstranda. Í ár er Bláfánanum flaggað á
3.850 stöðum í 46 löndum. Leikskólabörn
frá leikskólanum Króki í Grindavík að-
stoðuðu við athöfnina en leikskólinn hef-
ur hlotið umhverfisviðurkenninguna
Grænfánann.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fram-
kvæmdastjóri Landverndar, sagði við
þetta tækifæri að það væri bæði hvetj-
andi og ánægjulegt að Bláa lónið, sem
væri einn þekktasti staður Íslands,
flaggaði Bláfánanum nú í 10. sinn. „Blá-
fáninn er útbreiddasta umhverfisviður-
kenning sinnar gerðar í heiminum og því
víða þekkt vörumerki,“ segir Guð-
mundur Ingi.
Magnea Guðmundsdóttir, kynningar-
stjóri Bláa lónsins hf., segir starfsmenn
fyrirtækisins stolta af þessu. „Bláfáninn
er hvatning til okkar um að halda áfram
á sömu braut og hafa umhverfismál í for-
gangi. “
Efla umhverfisvitund
Meginmarkmið Bláfánaverkefnisins er
bætt umhverfisstjórnun, góð hreinlætis-
aðstaða, gæði vatns, gott aðgengi að upp-
lýsingum um þjónustu á viðkomandi
svæði og slysavarnir. Mikilvægur liður í
Bláfánaverkefninu er að efla almenna
umhverfisvitund og er það gert með lif-
andi fræðslu og upplýsingum um náttúru
og viðkvæm svæði á bláfánastöðum.
sbs@mbl.is
Fá Bláfánann í tíunda sinn
Bláa lónið á
beinni braut í
umhverfismálum
Flaggað Bláfáninn dreginn að hún við samlitt lón með aðstoð leikskólabarna.
Ragnhildur Geirs-
dóttir hefur verið
ráðin framkvæmda-
stjóri rekstrar- og
upplýsingatæknisviðs
hjá Landsbankanum
og tekur strax til
starfa. Fram-
kvæmdastjórar bank-
ans eru því sjö, fjórar
konur og þrír karlar.
Alls sóttu 65 manns
um starfið, 52 karlar og 13 konur.
Nýverið var tilkynnt um stofnun
rekstrar- og upplýsingatæknisviðs
Landsbankans sem sinna mun rekstri
tölvumálum almennt og auk þess sem
starfsmenn sviðsins hafa umsjón með
fasteignum bankans og fleiri þáttum. Á
sviðinu starfa um 350 manns. Jafnframt
því að veita forstöðu rekstrar- og upp-
lýsingatæknisviði mun Ragnhildur
stýra hagræðingarverkefnum sem
ganga þvert á bankann og starfsemi
hans.
Ragnhildur
til Landsbanka
Ragnhildur
Geirsdóttir
Sigurhjörtur Sigfús-
son hefur verið ráð-
inn fjármálastjóri
verkfræðistofunnar
Mannvits. Hann er
löggiltur endurskoð-
andi og viðskipta-
fræðingur frá Há-
skóla Íslands og
hefur víðtæka
reynslu á sínu sviði.
Áður starfaði Sigur-
hjörtur hjá Skiptum, móðurfélagi Sím-
ans, og þar áður hjá ýmsum stórum fyr-
irtækjum. Kona hans er Harpa Maren
Sigurgeirsdóttir námsráðgjafi og eiga
þau tvö börn.
Sigurhjörtur
til Mannvits
Sigurhjörtur
Sigfússon
Skrifað hefur verið undir viljayfirlýs-
ingu um stofnun Menntamiðju – sam-
ráðsvettvangs um skóla- og frístund-
astarf. Að samkomulaginu standa
menntamálaráðuneytið, Samband ís-
lenskra sveitarfélaga, Kennarasamband
Íslands, Menntavísindasvið Háskóla Ís-
lands, Hug- og félagsvísindasvið Há-
skólans á Akureyri og Reykjavíkurborg.
„Menntamiðja byggist á þeirri hug-
mynd að fólk þurfi að hittast, tala sam-
an og deila hugmyndum til að læra og
þróast í starfi,“ segir Anna Kristín Sig-
urðardóttir lektor og deildarforseti
kennaradeildar HÍ.
Hugmyndin er, segir hún, að nota
tæknina og búa til samfélög á netinu
þar sem fólk kemur saman úr ólíkum
áttum – svo úr verði suðupottur hug-
mynda og þekkingar.
Markmið Menntamiðju eru að byggja
brýr milli aðila innan skólasamfélags og
fagfólks í frístundastarfi með því að
skapa vettvang til samstarfs um þróun
starfsins. Er ætlunin að þetta verði sem
rammi utan um grasrótarstarf á ýmsum
sviðum.
Fjölmörg torg
Þegar hafa á vettvangi skólasam-
félagsins verið sett á laggirnar tungu-
málatorg, náttúruvísindatorg og sér-
kennslutorg sem var opnað nýverið.
Fleiri slík eru undirbúningi. Þorbjörg
Þorsteinsdóttir verkefnisstjóri segir
tungumálatorgið byggjast á samstarfi
fólks, símenntun, upplýsingarmiðlun,
námsefnisgerð, kennsluaðferðum og
ýmsum verkefnum. Hún segir mikla
grósku á tungumálatorginu og kenn-
arasamfélög blómstri þar sem fólk tali
saman, vinni saman, deili efni og spyrji
ráða.
sbs@mbl.is
Undirritun Fjölmargir koma að starfi Menntamiðjunnar og skrifuðu fulltrúar þeirra
stofnana og félagasamtaka undir samninga þar um á dögunum.
Verði suðupottur hug-
mynda og þekkingar
Menntamiðja vettvangur frístundastarfs
Viðburðastaðurinn, verslunin og
vinnustofan Flóra á Akureyri verður
opnuð á Akureyri í dag. Starfsemin er í
gamla kaupfélagshúsinu í Hafnarstræti á
Akureyri, en í því húsi var verslunin Frú-
in í Hamborg starfrækt síðustu ár. Í til-
efni af þessum umbreytingum verða
vinnustofu Flóru opnar í dag laugardag
frá kl. 15 til 17.
Gamla Kaupfélagshúsið á Akureyri
hefur því enn á ný fengið nýtt hlutverk,
en margvísleg starfsemi hefur verið í
húsinu frá því að það var reist af Pönt-
unarfélagi Eyfirðinga, sem síðar varð
KEA, árið 1898. Og nú er Flóra starf-
rækt á tveimur neðri hæðum hússins, en
eins og kunnugt er var Flóra áður rekin í
suðurhluta Listagilsins á Akureyri.
Áhersla á endurnýtingu
Með flutningnum var starfsemi Flóru
einnig víkkuð út að hluta. Jafnframt því
að vera verslun sem leggur áherslu á
endurunnar vörur, endurnýtingu og
náttúruvörur, ásamt myndlist, tónlist og
bókmenntum, hefur Flóra staðið fyrir
ýmsum viðburðum svo sem mynd-
listasýningum, upplestrum, gjörningum
og kvikmyndasýningum.
Sex manns verða með vinnustofu í
Flóru, fólk sem sinnir fjölbreytilegu
skapandi starfi eins og ljósmyndun,
saumum, skrifum, fræðistörfum, textíl-
þrykki og myndlist. Áherslan í starfinu
er endurvinnsla og endurnýting.
sbs@mbl.is
Fjölbreytni hjá Flóru
Akureyri Flóra á fallegum stað í bænum.
Viðburðir, verslun og vinnustofa á Akureyri