Morgunblaðið - 12.11.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Erum með allar gerðir af heyrnartækjum - einnig „ósýnileg“
ATH! Myndin sýnir tækin í raunstærð
Okkar markmið er að allir landsmenn heyri vel
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Aðsóknarmynstur íslenskra kvik-
myndahúsagesta hefur verið að
breytast síðustu ár og eru breyting-
arnar á marga vegu hagfelldar eig-
endum kvikmyndahúsanna. „Fyrir
bankahrun sáum við oft miklu meiri
sveiflur í aðsókn á milli mánaða.
Núna er aðsóknin mun jafnari og
skýrist m.a. af því að framan af
kreppunni dró úr samkeppninni á
afþreyingarmarkaðinum. Þegar
stórtónleikar með alþjóðlegum
stjörnum voru reglulegt fyrirbæri
þá dugði oft ekkert minna en virki-
lega góð kvikmynd til að fá eðlileg-
an fjölda gesta í kvikmyndahúsin,“
segir Jón Eiríkur Jóhannsson. „Nú
hefur samkeppnin aukist á ný, t.d.
með tilkomu Hörpunnar, en samt
er kvikmyndahúsunum að takast að
standa framboðið af sér. Mögulega
má leita skýringar í því að okkur
tekst að vera mjög framarlega í
frumsýningum mynda og erum að
sýna á sama tíma og Evrópa eða
Bandaríkin.“
Jón er rekstrarstjóri kvikmynda-
húsa Senu: Smárabíós og Háskóla-
bíós. Hann segir ekki hægt að neita
því að á heildina hafi aðsókn dregist
saman. „Ef ég man tölurnar rétt
varð 3% samdráttur á landsvísu á
síðasta ári, mælt í fjölda gesta.
Þrátt fyrir allt er þetta viðráðanleg-
ur samdráttur og kvikmyndahúsin
standa vel að vígi enda ferð á góða
kvikmynd ekki dýr leið til að gera
sér dagamun, sýna sig og sjá aðra.
Að horfa á kvikmynd kallar líka
ekki á mikla fyrirhöfn eða tíma, og
ef fólk gerir eins og Íslendinga er
siður og kemur 10 mínútum of seint
á myndina þá þarf ekki að borga
barnapíunni nema fyrir örstutta
pössun,“ bætir hann við og kímir.
Nýju tækin kosta sitt
Það leggur aukinn þrýsting á
rekstur kvikmyndahúsanna að
miklar tækniframfarir hafa orðið í
sýningarvélum síðustu árin og
krafa iðnaðarins að fjárfest sé í nýj-
um og dýrum tækjum. Gamla góða
35 mm filman er nær alveg horfin
úr notkun og stafræna tæknin búin
að taka yfir. „Í janúar útbjuggum
við síðasta salinn okkar með staf-
rænni sýningartækni. Til lengri
tíma litið á stafræna tæknin að
skila hagræðingu en enn er ekki
komin reynsla á hver líftími tækj-
anna á eftir að verða, og hvort staf-
rænu sýningarvélarnar endast jafn-
vel og 35 mm vélarnar sem dugðu í
tugi ára. Ef eitthvað bilaði í gömlu
vélunum þurfti bara að skipta um
kúlulegu og allt komst aftur í
gang.“
Krafan um endurnýjun sýning-
artækja er m.a. drifin áfram af þrí-
víddar-æðinu sem gripið hefur
Hollywood. Jón segir kvikmynda-
hús Senu í dag geta sýnt þrívídd-
armyndir í öllum sölum nema ein-
um litlum. „Þrívíddarmyndir kalla á
aukabúnað sem bætir um 20% ofan
á kostnaðinn við stafrænu sýning-
arvélarnar. Það verður helst að
hafa þrívíddargetu í öllum sölum
því annars missum við af mikilvæg-
um sveigjanleika í niðurröðun sýn-
inga og takmörkum notagildi húss-
ins.“
Þrívíddin ein og sér virðist ekki
lengur duga til að draga fólk í bíó.
Jón segir íslenska kvikmyndahúsa-
gesti meðvitaða um að ekki gefa all-
ar myndir jafnskemmtilega þrívídd-
arupplifun. „Það hefur líka verið
stopult framboð af góðum þrívídd-
armyndum upp á síðkastið, en á
næstunni eigum við von á tveimur
stórmyndum í þrívídd, The Hobbit
og Life of Pi, og búumst við að þær
geri mikla lukku. Ef sagan er góð
og myndin sérstaklega tekin með
möguleika þrívíddartækninnar í
huga þá flykkist fólk í bíó.“
Harðnandi slagur á afþreyingarmarkaði
Jafnari aðsókn að kvikmyndahúsunum nú en eftir hrun Hafa þurft að fjárfesta í dýrum sýningar-
tækjum til að mæta þörfum Hollywood Fólk flykkist í bíó til að sjá góðar þrívíddarmyndir
Morgunblaðið/RAX
Slagur „Nú hefur samkeppnin aukist á ný, t.d. með tilkomu Hörpunnar, en samt er kvikmyndahúsunum að takast
að standa framboðið af sér,“ segir Jón Eiríkur. Smávægilegur samdráttur í aðsókn átti sér þó stað á síðasta ári.
Það er oft ekki fyrr en ferðast er utan að Íslendingar komast að því hvað
landið býr að góðum kvikmyndahúsum. Jón Eiríkur segir aðbúnað í ís-
lenskum bíóum með besta móti. „Sú fjárfesting sem lögð hefur verið í
salina hvílir m.a. á því að Íslendingar eru með duglegustu þjóðum að fara
í kvikmyndahús. Þegar við þurfum að kaupa dýran tækjabúnað erlendis
furða seljendurnir sig stundum á að verið sé að kaupa svona vandaðan
búnað fyrir jafnlítinn markað, en þá bendum við þeim á að hlutfallslega
eru Íslendingar miklir kvikmyndaunnendur.“
Íslenskir neytendur gera um leið miklar kröfur og kvikmyndahús sem
halda ekki í við þróunina verða hratt undir í samkeppninni. „Þetta er ekki
eins og t.d. í kvikmyndahúsunum í miðborg Lundúna þar sem stöðugur
straumur er af ferðamönnum sem villast inn á bíósýningar. Þar eru
rótgróin kvikmyndahús sem rukka mikið fyrir miðann en bjóða upp á
hreint skelfilega sali. Ég heimsótti eitt þessara kvikmyndahúsa fyrir
stuttu og var þar t.d. sýnt hvernig stafræna sýningatæknin hafði verið
notuð til að breyta örsmárri kaffistofu starfsmanna í sýningarsal. Á öðr-
um stað hafði kvennasalerninu verið breytt í lítinn sal.“
Eigum mjög góða bíósali
GÓÐ AÐSÓKN LEYFIR FJÁRFESTINGU Í GÆÐUM
Forvitnilegt er að skoða hvernig
aðsóknin á ólíkar kvikmyndir
endurspeglar sálarástand þjóð-
arinnar. „Strax eftir hrun virtist
greinilegt að fólk leitaði meira í
léttar myndir og afþreyingu.
Kvikmyndahúsaferðin var leið
til að hreinsa hugann og
skemmta sér í skjóli fyrir öllu
því neikvæða sem var að gerast
í samfélaginu,“ segir Jón. „Svo
sjáum við fyrirbæri eins og
frönsku myndina Intouchables,
mjög óvenjulega mynd sem var
lítið auglýst en þeim mun meira
umtöluð á milli fólks. Þarna
varð fólk fyrir einhverri upplifun
og varð að deila með öðrum.“
Hvíld frá
kreppunni
AFÞREYING FYRIR SÁLINA
Tæknirisarnir Apple Inc. og HTC
Corp hafa grafið stríðsöxina í
bili. Fyrirtækin tilkynntu á laug-
ardag að þau hefðu náð sam-
komulagi um notkun á einka-
leyfatækni í farsímum sínum á
heimsvísu.
Samkomulagið, sem gildir til
tíu ára, lýkur deilu sem hófst árið
2010 þegar Apple höfðaði mál á
hendur taívanska farsímafram-
leiðandanum fyrir meint brot á
einkaleyfum.
Ekki hefur verið greint frá
smáatriðunum í samkomulagi
HTC og Apple en ætla má að
stórar fjárhæðir komi við sögu.
Er skemmst að minnast sigurs
Apple í máli gegn Samsung fyrr
á árinu, þar sem síðarnefnda fyr-
irtækið var skikkað til að reiða af
hendi rösklega milljarð dala.
Fréttaveita Reuters bendir á
að í deilum Apple við aðra fram-
leiðendur hafi fyrirtækinu orðið
hvað mest ágengt við að trufla
aðgang HTC að Bandaríkjamark-
aði. Alþjóðaviðskiptanefnd
Bandaríkjanna úrskurðaði seint
á síðasta ári að HTC hefði brotið
fjögur einkaleyfi Apple og var í
kjölfarið lagt bann við sölu á
HTC símum í Bandaríkjunum.
Hefur reksturinn gengið
brösulega hjá HTC upp á síð-
kastið en í síðasta mánuði sendi
fyrirtækið frá sér áætlun sem
hljóðar upp á 14,5% minnkun
tekna á fjórða ársfjórðungi.
ai@mbl.is
Apple og HTC sættast í einkaleyfadeilu
AFP
Græjur Ætli HTC gangi betur nú þeg-
ar deilurnar við Apple eru úr sögunni?
Hefð hefur skapast fyrir því í Banda-
ríkjunum að ræsa jólasöluna strax á
eftir þakkargjörðarhátíðinni.
„Svarti föstudagur“, föstudagur
eftir þakkargjörðarhátíð, hefur
markað upphaf jólavertíðarinnar og
reyna verslanir að freista við-
skiptavina með veglegum tilboðum.
Með hverju árinu hafa tilboðin batn-
að og kaupæðið magnast svo að
verslanir hafa þurft að glíma við
stórar þvögur og jafnvel ofbeldi og
upplausn. Árið 2008 lét t.d. starfs-
maður verslunar Wal-Mart lífið þeg-
ar hann tróðst undir þvögu kaup-
óðra viðskiptavina.
Hefur verið brugðist við þróun-
inni með því, meðal annars, að færa
opnunartímann stöðugt aftar. Nú
hefur Wal-Mart fært upphaf föstu-
dags-æðisins aftur um tvo tíma m.v.
síðasta ár, og gilda tilboðin frá kl. 8
að kvöldi fimmtudags. Reuters segir
Wal-Mart veðja á blómlega verslun í
ár og hefur smásölurisinn birgt sig
rækilega upp af raftækjum.
Spár hljóða upp á að jólasalan
vestanhafs muni aukast um 4,1%
milli ára. Sumir hafa gripið til þess
ráðs að opna snemma fyrir tilboðs-
verð á netinu. Meðlimir í vildar-
klúbbi Sears geta þannig verslað
með afslætti dagana 18. og 19. nóv-
ember. Margar verslanir verða lok-
aðar á þakkargjörðardag en opna
strax á miðnætti. ai@mbl.is
Jólasalan byrjar enn fyrr í ár