Morgunblaðið - 12.11.2012, Blaðsíða 3
BADMINTON
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Það hafa sjálfsagt sjaldan sterkari badmin-
tonspilarar sýnt kúnstir sínar í TBR-húsunum
í Laugardal en í gær þegar Taívaninn Chou
Tien Chen nældi sér í tvenn gullverðlaun á
hinu árlega Iceland International-móti. Chou
er í dag í 33. sæti á heimslistanum í einliðaleik
karla og það var því ekki við öðru að búast en
að hann ynni einliðaleikinn, sem þó var hörku-
leikur, sem og tvenndarleikinn þar sem hann
lék með Chiang Mei Hui. Taívanska parið
mætti Helga Jóhannessyni og Elínu Þóru Elí-
asdóttur úr TBR í úrslitaleik í gær og vann
21:16 og 21:9.
„Það er engin skömm að því að tapa gegn
þessu pari. Þau kunna alveg badminton, eru
fljót og sterk og slá fast. Þetta gekk vel hjá
okkur í byrjun leiks og við komum þeim
kannski svolítið á óvart með því að spila þetta
„pot-spil“. Við potuðum boltanum bara yfir
netið, ofan í lausu holurnar, en þau voru svo
búin að lesa í gegnum það þegar á leið,“ sagði
Helgi en þau Elín byrjuðu leikinn afar vel og
hefðu með smáheppni getað unnið fyrstu lot-
una. Chou og Chiang höfðu slegið út Íslands-
meistaraparið Atla Jóhannesson, bróður
Helga, og Snjólaugu Jóhannsdóttur í undan-
úrslitum jafnri viðureign, 21:18 og 21:17, en
þess ber að geta að taívanska parið leggur
áherslu á keppni í einliðaleik.
Það er til marks um hve sterkt mót Iceland
International er orðið að keppendur á borð við
Chou skuli taka þátt en einnig má nefna þátt-
töku þeirra Lee So Hee og Shin Seung Chan
frá Suður-Kóreu sem eru heimsmeistarar í tví-
liðaleik stúlkna 19 ára og yngri og lönduðu
gullverðlaunum í gær.
Sterkustu spilararnir hingað til
„Ég held að við höfum verið að fá sterkustu
spilarana sem við höfum fengið hingað til. Það
er mjög gaman að sjá svona mikið af asískum
spilurum, þaðan eru náttúrulega sterkustu
spilararnir og það var frábært að fá til dæmis
heimsmeistara unglinga í tvíliðaleik kvenna.
Það gefur íþróttinni skemmtilegan svip hér á
landi að fá svona sterka keppendur – að fólk fái
að sjá hér á landi badminton eins og það gerist
best,“ sagði Helgi sem er orðinn þrítugur og á í
sínu safni samtals 16 Íslandsmeistaratitla í
einliða-, tvíliða- og tvenndarleik.
Hann er fús til að færa þá fórn að eiga minni
möguleika á gullverðlaunum á Iceland Int-
ernational, líkt og aðrir íslenskir keppendur,
gegn því að fá til landsins svo sterka spilara.
Veitir yngri keppendum innblástur
„Þetta er auðvitað dálítið á okkar kostnað að
því leyti að við eigum minni möguleika á verð-
launum en ég er viss um að það veitir yngri
keppendum okkar innblástur að sjá svona
góða spilara. Þau sjá hvernig þetta er og hvað
þau þurfa að gera, og taka vonandi þessa helgi
sem lærdóm,“ sagði Helgi sem hefur spilað
með Elínu í rúm þrjú ár en Elín er aðeins tví-
tug og á framtíðina fyrir sér í íþróttinni.
„Hún er dugleg og stendur sig vel. Hún er
fljót að læra og tekur vel leiðsögn þannig að
mér fannst alveg upplagt að reyna að stíla upp
á eitthvað með henni. Ég veit ekki hversu mik-
ið ég held áfram í þessu en ég vona að hún geti
nýtt þennan tíma sem við höfum spilað saman.
Ég er sjálfur búinn að minnka talsvert við mig
í þessu, kominn með fjölskyldu og svona, en
þetta var samt vonandi ekki í síðasta skiptið
sem ég keppi á þessu móti,“ sagði Helgi.
Ragna Ingólfsdóttir, besta badmintonkona
sem Ísland hefur átt, var áskrifandi að gull-
verðlaunum á Iceland International-mótinu en
hún lagði sem kunnugt er spaðann á hilluna
eftir Ólympíuleikana í sumar. Þar með vann
enginn Íslendingur til gullverðlauna á mótinu í
ár. Fyrrnefnd Chiang frá Taívan tók við af
Rögnu og vann einliðaleik kvenna en Akvile
Stapusaityte frá Litháen, sem tapaði fyrir
Rögnu á ÓL en var talinn sterkust fyrir mótið,
féll út í undanúrslitum.
Í tvíliðaleik karla unnu Joe Morgan og Nic
Strange frá Wales þá Martin Campbell og Pat-
rick Machugh frá Skotlandi í úrslitum. Skot-
arnir höfðu slegið út Helga og Magnús Inga
Helgason í hörkuleik; 21:18, 20:22 og 21:15.
Morgunblaðið/Kristinn
Einbeitt Elín Þóra Elíasdóttir mundar hér spaðann í úrslitaleiknum í tvenndarleik á Iceland International-mótinu í badminton um helgina og Helgi Jóhannesson fylgist einbeittur með.
Badminton úr besta flokki
Elín Þóra og Helgi stóðu í sterku pari á Iceland International Mótið laðar að sífellt betri spilara
Enginn Íslendingur vann til gullverðlauna Taívani tók við titlinum af Rögnu Ingólfsdóttur
Iceland International
» Helgi Jóhannesson og Elín Þóra Elías-
dóttir unnu ein Íslendinga til verðlauna
en þau fengu silfur í tvenndarleik.
» Chou Tien Chen og Chiang Mei Hui frá
Taívan unnu tvenndarleikinn sem og
báða einliðaleiksflokkana.
» Joe Morgan og Nic Strange frá Wales
unnu tvíliðaleik karla og Lee So Hee og
Shin Seung Chan frá S-Kóreu í kvenna.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
Jón Arnór Stefánsson landsliðsmaður í
körfuknattleik átti frábæran leik fyrir Zara-
goza í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi
er liðið vann góðan 15 stiga útisigur á Es-
tudiantes, 83:68.
Jón Arnór var stigahæstur í liði Zaragoza
með 16 stig en hann hitti úr fjórum af sex
þriggja stiga skotum sínum, nýtti bæði víta-
skot sín og skoraði eina tveggja stiga körfu.
Jón Arnór tók þar að auki 3 fráköst og átti
eina stoðsendingu.
Zaragoza náði góðu forskoti í 2. leikhluta
sem liðið vann 29:15 og hélt því út leikinn. Liðið hefur nú unnið
fjóra leiki af sjö líkt og Estudiantes og fleiri lið sem saman eru
í 7.-12. sæti deildarinnar.
Hauki Helga Pálssyni og félögum í Manresa gengur hins
vegar allt í óhag og þeir skoruðu aðeins 47 stig gegn Barcelona
í 42 stiga tapi um helgina. Manresa er á botni deildarinnar og
enn án stiga. sindris@mbl.is
Jón Arnór stiga-
hæstur í útisigri
Jón Arnór
Stefánsson
Óskar Bjarni Óskarsson og lærisveinar hans í danska úrvals-
deildarliðinu Viborg fögnuðu langþráðum sigri í gær þegar þeir
lögðu Århus að velli í spennuleik, 23:21, í 10. umferð. Viborg
hafði leikið fimm leiki í röð í deildinni án sigurs, og tapað fjór-
um þeirra, en liðið er nú með sex stig í 10. sæti af 14 í deildinni,
tveimur stigum á eftir Århus.
Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Viborgar-liðins voru
fagnaðarlæti leikmanna í leikslok gríðarleg þar sem menn féll-
ust í faðma og kættust yfir að hafa innbyrt nauman sigur en
Århus hafði minnkað muninn í eitt mark þegar tvær mínútur
voru til leiksloka. Línumaðurinn stæðilegi Orri Freyr Gíslason
var ekki á meðal markaskorara hjá Viborg að þessu sinni.
Bjerringbro-Silkeborg, lið Guðmundar Árna Ólafssonar, er
efst Íslendingaliðanna í Danmörku en liðið vann Skjern 29:28
um helgina og er í 2. sæti með 17 stig, tveimur stigum á eftir
toppliði Kolding.
Atli Ævar Ingólfsson, Anton Rúnarsson og félagar þeirra í
SönderjyskE eru í 6. sæti með 10 stig, og Einar Ingi Hrafnsson
og félagar í Mors-Thy sæti neðar. sindris@mbl.is
Lærisveinar Óskars
ærðust af fögnuði
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er úr leik á
úrtökumótunum fyrir Evrópumótaröðina í
golfi eftir að hafa leikið samtals á höggi yfir
pari á 72 holum í Murcia á Spáni.
Birgir lék síðasta hringinn á laugardaginn á
parinu. Hann spilaði jafnt og gott golf í mótinu
og hafnaði í 35. sæti af 75 kylfingum. Hann
hefði hins vegar þurft að vera jafn þeim sem
enduðu í 18.-21. sæti til að komast áfram.
Birgir lék hringina á 70, 73, 71 og 71 höggi
en hefði þurft að komast undir 70 höggin á
einum til tveimur hringjum til að komast
áfram. Hann verður væntanlega tveimur til þremur höggum frá
því að komast á þriðja og síðasta stigið því þegar upp var staðið
vantaði hann fjögur högg upp á.
Birgi gekk illa framan af á lokahringnum og var á þremur yfir
pari eftir níu holur. Hann lagði ekki árar í bát og sneri skorinu
við á seinni níu. Birgir keppir næst á 2. stigi úrtökumótanna fyrir
PGA-mótaröðina og tímabilinu er því ekki lokið. kris@mbl.is
Fjórum höggum frá
því að komast áfram
Birgir Leifur
Hafþórsson