Morgunblaðið - 12.11.2012, Page 4
DÓMGÆSLA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Dómaraparið Gísli Hlynur Jóhanns-
son og Hafsteinn Ingibergsson
dæmdi tímamótaleik síðastliðinn
laugardag fyrir framan 1.800 manns
í Kaplakrika og í beinni sjónvarps-
útsendingu þegar Hafnarfjarðarliðin
FH og Haukar mættust í N1-deild
karla á laugardaginn. Þeir félagar
eru orðnir óhemju reyndir og eru á
sínu þrítugasta og fyrsta keppn-
istímabili sem dómarar og hafa
dæmt saman alla tíð.
„Við höfum tekið þetta saman í
gegnum tíðina og okkur reiknaðist
til að þetta væri leikur númer 1.500.
Á ári dæmum við í kringum fimmtíu
leiki. Það hefur stundum verið
minna en svo höfum við einnig farið
upp í sextíu leiki eins og gerðist í
hitteðfyrra. Þegar við byrjuðum þá
dæmdum við gjarnan í mótum hjá
yngri flokkum en þá var handbolti
töluvert iðkaður í Keflavík. Ég
myndi halda að meistaraflokksleik-
irnir væru í kringum 1.300 talsins,“
sagði Gísli en þeir félagar eru báðir
búsettir í Reykjanesbæ.
Hvað eru mínúturnar margar?
Gísli getur ekki neitað því að þessi
tala sé nokkuð yfirþyrmandi. „Jú og
maður fór að hugsa hversu mörgum
mínútum er búið að eyða í þetta. Nú
er tímabil númer 31 að byrja hjá
okkur því við byrjuðum svo ungir, 16
og 17 ára,“ sagði Gísli og þótti vænt
um að tímamótaleikurinn væri stór-
leikur á milli Hafnarfjarðarliðanna .
„Jú, það var rosagaman. Þetta eru
náttúrlega skemmtilegustu leikirnir
að dæma. Þá er fullt hús af fólki og
hávaði og læti. Þá heyrir maður
aldrei þegar gargað er á mann og
adrenalínið er á fullu. Slíkir leikir
eru skemmtilegri heldur en leikir
sem maður dæmir með fjörutíu og
fimmtíu áhorfendum. Þá heyrir
maður alltaf í þessum eina áhorf-
anda sem er að garga. Við þessar
aðstæður er hins vegar adrenalínið á
fullu og æðislega gaman,“ sagði Gísli
ennfremur.
Miðað við þær móttökur sem
dómarar fá gjarnan hjá áhorfendum
og þátttakendum í leikjunum þá
veltir maður fyrir sér hvort það sé
einhvers konar sjálfseyðingarhvöt
að vera í dómgæslu í þrjá áratugi.
Hvernig geta menn haldið svo lengi
út í jafn vanþakklátu starfi?
Hafa lent í hrakningum
„Það er góð spurning. Ætli það sé
ekki bara vegna þess að við höfum
gaman af þessu. Langt er síðan við
komumst yfir erfiðan hjalla. Auðvit-
að höfum við lent í ýmsum hrakn-
ingum í þessu starfi og hinum og
þessum uppákomum. Við vorum eitt
sinn skildir eftir á Akureyri sem
dæmi. Útiliðið tapaði og þegar við
komum út á flugvöll þá var leiguvél-
in bara farin til baka með liðið en við
sátum eftir. Við þurftum því að gista
eina nótt á Akureyri,“ sagði Gísli og
blaðamaður tapar baráttunni við
hláturinn.
Spurður hversu lengi þeir sjái fyr-
ir sér að halda áfram dómgæslu þá
segist Gísli reikna með því að það
gæti orðið í nokkur ár í viðbót. „Við
ætluðum að láta tímabil númer þrjá-
tíu duga og hætta því eftir síðasta
keppnistímabil. Við vorum ekki al-
veg tilbúnir til þess þegar að því
kom á þeim tímapunkti og nú geri
ég ráð fyrir því að við tökum eitt til
þrjú ár í viðbót. Ég er 47 ára og ég
ætla ekki að dæma þegar ég er orð-
inn fimmtugur. Þá er þetta orðið
fínt. Þetta hefur haldið manni í
hreyfingu því maður verður að fara í
ræktina og svona til að geta dæmt.
Það er jákvætt. Á meðan við höfum
gaman af þessu þá höldum við
ótrauðir áfram,“ sagði Gísli enn-
fremur.
Mikill vinskapur
Gísli bendir á að merkilegt sé að
Betra að
dæma í
fjölmenni
Dómaraparið Gísli og Hafsteinn hef-
ur dæmt saman 1.500 handboltaleiki
Er á sínu 31. keppnistímabili
Morgunblaðið/Kristinn
Rökstuðningur Gísli Jóhannsson ræðir málin í leik FH og Hauka.
Áminning Hafsteinn Ingi-
bergsson gefur gult
spjald í leik FH og Hauka.
KÖRFUBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta var alveg rosalegt. Maður titraði alveg í
langan tíma eftir leikinn og sofnaði með bros
allan hringinn,“ sagði Salbjörg Sævarsdóttir
leikmaður Njarðvíkur eftir magnaðan sigur á
Fjölni, 95:94, í framlengdum leik í Dominos-
deildinni í körfuknattleik á laugardag. Fjölnir
virtist ætla að landa sigri en Sara Dögg Mar-
geirsdóttir jafnaði metin með þriggja stiga
körfu í blálok venjulegs leiktíma. Það voru
jafnframt einu stig hennar í leiknum.
„Hún kom bara ísköld inn af bekknum og
„smellt’onum“. Hún er búin að vera að setja
þessi skot niður í allan vetur,“ sagði Salbjörg
sem lét ekki sitt eftir liggja og skoraði 16 stig
auk þess að taka 12 fráköst og verja 4 skot.
Frammistaða Lele Hardy hjá Njarðvík og
Britney Jones hjá Fjölni skyggði þó á allt ann-
að en Hardy skoraði 44 stig og tók 22 fráköst!
„Hún er fáránlega góð. Það er bara ekki
hægt að stoppa hana. Ég græt það ekkert,“
sagði Salbjörg og hló en ótrúlegt en satt þá var
Jones með enn betra framlag því hún skoraði
46 stig, tók 13 fráköst og gaf 12 stoðsendingar.
„Hún er líka rosalega góð og í þessum leik
þá hitti hún bara úr öllu. Það var gott að við
skildum ná sigri þrátt fyrir það.“
Miklar breytingar urðu á liði Njarðvíkur frá
því í vor er liðið varð Íslandsmeistari og óhætt
að segja að nú sé teflt fram þrælungu liði, sér-
staklega eftir að Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir
ákvað að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla.
„Grindvíkingarnir þrír [Petrúnella Skúla-
dóttir, Ólöf Helga Pálsdóttir og Harpa Hall-
grímsdóttir] fóru náttúrulega fyrir leiktíðina
og nú er Ingibjörg hætt sem er mikið áfall
enda er hún hrikalega góð. Núna er staðan því
þannig að við Lele erum þær einu í liðinu sem
ekki mega spila með unglingaflokki. Við erum
því með mjög ungt lið en mér finnst hafa geng-
ið vel þrátt fyrir það. Það kom smákafli sem
gekk ekki nægilega vel en það hefur verið góð-
ur andi í liðinu,“ sagði Salbjörg.
Njarðvík er nú með 6 stig í 5. sæti en Fjölnir
á botninum með 2 stig.
„Þær [Fjölniskonur] eru með mjög gott lið
og liðin í deildinni eru náttúrlega mjög jöfn
núna þannig að þetta getur alltaf dottið hvor-
um megin sem er. Við ætlum alla vega ekki að
vera í neinni botnbaráttu. Við stefnum bara á
að bæta núna við fleiri sigrum,“ sagði Sal-
björg.
Keflavík er enn með fullt hús stiga á toppi
deildarinnar eftir 8 leiki en liðið vann Hauka
82:68. Grindavík vann KR 80:60 í fyrsta leik
eftir að Guðmundur Bragason og Crystal
Smith voru ráðin sem þjálfarar liðsins, og
Snæfell vann Val 88:54.
„Maður titraði í langan
tíma eftir leikinn“
Njarðvík vann Fjölni í framlengdum leik Keflavík með fullt hús stiga
Frábær Lele Hardy fór
gjörsamlega á kostum og
skoraði 44 stig auk þess
að taka 22 fráköst þegar
Njarðvík marði sigur á
Fjölni í framlengdum
leik þar sem Hardy
tryggði sigurinn.
Dominos-deildin
» Njarðvík vann Fjölni með dramatískum
hætti , 95:94, eftir framlengdan leik og
skildi Fjölni eftir á botni deildarinnar.
» Keflavík er með fullt hús stiga á toppi
deildarinnar eftir 8 leiki en liðið vann
Hauka 82:68 um helgina.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
ÍBV vann stórsigur á Fylki, 30:15, í
N1-deild kvenna í handbolta um
helgina þar sem Simona Vintale
skoraði sjö mörk fyrir Eyjakonur
og Guðbjörg Guðmannsdóttir bætti
öðrum sex við. Sigurinn lyfti ÍBV
upp í annað sæti deildarinnar sem
það getur notið um stund en Vals-
konur, sem voru uppteknar í Evr-
ópuverkefni þessa helgina, eru stigi
á eftir ÍBV og eiga tvo leiki til góða.
FH heldur áfram góðu gengi sínu
í N1-deildinni en liðið er í fjórða
sæti með tólf stig eftir sigur á
Gróttu í Kaplakrika, 25:23. Grótta
var yfir í hálf-
leik, 12:11, og
mikil spenna var
í leiknum undir
lokin. FH tryggði
sér sigurinn með
marki úr víta-
kasti í síðustu
sókn sinni en
Grótta er í sjö-
unda sæti með
sjö stig. Aníta
Mjöll Ægisdóttir fór á kostum fyrir
FH og skoraði níu mörk en Sunna
María Einarsdóttir skoraði sex
mörk fyrir Gróttuna.
Stjarnan átti ekki í vandræðum
með Selfoss og vann stóran úti-
sigur, 32:25. Munurinn var þó ekki
nema fjögur mörk í hálfleik, 14:10.
Hanna G. Stefánsdóttir skoraði níu
mörk fyrir Stjörnuna og Jóna
Ragnarsdóttir bætti við sex mörk-
um.
Haukar unnu öruggan sigur á
Aftureldingu, 29:19, en staðan í
hálfleik var 17:16. Karen Sigurjóns-
dóttir skoraði sjö mörk fyrir Hauka
en Hekla Daðadóttir setti sex fyrir
gestina. tomas@mbl.is
ÍBV heldur öðru sætinu volgu fyrir Val
Florentina
Stanciu
Það virðist ætla að reynast
stórveldum körfuboltans á
Íslandi erfitt að taka með sér
keppnisbúninga til Ísafjarð-
arbæjar en KR-ingar léku
eftir klaufaskap Keflavíkur í
síðasta mánuði og mættu
búningalausir í leik sinn
gegn KFÍ í Lengjubikarnum
í gærkvöldi.
KR vann þó leikinn, 96:82,
eins og Keflavík og verða Ís-
firðingar eflaust ekki svo gestrisnir aft-
ur að lána varabúninga sína. Það hefur
ekki boðað lukku hingað til.
Í Hertz-hellinum í Breiðholti
vann ÍR sigur á Þór frá Þorláks-
höfn í framlengdum leik, 110:107,
þar sem Isaac Miles skoraði 38
stig fyrir ÍR og Benjamin Curtis
31 stig fyrir Þór.
Í öðrum leikjum vann Tinda-
stóll sigur á 1. deildar liði Breiða-
bliks, 87:77, þar sem George Val-
entine skoraði 24 stig fyrir
heimamenn og Keflvíkingar
unnu annað lið úr 1. deild,
Hauka, 90:79, á útivelli. Michael Craion
skoraði 26 stig fyrir Keflavík og tók 18
fráköst. tomas@mbl.is
KR vann í búningum KFÍ
Helgi Már
Magnússon