Morgunblaðið - 12.11.2012, Qupperneq 5
sama parið dæmi jafnlengi saman.
„Okkur finnst þetta hafa gengið
ágætlega í gegnum tíðina. Við höfum
dæmt saman í öll þessi ár og það er
afrek út af fyrir sig að halda það út.
Við erum mjög góðir vinir sem og
okkar konur. Það stendur einnig
upp úr eftir þessi ár. Í meist-
araflokki hef ég líklega ekki dæmt
nema fimm eða sex leiki með öðrum
en Hafsteinn hefur gert meira af
því. Ég dæmdi einnig í fótboltanum í
tuttugu og fimm ár en hætti því fyr-
ir sex árum síðan. Eitt tímabilið
dæmdi ég fótboltaleik á Valbjarn-
arvelli klukkan 14 á laugardegi.
Hann var búinn um kl 16 og ég
flautaði leik á í Garðabæ á milli
Stjörnunnar og FH í handbolta
klukkan 16:30. Þetta yrði nú ekki
gert í dag,“ sagði Gísli og hló.
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í KAPLAKRIKA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hafnarfjarðarslagurinn á milli FH og
Hauka varð aldrei sú mikla rimma
sem handboltaunnendur vonuðust
eftir. Liðin mættust í N1-deildinni í
Kaplakrika á laugardaginn en leik-
urinn varð ekki sú skemmtun sem
leikir þessara liða hafa oft verið, alla
vega ekki fyrir okkur sem erum hlut-
laus þegar kemur að ríg þessara fé-
laga. Haukar náðu ágætu forskoti í
fyrri hálfleik og bættu jafnt og þétt
við það í síðari hálfleik. Niðurstaðan
varð stórsigur Hauka 31:18 og stuðn-
ingsmenn FH voru byrjaðir að yf-
irgefa húsið þegar enn voru tíu mín-
útur til leiksloka.
Leikurinn markaði endurkomu Ás-
björns Friðrikssonar í Kaplakrikann
en hann hefur leikið í Svíþjóð í rúmt
ár. Ásbjörn skilaði sínu og var marka-
hæstur með 6 mörk og virðist vera í
fínu formi. Ásbjörn og Logi Geirsson
hafa bæst við leikmannahóp FH á síð-
ustu vikum. Til lengri tíma litið mun
það vafalaust styrkja lið þeirra til
mikilla muna en skammtímaáhrifin
eru kannski ekki eins góð. Það má
velta því fyrir sér hvort innkoma
þeirra hafi riðlað eitthvað sóknarleik
FH. Því verður alla vega ekki á móti
mælt að sóknarleikurinn var mjög
stirður og FH-ingar grófu eiginlega
sína eigin gröf í leiknum með því að
tapa boltanum ítrekað í sókninni.
Tvítugur varamarkvörður
Varnarleikur Hauka var að sjálf-
sögðu mjög góður eins og marka-
skorið gefur til kynna og auðvitað
hafði það sín áhrif á það hversu illa
FH-ingum gekk að ógna marki
Hauka. Þar stóð landsliðsmarkvörð-
urinn Aron Rafn Eðvarðsson til að
byrja með. Hann fann sig ekki og þá
dúkkaði upp tvítugur markvörður,
Einar Ólafur Vilmundarson. Hann
var númer þrjú í goggunarröðinni í
haust en Giedrius Morkunas slasaðist
á dögunum og nú fékk Einar tækifær-
ið. Hann spilaði í liðlega 45 mínútur
og varði 14 skot.
„Það er virkilega gaman að vera
hérna í fullu húsi þegar FH og Hauk-
ar eru að spila. Stemningin var brjál-
uð og þetta var mjög skemmtilegt,“
sagði Einar þegar Morgunblaðið
ræddi við hann að leiknum loknum.
Hann sagðist ekki hafa reiknað með
jafn afgerandi úrslitum og raun bar
vitni. „FH-liðið er mjög sterkt enda
bæði með góðan þjálfara og virkilega
góða leikmenn. Þeir voru að fá Ás-
björn aftur til sín og eru vel spilandi
lið. Okkar leikur small saman í dag,
vörnin var góð og sóknarleikurinn ag-
aður.“
Flestir Haukanna á pari
Einar var hógvær þegar talið barst
að hans frammistöðu. „Við erum þrír
markmennirnir og ég kom inn í þetta
óvænt eftir að Morkunas lenti í vinnu-
slysi. Þá verður maður að svara kall-
inu og vera tilbúinn. Aron Rafn er frá-
bær markmaður en var eitthvað
slappur í dag og hefur verið und-
anfarið. Vonandi hristir hann það af
sér og við vinnum þetta saman,“ sagði
Einar sem er á sínu öðru ári í meist-
araflokki Hauka.
Flestir leikmanna Hauka voru á
pari í leiknum og leikur liðsins var ag-
aður bæði í vörn og sókn. Margir leik-
menn komu við sögu og lögðu allir sitt
af mörkum. Þeir munu lifa á þessum
úrslitum næstu vikurnar enda ekki á
hverjum degi sem Haukar vinna
þrettán marka sigur í Kaplakrika fyr-
ir framan 1800 manns.
Á mbl.is/sport/handbolti er að
finna myndbandsviðtöl við þá Ásbjörn
Friðriksson úr FH og Stefán Rafn
Sigurmannsson úr Haukum.
Morgunblaðið/Kristinn
Liðleiki Andri Berg Haraldsson FH sýnir Tjörva Þorgeirssyni Haukum hversu liðugur hann er.
Grófu sína eigin gröf
FH-ingum tókst ekki að veita Haukum mótspyrnu í Hafnarfjarðarslagnum
Næsta auðveldur þrettán marka sigur Hauka í Kaplakrikanum 31:18
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
Rhein-Neckar Löwen er áfram með fullt hús stiga eftir
ellefta sigurleikinn í röð á tímabilinu í þýsku 1. deildinni í
handknattleik en Íslendingaliðin þrjú á toppi deildarinnar
unnu öll sigra um helgina.
Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Löwen
unnu Gummersbach á útivelli, 30:28, þar sem Alexander
Petersson skoraði 5 mörk og var næstmarkahæstur.
Sveinar Alfreðs Gíslasonar í meistaraliði Kiel eru stigi á
eftir Löwen en þeir unnu N-Lübbecke í gær, 30:23, þar
sem Aron Pálmarsson skoraði 4 mörk og Guðjón Valur
Sigurðsson 2.
Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar, vann svo Lemgo
21:19 og er áfram í 3. sæti deildarinnar, fjórum stigum frá toppnum. Lemgo
minnkaði muninn í eitt mark þegar rúm mínúta var til leiksloka en nær
komst liðið ekki. sindris@mbl.is
Þjálfaratríóið á sigurbraut
Aron
Pálmarsson
Skotíþróttamaðurinn Ásgeir Sigur-
geirsson sigraði báða andstæðinga sína
um helgina þegar hann tók þátt í tveimur
viðureignum með liði sínu SV Gros und
Kleinkaliber Hannover í þýsku 2. deild-
inni í skotfimi. Liðið tapaði fyrri viður-
eigninni 3:2 en vann þá síðari með sama
mun. Fimm skotmenn keppa fyrir hvort
lið í hverri viðureign og er Ásgeir númer
eitt í röðinni hjá sínu liði.
Ásgeir og félagar eru nú efstir í norð-
urhluta deildarinnar með vinningshlut-
fallið 14:6 og í góðum málum í baráttunni
um sæti í 1. deild en þangað stefnir liðið
fullum fetum. sindris@mbl.is
Ásgeir vann báða og Hannover í efsta sæti
Morgunblaðið/Golli
Mikilvægur Ásgeir Sigurgeirsson skilaði sínu fyrir Hannover um helgina en
það dugði þó aðeins til sigurs í annarri af tveimur viðureignum liðsins.
Íþróttahúsið Kaplakrika, úrvalsdeild
karla, N1-deildin, laugardaginn 10.
nóvember 2012.
Gangur leiksins: 1:0, 3:2, 3:4, 6:4,
6:7, 7:7, 7:13, 8:13, 8:14, 10:15, 11:17,
14:20, 14:27, 15:27, 15:30, 18:31.
Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 6/1,
Ólafur Gústafsson 4, Ragnar Jóhanns-
son 3, Einar Rafn Eiðsson 2/1, Bjarki
Jónsson 1, Jóhann Karl Reynisson 1,
Sigurður Ágústsson 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 8
(þar af 2 aftur til mótherja), Sigurður
Örn Arnarson 1.
Utan vallar: 10 mínútur. (Ari Þorgeirs-
son fékk rautt spjald fyrir brot).
Mörk Haukar: Stefán Rafn Sig-
urmannsson 10/1, Sveinn Þorgeirsson
5, Jón Þorbjörn Jóhannsson 4, Adam
Haukur Bamruk 3, Elías Már Hall-
dórsson 3, Gísli Jón Þórisson 2, Árni
Steinn Steinþórsson 2, Egill Eiríksson
1, Tjörvi Þorgeirsson 1.
Varin skot: Einar Ólafur Vilmundarson
14 (þar af 3 aftur til mótherja), Aron
Rafn Eðvarðsson 1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Haf-
steinn Ingibergsson.
Áhorfendur: 1.800.
FH – Haukar 18:31